Austri - 15.12.1964, Síða 12
12
AUSTRI
Jólin 1964.
ir Jóhönnu og gerðum við það.
Þá fórum við inn í Sandhús og
flengdum fyrst Egil, en síðan
fórum við upp á loft og flengdum
Jóa og Baldur ógurlega fast.
Svo fórum við aftur út að
Brekku og Jóa flengdi þá alla á
ný, Vilhjálm, Pál og Fúsa.
En morguninn eftir bárust þær
leiðinlegu fréttir, að það hefði
verið Sigurjón frá Eldleysu sem
við flengdum í rúmi Jóa, en ekki
Jói sjálfur!
(Heimastíll, febr. ’64).
----- ---------
ANNA VILHJÁLMSDÓTTIR:
Ferð um fjöll og
heiðar
Það var í vor
að við pabhi
fórum gangandi
til Seyðisfjarðar.
Veður var frem-
ur gott, en þoku-
slæðingur.
Klukkan var far-
in að ganga sex,
þegar lagt var
af stað. Við röbbuðum1 saman á
leiðinni og vorum í bezta skapi.
Við lögðum nú í mesta bratt-
ann og gekk vel. Þar var dálátið
skarð sem maður gengur í gegn-
um og klettar báðum megin. Þar
sáum við kjálka úr hesti og eina
jöklasóley. Pabbi sagði mér sögu
um mann og hesta, sem hröpuðu
þarna. Hestarnir dóu, en maður-
inn slapp lifandi. Svo héldum við
áfram og yfir fjallið.
Nú fórum við að gæða okkur á
nestinu og drukkum vatn með.
Svo héldum við áfram og allt
gekk vel. Það fór að halla niður í
móti og komum við niður í Aust-
dalinn. Þar voru fjórar eða fimm
útigangskindur. Sýndist okkur
markið vera sýlt í stúf, en það
er markið heima. Svo sáum við
líka lóu og fjögur lóuegg í
hreiðri.
Þokan var orðin nokkuð dimm.
Og enn héldum við áfram og inn
að Þórarinsstöðum. Þar fórum
við útaf veginum, sem liggur heim
að Hánefsstöðum og pabbi ætlaði
að villast framhjá bænum. Við
bönkuðum uppá og Svanþrúður
kom til dyra og bauð okkur vel-
komin. Við fórum inn í baðher-
bergið og snyrtum okkur til og
fórum í önnur föt. Og pabbi var
svo sveittur að hann varð að fara
í bað, en ég fór fram að tala við
fólkið. Svo kom pabbi og við sett-
umst að snæðingi og fórum síðan
að hátta.
Kl. sjö morguninn eftir fór
pabbi inn í kaupstað til Her-
manns og Guðnýjar. En ég fór út
í fjós og horfði á þegar verið var
að mjólka. Og ekki má gleyma
því, að ég fór oft að skoða tarf-
inn og þá bölvaði hann mikið.
Eftir mjaltir fór ég með Jóni
inn í bæ, þangað sem pabbi var.
Þar sá ég afar gamla konu, sem
lá í rúminu. Guðný gaf mér app-
elsínu og svo fór ég að tala við
gömlu konuna. Og ég þurfti að
tala nok'kuð hátt svo að hún
heyrði. Mig minnir hún vera 93
ára gömul. Ég fór í mörg hús til,
og sá margt gam'alt fólk. Og svo
fórum við með voða fínum manni
á landróver upp í Hérað. Hann
heitir víst Sigurður og á heima á
Reyðarfirði. Hann keyrði nokkuð
hart.
Við skoðuðum Guttonmslund
og svo Gróðrastöðina. Þar sáum
við margt skrítið. Svo fórum við
upp í Hallormsstaðaskóla, þar
fengum við góðan mat og frk.
Guðrún forstöðukona sýndi okk-
ur húsið. Eftir það fóruim' við tii
Sigurðar Blöndal. Það var einn
strákur þar sem hét Benedikt,
hann var ailtaf að stríða mér.
Svo hittum við Hrafn og fór-
um síðan út af Hafursá og þar
var nú gaman að vera.
Síðasta daginn fórum við út að
Þrándarstöðum. Þar sá ég 100
hænur og fékk dýrindismat. Jó-
hann fór með okkur á Guddunni
langt inn á Slenjudal og krakk-
arnir fylgdu okkur. Þar kvöddum
við þau og fórum að labba af
stað heim. Inn á heiði mættum
við Fúsa, Boggu, Hjala, Steina.
Kidda og Stebba og fórum imeð
þeim heim á bílnum. Hann stóð
neðan við snjóinn, sem var efst.
Þetta var bara skemmtilegt
ferðalag, þó ég imissti reyndar
bæði af bíói og balli heima.
(Heimastíll, des. ’63).
— &------------
BJÖRN JÓNSSON:
Ævintýri í Reykja-
vík
Það er
gaman að
Reykjajvík,
mér finndii
ekki
kvöldið se
var hjá
minni, því
ég að ska
sagði, að ég
fara heim. Mamma sagði, að við
værum komin svo langt að það
væri ekki hægt að komast heim í
kvöld og þetta mundi lagast þeg-
ar ég væri búinn að sofa. Og það
reyndist vera svo.
Nú var það einn dag, að við
mamma og Helga fórum í hús
eitt. Þar sýndi ein stelpa okkur
Grýlu, að minnsta kosti sagði hún
það væri Grýla. Hún lá á legu-
bekk niðri í kjallara, steinsofandi
og hún hraut hátt. Mér sýndist
hún hafa voða stóra vömb og
stór pottur stóð þar rétt hjá, se.m
hún hefur sjálfsagt ætlað að
sjóða eitthvað í. Það héldum við
Helga að minnsta kosti. Við
þorðum ekki að láta heyra neitt
í okkur svo hún vaknaði ekki, því
við vorum hrædd um að hún
mundi taka okkur ef hún vaknaði.
Svo var það einn dag, að við
mamma og Helga vorum að fara
niður á símstöð til að tala við
pabba. Það var mikið af fólki
fyrir utan símstöðina. Allt í einu
kom strákur á skellinöðru og
hjólaði niður tröppur sem lágu
inn í garð. Mig langaði að sjá
hvert hann færi og hljóp inn í
garðinn á eftir honum. En þar var
þá enginn svo ég gat ekki fengið
að skoða hjólið. Þegar ég kom út
á götuna aftur var mamma horf-
in svo ég varð hræddur og fór
að öskra og hljóp af stað, en
mamma heyrði ekki til mín. Þá
kom gömul kona og sagði: Ert
þú búinn að týna mömmu þinni,
veslingurinn? Éig skal hjálpa þér
að finna hana. — Svo labbaði hún
af stað upp hæðina fyrir utan
símstöðina. En þá kom mam.Tia
gangandi og kallaði á mig.
Þegar ég var í Reykjavík var
ég líka í sandmokstri með einum
strák. — Við vorum að moka. En
svo fann ég upp á því að standa
upp :með sandrekuna fulla af
sandi og henda sandinum yfir
okkur báða. Þarna stóð vagn rétt
hjá sandkassanum með litlu barai
í og hafði sandurinn fokið yfir
barnið í vagnum. Barnið fór að
skæla. — Þá kom stelpa og
skammaði mig fyrir að henda
sandinum upp í loftið því sandur-
inn gæti fokið í augun á fólki.
Svo kallaði hún á konuna, sem
átti að passa, að börnin gerðu
enga skömm við sandmoksturinn.
Og hún sagði, að ég mætti aldrei
henda sandi upp í loftið og helzt
ekki moka honum út fyrir kass-
ann. Hún hjálpaði stelpunni að
hreinsa úr vagninum og af barn-
inu. Og svo fór stelpan burt með
barnið.
(Skólablaðið, 29. apríl ’60).
Nýju bækurnar
Að þessu sinni gefur Bókaútgáfa Menningarsjóðs út eftirtald-
ar bækur:
1. Steingrímur Thorsteinsson, ævisaga, eftir Hannes Pétursson.
Falleg og mjög vel skrifuð bók, prýdd mörgum myndum.
Um 300 blaðsíður í stóru broti. Hefur verið sérstaklega til
útgáfunnar vandað. Útsöluverð 350.00 kr., félagsverð 280.00
kr.
2. Rómaveldi, síðara bindi, eftir Will Durant, Jónas Kristjáns-
son eand. mag. þýddi. Fyrra bindi þessa verks kom út á
síðasta ári, og hlaut þá afbragðs dóma. Félagsverð 170.00
kr.
3. Með liuga og hamri, jarðfræðibækur Jakobs H. Líndals,
bónda og jarðfræðings á Lækjamóti. Sigurður Þórarinsson
sá um útgáfuna. Rúmar 400 b.aðsíður, prýdd myndum. Út-
söluverð 360.00 kr., félagsverð 285.00 kr.
4. Saga Maríumyndar, eftir dr. Seimu Jónsdóttur, Prýdd mörg-
uim myndum. Upplag er mjög lítið. Útsöluverð 350.00 kr.,
félagsverð 280.00 kr.
5. Sigtryggur Guðlaugsson á Núpi, ævisaga eftir Halldór
Kristjánsson, Kirkjubóli. Útsöiuverð 280.00 kr„ félagsverð
170.00 kr.
6. í Skugga Valsins, skáldsaga eftir Þórunni Elfu Magnúsdótt-
ur. Útsöluverð 280.00 kr., félagsverð 170.00 kr.
7. Öm Arnarson (Magnús Stefánsson, skáld), eftir Kristján
Ólafsson. Útsöluverð 140.00 kr„ félagsverð 110.00 kr.
8. Leiðin til skáldskapar, um sögur Gunnars Gunnarssonar,
eftir Sigurjón Björnsson. Útsöluverð 140.00 kr„ félagsverð
110.00 kr.
9. Syndin og fleiri sögur, eftir Martin A. Hansen, Sigurður
Guðmundsson þýddi. Útsöluverð 140.00 kr„ félagsv. 110.00
kr.
10. Mýs og inenn, eftir John Steinbeck, Ólafur Jóh. Sigurðsson
þýddi. Útsöluverð 140.00 kr„ félagsverð 110.00 kr.
11. Raddir morgunsins, ný ljóðabók eftir Gunnar Dal. 120 blað-
síður. Upplag er lítið. Úisöluverð 180.00 kr„ félagsverð
140 kr.
12. Ævintýraleikir, 3. hefti, eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Útsölu-
verð 70.00 kr„ félagsverð 55.00 kr.
Bókamenn: Það borgar sig að gerast félagsimenn í Bókaút-
gáfu Menningarsjóðs og njóta vildarkjara um bókaverð.
Snúið yður til næsta umboðsmanns.
Bókaútgáfa
Menningarsjóðs