Nýr Stormur - 17.12.1965, Qupperneq 2

Nýr Stormur - 17.12.1965, Qupperneq 2
* Él/ORMUR FÖSTUDAGUR 17. desember 1965 Jólin gleymast — Framh. af bls. 1. ar nágrenni. Þrátt fyrir allt þetta, þörfina til að gefa og þiggja kærleika, aðstöð- una til skilnings og mennt- unar, verða æ færri trú- lausir á kenningar Krists. Að vísu eru ofbeldisverk ó- víða framin í hans nafni jafn ríkulega og áður fyrr, en menn biðja þó faðirvor- ið, áður en þeir fara út til að drepa menn. Mennirnir og Kristur Yfirskriftin yfir þessari grein er tekin úr Biblíunni. Eina skipti, sem vitað er til að Jesú hafi beitt ofbeldi var þegar hann rak prang ara og víxlara, sem við myndum sennilega nefna okrara nú á dögum, út úr Guðshúsi. Svo megna fyrir- litningu hafði sjálfur Jesú Kristur á þessari starfsemi, að hann hikaði ekki við að beita líkamlegu ofbeldi og kallaði vettvang þessarar starfsemi ræningjabæli. Á síðari hluta tuttugustu aldar, sem liðin er frá fæð- ingu Krists, er ástandið þannig í hinum vestræna Kristna heimi og þá ekki hvað sízt hjá okkur, að Kristur myndi víða verða að beita ofbeldi og mörg væru þau ræningjabælin, spm hann ipyndi augum líta. Nú má segja að hann hafi talað um ræningja- bæli í Guðshúsi, en myndi ekki hafa skipt sér af þeim annars staðar. Því miður er þessi samanburður ekki allskostar réttur. Ræningja bælin eru starfrækt vegna trúarinnar á Jesú Krist í sambandi við fæðingarhá- tíð hans. „Jólabissnessinn" er beinlínis til orðinn vegna hátíðar Krists. Fátt er hægt að hugsa sér einfald- ara og fátæklegra en fæð- ingu Jesús. Hann fæddist í lélegu fjárhúsi og þótt sagt sé að honum hafi verið fært gull í fæðingargjöf, þá er það vafalaust helgisögn út í loftið. Nú er sá hugsun arháttur, að því aðeins sé hægt að minnast þessa stór kostlega, en einfalda og fátæklega viðburðar, þurfi gull, gull og meira gull! Allt er klætt 1 ytra skraut og ekkert nógu fint og dýrt. Börnin eru gerð hálfærð i tilstandi hinna fullorðnu. Þau vita ekki lengur um hvað hátíðin snýst í raun og veru. Foreldrarnir segja þeim ekki frá Jesú. Þau fara ef til vill í kirkju og horfa frá sér nurnin á allt skrautið, en heyra ekki orð prestsins. Þau hlusta á út- varp heima hjá sér, en það er þá helst í barnatímun- um, að þau heyra talað um Jesú, því að á jólum snýst allt um annað, en tilefnið til hátíðahaldanna. Á heimilunum er hugsað um skraut, fín föt, mat og skemmtanir á jólum, en á fæðingarhátiðina sjálfa eða tilefni hennar, heyrist ekki mynnst. Það er orðið gam- aldags að segja börnunum frá Jesú Kristi. Nú eru það geimförin í himinhvolfinu, en ekki Guð á himnum, sem börnin heyra talað um. Tízkan er miklu sterkara afl en trúin. Jólin, trúar- hátíðin er orðin nátengd tízkunni. Á jólum er fín- ustu tízkufötunum klæðst. Konur og karlar, ungir og gamlir klæðast sínu bezta skarti á jólum og er ekkert út á það að setja, en jólin eru ekki tízkufyrir brigði og föt og ytri búnað- ur er aðeins aukaatriði, en er nú orðið að aðalatriði. Ágætt dæmi um fáfengi- legheit og öfga hins nýja tíma, er brúða nokk) , sem nú er i tízku. Brúða þessi er bæði lítil, dýr og ómerki- leg. Hún er klædd fötum eins og kvenmaður, yst og innst og er hér um veru- legan „fínan bissness“ að ræða. Hér er afskræming jólanna í essinu sínu. Leik föng barna ganga svo úr hófi fram, bæði að gerð og dýrleika, að engu tali tek- ur. Gælt er við hernað og of beldi i leikföngum drengja, en glys, prjál og fínheit einkenna leikföng telpna. Allt er þetta gert í nafni Jesú frá Nazaret. Væri hann staddur hér uppi nú, myndi hann á- víta yður og segja: Vel yffur, þér Farísear og hræsnarar, þér hafiff á yff- ur yfirskin guðshræffslunn ar, en afneitið krafti henn- ar. Þér eruff eins hiff innra og kalkaðar grafir, fullar af dauffra manna beinum! Gleffile" i«” I | Qldiley }ó(! Hdcu’ía Ét ndtt ár! G. J. FOSSBERG, vélaverzlun TRYGGVI GUNNARSSON Fyrir 10 árum kom út I. bindi ævisögu Tryggva Gunnarssonar. Að vonum hugðu menn gott til framhaldsins, þar sem hinn þjóðkunni höfund- ur, dr. Þorkell Jóhannesson, prófessor, bjóst til að segja sögu eins umsvifamesta athafnamanns landshöfðingjatímabilsins og um leið álitlegan hluta af atvinnu- og hagsögu tímabilsins. Þegar dr. Þorkell Jóhannesson féll frá 1960, hafði hann safnað miklu efni til annars bindis ævisögunnar og samið drjúgan hluta þess. Það varð að ráði, að Bergsteinn Jónsson cand. mag., tæki við þar sem þráðurinn féll úr hendi dr. Þorkels. Er nú II. bindi ævisögunnar komið út, 546 bls. að stærð. Hefur dr. Þorkell samið fyrri hlutann (bls. 1—305), en eBrgsteinn Jóns- son slðari hlutann (bls. 306—5466. I. bindið af ævisögu Tryggva er ennþá fáanlegt hjá útgefanda. Verð aðeins kr. 135,00 í skinnlíki, 165,00 í skinnbandi. GESTUR PÁLSSON I—II Út er komið mikið og vandað rit um Gest Pálsson eftir Svein Skorra Höskuldsson, magister. Hér er í senn um að ræða ævisögu Gests, ýtarlega rann- sókn á skáldskap hans, fyrirlestra og annarra ritstarfa, og glögga athugun á lífsskoðunum skáldsins og viðhorfum í menningar- og þjóð- félagsmálum. Verkið er allt reist á traustum, vísindalegum grunni, enda hefur höfundurinn kannað allar tiltækar heimildir um Gest Pálsson hér á landi sem erlendis og kostað kapps um að gera viðfangsefninu hin fyllstu skil í hvívetna. Ritið er í tveim bindum, alls um 700 bls. á lengd. Það er prýtt miklum og fróðlegum myndakosti, og hafa margar ljósmyndanna ekki fyrr sézt á prenti. Bók Sveins Skorra Höskuldssonar er grundvallar- rit, ekki aðeins um ævi og verk Gests Pálssonar, heldur og um upptök og einkenni raunsæisstefn- unnar í íslenzkum bókmenntum. Verð kr. 645,00 í plastbandi, 731,00 í skinnlíki. Bókaútgáfa Menningarsjóðs KAUPMENN! KAUPFÉLÖG! Höfum ávallt fyrirliggjandi mikið og fallegt úrval af alls konar vefnaðarvörum frá heimsþekktum framleiðendum. KP ÞORVALDSSON & Cn " f ' » *» p r 7 I ii n Grettisgötu 6 — Sími 24730 og 24478 Gestur Pálsson

x

Nýr Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.