Austri - 26.05.1978, Page 8
8
AU'STRI
Egilsstöðum, 26. maí 1978.
Hér á íþróttahúsið að rísa
Síðastliðið haust náðist samkomu-
lag við Menntamálaráðuneytið um að
hefja byggingu á íþróttamiðstöð hér
á Egilsstöðum. Þar er um að ræða
í fyrsta áfanga íþróttasal, sem verð-
ur 22 x 27 metrar að stærð, ásamt
tilheyrandi búningsaðstöðu og áhorf-
endasvæði. Húsið er byggt sem grunn-
skólaframkvæmd og kemur til með
að þjóna grunnskólanum, væntan-
legum menntaskóla og öllum almenn-
ingi í kauptúninu. Er hér um mjög
mikið framfaramál að ræða þar sem
að íþróttaaðstaða hefur ‘verið mjög
ófullkomin innanhúss. Vonast er til,
að þessi hluti byggingarinnar kom-
ist til nota, innan tveggja til þriggja
ára.
Menntadeild áfram
Menntaskóli Austurlands skal taka
til starfa haustið 1979. Leggja ber
áherslu á að framhaldsdeild (Mennta-
deild) í tveimur bekkjum starfi við
Egilsstaðaskóla á komandi vetri
þannig að Menntaskólinn geti byrjað
með 3 bekki en það auðveldar honum
að hefja starf t.d. varðandi kennara-
ráðningar. Menntamálaráðuneytið
hefur ákvörðunarvaldið og er tregt
til að veita heimild til að reka slíkar
deildir sérstaklega þó á þetta við um
2. bekk framhaldsdeildar. Allir, sem
hlut eiga að máli, verða því að
leggjast á eitt til að koma því í höfn.
Ráðuneytið ætti ekki að þurfa að
óttast það fordæmi sem þessi heimild
yrði vegna þess að hér er um bráða-
birgðaráðstöfun að ræða og fram-
haldsdeildin verður lögð niður þegar
Menntaskólinn tekur til starfa.
Kosningaskrifstofa
Stuðningsmenn B - listans Egilsstöðum.
Kosningaskrifstofan er að Laufási 6 og Lagarási 8
símar 1229 og 1414.
Kjósið snemma x - B.
B - listinn Egilsstöðum.
Guðmundur Magnússon er ekki í
framboði til sveitarstjórnar í kom-
andi kosningum. Hann hefur átt
sæti í sveitarstjórn á milli 20 og 30
ár, og síðustu árin sem oddviti og
nú síðast sveitarstjóri.
Störf sveitarstjóra eru ótrúlega
margþætt. Hann er bæði fram-
kvæmdastjóri hreppsnefndarinnar og
um leið forystumaður um ýms mál.
Guðmundi hefur i starfi sínu sem
sveitarstjóri tekist að halda fjár-
málastöðu hreppsins góðri, þannig að
sveitarfélagið nýtur trausts og vel-
viljaðrar fyrirgreiðslu í þeim lána-
og peningastofnunum, sem það hefur
skipti við. Slíkt er ómétanlcgt og
kemur sér sérstaklega vel nú þegav
fyrir dyrum standa fjárfrekar fram-
kvæmdir, svo sem hitaveitufram-
kvæmdirnar, sem afla þarf lánsfjár
til. Má fullyrða að Guðmundur njóti
almenns trausts bæði hér heimafyrir
sem annars staðar.
Við frambjóðendur B-listans mun-
um því beita okkur fyrir því, að
Guðmundur verði áfram ráðinn sveit-
arstjóri Egilsstaðahrepps þar sem við
teljum það vera sveitarfélaginu og
íbúum þess fyrir bestu.
Guðmundur áfram
sveitarstjóri?
Vilhjálmur settur rektor
Vilhjálmur Einarsson skólastjóri í
Reykholti hefur verið settur rektor
Menntaskóla Austurlands til eins árs.
Vilhjálm þarf ekki að kynna fyrir
autfii'ðingum, hann er þekktur bæði
af verkum sínum og áhugamálum.
Blaðið býður hann innilega velkom-
inn til starfa á æskuslóðum.
Dagheimili
Stefnt verður að því að ljúka markmið fyrir augum að unnt verði
fyrsta áfanga dagheimilis á árinu. að mæta til fulls þörfum fyrir dag-
Strax að því loknu verði hafinn und- vistun.
irbúningur stækkunar þess með það