Monitor - 27.01.2011, Síða 9
9FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Monitor
Veggspjaldið fyrir Mannasiða-þættina hefur vakið
nokkra athygli. Hvort ertu þrítugur eða fertugur?
Ég er búinn að fá mörg komment á þennan póster.
Málið er að Ari Magg, sem tók þessa mynd, sagði við
mig að ég ætti að leika Alec Baldwin. „Svona Alec Bald-
win týpa sem er betri en liðið fyrir aftan og á að kenna
þessum aumingjum hvernig á að haga sér.“ Ég náði á
einhvern ótrúlegan hátt að breyta á mér andlitinu og
gera mig tíu árum eldri. Ari vildi meina að ég væri eina
módelið sem hefur tekist þetta.
Í þáttunum segir þú meðal annars: „Það er ekki nóg
að lúkka eins og milljón dollarar ef þú lyktar eins og
handarkrikinn á Högna í Hjaltalín.“ Er þessi lína til
komin vegna þess að hann skráði sig á listann yfir þá
sem voru á móti því að þú hannaðir símaskrána?
Það voru margir rasshausar sem skráðu sig á þennan
lista. Allt þetta fólk mun næstu tíu til fimmtán árin fá
saur í andlitið frá þeim Þykka. Nú er ég rétt að byrja. Ég
er búinn að gefa það út að Eyvindur Karlsson og Bjarni
töframaður, sem ég er búinn að leggja í einelti í mörg
ár, þeir eru „off the hook“. Ég mun aldrei segja neitt
ljótt um þá aftur, en ég er kominn með helling af nýju
fólki. Meðal annars Högna í Hjaltalín sem er náttúru-
lega pappakassi.
Hvað fannst þér um neikvæðu viðbrögðin við því að
þú myndir hanna símaskrána?
Allt þetta listafólk sem þolir mig ekki var svo brjálað
yfir því að ég væri að taka vinnu frá fagfólki. Að ég fái
að hanna símaskrána þegar einhver annar er mennt-
aðri í þessu og ætti að fá þetta frekar. Ég skildi þetta
ekki. En fólk virðist vera búið að róa sig niður. Ég held
líka að þegar fólk sér símaskrána átti það sig á því að
þetta er ekki eins alvarlegt og það bjóst við.
Þú hefur verið ófeiminn við að hrauna yfir þekkta
Íslendinga í gegnum árin. Hvernig er að hitta þetta
fólk á förnum vegi? Hefur þú lent í einhverjum
skemmtilegum uppákomum?
Ég hef oft hitt Bjarna töframann og þetta lið. Ég er
ekki þannig að ég labbi framhjá þeim eða horfi niður í
götuna. Ég tek bara hressa gæjann á þetta. Flestir hafa
góðan húmor fyrir þessu. Ég og Friðrik Ómar höfum til
dæmis drullað yfir hvorn annan í fjölmiðlum, en þegar
ég sé Friðrik Ómar þá tek ég bara í spaðann á honum
og knúsa hann. Það er aldrei þannig að ég sé leiðinleg-
ur við fólk þegar ég hitti það þó ég sé að skjóta á það í
fjölmiðlum.
Er eitthvað sem þú sérð eftir að hafa sagt eða gert
opinberlega?
Það eru örugglega einhver viðtöl hér og þar sem mað-
ur hefur farið í sem komu ekki nógu vel út. Einhverjar
Séð og heyrt greinar sem gáfu mér kaldan svita. Það
er ýmislegt sem ég gerði fyrir nokkrum árum, þegar
ég var aðeins harðari í skrifunum og var að sjokkera
liðið. Þá skrifaði ég pistla og var að drulla yfir einhverja
femínista sem var of gróft og ég sé í dag að var fullhart.
En annars reyni ég nú að pæla aðeins í hlutunum áður
en ég framkvæmi þá.
Mannasiðir eru að fara í loftið og þú fékkst til þín
einvalalið gestaleikara. Áttu einhverja góða
sögu frá upptökum á þáttunum?
Já, það gerðist náttúrulega allur
andskotinn í tökum þarna. Það er
minnisstætt þegar Steindi fór í sleik
við stelpu í einu atriðinu og nánast drap hana.
Sleikurinn var það harkalegur að hún hrasaði
daman og lenti harkalega á hnakkanum. Það
atriði er sýnt í þáttunum þannig að fólk getur
séð þann „goodshit“ sleik. Það var líka gaman
þegar Hannes (Þór Halldórsson) leikstjóri var að reyna
að útskýra fyrir blökkumönnunum hvað þeir áttu að
gera í þættinum. Hann stamaði, var rauður í framan
og klóraði sér í hausnum þegar hann var að útskýra
konseptið fyrir þeim, en þeir voru til í þetta og stóðu
sig frábærlega eins og fólk sér í þáttunum.
Það var verið að bjóða þér hlutverk í kvikmyndinni
Svartur á leik. Ætlarðu að slá til?
Ég er ennþá að velta því fyrir mér. Í myndinni á ég
að vera grjótharður dópisti og glæpamaður sem er að
kóka sig upp alla myndina, berja gæja í drasl og hamra
kerlingar aftan frá. Þetta er svona „hardcore“ krimma-
mynd. Ekki alveg í takt við ímyndina um einkaþjálfar-
ann og fyrirmyndina. En ég hef alltaf gaman af nýjum
áskorunum og get vel hugsað mér að leika í kvikmynd.
Þú ert búinn að vera í sambandi í svolítinn tíma með
henni Gurrý Jónsdóttur. Hvernig og hvenær fóruð þið
að vera saman? Við kynntumst í gegnum sameiginleg-
an vin og það þróaðist eitthvað út úr því. Það er svona
eitt og hálft ár síðan.
Það er bara nýlega sem þú skráðir þig í samband á
Facebook.
Já, ég hef svona reynt að halda einkalífinu eins og ég
get frá slúðrinu. Það er grjóthart þegar íslenski draum-
urinn Fjölnir Þorgeirs birtist á forsíðum með nýrri og
nýrri kerlingu, en ég hef reynt að forðast þetta sjálfur.
Nú eru paraferðir ykkar Audda orðnar þekktar, en
kærustur ykkar eru rétt um tvítugt. Hvað er eiginlega
gert í þessum ferðum?
Blö elskar góðar paraferðir og er alltaf að reyna að
setja saman nýjar paraferðir. Hann stakk upp á nýrri
paraferð bara núna í síðustu viku á æfingu. Það er
ekkert að því. Ef þú ferð með kærustunni þinni einn út
ertu bara fastur með henni og ef þú færð leið á henni
getur þú ekki farið neitt. En þegar þú ferð í paraferð
geturðu sent þær að versla og þið félagarnir farið á bar
og drukkið ykkur í drasl. Þannig að paraferðir þurfa
ekkert að vera leiðinlegar. Auðunn Blöndal ræður
yfirleitt áfangastöðunum okkar og oftast er spilavíti
skammt frá hótelinu sem við gistum á. Ég veit ekki
hvort það er tilviljun eða ekki. Honum líður líka best
með áfengan drykk við hönd. Þú sérð bara svipinn á
andlitinu á honum þegar hann tekur fyrsta sopann af
áfengum drykk, hann bara verður nýr maður.
Þú ert ekkert að yngjast. Eruð þið kærastan byrjuð að
ræða barneignir?
Nei, það er ekki byrjað að ræða barneignir. Matthew
McConaughey eignaðist sitt fyrsta barn 39 ára og hann
er toppmaður. Þannig að ég er ekkert að stressa mig
á því að krakka mig upp. Ég á lítil frændsystkini og er
uppáhaldsfrændi þeirra. Þegar ég finn á mér að ég þarf
að krakka mig vel upp pikka ég þau bara upp og fer
með þau í bíó eða í Húsdýragarðinn eða eitthvað slíkt.
Myndi það skaða ímyndina að ganga í það heilaga og
fara að hlaða niður börnum?
Nei. Ég veit ekki hvort það hljómar asnalega en mér
er eiginlega drullusama um þessa Gillz-ímynd. Ég veit
að sjónvarpsþættirnir og allt þetta „Gillz-shit“ deyr út
og þá fer ég bara að þjálfa, sem mér finnst gaman. Það
er auðvitað hellingur af liði búinn að fá ógeð á mér og
restin gæti fengið ógeð á mér í næsta mánuði. Þá er
þetta bara búið og ég er farinn að þjálfa. Mér er drullu-
sama hvenær Gillzarinn deyr út og einkaþjálfarinn Egill
Einarsson tekur við.
Hvað með þig sjálfan, færð þú einhvern tímann ógeð
á sjálfum þér?
Já, ég fæ reglulega ógeð á mér. Ég opna oft blöðin og
er bara: „Enn ein helvítis fréttin.“ En ég
reyni að stjórna þessu svolítið og vera ekki
út um allt. Ég set mig reglulega í fjölmiðla-
Egill Einarsson er eins og lúpínan; hann er úti um allt og þjóðin annað hvort elskar
hann eða hatar. Nýjasta verkefni hans er sjónvarpsþættirnir Mannasiðir Gillz sem
byggðir eru á samnefndri bók sem sló í gegn. Egill talar við Monitor um nýju þætt-
ina, frægð á Íslandi, kærustuna, barneignir, paraferðir með Auðuni Blöndal, fitupró-
sentu Hjörvars Hafliðasonar, túbusjónvörp og margt enn furðulegra.
Texti: Björn Bragi Arnarsson bjornbragi@monitor.is
Myndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
Gillz deyr
HRAÐASPURNINGAR
Hver er uppáhaldslyftingaræfingin þín? Réttstöðulyfta
og „one arm dumbbell preacher curl“.
Hvaða líkamshluta ertu ánægðastur
með? Það er þríhöfðinn, hann er „fully
developed“. Ég er með stærri þríhöfða
en Jay Cutler.
Hver er uppáhaldsleikarinn þinn? Sly
Stallone. Hann sýndi leikhæfileikana í
Tango&Cash og einnig fyrstu Rocky-
myndinni þar sem hann var tilnefndur til óskarsverðlauna
fyrir leik í aðalhlutverki. Síðan var Expendables besta
hasarmynd sem búin hefur verið til eins og menn vita.
Hvaða disk ertu með í spilaranum? Ultra Mega
Technobandið Stefán. Eina sem ég spila í bílnum, þeir eru
snillingar.
Hver er besti íþróttafréttamaður
allra tíma? Höddi skinka (Hörður
Magnússon), Gaupi (Guðjón
Guðmundsson) eða Valtarinn (Valtýr
Björn Valtýsson). Hrikalega erfitt að
velja á milli þarna. Það lifir sig enginn
betur inn í leikinn en Höddi. Gaupi er
hafsjór af fróðleik og Valtarinn er með
þessa hráu kynorku sem vantar oft í
íþróttafréttamenn. Ég get ekki gert upp á milli þeirra.
Hver er uppáhaldskarakterinn þinn
í gömlu Beverly Hills-þáttunum?
David, því hann er að hamra Megan
Fox í dag, það er vel gert.
Hvað er best við Kópavog? Vinalegur
bær og rólegur. Ég vakna við fugla-
söng og síðan veifa ég nágrönnunum
á leiðinni út í bíl á morgnana. Ekki
sama viðbjóðslega kalda stemningin og er í 101.
Hvað borðar þú aldrei? Djúpsteiktar franskar. Þú verður
ekki eins og Þykki ef þú borðar djúpsteiktar franskar.
Arnar Grant eða Ívar Guðmunds? Get ekki gert upp á milli
þeirra. Þeir eru báðir kjötaðir snillingar. Það er draumur
að fá að taka æfingu með þeim félögum einhvern tímann,
vonandi verður það að veruleika.
Hugh Grant eða Ivan Drago? Auðveldasta spurning sem
ég hef fengið, Ivan Drago! Ég er ekki Friðrik Ómar og er
eiginlega bara móðgaður að hafa verið spurður að þessu.
og Egill tekur við
Það er ekki byrjað að
ræða barneignir. Matt-
hew McConaughey eignaðist
sitt fyrsta barn 39 ára og hann
er toppmaður. Þannig að ég er
ekkert að stressa mig á því að
krakka mig upp.