Monitor - 23.06.2011, Side 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011
HEKLUNÁL
Í ANNARRI,
MÆK Í HINNI
Hvað eru Sykur-liðar að bralla
þessa dagana? Við erum að semja
og taka upp fullt af nýjum lögum
og undirbúa næstu breiðskífu.
Hvenær er von á plötunni ykkar
og er komið nafn á gripinn? Í
október, eins og staðan er núna,
og vonandi stenst það. Það er ekki
komið neitt nafn enn.
Verður platan gefin út erlendis?
Er planið að meika það? Það er
aldrei að vita með útgáfu erlendis.
Ætli við gefum ekki bara út
plötuna og sjáum svo hvort við
verðum ekki fríkir og rægir.
Ef þið færuð í útrás, mynduð
þið þá enska upp nafnið ykkar
og breyta því í Sugar? Nei, það
myndum við ekki gera.
En Sugah til að hljóma meira
töff? Það kæmi hins vegar vel til
greina.
Heimildir Monitor herma að
þið hafið eitt sinn verið með
einkaritara að nafni Gurrý.
Er hún enn að vinna fyrir ykkur?
Jájájá, Gurrý er í fullu starfi hjá
kaffimálaráðuneyti Sykurs og
Blessaður í beinni ehf. Hún er ryt-
ari með ypsiloni, ekki bara ritari,
því hún sér um kaffið líka. Hún
er líka nestismálaráðherra, það
er að segja hún sér um hvað hver
er með í nesti á hljómsveitaræf-
ingum hverju sinni. Hún lifir góða
lífinu, er á Facebook allan daginn
og sér um að bóka gigg og svona
fyrir okkur. Hún er líka alltaf með
sérríflösku á borðinu.
Hvað gerir þetta Blessaður í
beinni ehf.? Það gerir margt
sniðugt. Því miður höfum við ekki
leyfi til að upplýsa það strax, því
Gurrý myndi verða brjáluð!
Má búast við að hún stígi á svið
með ykkur einhvern tímann?
Já, hún stígur á svið með okkur á
Faktorý þann 1. júlí á Svínaríinu.
Þar verður hún með heklunálina í
annarri, mækinn í hinni og mynd
af barnabörnunum í vasanum.
Þið eruð sagðir tækjapervertar
með meiru. Hvernig græjur
kveikja mest í ykkur? Hvar eigum
við að byrja? Svo lengi sem þau
eru með nógu mörgum tökkum
og blikkandi ljósum þá erum við
ánægðir.
Hversu þreyttir eruð þið orðnir á
að svara spurningum um lagið
Viltu dick? Við verðum náttúrlega
aldrei leiðir á spurningum af
því að við erum allir svo miklir
besserwisserar. Ef þú hittir okkur
úti á götu og spyrð okkur út í Viltu
dick? þá segjum við þér sko allt.
Við erum hins vegar farnir að taka
eftir því að áhrifin sem lagið hefur
á tónleikum eru svona farin að
minnka.
Raftríóið Sykur kemur til
með að gera allt vitlaust á
Svínaríi Monitor og Fakto
rý sem fram fer þann 1. jú
lí.
Strákarnir þrír eru í óðaön
n við að undirbúa nýja
breiðskífu en tóku sér pás
u til segja Monitor frá
græjunum með ljósunum o
g Gurrý einkaritara.
STEFÁN
FINNBOGASON
Fyrstu sex: 150392.
Uppáhaldsplata:
Sweat Symphony með
Flairs akkúrat núna.
Uppáhaldshljóðfæri:
Juno 106.
Uppáhaldsflík: Get
ekki gert upp á milli.
Uppáhaldsmatur:
Jóla-, páska- eða
afmælismatur.
Dagur
í lífi...
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
7
19
3