Nýr Stormur - 17.12.1965, Blaðsíða 15

Nýr Stormur - 17.12.1965, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 17. desember 1965 KffcRMUR 15 Eptir hans lögmáli munu ey- amar vona, segir Esaias 42; það eru heiðnar þjóðir, svo plagar ritningin þær optliga að kalla; þetta mégum vér, bæði að raun og nafni. til- einka oss, sem byggjum hólma þenna; að sönnu hefir Guðs eylíf fyrirlivggja skotið oss út undir hið yzta heims- ins skaut; kannské og að mörgum þykja megi, að vér höfum varhluta farið af margri fullsælu heimsins; en þar á móti höfum vér ecki að segja af margri þeirri ó- lucku og andstreymi, sem annarsstaðar í heiminum plágar synduga menn, svo vér erum skyldugir að viður- kenna, að Guð hefir vel til vor gjört, ef vér kynnum með að fara; en hvömin sem þessu er varið, þá hefir hann ecki gjört oss afskipta af andligum hlutum, sem mest á ríður. Stutt stund er það, að vér eigum við þetta tímanliga að bóa, hvört heldur oss geng- ur með eður mót; en eins vel er oss Jesú blessuð tilkoma í holdið boðuð og öðrum, eins vel hans pína og dauði, mns vel hans upprisa, eins velhans uppstigning, eins vel útsending hins Heilaga Anda; á engu af þessu höf- um vér nokkum skort, held- ur enn hvör önnur þjóð í heiminum, og ef eg má segja, þá emm vér betur hér með forsorgaðir enn margir; því höfum vér engu síður orsök til að fagna og lofsýngja hin um góða Guði í hjörtum vor- um, Kól. 3, heldur enn allur heimurinn; já, öll Guðs kristni, hvar helzt sem hún er í heiminum, hún má játa það satt vera, er Pálus segir, Eph. 2, um heiðingjana: nú emð þér í Jesú Kristó, sem áður fjarri voruð, nálægir orðnir fyrir blóð Jesú Kristi, því hann er vor friður, hann sem gjörir eitt af báðum, og girðingu miðveggjarins hef- ir niðurbrotið. í kringum Jerúsalems musteri var einn steinveggur; þangað leyfðist heiðingjum að koma, en ecki lengra, svo að þjónustu gjörð in ecki saurguð vrði. af óum- skomum mönnum, og til þess lítur Postulinn í þessum orð- um. En síðan Guðs Sonur er í heiminn borinn, þá er í Kirstó hvorki umskum né yf- irhúð, Gal. 5: því segir og Pálus aftur, að hann hafi af- máð lögmál boðorðanna,sem var innifalið í setningunum, fyrir sitt hold, svo hann gjörði í sjálfum sér tvo að einum nýum manni og gjörði frið, Eph. 2. Þetta er meðal annars sá friður, er englarnir boða; friður mill- um Guðs og Manna, því Guð er maður orðinn; friður mill- um himins og jarðar. því Guð hefur í Kristó alla hluti for- líkað við sig (senijandi frið fyrir blóðið hans kross), hvört heldur þeir eru á jörðu eður himni, Kól. 1; friður við heilaga Guðs engla hvörra samneyti vér höfðum af oss brotið, því segir Pálus. að vér séum komnir til fjallsins Zíon, og til borgar Guðs lif- anda, Jerúsalem hinnar himnesku, og til margra þús- unda englanna, Hebr. 12; friður milli gyðinga og heið ingja, því það er í Jesú bless- aðri hingaðkomu framkomið, sem Drottinn spáir, Zach. 8, segjandi: á þeim dögum skulu tíu menn (það eru margir) af öllum þjóðum og túngumálum þrífa í klæða- fald Gæðingsins, segjandi: vér viljum með yður fara, því vér heyrum Guð er með ykk- ur; þessi er Imannúel, hvör er fyrst var sendur til for- tapaðra sauða af húsi ísraels, Matth. 15, en hafði þó aðra sauði er ecki voru af sauða- húsi, er honum byrjaði og þangað að leiða, Job. 10, svo þar yrði eitt sauðahús og einn hirðir. Ó, hvílík dýpt auðæfanna og Guðs speki! Hér má það satt játa, er Pét- ur með stórri undran sagði forðum, Act. 10, er Guð sendi hann til að stýra Korne- líum og hans heimafólki: nú reyni eg í sannleika, sagði hann, að þar er eckért mann- greinarálit hjá Guði, heldur að sérhvör einn, af hvörri þjóð sem hann er, sem hann óttast og fremur réttvísi, hann er hönum þóknanligur, Act. 10. Þarfyrir sýngja og Guðs englar hér í lofkvæð- inu: og mönnum góður vilji; það kallar textinn velþókn- un; hvar mundi þessa vel- þóknun vera að finna, bræð- ur mínir? Ekki hjá vesælu mannkyni, allra sízt á þeim dögum, þegar Drottinn kom til sinnar eignar, hún þeckti hann ecki; og kémur það hér fram, sem Jóhannes segir, 1. Post. 4. kap: í því er kjær- leikurinn fólginn, ecki að vér elskuðum Guð, heldur að hann elskaði oss, og sendi sinn Son, að hann yrði for- líkun fyrir vorar syndir. Þetta er ecki af mannligum tilverknaði skéð, því án Krists er maðurinn and- stygð fyrir Guði, heldur fyr- ir hans skuld sem er hans elskuligur Sonur, í hvörjum hönum alleina velþóknast, Matth. 3. Þess hafa hinir að- notið, hvörra hold og blóð hann hefir uppá sig tekið, því enginn hefir um aldur sitt eigið hold hatað, Eph. 5; þarfyrir er ekki að undra, þótt Guð hafi velþóknun á þeim, hvörja hans Sonur skammast sín ecki bræður að kalln, Hebr. 2, og þaraðauki fyrir trúna á hann eru orðn- ir einn andi með Guði, 1. Cor. 6. Fyrir því samfagna nú Guðs heilögu englar syndugu mannkyni, er svo bráðliga höfðu þessi gleði- ligu umskipti fengið, að verða Guðs börn af Satans börnum leysíngjar Kristi af syndarinnar þrælum, af lagsmönnum djöflanna. En svo sem þeir himnesku and- ar fagna þessu svo mjög, sem áður er sagt, að þeir boða frið og velþóknun Guðs yfir jörðunni, svo fagna og Kristi lærisveinar, og það fólkið, er hönum fylgdi inn til Jerúsalem, þar af, að frið- ur er í himninum orðinn. Þarum skrifar svo Lúcas 19: og allur fjöldi Lærisveinanna tóku til að lofa Guð með fögnuði og hárri röddu fyr- ir allar þær jarðteiknir, er þeir séð höfðu segjandi: blessaður sé sá sem kémur í nafni Drottins, friður á himni og dýrð í upphæðuml Merk þetta vel, kristinn maðurl hinn náðugi Guð hefir látið friðarboð gánga um alla veröldina og lagt sínum postulum uppá að auglýsa forlíkun þessa, 1 Cor. 15, hvarfyrir þeirra hljómur er útgenginn um alla heimsbygðina, Róm. 10, en Guð náði, hvað fáir þeir eru sem vilja fallast á þau ráð, að minnast við Soninn, svo hann verði oss ekki reið- ur, Ps. 2. Guð hefir látið boða frið á jörðu; lát þér vera annt um, kristinn mað- url að verða þess fullörugg- ur, að þar sé og friður fyrir þig í himninum. Allir Jesú Kristi velgjörningar eru í hans fæðingu öllum boðnir, einnin þeim, sem fóttroða Guðs Son, og sáttmálans blóð almenniligt halda, með hvörju syndarinn er þó helgaður, Hebr. 10. Guð er að sönnu frelsari allra manna, því hans Sonur hefir fyrir alla liðið, þó einna mest trúaðra, 1 Tim. 4, því þeir einir mega frelsisins njóta, sem trúa á nafn ein- gétins Sonar Guðs; géf þvf ecki upp á vegi þinnar sálu- hjálpar, fyrr enn að Heilag- ur Andi ber vitni þínum anda þar um, að þú sért Guðs barn, Róm. 8; en hvörnin máttu það öðlast? Það skéður ef þú gjörir enga sátt við hans óvini, ecki við Djöfulinn, því hann er Guðs svarinn óvinur; vér höfum afneitað öllu hans athæfi í Framh. á bls. 16. / / '( '/ / '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ •'/ '/ '/ / '/ '/ '/ '/ '( 't '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ / '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ ■/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ r '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '( 't '/ '/ '/ '/ '/ '( 't '( '/ '/ '/ '/ ‘i '( '/ '/ '/ '/ '/ AUGLÝSING um takmörkun á umferð í Reykjavík 10. til 24. desember 1965. ÁkveðiS hefur veriS aS gera eftirfarandi ráSstafanir vegna mikillar umferSar á tímabilínn 10 til 24. desember næst komandi: 1. — Einstefnuakstur: 1 ) Á Vatnsstíg frá Laugavegi til norSurs. 2) Á Frakkastíg frá Hverfisgötu aS Lindargötu. 2. — Hægri beygja bönnuð: 1 ) Or Tryggvagötu í Kalkofnsveg 2) Úr Snorrabraut í Laugaveg 3) Or Snorrabraut í Njálsgötu 4) Or Laufásvegi í Hringbraut 3. — Bifreiðastöður bannaðar eða takmarkaðar: BifreiSastöSur bannaSar á SkólavörSustíg norSan megin götunnar frá Týsgötu aS NjarSargötu. BifreiSastöSur takmarkaSar viS Vfe klukkustund á Hverfisgötu frá húsinu nr_ 68 aS Snorrabraut, á eyjunum í Snorrabraut frá Hverfisgötu aS Njáls- götu, á Barónsstíg milli Skúlagötu og Bergþóru- götu, Frakkastíg, Vitastíg, Klapparstíg og GarSa- stræti norSan Túngötu. Þessi takmörkun gildir á almennum verzlunartíma frá föstudeginum 1 0. desember og til hádegis föstu- daginn 24. desember n. k. Frekari takmarkariir en hér eru ákveSnar, verSa settar um bifreiSastöSur á Laugavegi, í Bankastræti, ASalstræti og Austur- stræti, ef þörf krefur. 4. — Ökukennsla er bönnuS í miSborginni milli Snorrabrautar og GarSastrætis á framangreindu tímabili. 5. __ BifreiSaumferS er bönnuS um Austurstræti, ASalstræti og Hafnarstræti, laugardaginn 18. des- ember kl. 20,00 til 22,00, og fimmtudaginn 23. desember kl. 20,00 til 24,00 Ennfremur verSur sams konar umferSartakmörkun á Laugavegi frá Snorrabraut og í Bankastræti á sama tíma, ef ástæSa þykir til. ------í Athygli skal vakin á takmörkun á umferS vöru- bifreiSa, sem eru yfir 1 smálest aS burSarmagni, og fólksbifreiSa, I 0 farþega og þar yfir, annarra en strætisvagna, um Laugaveg, Bankastræti, Austur- stræti og ASalstræti. Sú takmörkun gildir frá kl. 13.00 þar til almennum verzlunartíma lýkur alla virka daga, nema laugardaginn 18. desember, en þá gildir banniS frá kl. 10,00. Ennfremur er ferm- ing og afferming bönnuS á sömu götum á sama tíma. Þeim tilmælum er beint til ökumanna, aS þeir forSist óþarfa akstur, þar sem þrengsli eru, og aS þeir leggi bifreiSum sínum vel og gæti vandlega aS trufla ekki eSa tefja umferS. Þeim tilmælum er beint til gangandi vegfarenda aS þeir gæti varúSar í umferSinni, fylgi settum reglum og stuSli meS því aS öruggri og skipulegri umferS. LÖGREGLOSTJÓRINN I REYKJAVÍK, 9. DESEMBER 1965. Sigurjón Sigurðsson. / 't ‘t '/ / / / / '/ / '/ / / / / / / / '/ / / / / / / / / / '/ '/ '/ 't '/ '( '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '( '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ ’( '/ '/ '( '/ '/ '/ '/ '/ 'i '/ '/ '/ '/ '/ '/ f '/ '/ ‘i ‘t '/ '/ '/ '/ 'i 't '/ '/ '/ ‘i '/ '/ '/ / / '/ / '/ '/ '/ .'/ / /

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.