Austri - 26.05.1978, Qupperneq 4
4
AUSTRI
Egilsstöðum, 26. maí 1978.
Traust fjármálastjórn
Framfarir
Skilyrði fyrir öruggum vexti kaup-
túnsins er blómlegt atvinnulíf. í hin-
um ýmsu atvinnugreinum er æskileg-
ast að félagsframtak og einkafram-
tak njóti sín hlið við hlið og í eðli-
legri samkeppni, öllum almenningi til
hagsbóta. Leggja verður áherslu á
að hlúa að þeim atvinnurekstri, sem
fyrir er í sveitarfélaginu og þróast
hefur á undanförnum árum. Fylgja
verður fast eftir, að fá gerða at-
vinnuáætlun fyrir Egilsstaðakauptún,
þar sem leitast verði við að fá fram
þá möguleika, sem fyrir hendi eru
um sköpun nýrra atvinnutækifæra. Á
næstu árum kemur inn á vinnumark-
aðinn fjöldi ungs fólks, sem að sjá
þarf fyrir vinnu ef við eigum ekki
að sjá á eftir þessu fólki burt úr
sveitarfélaginu. Reynslan á undan-
förnum árum, sannar einnig að hing-
að vill fjöidi fólks flytja frá öðrum
stöðum og landsfjórðungum ef mögu-
leikar eru á atvinnu og íbúðarhús-
næði. Ástæðurnar eru eflaust góðar
samgöngur við nágrannabyggðir og
aðra landshluta, fagurt og mann-
eskjulegt umhverfi, gott veðurfar,
góð heilbrigðisþjónusta, góður skóli,
mikið félagslíf o.s.frv. Egilsstaða-
kauptún hefur því mikla möguleika
til þess að verða í náinni framtíð
fjölmennasti staður Austurlands tak-
ist að byggja upp þróttmikið at-
vinnulíf. Sveitarstjóm getur með
ýmsu móti haft áhrif á það hvernig
til tekst á þessu sviði. Gerð atvinnu-
áætlunar, bygging iðngarða, hentug-
ar lóðir og það sem kallast einu nafni
aðlaðandi „umhverfi“ atvinnurekstr-
ar eru atriði, sem leggja ber mikla
áherslu á.
Egilsstaðahreppur—
nágrannasveitarfélögin
Egilsstaðahreppi ber að hafa sem
best samstarf við nágrannasveitar-
félögin. í málefnum, sem varða hér-
aðið allt er nauðsynlegt að sem best
samstaða náist. Leita þarf álits allra
héraðshreppanna um hvernig sýslu-
skipan verði best fyrir komið. Fylgja
fast eftir óskum Egilsstaðahrepps við
sýslumann S - Múlasýslu, að hann
setji hér upp þjónustuskrifstofu frá
embættinu. Vegna afstöðu framsókn-
armanna í hreppsnefnd til tillögu um
kaupstaðarréttindi fór fram skoðana-
könnun um það mál í vetur. Hefðu
þeir verið þessari tillögu fylgjandi
þegar hún var lögð fram hefði hún
verið samþykkt i hreppsnefnd, og
engin skoðanakönnun hefði farið
fram um málið.
í þorpi sem er í uppbyggingu er uppgröftur og opnir skurðir algeng sjón.
Á myndunum hér að ofan getur að líta fyrstu framkvæmdir sumarsins á
þessu sviði.
Gjöf til SVA
í marzmánuði héldu fimm ungar
stúlkur á Seyðisfirði hlutaveltu til
ágóða fyrir Styrktarfélag vangefinna
á Austurlandi. Hafa þær afhent fé-
laginu hagnaðinn, kr. 22.100,-
Þessa góðu gjöf vill félagið þakka
stúlkunum og einnig framtak þeirra
og áhuga. En þessar stúlkur eru:
Ingunn Gylfadóttir, Mekkín Árna-
dóttir, Auður Brynjarsdóttir, íris
Bjarnadóttir og Emilía Blöndal.
Unglingar og
umhverfið
Auðvelt er að samræma sumar-
starf unglinga og flestar fram-
kvæmdir og verkefni á vegum sveit-
arfélagsins. Fegrun og snyrting
þorpsins er það verkefni sem vinna
verður að á næstu árum. Fyrirtæki
og einstaklingar verði hvattir til að
ljúka frágangi húsa og lóða.
Til að koma til móts við ungling-
ana, verður að efla félagslíf í sveit-
ai'félaginu. Best er það gert með því
að styrkja þau félög sem tekið hafa
forystu á þessu sviði með nokkrum
fjárframlögum.