Monitor - 11.08.2011, Síða 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2011
M
yn
d/
Er
ni
r
ELDRI BORGARAR
ÁNÆGÐIR
Hreindís Ylva syngur lög
Erlu Þorsteins á nýútkom
inni plötu
sinni og segir eldri borgar
a kunna vel að meta fram
takið.
Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm kemur lesendum
eflaust kunnuglega fyrir sjónir enda er hér á ferðinni
ein af aðalleikkonum í kvikmyndinni Óróa sem
frumsýnd var á síðasta ári. Fyrir ári síðan hóf hún
leiklistarnám í Guildford og gaf nýlega út plötu til
heiður Erlu Þorsteinsdóttur ásamt hljómsveit sinni.
Þann 4. september næstkomandi fagnar Hreindís
útgáfunni á veglegum útgáfutónleikum og geta
áhugasamir nálgast miða á Midi.is.
Hvernig kannt þú við þig úti í Guildford? Ég kann
rosalega vel við mig þar, frábær bær og stutt að
skreppa til London í stórborgarlífið og leikhúsin.
Langaði þig frekar að læra leiklist þar en hér
heima? Já, mig langaði til að fara út, skipta um
umhverfi og læra að tala annað tungumál eins og
innfædd á sama tíma og ég lærði leiklist. Ég er mjög
ánægð að hafa farið út, á orðið yndislega vini úti og
skólinn stendur undir öllum væntingum og rúmlega
það.
Fórstu í prufur fyrir LHÍ? Já. Ég komst ekki inn og þó
það sé alltaf leiðinlegt var ég ekkert miður mín því
þó Ísland sé yndislegt og LHÍ án efa góður skóli þá
er Ísland lítið og ég held að það sé nauðsynlegt fyrir
marga að prófa að búa annars staðar í smá tíma og
mig þar á meðal.
Hefur þú alltaf sungið mikið? Já, alveg frá því ég var
smástelpa. Svo byrjaði ég í kór 7 ára og í gegnum
þann kór kynntist ég leiklistinni og hef ekki stoppað
síðan, hvorki í tónlist né leiklist.
Hefur þú lært söng? Já, ég fór á allskonar námskeið
þegar ég var lítil og stundaði nám í klassískum söng
þegar ég var 14-17 ára en það var ekki alveg mín
hilla svo ég sótti um á djass- og rokkbraut Tónlistar-
skóla FÍH og var þar í fjögur ár og lauk miðprófi áður
en ég fór út.
Spilar þú á einhver hljóðfæri? Ég æfði á flautu á
grunn- og menntaskólaárunum hjá Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar og hef svo haldið flautuspilinu við
bara sjálf síðan, meðfram því að kenna sjálfri mér
á píanó og svo hef ég aðeins glamrað á gítar líka.
Ekkert sem getur kallast tónlist komið á gítarinn
ennþá (hlær).
Semur þú líka tónlist? Ég hef ekki gert mikið af því
en finnst það samt mjög skemmtilegt og langar að
gera meira af því. Ég hélt ég gæti það ekki þangað til
ég þurfti að gera það fyrir stigspróf í FÍH, settist bara
niður og dreif í því.
Af hverju Erla Þorsteins? Lögin hennar eru svo
yndisleg og þó margir hafi tekið eitt og eitt þeirra
hefur enginn heiðrað hana á þennan hátt, með
heilum tónleikum eða plötu með endurgerð laganna.
Svo er hún líka úr Skagafirði eins og móðurættin
mín.
Kæmi til greina að halda nokkra tónleika fyrir eldri
borgara til að fylgja plötunni eftir? Það kemur til
greina að halda tónleika fyrir alla sem vilja hlusta!
En eldri borgarar sem hafa komið á tónleikana hing-
að til hafa kunnað virkilega vel að meta tónlistina og
að við unga fólkið séum að vasast í þessum lögum
sem þau þekkja svo vel.
Hvernig væri draumagiggið þitt? Ég held að ég hafi
nú þegar klárað gigg sem er eiginlega draumagigg
þegar ég hélt tónleika til að safna pening fyrir
leiklistarnáminu og flutningunum út og fékk fullt af
vinum mínum til að spila og syngja. Það varð svo að
kveðjupartýi líka og hefði ekki getað verið skemmti-
legra. Svo væri reyndar ekki leiðinlegt að taka þátt í
Eurovision einn daginn með flott lag.
Hvað ert þú að hlusta á núna? Ég er að hlusta á nýju
plötuna með Jóni Jónssyni sem mér finnst alveg frá-
bær. Ekta svona sumarplata, skemmtileg stemning í
henni. Fær toppeinkunn!
HREINDÍS YLVA
Á 60 SEKÚNDUM
Fyrstu sex? 010389
Uppáhaldsmatur? Alltof margt!
Uppáhaldskvikmynd? Þær eru nokkrar en
Sound of Music og Parent Trap eru báðar
klassík sem ég hef haldið upp á lengi.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Tveir mjög
ólíkir, The Apprentice og One Tree Hill
Fyrirmynd í lífinu? Fullt af fólki, reyni
bara að læra af öllum sem standa sig vel.