Austri - 26.05.1978, Qupperneq 6
6
AUSTRI
Egilsstöðum, 26. maí 1978.
mS Fréttir
Gullbrúðkaup
Eins og áður hefur komið fram,
hefur fjöldi íþróttafólks í hyggju að
keppa fyrir hönd U.Í.A. á landsmóti
UMFÍ á Selfossi dagana 22. - 24.
júlí í sumar.
Áskoranir þess efnis að Austfirð-
ingar flykkist á Selfoss og fylgist
með framgöngu U.Í.A.'- manna eru
hér með ítrekaðar.
Ein er sú grein íþrótta, þar sem
óvissa ríkir um keppendur í, af .hálfu
U.Í.A. Þetta eru svonefndar starfs-
íþróttir.
Á landsmótinu verður keppt í
eftirtöldum starfsíþróttagreinum.
1. Lagt á borð.
2. Hestadómar.
3. Starfshlaup.
4. Dráttarvélarakstur.
5. Jurtagreining.
6. Línubeiting.
Þegar hefur einn keppandi gefið
sig fram í línubeitingu, en heimilt er
að senda þrjá keppendur í hverri
grein.
Þeim sem hafa áhuga á því að
keppa fyrir hönd U.Í.A. í einhverri
ofantalinna greina, er bent á að hafa
samband við Sigurjón Bjarnason
framkvæmdastjóra U.Í.A. skriflega,
eða í síma 1353, 1379 eða 1375, og
mun hann taka við þátttökutilkynn-
ingum.
Stjórn U.Í.A. hefur nú um nokk-
urt skeið velt vöngum yfir því hvern-
ig mögulegt er að greiða allan þann
♦-K-k-K-k-K-K-K-k-k-k-*f-k-k-Kk-k-k-k-k->(-k-K-k+
Smáauglýsingar
TIL SÖLU!
Mazda 121 árgerð 1977, ekinn
tæplega 14 þúsund km.
Upplýsingar í síma 1298.
kostnað, sem hlýst af þátttöku sam-
bandsins í landsmóti UMFÍ í sumar.
Tvær fjáröflunarleiðir hafa verið
ákveðnar.
Önnur er fólgin í því að bjóða at-
vinnurekendum og öðrum á sam-
bandssvæðinu að kaupa af U.Í.A. all
veglega gripi, sem verið er að útbúa
hjá gullsmið. Gripir þessir verða á-
letraðir þakklætisorðum fyrir veittan
stuðning við U.Í.A., og jafnvel merkt-
ir kaupendum.
Sú hugmy.nd hefur skotið upp koll-
inum að ráðist verði í þvílíka fjár-
öflun fyrir hvert landsmót, og gætu
þá kaupendur með tímanum átt dá-
lítið safn af þessum stuðningsgripum.
Hin fjáröflunarleiðin byggist á því
að fólk heiti á U.Í.A. ákveðinni upp-
hæð fyrir hvert stig, sem sambandið
ávinnur sér á landsmótinu. Geta
menn gert það með því að fylla út
yfirlýsinguna hér að neðan, klippa
hana út úr blaðinu, og senda hana á
skrifstofu U.Í.A. Selási 11, Egilsstöð-
um. Að loknu landsmóti verða við-
komandi síðan krafðir um skuld sína
á einhvern ótvíræðan hátt.
Til frekari upplýsinga skal þess
getið, að á síðasta landsmóti hlaut
U.Í.A. 33 stig. Nú bendir hins vegar
margt til þess að stigin verði vel yf-
ir 100.
Er þess vænst að fólk sýni málefn-
inu áhuga, með því að efla sambandið
og hvetja austfirskt íþróttafólk til
dáða á þennan hátt.
TIL SÖLU!
Túnþökur. Talið við mig sem
fyrst.
Björn Hólm
Stangarási.
Hjónin, Magnhildur Stefánsdóttir
og Björn Kristjánsson Grófarseli
Jökulsárhlíð, eiga gullbrúðkaup 27.
þessa mánaðar. Magnhildur varð
sjötug á síðast liðnu vori, en Björn
verður 75 ára í haust.
Aldrei þessu vant komu fram á-
skoranir á framboðsfundinum. á
sunnudaginn um hvern ætti að kjósa
í sýslunefnd. Sýslunefndarkosningar
hafa yfirleitt fallið í skuggann af
hreppsnefndarkosningum, en nú virð-
ist þar einhver breyting á. Það er
því ekki úr vegi að rekja svolítið
hvað sýslunefnd hefur fyrir stafni
og hvað hefur verið gert síðustu
fjögur árin.
Aðgerðir sýslufunda hafa yfirleitt
verið raktar í þessu blaði jafnóðum.
Það skal þó rifjað upp að langstærsta
verkefni sýslusjóðs Suður-Múlasýslu
á þessu tímabili hefur verið stofnun
og rekstur Héraðsskjalasafns hér á
Egilsstöðum. Umræður um þetta mál
stóðu alllengi, en nú er svo komið að
safnið hefur verið opið almenningi í
vetur, og Ármann Halldórsson hefur
unnið sem safnvörður hluta úr starfi,
en kemur að fullu til starfa við safn-
ið innan skamms.
Safninu hefur.verið það gifurlegur
styrkur að innan veggja þess er fá-
gætt bókasafn sem því barst að gjöf
frá þeim hjónunum Halldóri Ás-
grímssyni og Önnu Guðmundsdóttur.
Þetta safn er um 4500 bindi og er
stöðugt unnið að því að auka það og
Þau hjónin hafa nú ákveðið að
gera sér dagamun í tilefni þessara
afmæla og taka á móti gestum í fé-
lagsheimiii Hlíðarmanna laugardag-
inn 8. júlí kl. 20.00.
endurbæta. Mikið verk er óunnið í
skjalasöfnun og verður það höfuð-
verkefnið næstu árin.
Sýslusjóður úthlutar framlögum til
ýmissa verkefna og hér í þorpinu
má nefna stofnanir eins og Sjúkra-
skýlið og vistheimilið Vonarland sem
hlotið hafa framlög úr sjóðnum.
Aðalverkefni sýslunefndarmanns
héðan frá Egilsstöðum er að standa
að uppbyggingu Skjalasafns, og hef-
ur starf undirritaðs á þessum vett-
vangi, nær eingöngu verið í því fólg-
ið. Nú má hins vegar reikna með
vaxandi umræðum um breytta skip-
an lögsagnarumdæma og er nauðsyn-
legt fyrir fulltrúa í sýslunefnd að
fylgjast með á þeim vettvangi.
Undirrituðum þótti skylt að láta
þessar upplýsingar koma fram af því
að þetta kjör er til umræðu, en síst
ætla ég að fara að lýsa yfir van-
trausti á þeim ágætu mönnum sem i
framboði eru, ekki síst þar sem ann-
ar þeirra hefur verið minn nánasti
og ágætur samstarfsmaður við skjala-
safn. Fólk kýs þarna eins og í stóru
kosningunum eftir sannfæringu sinni,
og við Ármann stöndum ekki í styrj-
öld út af þessum málum fjarri því.
Undirritaður heitir hér með á
Unjrmenna- o" íþróttasamband Austurlands
kr. □ 5.- □ 10.- □ 50.-
(krossið í einn reitanna)
□
fyrir hvert stig, sem sambandið ávinnur sér á 16.
landsmóti UMFÍ, sem lialdið verður á Selfossi
Sýslunefndarkjör
Jón Kristjánsson.