Austri - 15.12.1964, Blaðsíða 16

Austri - 15.12.1964, Blaðsíða 16
16 AUSTRI Jólin 1964. Aðgerð á skurðstofu. AF GÖTUNNI að sjá er það aðeins hús, stórt og hvítt hús. Við, sem vitum hverjum tilgangi það þjón- ar, eigum þá ósk heitasta, að þurfa aldrei að dvelja þar. En Stefán Þorleifsson. þrátt fyrir það styrkir það ör- yggistilfinningu okkar að vita af því, og daglega fara þangað margir þeir, sem einhverra hluta vegna þurfa á líknsömum hönd- um að halda. Það er þarna, og okkur er nauðsyn að það sé. Það auglýsir ekki starfsemi sína á strætum og gatnamótum, en engu að síður koma þangað gest- ir, sumir til að dvelja þar aðeins um stundarsakir, öðruim verður það siðasta skjól í lifanda lífi. 1 þessu húsi er háð glíma heilbrigði og sjúkdóma, 'lífs og dauða, og nútíma visindum beint gegn þessum erfðafjendum jarðlífsins. —o—- Fjórðungssjúkrahúsið í Nes- kaupstað var vígt 18. dag janú- armánaðar árið 1957. Eðlilega var mikið um dýrðir, því imeð til- komu þess höfðu Norðfirðingar sigrazt á stórum og mikilsverð- um vanda. Nú þurfti ekki lengur hver sá, sem undan lét, að ferð- ast hálfa eða alla leið til Reykja- víkur í von um bót meina sinna, nú var þeim búið skjól heiima. þar skyldi glíman við sjúkdóm- ana háð. En þó að sjúkrahúsið væri upp- runalega byggt af Norðfirðingum, án þátttöku annarra Austfirð- inga, lá þangað brátt straumur- inn hvaðanæva að af Austurlandi. Ivlenn komu þangað brotnir og fengu gróið, menn komu þangað halónir innvortis meinsemdum og þær numdar burt. Menn komu úr öllum áttum, innan úr innstu clölum og utan úr reginhafi, sjúkir, slasaðir, og fengu þá um- önpun, sem unnt var í té að láta. Og fleiri áttu þar einnig sín ve en þeir — gömlu fólki og ör- yrkjum var þar einnig ætlaður ra.nustaður undir handleiðslu lækna og hjúkrunarfólks. Fjórðungssjúkrahúsið í Nes- kaupstað hefur nú senn starfað i á ta ár, og gagn það, sem af því hofur hlotizt verður ekki metið til fjár. Það stendur þarna og bíður eftir hverjum þeim, sem knýji: þarf dyra. Þaðan er eng- um út vísað, sem á þarf að halda, meðan húsrými leyfir. Og hver sá, sem þar þarf að dvelj- ast kei.nst að raun um, að húsið er meira en dauður steinn — þetta hús hefur sál og hún er líknsöm og greiðir úr vanda gesta sinna eftir beztu getu. Alls staðar þúrfa debet og credit að standast á Það er föl yfir öllu þennan desemberdag og kalt í lofti. Heima á sjúkrahússhlaðinu stend- ur sterklegur Rússajeppi merkt- ur U. — Hann telst til heimilis á Reyðarfirði og hefur þaðan kom- ið í dag yfir Oddsskarð og önnur firnindi. 1 framsætinu við hliðina á bílstjóranum situr ungur faðir. Rabbað við framkvæmda- stjóra og yfirlækni Fjórð- ungssjúkrahússins í Nes- kaupstað. Erindi hans er að ná í konu sína og nýfædda dóttur, sem hafði auguim litið tilveruna í fyrsta sinn, þarna á sjúkrahús- inu fyrir einum átta dögum. Sú nýfædda neitaði blaðamann- Hér eiga sjúkir skjól Læknar og hjúkriunarlið, ásamt rannsóknarkonu, matráðskonu og Rabbað á setustoíu. framkvæmdastjóra. i

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.