Nýr Stormur - 26.11.1965, Page 3

Nýr Stormur - 26.11.1965, Page 3
FÖSTUDAGUR 2G. nóvember 1965 ^SlóRMUII 3 Ótímabær nafnbirtíng Eins og kunnugt er ríkir tvennskonar réttarfar í þessu landi. Annars vegar réttarfar hinna ríku og voldugu, sem eiga að sér heila stjórnmáia- flokka og geta leyft sér svo að segja hvaS sem er. Þessir menn svíkja undan skatti og smygla og gera nákvæmlega þaff sem þeim sýnist, þótt þaff brjóti í bága viff lög. Þeir vita sem er, að þeir eru vernd aðir af yfirvöldunum, sem eru yfirvöld fyrir náð peninga þessara sömu manna. Hins vegar er svo réttarfar þeirra, sem minna mega sín. Þeirra sem verða að vinna baki brotnu til að eignast þak yfir höfuðið eða atvinnutæki ,sem rétt nægir til að þeir hafi at- vinnu af og fjölskylda þeirra lifibrauð. Þessir menn eru ekki í náðinni, enda hafa þeir ekki tök á að leggja stórfé fram i kosninga- og flokkssjóði stjórn- málaflokkanna. Fyrir nokkru síðan birtist fregn um að nokkrir menn hefðu orðið uppvísir að skatt- svikum og þeir dæmdir til að greiða ógoldinn tekjuskatt og stolinn söluskatt. Þessir menn eru stórbrotleg- ir við lög og hafa valdið miklu tjóni og vafalaust hafa ckki öll kurl komið til grafar hjá eúi- hverjum þeirra eða öllum. Nöfn þessara manna mátti liins vegar ekki birta og njóta þeir sérstaklega verndar hins nýja fjármálaráðherra, Magnús ar Jónssonar, en honum hefir verið sagt að lílífa þessum mönn um við öllu hnjaski, ef mögu- legt er. IJið íslenzka ríki hefir sérstakar mætur á þeim er ger ast brotlegir við það, ef þeir eru nógu vel efnum búnir. Skattalögreglunni er sagt að þegja og úr henni dregið allt afl, með óvönum og ónógum stárfskröftum. Hún mun samt sem áður ckki sitja auðum hönd um þótt erfitt sé um vik. Kom að því að hún hugðist nota heimild í lögum til að rannsaka bankaviðskipti manna í sam- bandi við athuganir sínar. Gaml ar reglur eru hjá bönkum um að hleypa engum í viðskipti sín og viðskiptamanna sinna og taldi Landsbankinn rétt að láta höfða prófmál til að sannreyna hald laganna. Úrskurður var kveðinn upp í samræmi við óskir skattalög- reglunnar og þá springur sprengj an. Morgunblaðið, og það blað, sem mest hefir borið hag skatt- svikaranna fyrir brjósti og ekki hefir birt nöfn þeirra frekar en önnur blöð, ríkur nú til og birt ir nafn verzlunar- og kaup- manns, sem athugun er gerð hjá og bankinn notaði til að prófa gildi laganna. Nú er þessi mað- ur stimplaður skattsvikari í augum almennings með þessari illgirnislegu nafnbirtingu. *Eng- in veit hvort maðurinn er í raun og veru sekur um að hafa svik- ið undan skatti, en því var sleg ið föstu af Morgunblaðinu, með því að birta nafn hans. Ef til vill hefir verið ætlunin að leyna sjónum almennings frá vinun- um, sem uppvísir höfðu orðið að skattsvikunum um daginn, með því að draga athyglina að lítilli smásöluverzlun, sem varla hefir getað dregið stórar upp- hæðir undan. Nú vill svo til að kaupmaður þessi er óvenju dug legur og vinnusamur og berst lítt á. Morgunblaðið hefði áreið anlega ekki birt nafn þessa manns, ef hann hefði verið mjög góður flokksmaður. Ekki er þessu blaði kunnugt um stjórn málaskoðanir kaupmannsins, en mikill sjálfstæðismaður er hann varla. Hér er brotin, af blaðamönn- um Morgunblaðsins, regla rétt- arfarsins um, að menn séu ekki sekir fyrr en búið er að finna sökina. Þessi nafnbirting er hneyksli, á sama tíma og vand- lega er haldið leyndum nöfnum manna, sem sannir eru að sök. Það er ekki í fyrsta sinn að bakari er hengdur fyrir smið í þessu landi og má segja að nær væri yfirvöldunum að takast í alvöru á við skattsvikarana, þá stóru fyrst og reyna að ná þann ig einhverju af hinum stolnu peningum, heldur en vera að flagga með nöfn manna, sem ef til vill eru ekki sekir. Það er skýlaus krafa almenn ings að nöfn skattsvikaranna verði birt, svo að saklausir menn liggi ekki undir orðrómi og grun. Þessir menn eiga enga hlífð skilið. Marírir þeirra hafa safnað öllum auði sínum skatt- sviknum, og það er þjófnaður "oen rikinu og þeanunum. Það lágmarkskrafa að þessir menn 'yr,rði ekki látnir sleppa fremur við afleiðingar verka sinna, en ■’ðrir þegnar þjóðfélagsins. sem minna hafa af sér brotið. Á miffilsfundi — Framh. af bls. 2. ég held viti. Mörg ár eru liðin frá þessari stundu og á þeim árum hefi ég kynnst betur Biblí unni og hinu lifandi orði Guðs. Ég veit núna betur en áður, að alls enginn Guðdómur býr í þeim myrkviði, sem spiritism- inn er. Drottinn er ljós í heim- inn kominn, og hann býr ekki í myrkrinu, sem umlvkur mið- il og andatrúarfundi. Eins og djöfullinn tók á sig Ijósengils- mynd forðum, svo er einmg far- ið þeim „andaverum vonzkunn- ar í himingeimnum" sem þjón- usta börnum m.vrkursins á anda trúarfundum. Það orð er satt Fengitími okraranna — Framh. af bls. 1. þrengist æ meir eftir því sem dýrtíðin vex og allar fram- kvæmdir kalla á meira fjár- magn. Þetta er óheillavænleg þróun fyrir alla, því þessi mál varða alla þegnana. Vissir aðilar eru þó til, sem fagna þessari þróun, en ]oað eru hinir svokölluðu sjálf v;ouðu bankastjórar. Þeim hafa verið gerð nokkur skil í þessu blaði, en það er þó aðeins bvrjunin, því skal lofað. Nú er sannkall- aður fengitími hjá jiessum mönn um. Aðsóknin er mciri en nokkru sinni fyrr og þeir selja sig dýrar en nokkru sinni áð- ur. Flestum hefir þótt nóg um hin venjulegu 3% á mánuði, en nú er ekki lengur um það að tala. Prísinn hefir hækkað upp í 5% á mánuði, að minnsta kosti fram að áramótum, en á þessum tíma eru bankar að mestu lokaðir fyrir útlánum, og reyna að kalla sem mest inn af skuldum, vegna áramótaupp- gjörs. Fyrir nokkru leitaði maður nokkur til þriggja slíkra banka- stjóra hér í bænum, eftir að hafa gengið bónleiður til búðar í bönkunum, sem neituðu honum um framlengingu fram yfir ára- mótin. Upphæðin var tvö hundr uð og fimmtíu þúsund krónur, sem hann hefir vissu fyrir að fá greiddar síðast í janúar. Hann gat fengið þessa peninga, því hann hafði nægar tryggingar fyrir greiðslu á réttum tíma. Kjörin voru hins vegar alls stað ar hin sömu: 287.500 krónu víx- il og tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur greiddar út, = 15% vextir í þrjá mánuði og eitt skilyrði ófrávíkjanlegt: má ekki geja upp til skatts og honum því ekki mögulegt að fá vextina frádregna við skatta- framtal. Hvernig þetta mál fer, er enn óvíst. en hann á vafalaust ekki um annan kost að velja, en taka þessi lán, eða komast á svart- an lista hjá bönkunum, og hætta þar með lánsstrausti sínu. Þann- ig skapar peningaflóðið auðæfi hjá sumum, en erfiðleika hjá öðrum. Auðvitað ber bönkun- um skylda til að koma í veg fyrir að þessi svarti lánamark- aður þrífist, en það gera þeir síst með því að skera menn nið ur við trog á erfiðasta tíma árs- ins. Við skipti jólamarkaðarins er að byrja og krefst óhemju veltu fjár. Það er ófáanlegt í bönk- um landsins, en okrararnir taka að sér hlutverkið og peningarn ir hverfa samt sem áður úr bönkunum og hagnaðurinn renn Framh. á bls. 10 JOHN MACKINTOSH & SONS LTD., HALIFAX, ENSLANO 506 A Einlcaumboð: ACTIVE Islenzk erlenda verzlnnarfélagið Tjarnargötu 18 — Sími 20400 $urla- smjörliki er heilsusamlegt og bragðgótt, og því tilvalið ofan á brauð og kex. Þér þurfið að reyna $urla- smjörliki til að sannfærast um gæði þess. AFGREIÐSLA SMJÖRLÍKISGERÐANNA

x

Nýr Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.