Monitor - 16.06.2011, Qupperneq 9
9FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011 Monitor
„Leikstjórinn ræður mig í þetta hlutverk og við vorum
sammála um að Tóti þyrfti að vera massaður og í
hörkuformi,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson um
upphafið að geysilegu líkamsræktarátaki sínu sem hefur
staðið yfir frá áramótum. Hann setti sér skýr markmið
fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Svartur á leik í upphafi
árs og fór í ræktina sex sinnum í viku ásamt því að
vera á ströngu mataræði til þess að ná þeim. „Þetta
stóðst næstum því upp á gramm, ég var 94,8 kíló þegar
tökur hófust og 12% fita,“ útskýrir Jóhannes sem náði
markmiðum sínum og gott betur. Nýlega lauk tökum á
kvikmyndinni Svartur á leik þar sem Jóhannes fer með
stórt hlutverk ásamt þeim Þorvaldi Davíð Kristjánssyni
og Agli Einarssyni, betur þekktum sem Gillz. Myndin
gerist í undirheimum Reykjavíkur árið 1999 og ríkir mikil
spenna fyrir þessari myrku glæpamynd.
Hvernig myndir þú lýsa Tóta sem þú leikur í Svartur
á leik? Utan frá séð er hann algjör óþokki. Hann er
glæpamaður sem gerir og segir ljóta hluti og fer illa með
ansi marga. Hann hefur þó sína sannfæringu og fylgir
sínum eigin siðareglum mjög fast eftir. Tóti lítur fyrst og
fremst á sig sem viðskiptamann en það vill bara svo til
að hans viðskipti eru ólögleg.
Finnst þér þú eiga eitthvað sameiginlegt með þessum
harðsvíraða glæpamanni? Já, að vissu leyti. Hann er
prinsippmaður og ég á það sameiginlegt með honum þó
prinsippin séu mjög ólík hjá okkur.
Myndir þú segja að þetta væri harðasta hlutverk þitt
hingað til? Alveg tvímælalaust. Tóti beitir alveg helling
af bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi gagnvart konum og
mönnum. Þetta er harður nagli sem er kannski svolítið
fjarri mér. Ég hef sjálfur aldrei lent í slagsmálum. Ég
hef reyndar einu sinni kýlt mann í bakið sem er mjög
lélegt. Það var þannig að einhverjir voru að ráðast á vin
minn á Hótel Íslandi fyrir mörgum árum og ég var ekki
sáttur með það svo ég kýldi einn mann í bakið. Um leið
og hann sneri sér við hljóp ég svo í burtu, það er öll
slagsmálasagan mín. Ég þurfti því að undirbúa mig vel
fyrir hlutverk harða naglans með því að massa mig upp
og svo lærði ég eitt og annað í Mjölni.
Svartur á leik gerist í lok tíunda áratugarins. Hvað
varst þú að gera á þeim tíma? Þá var ég nítján ára og
var svolítið að finna mig í lífinu en alls ekki í þessum
undirheimum. Ég var ekki í skóla, hafði hætt í Iðnskól-
anum í Hafnarfirði eftir tvær annir. Svo fór ég í Flensborg
þegar ég var tvítugur og í kjölfarið í Leiklistardeild
Listaháskólans.
Hvernig týpa varst þú í menntaskóla? Saklaus kór-
drengur. Ég var ekki byrjaður að leika mikið en var mörg
ár í kór svo ég söng mikið. Það var ekki fyrr en upp úr
tvítugu að ég fór að fikta eitthvað í leikhúsinu.
Sagan segir að þú hafir eitt sinn tekið þátt í Söng-
keppni framhaldsskólanna klæddur í korselett. Hvað
var málið? Það var einmitt árið 2000, ég lenti í öðru sæti
og Sverrir Bergmann sigraði með lagið eftir Audda Blön-
dal, Án þín. Í rauninni markar þátttaka mín í keppninni
upphafið að leiklistarferlinum mínum því í framhaldinu
hafði leikstjórinn Guðmundur Rúnar Kristjánsson sam-
band við mig og fékk mig til að taka þátt í uppfærslu á
sýningunni Með fullri reisn um sumarið. Mér fannst það
æðislegt og fór í kjölfarið í prufur fyrir Leiklistarskólann
og komst þar inn. Guðmundur Rúnar er því mikill
örlagavaldur í mínu lífi.
Leiklistin var þá ekki langþráður draumur? Maður
hugsaði nú um það sem krakki að það væri gaman að
verða leikari en ég gerði svo sem aldrei neitt í því fyrr
en um tvítugt. Ég fór aldrei á nein leiklistarnámskeið en
hefði nú kannski betur gert það. Það er öllum hollt og
gott að fara á leiklistarnámskeið og mennta sig í leiklist
því ég held að slíkt nýtist manni á fleiri sviðum.
Heimildir Monitor herma að þú hafir eitt sinn verið
sagður í líkamlegu ástandi þrítugs manns þegar þú
varst aðeins nítján ára. Varst þú í slæmu formi sem
unglingur? Já, ég hef alltaf verið aðeins yfir kjörþyngd
síðan ég var svona tólf ára. Svo byrjaði ég að reykja
fjórtán ára sem hjálpaði ekki til. Þegar ég var nítján ára
fór ég til heimilislæknis og hann sagði við mig að ég
væri í líkamlegu formi þrítugs manns.
Nú hefur þú snúið dæminu við og ert líklega í líkam-
legu ástandi nítján ára manns, ekki satt? Algjörlega.
Ég hef ekki reykt í fimm ár, ég er í mínu besta líkamlega
formi á ævinni. Ég hef nú oft farið í átak og létt mig um
nokkur kíló sem bætast svo fljótt aftur á mig. Þá var
ég ekki nógu ákveðinn í þessu en núna hafði ég skýr
markmið, að undirbúa mig fyrir hlutverk í Svartur á leik.
Var erfitt að byrja í átakinu? Já, auðvitað var það
erfitt fyrst en mér finnst rosalega gott að hafa svona
skýrt markmið í byrjun. Leikstjórinn ræður mig í þetta
hlutverk og við vorum sammála um að Tóti þyrfti að
vera massaður og í hörkuformi svo ég ákvað að fara í
prógramm til að undirbúa mig fyrir hlutverkið. Ég áttaði
mig fullkomlega á því að svona tækifæri vaxa ekki á
trjánum og maður fær ekki oft svona flott og bitastæð
hlutverk í kvikmynd. Það hvatti mig áfram á brettinu
þegar ég var við það að gefast upp af þreytu. Ég vil gera
það sem ég geri vel og þetta var það sem þurfti til. Ég fór
til vaxtarræktarþjálfarans Konráðs Gíslasonar sem er í
World Class og hann lét mig fá prógramm fyrir vaxt-
arrækt. Þetta er ekki venjulegt einkaþjálfaraprógramm
heldur miðast það aðallega af að stækka sig og forma
sig. Ég fylgdi því fast eftir og fékk svo hjálp frá Guðjóni
Þorsteini Pálmasyni leikara sem er tilfallandi líka
einkaþjálfari í hjáverkum. Hann kom með mér og hvatti
mig áfram fyrstu vikurnar.
Hvað stóð átakið lengi yfir? Ég byrjaði um áramótin og
prógrammið stóð yfir í sextán vikur, alveg fram að fyrsta
tökudegi. Ég fór sex sinnum í viku að lyfta í 45 mínútur
og hljóp í hálftíma sex sinnum í viku. Þetta var erfiðast
fyrstu fjórar vikurnar. Ég átti alveg móment þar sem ég
bókstaflega grét á hlaupabrettinu. Það sem var svo erfitt
er þetta samtal sem maður á við sjálfan sig á brettinu.
Maður er endalaust að reyna að gefa sér einhvern afslátt
og reyna að vera með eitthvað samkomulag við sjálfan
sig að það sé í lagi að taka aðeins minna á því þann
daginn. Þetta voru gríðarlegar samningaviðræður. Ég
tók alltaf hálftíma hlaup og eftir á var ég svo glaður að
hafa ekki látið undan sjálfum mér og stundum felldi ég
nokkur sigurgleðitár.
Hvaða markmið settir þú þér í ársbyrjun? Að komast
niður í 95 kíló og úr 24% fitu í 15%. Þetta stóðst næstum
því upp á gramm, ég var 94,8 kíló þegar tökur hófust og
12% fita. Ég missti að meðaltali eitt kíló á viku svo þetta
voru sextán kíló sem ég missti áður en tökur hófust og
náði að byggja upp mikinn vöðvamassa. Á meðan tökum
stóð missti ég svo tvö kíló til viðbótar því ég hélt áfram
að hreyfa mig svona mikið enda orðinn háður þessu.
Hvernig er dæmigerður dagur í svona átaki? Ég steypti
lyftingaræfingu og brennslu saman í eina æfingu sem
mátti vera hvenær sem er yfir daginn. Það var mikið að
gera hjá mér svo stundum fór ég á morgnana, stundum
yfir miðjan daginn og sem betur fer fékk ég sólarhrings-
aðgang í World Class Kringlunni því stundum þurfti ég
að fara eftir sýningu á miðnætti. Það kom sem betur fer
ekki oft fyrir. Þegar maður er með sólarhringsaðgang í
ræktina er ekki hægt að skýla sér bak við neitt og afsaka
sig.
Hvað borðaðir þú á meðan átakinu stóð? Ég fékk mér
alltaf hafragraut í morgunmat, banana og próteinsjeik í
millimál og til dæmis kjúklingavefju á Subway í hádeg-
ismat. Eftir hádegi fór ég oft í ræktina og fékk mér svo
ávöxt og próteinsjeik eftir æfinguna. Klukkan fimm fékk
ég mér hafragraut til að halda hungrinu í skefjum og í
kvöldmatinn var ég með eitthvað hollt og gott eins og til
dæmis nautakjöt og sætar kartöflur. Um kvöldið fékk ég
mér svo aftur banana og próteinsjeik.
Þú ert þá ekki á barnamatskúrnum eins og margar
stjörnurnar í Hollywood þessa dagana? Nei, alls
ekki. Þetta snýst bara um að borða rétt og borða hollt.
Próteinsjeikarnir úr mysupróteini komu sér líka vel fyrir
mig þar sem ég var að byggja upp vöðva. Á sunnudögum
fæ ég svo frjálsan tíma í mataræðinu í kvöldmatnum.
Hvað færð þú þér á nammidögunum? Nammidagurinn
virkar þannig að kvöldmaturinn og eftir kvöldmat er frítt
spil. Hjá mér væri týpískt að fara á Hamborgarafabrikk-
una og fá mér einn djúsí Bó eða Morthens. Stundum fæ
ég mér líka pítsu eða einhvern viðbjóð. Eftir kvöldmat
fer ég svo heim og úða í mig Daim, ís, lakkrís, karamell-
um og ógeðslega mikið af nammi.
Hvernig tekur líkaminn í nammidagana? Hann fær
alveg smá sjokk. Ég á pínu erfitt með svefn á sunnudags-
nóttum. Ég sef alveg en svitna svolítið í svefni eftir allt
þetta nammiát og vakna yfirleitt miklu fyrr en vanalega
á mánudagsmorgnum. Þetta er svolítið eins og að vera
þunnur því ég næ mér ekki alveg fyrr en á hádegi á
mánudögum. Er með nettan skjálfta og svoleiðis. Ég verð
samt að halda þessum nammidögum. Það er svo gaman
að úða þessu í sig. Ég fékk mér til dæmis Ben&Jerrys
ís á síðasta nammidegi þó ég sé með mjólkuróþol. Svo
fæ ég í magann og er alveg í rugli en þetta er það sem
ég leyfi mér af því að ég er svo strangur á mataræðinu
alla hina daga vikunnar. Ég er svo mikill öfgamaður
í eðli mínu og það hentar mér rosalega vel að vera
mataræðisfasisti sex daga vikunnar og fara
svo all-in á sunnudagskvöldum. Þetta er
svipað og þegar ég hætti að reykja. Þá varð
ég alveg rosalega mikið á móti reykingum
Ég átti alveg móment
þar sem ég bókstaflega
grét á hlaupabrettinu.
Texti: Sigyn Jónsdóttir sigyn@monitor.is
Myndir: Ernir Eyjólfsson ernir@mbl.is
„Ég er í mínu besta líkamlega formi á ævinni,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson,
leikari, sem umbreytti líkama sínum fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Svartur á leik.
Nítján ára
í líkamlegu formi
HRAÐASPURNINGAR
Fituprósenta? 11%.
Hvað tekur þú í bekk? 100 kíló slétt. Ég
stefni samt á að ná 120 sem fyrst því
helvítið hann Auddi Blöndal tekur 120 kíló
sem er fáránlegt. Ég er að vinna í þessu.
Versta martröð? Að fitna um 20 kíló fyrir
frumsýninguna á Svartur á leik.
Það sjúkasta sem þú hefur séð á inter-
netinu? Gamlir karlar í ástaratlotum.
Uppáhaldsnammi? Daim.
Besta hljómsveit allra tíma? Bítlarnir, ekki
spurning.
Uppáhaldskvikmynd? The English Patient, hún er sérstakt
listaverk sem upphefur andann.
Hvað myndir þú kalla þig í Hollywood? Þetta er ég alveg
búinn að hugsa út. Ég myndi kalla mig Jack Hawke, seinna
nafnið skrifað eins og Ethan Hawke.
þrítugs manns