Nýr Stormur


Nýr Stormur - 08.07.1966, Side 6

Nýr Stormur - 08.07.1966, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 8. júlí 1966. Blöðin ræða að sjálfsögðu mikið um skattskrána og ber ekki öllum saman. Morgun- blaðið og Vísir eru málgögn borgarstjórnarinnar og ríkis stjórnarinnar og taka að sjálf sögðu málstað þessara aðila. Andstöðublöðin skammast hinsvegar út í þessa miklu bók og höfunda hennar, enda er óánægja manna mikil og almenn. Allir vissu að álögurnar yrðu miklar og þungar, því út svarsupphæðin var ákveðin fyrirfram. Hinsvegar hefir komið í ljós, að mestur þung- inn hvílir á íaunafólki, og atvinnureksturinn er annað hvort illa á vegi staddur, eða þá að um stórfelld skattsvik er að ræða þar á bæ. Það mun þó ekki vera að ráðl, heldur er hér um að ræða erfiðan rekstur fyrir- tækja. Lánsfj árhöftin fara illa með allan atvinnurekstur og óða- verðbólkan eykur rekstrar- kostnaðinn með hverjum mán uði sem líður. Útkoman er svo lélegur rekstur og lítið gjald þol. Morgunblaðið og Þjóð- viljinn rífast um hlut fyrir- tækja í útsvörunum og held- ur Þjóðviljinn því fram að sá hlutur hafi lækkað mjög og ber saman tölur frá 1960 og nú. Morgunblaðið segir hins- vegar að þetta sé ekki rétt og hvorugt blaðanna vill láta sig. Ranglátur skattur Sannleikurinn er > sá, aö Morgunblaðið hefir á réttu að standa. Breytt var um nafn á veltuútsvarinu og þa$ nefnt aðstöðugjald. Þessi skattur, sem er í rauninni saraa og skattur af þurftartekjum launamanna, er tóm vitleysa eins og svo margt í skatta- löggjöfinni. Þessi skattur get- ur hæglega sett fyrirtæki á höfuðið í mörgum tilvikum. Hann er ekki lagður á hagn- að, heldur á brúttóveltu. Hann er í rauninni söluskatt- ur, en fyrirtæki, sem eru t.d. háð verðlagsákvæðum, fá ekki að bæta honum á vöruna, líkt og söluskattinum. í þeim tilfellum að fyrirtæki geti velt honum út í verðlag- ið, gerir ekki hlut hans betri. Grundvallareðli skatta er að afgangsfé þegnanna sé notað til að bera uppi sameig inlegan rekstur þeirra. Þess vegna á að skattleggja fyrir- tæki af ágóða þeirra og ein- staklinga af ágóða, eða tekj- um umfram nauðþurftir. Þegar tekið er til að skatt- leggja fyrirtæki og einstak- linga af tekjum, sem ekki hrökkva fyrir brýnustu nauð synjum, þá er of langt geng- ið og það er gert hér. Stungið á kýlinu Dagblaðið Vísir birti fregn, sennilega óvart, þvl að svo mikill áfellisdómur er hún um ríkisstjórn blaðsins, að sænsk ur prófessor hafi skrifað um nýtingu matvæla, og deilt þungt á íslendinga fyrir mis- höndlun á einu dýrmætasta hráefni hafsins, síldinni. Vís- ir hefir oft verið harðasta stjórnarblaðið og varið allar gerðir ríkisstjórnarinnar af ofurkappi og ekki sézt fyrir. fyrrverandi fjármálaráðherra var við störf, að ritstjórinn sveif skýjum ofar, enda átti hann ráðherranum upphefð sína að þakka. Bent hefir verið á, bæöi í þessu blaði og öðrum, hve gífurlega mætti auka verð- mæti útflutningsframleiðsl- unnar með betri hagnýtingu aflans. Bent hefir verið á, að nær hefði verið að fá erlent fjármagn til stóriðju á þessu sviði, heldur en fá erlenda menn með álverksmiðju hing- að. Gjaldeyrissköpun álverk- smiðjunnar er aðeins „skítur á priki“ á móts við þann gjald eyri, sem skapaðist við rétta nýtingu aflans. Erlendar stór- verksmiðjur í fiskiðnaði eru byggðar upp á íslenzkum hrá- efnum. Flestar þjóöir skapa sér iðnað utan um eigin hrá- efni, en íslendingar flytja þau óunnin út, en fyllast svo fögn uði yfir að útlendingar skuli vilja flytja inn erlend hráefni og vinna þau hér við ódýra vatnsorku og flytja svo sína vöru út fyrir eigin reikning. Og að auki er þetta kallaður Einkum var það þó meðan íISiSíIíítSSXíSSíSíSSSKSSSSSíISSIIStíSSSíSSíSSííSSiIiiiiitiSSiiiiiiiííiiSSSSiSSSSííSSSSíSiíiiEiSíwSiSiSííiSSíSíSSSSSSSíSwSSMiSSS 5S53S55Í535! V INNIHELDUR (ÍLL HELZTU ViTAMíN. * ER HOLL OG GOO FJEÐA. Qsta- og Smjörsalan s.f. ----)•■■■■ ■■«■•■■■«! ■■■■■1 !SSS*ÚSSSS8SKSiíSSSKÍSSSSSSS5S í víðri veröld er ekkert sem hægt er að jafna saman við Kuwait. Það er landfræðilega séð, eitt af minnstu ríkjum jarðar; flatarmál þess er á- líka og Sjálands, og það hefir aðeins 200 þúsund íbúa. — Kuwait er innst í Persaflóa. Þetta litla ríki hefir síðan síð- ari heimsstyrjöldinni lauk, tekið stökk fram á við mörg hundruð ára þróun. Það eru hin ævintýralegu auðæfi, sem liggja undir hinni rykugu jörð fisk úr bátum, sem virðast hafa siglt beint út úr Biblí- unni. Raddirnar úr bænahúsun- um hljóma í gegnum hátalara og við mörg númadatjöld rísa sjónvarpsstengur. Viðskipta- menn basaranna aka vörum sínum heim í dollaragrínum. í vatnsleiðslum borgarinnar streymir vatn, sem eimað er úr sjó í stöð, sem hreinsar £2,5 milljónir lítra á dag. Börn in ganga í skóla, sem tæplega X*X»*V»V*V*‘V.*'V**V.*V*V«V*V*V»'V**V*'V*V*V»V**V*‘V*'V*X.V*V*,V*V*V*'V t r | KUWAIT s ( \ \ Landið, sem flýtur í svörtu gulli í þessa litla rikis, og framsýn ríkisstjórn, sem hefir breytt þessu eyðimerkurríki í sam- bland af miðaldaheimi og framtíðarríki. Frá turnum bænahúsanna í höfuðborginni Kuwait, sem er eina borg landsins, er kallað ttl bæna fimm sinnum á dag. Suqs (basar) borgarinnar iða af mönnum í efnismiklum síð um Dishdash-kápum og kafi/- yehs (höfuðbúnaður). Fyrir utan borgina hafa flökku- bedúarnir slegið hinum svörtu lágu tjöldum sínum. Við höfn ina losa berfættir fiskimenn eiga sinn líka í viðri veröld. Heilbrigðiskerfið er fullkom- lega nýtízkulegt og ókeypis og enginn greiðir eyri í skatta! Stórfengleg stiórnar- og verzlunarhús, ný íbúðarhverfi, spítalar, söfn, skólar og íþróttasvæði vitna um, að stjórnvöld þessa litla ríkis gera sér far um að láta íbúa þess njótá auðæfa þeirra er streyma frá allsnægtahorn- inu, þ. e. hinum óviðjafnan- legu olíulindufn. Þrjá kílómetra frá aðal við- skiptastöðinni, rísa kranar og nýjustu höfninni í Austur- löndum nær. Fyrir utan borg- ina í gulbrúnni eyðimörk, sem aðeins vantar vatn til aö breytast í grænar grundir, skín sólin á fyrsta flokks flug völl, sem getur tekið á móti stærstu þotum. Eftir tæplega klukkutíma akstur mót suðri, eftir fjög- urra akreyna fyrsta flokks vegi, komum við að olíusvæð- inu, sem er með þéttum skóg af olíuturnum og tönkum um hverfis. Með hinum 472 auð- ugu olíulindum sínum, er Kuwait, sem fyrir fáum ár- um var deyjandi eyðimerkur- bær, nú fjórði stærsti olíu- framleiðandi jarðar. Þyrnirósarsvefn Þar til í annarri heimsstyrj- öldinni, var Kuwait syfjuleg flækja af þröngum stígum milli lágkúrulegra ieirklíndra kofa. Næsti nábúi í austri — hin um megin við Persneska fló- ann — var Iran og Miðjarðar- hafið 40 dagleiðir á Kamel í vestri. Inni í landinu reik- uðu sólbakaðir bedúinar um með hjarðir sínar af sauðfé og kamelum frá vin til vinjar; veiddu með fálkum og deildu innbyrðis. Hið litla olíuveldi er freist- andi biti fyrir nágrannanna og heldur því aðeins sjálfstæði vöruhús yfir nýtízkulegustu sínu, að það er í bandalagi við Stóra-Bretland. Ekki lengra siðan en 1961, varð Bretland að senda 6000 hermenn til Persneska flóans til að af- stýra innrás frá írak, hinum sterka nágranna í norðri. — írak gerir stöðugt kröfu til yfirráða í Kuwait, en tónninn er nú orðinn mildari, eftir að hinn harðsnúni forsætisráð- herra, Abdul Karim Kassem var myrtur í uppreisn árið 1963. Borgin Kuwait lifði áður af perluveiðum, gullsmygli og verzlun. Kaupmenn hennar sigldu yfir hafið á hinum lé- legu tekk farkostum sínum (booms, bagalas og sambuk) og sóttu vörur, sykur, kaffi, ávexti, rís, te, timbur og bóm- ullarvörur — Trá svo fjar- lægum stöðum, sem Bombay og Zanzibar. Kuwait sjálft framleiddi ekkert, en varð að flytja allt inn, jafnvel vatn varð að flyt/ja með skipum frá írak, því að þar er ekki svo mikið sem lækur. Én perluiðnaður Japana eyöilagði perluveiðarnar ' og rændi þar með aðaltekjunum frá smástöðunum við Persa- flóa og Kuwait hefði ekki beð ið annað en hungursneyð, ef olíulindirnar hefðu ekki fund izt alveg óvænt, rétt fyrir síð ustu heimsstyrjöld. Burgan — draumur oliuleitar- anna Burgan svæðið hefir siðan 1946 framleitt um 950 milljón ir tonna af hráolíu og fram- leiðslugeta þess er ótrúleg. — Þar eru lindir, sem gefa jafn mikið af sér á dag eins og góð olíulind í Texas á heilu ári. Og þrátt fyrir núverandi framleiðslu, sem er um 105 milljónir tonn á ári, getur hið svarta gull Kuwaits — sem er um fimmti hluti af þekktum olíuvarasjóðum jarðar — hald ið áfram að streyma næstu hundrað árin. Olíustraumurinn frá Kuwa- it, er hjartablóð Stóra-Bret- lands, sem fær um fimmta hluta framleiðslunnar. „Þriðji hver bíll, sem kemur í Hyde Park Corner, er með benzín frá Kuwait“, segir einn af for stjórunum fyrir Kuwait Ool Company. Helmingurinn af fjármagn- inu í Kuwait Oil Co., er frá British Petroleum (BP). Hinn helmingurinn er frá hinu ameríska Gulf Oil Corp. Samningnum, sem er frá 1934 og rennur út árið 2026, var breytt árið 1951, svo að helm- ingurinn af tekjunum rennur til ríkisstjórnar Kuwaits. — Amerísk olíufélög nýta olíu- lindirnar á hinu hlutlausa svæði milli Kuwits og Saudi- Arabíu og japanskt félag dæl- ir olíu upp af botni persneska

x

Nýr Stormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.