Austri - 26.05.1978, Blaðsíða 1
Listi Framsóknarmanna við bæjarstjórnarkosningar í
Neskaupstað
Haukur Ólafsson
Anna Björnsdóttir
Ari Daníel Árnason
Gísli Sighvatsson
'■ n
Friðjón Skúlason
Eliiheimilið
Elliheimilið á Egilsstöðum
Nú hafa langflest sveitarfélög á
Héraði svo og Borgarfjörður ákveð-
ið að leggja fram fjárhæð sem nem
ur 2500 kr. á hvern íbúa á þessu ári
til Elliheimilisins á Egilsstöðum. Tal-
ið er að þessi fjárhæð nægi til þess
að koma upp tveimur húsum til við-
bótar þeim sem fyrir eru á lóðinni.
Stefnt er að því að ljúka þessu verki
á þessu ári.
Jafnframt þarf að vinna að undir-
búningi framkvæmda við framtíðar-
húsnæði Elliheimilisins. Það er eitt
þeirra mála sem leggja ber mikla
áherslu á á næstunni. Þar skiptir
miklu máli að samvinna viðkomandi
sveitarfélaga verði góð og náin. Svo
einnig á fleiri sviðum.
1. Haukur Ólafsson,
verslunarmaður.
2. Gísli Sighvatsson, skóla-
stjóri.
3. Friðjón Skúlason, húsa-
smiður.
4. Anna Björnsdóttir, hús-
móðir.
5. Ari Daníel Árnason, húsa-
smiður.
6. Benedikt Guttonnsson,
skrifstofumaður.
7. Guðmundur Sveinsson,
bifreiðastjóri.
8. Jón Ölversson, skipstjóri.
9. Þóra Jónsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur.
10. Guðgeir Guðjónsson, húsa-
smiður.
11. Freysteinn Þórarinsson,
vélstjóri.
12. Björn Steindórsson, hár-
skeri.
13. Friðrik Vilhjáhnsson, neta-
gerðarmaður.
14. Sveinn Þórarinsson, hús-
gagnasmíðameistari.
15. Bjarni H. Bjarnason, neta
gerðarmaður.
16. Agnar Ánnannsson, vél-
stjóri.
17. Sigríður Guðröðardóttir,
verslunarmaður.
18. Jón S. Einarsson, húsa-
smíðameistari.
Sjúkrahúsið í Neskaupstað
STAÐHÆFINGAR —
„Sjúkrahúsið er myndarleg bygg-
ing, en byggðastefna núverandi ríkis-
stjórnar speglast glöggt í þessari
framkvæmd, því að fjárframlög til
hennar hafa verið hin sömu að krónu-
tölu undanfarin verðbólguár".
Tilvitnun í grein eftir Loga Krist-
jánsson í Austurlandi þann 11. maí
1978.
— OG STAÐREYNDIR
Framlög til sjúkrahúsbyggingar-
innar í Neskaupstað, á fjárlögum.
Árið 1972 8 miljónir
— 1973 8 miljónir
— 1974 23.3 miljónir
— 1975 28 miljónir
— 1976 43 miljónir
— 1977 52 miljónir
— 1978 60 miljónir.