Monitor - 27.01.2011, Blaðsíða 10
10
bann í tvo til þrjá mánuði þar sem ég skrifa ekkert á
Gillz.is og fer ekki í nein viðtöl. Það er fínt því þú verður
að gefa fólki pásu á þér. Það verður reyndar erfitt í ár.
Mannasiðir Gillz eru að byrja í þessari viku, símaskráin
tekur við á eftir því, því næst kemur Evrópski draumur-
inn sem er framhaldssería af Ameríska draumnum og
síðan kemur næsta bók. Ég er ekki að sjá fram á að geta
sett mig í fjölmiðlabann árið 2011 þannig að það er mjög
líklegt að þetta verði árið sem fólk fær ógeð á Þykka.
Þú ert búinn að vekja athygli fyrir líkamsrækt, bóka-
skrif, sjónvarpsmennsku, útvarpsmennsku, tónlist og
fleira. Hvað ertu?
Ég er skítugur einkaþjálfari skástrik rithöfundur sem
rífur í járn og borðar mikið af laxi. Ég geri alltaf það sem
mér finnst skemmtilegt hverju sinni. Sjónvarpsþættirnir
og allt það rugl er eitthvað sem mér finnst skemmtilegt,
en þó ég sé illa gefinn er ég ekki það illa gefinn að halda
að það verði til staðar endalaust. Ég myndi frekar kalla
mig einkaþjálfara en sjónvarpsmann og er ekkert að
fara að hætta í dagvinnunni minni. Ég er í Sporthúsinu
frá átta á morgnana til tíu á kvöldin alla daga en fæ
stundum pásu frá því þegar maður fer í tökur fyrir
sjónvarpsþættina. Helgarnar fara svo í að vinna að
næstu bók, en ég legg gríðarlegan metnað í bækurnar
svo að aðdáendurnir verði ekki fyrir vonbrigðum. En ég
er hættur að kalla mig tónlistarmann.
Færðu aldrei nóg af því að mæta í ræktina? Finnst þér
þetta svona skemmtilegt?
Mér finnst þetta ógeðslega gaman. Að taka lyftingaræf-
ingu er eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Ég hlakka
til að fara á æfingar og ég er alltaf að uppfæra mig, lesa
bækur um styrktarþjálfun og næringarfræði og allt
þetta. Þegar ég er ekki að lyfta eða vinna er ég yfirleitt
að lesa um þetta. Þetta er ekki einhver þörf fyrir að vera
hrikalega kjötaður, mér finnst bara svo gaman að æfa.
Ég passa mig líka að tapa mér ekki. Það er gott að passa í
föt og geta farið í skvass og fótbolta með strákunum.
Af hverju ertu með svona lítinn tvíhöfða? Hann er í
engu samræmi við axlirnar og þríhöfðann.
Það eiga allir líkamsræktarmenn sína veikleika. Það
er einfaldlega þannig að ég hef átt í erfiðleikum með
tvíhöfðann. Þetta hefur valdið mér andvökunóttum því
mér líður illa yfir þessu. Ég er með of lítinn tvíhöfða
miðað við þríhöfða og ég hef spáð í því að hengja mig út
af þessu. Ég er búinn að prófa allt. En ég er nógu mikill
maður til að viðurkenna veikleika mína og aldrei gleyma
því að ég mun halda áfram að vinna í honum og ég mun
leysa þetta verkefni. Tvíhöfðinn verður hrikalegur.
Hvenær tókstu upp nafnið Gillzenegger?
Það var þegar kallarnir.is opnuðu árið 2003 minnir
mig. Þá byrjaði þetta sem einkahúmor þar sem allir
voru kallaðir einhverjum asnalegum nöfnum. Mitt
festist einhvern veginn betur en á hinum. Þá fannst mér
þetta Gillzenegger-nafn mjög fyndið, en mér finnst það
ekkert svo fyndið í dag. Ég er líka ekkert svo oft kallaður
Gillzenegger í dag. Það er búið að stytta þetta niður í
Gillz sem mér finnst skárra. Ég er kallaður Þykkur og
Störe líka. Ég hef haft það sem reglu að þegar P. Diddy
skiptir um nafn þá breyti ég um nafn. Ég veit ekki hvert
mitt næsta nafn verður, en ég kalla mig ekki Gillzenegg-
er í dag. Ég er orðinn þreyttur á því.
Er það rétt að þú hafir áður verið kallaður Egill moli?
Já, ég var kallaður Egill moli af því ég var alltaf kaffi-
brúnn. Þá var ég að hugsa miklu betur um brúnkuna en
ég geri í dag. Þá tók ég böffalóskóna, rauðu silkiskyrtuna
og gullkeðjuna og var alveg kaffibrúnn. Ég tók alltaf
tvöfaldan tíma í ljósum. Ég nennti ekki að vera í 20
mínútur þannig að ég tók 40 mínútur.
Án gríns?
Í alvöru. En maðurinn sem á metið í að vera lengi í
ljósum er Ágúst Bjarnason, betur þekktur sem Gústi
Hollywood. Hann fór í áttfaldan ljósatíma. Hann tók
fjóra tíma samfleytt, sem sagt 80 mínútur, fór út í sígó og
fór svo í aðrar 80 mínútur. Þetta hlýtur að vera heims-
met. Ég hef líka aldrei séð eins brúnan mann á ævi
minni. En hann var ekkert rauður.
Draugur fortíðar sagði mér að þú hafir verið með
stærsta frekjuskarð Íslandssögunnar.
Já, ég held ég hafi verið með stærsta frekjuskarð í
heimi. Ég gat verið með smá skemmtiatriði þegar ég var
í grunnskóla, ég gat sett blýant í frekjuskarðið og skrifað.
Það er engin lygi, mönnum fannst þetta æðislegt.
Fékkstu þá teina?
Já, ég teinaði mig vel upp. Ég gómaði mig líka og svaf
með einhvern góm heillengi. Mér fannst samt allt í
lagi að vera með teina því þá gat ég teinað menn. Ef þú
mættir kannski í glænýrri ullarpeysu í skólann þá setti
ég teinana í peysuna og eyðilagði peysuna. Þetta var ég
mikið að gera við menn þannig að menn voru ekkert að
gefa mér skít fyrir að vera með teinana.
Árið 2004 voru flatskjáir að hefja innreið sína, en
sagan segir að þá hafir þú tekið upp á því að kaupa
stærðarinnar túbusjónvarp og greitt fyrir það eitthvert
hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir túbusjónvarp á
Vesturlöndum. Er þetta rétt?
Málið er að ég hafði ekki trú á þessari bólu, flötu skjá-
unum, og ég hélt að þetta myndi deyja strax út. Þetta
var bara mjótt og asnalegt. Þannig að ég fór bara niður í
Sjónvarpsmiðstöðina þar sem Leður-Hans vann og bað
hann um besta túbusjónvarpið sem hann átti og keypti
það. Ég er búinn að gefa litla bróður mínum túbusjón-
varpið og á 50 tommu flatan í dag. Það er búið að gera
mikið grín að mér fyrir þetta og ég verð að viðurkenna
að ég hafði rangt fyrir mér með þróunina á sjónvörpum.
Ég hélt að túburnar myndu haldast inni.
Þú virðist eiga í ástar-/haturssambandi við æskuvin
þinn Hjörvar Hafliðason. Er það rétt metið?
Eftir að Hjöbbi varð frægur fyrir að lýsa fótboltaleikjum
hefur hann farið í nokkur viðtöl og í hverju einasta við-
tali segir hann eitthvað leiðinlegt um mig. Eftir að hann
byrjaði á því ákvað ég að gera slíkt hið sama, þannig
að ég hef ekkert jákvætt að segja um hann. Málið með
Hjörbert er að áður en hann varð íþróttafréttamaður var
hann 10-11% fita. Þetta var rétt áður en HM í fótbolta
datt inn. En alveg frá því að það var flautað til leiks á HM
og hann gerðist íþróttafréttamaður hef ég heyrt hann
fitna. Ég heyri hann fitna annars staðar í borginni þó ég
sitji hér hjá þér. Það er búið að tala mikið um þessa bölv-
un sem hvílir á íþróttafréttamönnum. Meira að segja
Gummi Ben er ekki helskafinn í dag. Þetta er ekkert grín,
ef þú ert íþróttafréttamaður þá verður þú „chubby“. Ég
er að gera mitt besta til að rífa hann upp og er með hann
í ræktinni alla daga. Það er bara erfitt því á 365 er bara
boðið upp á pítsur, snúða og nammi þegar þeir eru að
lýsa leikjum. Ég hef aldrei séð íþróttafréttamenn hlaupa
jafnhratt og þegar það er flautað til hálfleiks. Þá spretta
þeir fram og byrja að háma í sig.
Ef þú þyrftir að sofa hjá einum vini þínum, hver yrði
fyrir valinu? Ekki Audda því hann er með loðinn rass og
ég gæti ekki rifið í hárið á honum ef ég væri að hamra
hann aftan frá. Líklega ekki Hjöbba því hann er með
freknur á rassinum. Ef við erum að tala um karlkyns vin
myndi ég líklega hamra Sveppa.
Af hverju Sveppa?
Ég myndi bara setja hann á fjóra fætur og rífa í krull-
urnar á honum. Hann er líka opinn fyrir hlutum þannig
að hann myndi örugglega ekki taka illa í þetta. Sveppi er
eini maðurinn sem ég gæti hugsað mér að henda mér
aftan á ef ég þyrfti þess.
Áttu ekki eftir að enda í stjórnmálum eins og guðfaðir
þinn, Arnold Schwarzenegger?
Mér finnst það ólíklegt. Ég hef lítinn sem engan áhuga
á stjórnmálum og það þarf eitthvað mikið að breytast
á næstu árum til að ég ákveði að hjóla í það. Ég sé nú
frekar Hjöbba fyrir mér í því. Arnold er kominn aftur í
kvikmyndirnar eftir að hafa tekið sér nokkur ár í að vera
ríkisstjóri. Nú ætlar hann aftur í bíómyndirnar. Ég ætla
bara að sleppa pólitíkinni og einbeita mér að lyftingum,
bíómyndum, sjónvarpsþáttum og þjálfun.
Monitor FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Sjónvarpsþættirnir og
allt það rugl er eitthvað
sem mér finnst skemmtilegt, en
þó ég sé illa gefinn er ég ekki
það illa gefinn að halda að það
verði til staðar endalaust.