Monitor - 28.07.2011, Blaðsíða 7

Monitor - 28.07.2011, Blaðsíða 7
7FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011 Monitor fataskápurinn SKRÍTNASTA Gegnsæ taska úr plasti með gegnsæju hólfi sem væri kannski ekkert sérstaklega skrítið nema vegna þess að í hólfinu er grænn froskur sem tístir ef potað er í hann. Mér áskotnaðist þessi taska á götumarkaði á Spáni árið 2003. DÝRASTA Miu Miu kjóll; ég fékk afmæliskort og jólakort í þrjú ár frá Sævari Karli eftir að hann var keyptur. Fer helst í honum í veislur eða ef mig langar að vera sumarleg en mjög settleg. NÝJASTA Ég keypti mér brúna sandala wedge skó við röndótt maxi pils úr Vila, sem ég átti reyndar eftir að kaupa þá en hafði hug á að nota það saman. Sandal- ana keypti ég í MOMO á Laugaveginum. FLOTTASTA Evuklæðin mín, mjög fallegur kjóll sem Eva Rögn vinkona hannaði. Fínn bæði á djammið og í fjölskylduboðin. ÞÆGILEGASTA Harem buxur sem konan hans pabba kom með frá Danmörku síðasta sumar. Ég nota þær bara hversdags, ýmist við hæla eða töff flatbotna skó.

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.