Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 1

Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 1
Drulla Jeppinn, lánsbíll, festist kirfilega. Ferðamenn sem ollu töluverðum landspjöllum við Núpsfjallsenda þurftu að greiða 90.000 krónur í sekt. Þeir sögðu fyrst að þeir væru að fylgja slóða sem merktur væri á landakort en játuðu fljótt á sig ut- anvegaakstur. Landeigandinn er verulega ósáttur við að slóðinn sé sýndur á korti. Hann þoli aðeins að ekið sé um hann tvisvar til þrisvar á ári. »14 Slóðinn eigi ekkert erindi á landakort Þ R I Ð J U D A G U R 1 5. J Ú N Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  137. tölublað  98. árgangur  BJÓ TIL ÞJÁLFA Í EYRUN ÍSLENSK TÓNLIST Í KANADA HJALTALÍN OG SINFÓ Á STÍFUM ÆFINGUM BJÖRN THORODDSEN 31 MIKIL SIGLING 37STEINUNN JÓNSDÓTTIR 10 Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Sameina á mennta- og leikskólasvið Reykjavíkurborgar og færa sam- gönguráð undir starfsemi skipulags- ráðs. Þetta kom m.a. fram í máli Dags B. Eggertssonar, oddvita Sam- fylkingar í borgarstjórn, á fundi með flokksfélögum hans í gærkvöldi. Þar kynnti Dagur málefnasamning Sam- fylkingar og Besta flokksins en í honum má finna helstu verkefni nýrrar borgarstjórnar. Dagur boðaði uppbyggingu á hverfum og stökum byggingum borgarinnar sem eru í niðurníðslu en það er liður í atvinnuskapandi átaki nýs meirihluta sem tekur við völdum í dag. Þétting byggðar var boðuð en Dagur sagði borgarstjórnina ætla að vinna að uppbyggingu í Vatnsmýr- inni. Á fundinum var ekki upplýst um stöður formanna ráða borgarinnar. Þá kom fram í máli Dags að hann vænti ákvörðunar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita Sjálfstæð- isflokks, um hvort hún hygðist taka boði um forsetastól borgarstjórnar. Róluvöll fyrir gamla fólkið Á fundinum voru menntamál borgarinnar mikið rædd og áhersla lögð á fjölbreytni náms fyrir bæði kyn en samkvæmt málefnasamn- ingnum er liður í því m.a. ráðningar fleiri karlkyns kennara. Ný borgarstjórn hyggst brúa bilið milli kynslóða og skoða á mögu- leikann á að reisa róluvöll fyrir gamla fólkið sem væri sameiginlegur vettvangur fyrir unga sem aldna. Þá hyggst meirihlutinn stuðla að frekari samvinnu sveitarfélaga með ýmsum ráðum. Samkvæmt málefnasamningnum verður síðunni Betri Reykjavík áfram haldið úti til þess að borgarbú- ar eigi kost á að hafa bein áhrif á ein- stök mál og verkefni borgarstjórnar. Einnig verður komið á fót sérstakri dagbók borgarstjóra sem greinir frá helstu verkefnum Jóns Gnarrs. Það vakti athygli að samkvæmt samningnum á að stuðla að auknum náungakærleik í Reykjavík. Svið og ráð sameinuð til hagræðingar í borginni Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirbúa valdatöku Dagur B. Eggertsson ásamt flokksfélögum sínum á fundi þar sem hann kynnti málefnasamning Samfylkingar og Besta flokks. Valdaskipti í Reykjavík » Dagur B. Eggertsson kynnti málefnasamning Samfylkingar og Besta flokks í gærkvöldi. » Ný borgarstjórn tekur við völdum í dag. Enn ríkir leynd yfir skipun borgarfulltrúa í nefndir og ráð. » Ný borgarstjórn ætlar að byggja upp Vatnsmýrina. » Stefnt er að uppbyggingu hverfa og bygginga til að skapa atvinnu í borginni. Kínastjórn er tilbúin til að bæta í 66 milljarða króna gjaldeyrisskipta- samning seðlabanka landsins við Ís- land, auk þess sem hugsanlegar framkvæmdir kínverska orkurisans CWE við Búðarhálsvirkjun gætu stóraukið viðskipti ríkjanna. Su Ge, sendiherra Kína á Íslandi, lét þessi orð falla á blaðamannafundi um samvinnu ríkjanna í gær en hann tók einnig fram að Kínastjórn virti fullveldi Íslendinga. Stjórnin liti svo á að Ísland þyrfti á vinaríkjum að halda sem sýndu því traust á tímum þegar erlends fjármagns væri þörf við end- urreisn efnahags landsins. »6 Kínversk viðreisn? Kína býður aukna efnahagssamvinnu Morgunblaðið/Kristján Jarðhitaleit Kínverjar sýna sam- vinnu í orkumálum mikinn áhuga. Fara þarf aftur til árs- ins 1989 til að finna jafnstóran viðmið- unarstofn þorsks og nú mælist, en Haf- rannsóknastofnun tel- ur að hann sé 846 þús- und tonn og verði kominn yfir 900 þúsund tonn á næsta ári. Árið 2007 var talið að stofninn væri aðeins um 570 þúsund tonn. Einar K. Guðfinnsson, fyrr- verandi sjávarútvegsráðherra, seg- ir að þetta séu mikil og góð tíðindi sem ættu að styrkja okkur í þeirri trú að við séum að leggja grunn að betri hrygningu og nýliðun á næstu árum. Samkvæmt mælingu Hafrann- sóknastofnunar er hrygningarstofn þorsks nú um 300 þús- und tonn. Einar segir að slík- ar tölur hafi ekki sést frá árinu 1970 eða í 40 ár. Þegar ákveðið var að skera veiðar niður árið 2007 var talað um að stofninn væri 180 þúsund tonn. „Við erum því að tala um aukningu, eða breyt- ingu á mati, á hrygningarstofni um 66% – eða um tvo þriðju – á ekki lengri tíma,“ segir Einar Guðfinns- son. »19 Hrygningarstofn þorsks hefur stækkað um 66% frá árinu 2007 þegar skorið var niður gerir grillmat að hreinu lostæti! E N N E M M / S ÍA / N M 38 33 8 Nánast allar erlendar skuldir fjar- skipta- og upplýsingatæknifyrirtæk- isins Teymis hafa verið afskrifaðar. Vaxtaberandi skuldir upp á 21 millj- arð króna voru afskrifaðar á síðasta ári, en eftir standa skuldir upp á 14,6 milljarða sem eru nánast allar í ís- lenskum krónum. Í kjölfar gengis- falls krónunnar hækkuðu skuldir Teymis hratt, en í árslok 2008 var eigið fé fyrirtækisins neikvætt um á þriðja tug milljarða króna. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2009 tapaði félagið 2,5 milljörðum, en skattatap bætir afkomuna. Stjórnarformaður Teymis segir reksturinn ganga vel í dag og reikn- ar með hagnaði á árinu 2010. »16 Erlend lán afskrifuð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.