Monitor - 03.03.2011, Side 7
7FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011 Monitor
TVÍBURAR?
EKKERT
VANDAMÁL
Ferðamennskan
færð á fullorðinsstig
Hægt er að fletta upp öllu mögulegu sem þarf að vita
áður en haldið er út í óvissuna í bókinni Góða ferð.
„Upphaflega var hugmyndin
að skrifa bók sem innihéldi
ýmsar gagnlegar upplýsing-
ar sem gaman væri að hafa
við höndina í gönguferð-
um,“ segir Elín Magnús-
dóttir sem gaf nýverið út
bókina Góða ferð ásamt Helen
Garðarsdóttur. Þær starfa
báðar með björgunarsveitinni
Ársæli og eru sannkallaðir
reynsluboltar þegar kemur
að útivist og þróaðist því litla
skemmtihandbókin þegar
hugmyndavinnan fór af stað.
„Við enduðum á því að búa til bókina
sem okkur hefði langað til að eiga þegar
við vorum að byrja að stunda útivist,“
segir Helen sem tók sína nýliðaþjálfun
árið 2008.
„Þjálfunin tekur átján mánuði og endar
á rúmlega þrjátíu klukkutíma prófi þar
sem maður sýnir og sannar að maður sé
tilbúinn til að sinna útköllum og bjarga
sjálfum sér og öðrum,“ segir Helen.
að mæta á kynningarfund. „Fyrir
utan að vera mjög skemmti-
legur félagsskapur er þetta
frábær leið til að færa ferða-
mennskuna sína á fullorð-
insstigið,“ segir Elín en þær
Helen hafa nokkrum sinnum
lent í svakalegum ævintýrum á
ferðum sínum um landið.
„Fyrir þremur árum vorum við
að ganga á Hornströndum með
vini okkar og höfðum verið að
ganga í hnausþykkri þoku í tvo
daga,“ segir Helen en örfáum
vikum áður höfðu tveir ísbirnir
gengið á land. „Skyndilega heyrðum við
skerandi og allt að því ójarðneskt öskur
úr þokunni. Við frusum öll, litum hvert
á annað með skelfingarsvip og tókum
fram kortið til að sjá hversu langt væri
í hugsanlega lendingarstaði ísbjarna,“
segir Elín en þegar hópurinn hafði
skoðað kortið gaumgæfilega notuðu þau
rökhugsunina til að róa sig niður. „Þegar
við sáum örnefni eins og Brimilshöfn og
Selvogur róuðumst við aðeins og ákváð-
um að öskrið væri ættað úr selsbarka,“
segir Helen en bendir á að allir í hópnum
hafi þó verið varir um sig og gáð ítrekað
hvort þau sæu eitthvert hvítt flikki í
nágrenninu.
Reynsla Elínar og Helenar úr íslenskri
náttúru ætti að koma lesendum að góðu
gagni, sérlega borgarbörnum sem kunna
varla að gista í tjaldi.
GÓÐA FERÐ
Fyrir hverja?
Þig! Af því að eftir lestur bókarinnar er
engin ástæða lengur til að fara ekki á fjöll!
Um hvað?
Val á útbúnaði, undirbúning fyrir ferðir,
viljann til að lifa af, kortalestur, leiðarval,
að vera hlýtt, eldun á prímus og allt annað
sem útivistarfólk ætti að kunna skil á.
Ekki klikka á þess
u!
„Þær tuttugu
mínútur sem fara
í að gera vandaða
ferðaáætlun, og
að skilja hana
eftir hjá traustum
öryggisfulltrúa, geta
margborgað sig.“
(5. kafli - Að ferðast)
ELÍN
HELEN
Laugardaginn 5. mars halda Elín og Helen útgáfuhóf í Iðuhúsinu
við Lækjargötu kl. 14-16. Þar verður lifandi tónlist, kakó og
meðlæti auk þess sem sérstakt útgáfutilboð verður á bókinni.
„Ef þér er kalt, gerðu þá eitthvað
í því. Ekki bíða eftir að það lagist
af sjálfu sér. Reyndu að greina
vandann: Vantar einangrun? Er
svefnpokinn of opinn? Þarftu að
hita þig með hreyfingu? Getur þú
hlýjað köldum líkamshlutum
á öðrum sem eru heitari?“
(4. kafli - Að búa í tjaldi)