Nýr Stormur - 17.12.1965, Síða 5
‘’ÖSTUDAGUR 17. desember 1965
5
^MdRMUR
^iiiiiitiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiimmMmmiiiiiiinmniiminHmiiifnnniiiinmiiimimnwnniiiMMMiiuiinMmMraj^
.r
5TORMUR
Útgefandi: SamtSk óháSra borgara
I Ritstjórar: Gunnar HaU, sími 15104 og PáU Finnbogason, ábm. I
= Ritstj. og aígr. Laugav. 30. Simi 11658
Auglýsinga- og áskriftarsími: 22929
Vikublað — Útgáfudagur: föstudagur
Lausasöluverð kr. 10.00. Áskriftarverð kr. 450.00.
i Prentsmiðjan Edda h.f. |
^iiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiimiiiiiimmimmiiiiMmiiimnMiMimiiimmiimiiiiiiiiiMHiimiiMimiiuiiiiHimMiMiim't,
JÓLAHÁTÍÐI N
Enn einu sinni stendur jólahátíðin fyrir dyrum.
Það hefur að vonum lengi verið siður kristmna
manna að minnast á veglegan hátt fæðingar freis-
ara síns. Þessi siður er svo fallegur og sjálfsagður, að
hann er hafinn yfir allan vafa. Og vissulega hefur
jólaboðskapur kristinnar kirkju komið mörgu góðu
til leiðar, mildað hugi manna og komið á bróðurþeli,
þar sem áður var fjandskapur. Þessu er vel farið, og
hafi jólaboðskapurinn þessi gleðilegu áhrif, myndu
menn óska þess, að jól væru allt árið.
Hins vegar ber ekki fyrir það að synja, að á seinni
tímum virðast margir hlakka til jólanna af öðrum
ástæðum en þeim, sem rekja má til heilagrar ritn-
ingar. Tíminn fyrir jólin hefur sem sagt verið not-
aður í allt öðru skyni. Spákaupmennskan segir nefni-
lega mest til sín í jólaönnunum. Sá hvimleiði siður
hefur verið upp tekinn, að nota jólahátíðina sem
auglýsingatíma fyrir alls kyns varning, misjafnan
að gæðum.
Jólagjafafarganið er sannast sagt orðin hin skæð-
asta plága. Menn ganga svo nærri launum sínum
og fjármunum til að verða ekki minni en aðrir, að
þeir eru jafnvel fram á vor að rétta úr kútnum. Þessu
þarf að breyta. Jólin eiga ekki að vera verzlunarhátíð.
Þau eiga að vera hátíðleg minningarstund um þann
frelsara, sem drottinn sendi okkur mönnunum í
þeim tilgangi, að við mættum ganga veg ljóssins en
ekki myrkursins.
Um hitt má deila, hvort jólahátíð okkar sé hins
vegar ekki um of fyrirferðarmikil. Að dómi þess, sem
þessar línur ritar, virðist í meira samræmi við hug-
sjónir kristninnar, að jólin stæðu aðeins yfir að-
fangadagskvöld og jóladag með virðulegri, látlausri
og kirkjulegri athöfn. Með öðrum orðum virðist ann-
ar jóladagur að skaðlausu mega missa sig. í raun-
inni þarfnast allt helgidaga- og frídagahald okkar
íslendinga endurskoðunar.
Þrátt fyrir gagnrýni á framkvæmd jólahátíðar-
innar í nútíma þjóðfélagi, hlakka allir til jólanna
eins og börn. Þegar kirkjuklukkumar boða jólahá-
tíðina á aðfangadagskvöld, er sú klukknahringing
táknræn. Við vitum, að þessi hringing er ekki inn-
antómur hljómur, heldur að baki honum stendur
háleitur boðskapur um heilög jól heims um ból.
Þessi háleiti boðskapur minnir okkur fyrst og
fremst á kærleikann gagnvart meðborgurunum, á
þá skyldu að gera öðrum það, sem maður vill að
sjálfum sér sé gert. Boðskapurinn minnir og á frið-
inn. Friðinn til að lifa með fjölskyldu sinni og sín-
um nánustu eina kyrrláta og heilaga stund í minn-
ingu um Meistarann mikla.
Blaðið óskar öllum lesendum sínum gleðilegra jóla.
Jólainnkaup
því fyrr
því betra
fyrir yður
fyrir okkur
Jólaávextir
Mandarínur - Clementínur —
Vínber — Delicious epli rauð og gul
Rance beauty epli - Bananar -
Ananas — Sítrónur - Melónur —
Grapealdin — NiðursoSnir ávextir.
allar tegundir.
JOLASÆLGÆTI
,RT
Valhnetur — Hezlihnetur —- Parahnetur — BI. hnetur — Peacanhnetur — Peanuts —
Konfektkassar — Gjafakassar — Súkkulaðikex — Konkektrúsínur — Konfekt döðlur
Gráfíkjur — Kex ótal tegundir.
Sendum landsmönnum öllum
okkar beztu óskir um
Qieíiieg. fói!
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptamönnum okkar
ánægjuleg viðskipti á árinu
sem er að líða
Rolf
Johansen
&Co.
Laugavegi 178