Morgunblaðið - 15.06.2010, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
Hlynur Orri Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Sjúkrahúsinu Vogi, segir vísbend-
ingar um hækkandi aldur þeirra sem
eru í mestri hættu á að látast af völd-
um fíkniefna. Dæmi eru hins vegar
um að mjög ungt fólk hafi dáið úr
fíkniefnaneyslu. Nýverið lést t.d. 17
ára stúlka af völdum fíkniefna-
neyslu.
Meðalaldurinn hækkar
Þórarinn bendir á að meðalald-
ur þeirra sem koma á meðferðar-
stöðina Vog vegna sprautufíknar
hafi hækkað töluvert á undanförnum
árum. Á Vogi er boðið upp á afeitrun
og fyrstu hjálp fyrir fíkla og áfeng-
issjúklinga og því hefur sjúkrahúsið
upplýsingar um mjög stóran hluta
þeirra fíkniefnaneytenda sem langt
eru leiddir.
Færri ungmenni sprauta sig
Einnig hefur þeim fækkað tölu-
vert sem eru undir tvítugu er þeir
sprauta sig í fyrsta skipti, segir Þór-
arinn, og sama gildi um þá sem hafa
aðeins sprautað sig nokkrum sinn-
um.
Loks nefnir Þórarinn að fjöldi
nýrra morfínnotenda hafi dregist
saman undanfarin þrjú ár, en morf-
ínneytendur eru í sérstakri hættu að
látast af of stórum skammti vegna
lamandi áhrifa lyfsins á öndunarfær-
in.
Í nýútkomnu ársriti SÁÁ kemur
fram að árið 2009 höfðu 22 ungmenni
sem komu á Sjúkrahúsið Vog spraut-
að sig í æð, þar af 14 reglulega. Þar
sést einnig að vistmönnum undir 19
ára aldri sem höfðu sprautað sig í æð
hefur fækkað nokkuð jafnt og þétt
frá aldamótum, en þá voru þeir um
sjötíu á ári.
Dregur úr vanda ungmenna
Sama er hins vegar ekki að
segja um sprautufíkla almennt. Árið
2009 komu 342 sprautufíklar á Vog
sem er svipaður fjöldi og í kringum
aldamótin. „Hópurinn sem sprautar
sig reglulega hefur því verið að eld-
ast og verða veikari,“ segir Þórarinn.
Upp úr 1995 fjölgaði gríðarlega
þeim ungmennum sem komu á Vog,
sem meðal annars hefur verið tengt
við vinsældir e-taflna, og höfðu
margir miklar áhyggjur af þróun-
inni. Í ársritinu kemur fram að
vegna forvarna og meðferða hafi frá
árinu 2002 dregið úr fíkniefnavand-
anum meðal ungs fólks. Undanfarinn
áratug hefur verið starfrækt sérstök
unglingadeild á Vogi.
Í fyrra komu 208 ungmenni
undir 19 ára aldri á Vog, 121 piltur
og 87 stúlkur, en kringum aldamótin
komu tæplega 300 ungmenni í með-
ferð á ári.
Ungum sprautufíklum fækkar
Vísbendingar eru um að meðalaldur þeirra sem eiga á hættu á að látast vegna
fíkniefnaneyslu sé að hækka Ungmennum sem sprauta sig hefur fækkað
Aldur þeirra
sem sprauta sig
virðist fara hækk-
andi, segir Þórar-
inn Tyrfingsson.
Þess verður minnst við guðsþjónustu á sunnu-
daginn að 10 ár eru liðin frá vígslu Grafarvogs-
kirkju. Undirbúningur er þegar hafinn fyrir af-
mælið og m.a. mættu starfsmenn Hreinsitækni í
gær með öfluga dælubíla og „spúluðu“ kirkjuna
hátt og lágt. Þegar Grafarvogssöfnuður var
stofnaður fyrir rúmum 20 árum síðan voru sókn-
arbörnin þrjú þúsund en í dag eru þau nærri 20
þúsund. Er hann fjölmennasti söfnuður landsins.
Allt gert klárt fyrir afmæli kirkjunnar
Morgunblaðið/Ernir
Starfsemi Vinnuskólans í Reykjavík þetta árið hófst í
gær. Örlitlu færri nemendur eru skráðir í Vinnuskólann í
sumar en síðasta sumar. Rétt rúmlega þrjú þúsund nem-
endur eru í ár, en til samanburðar voru þrjú þúsund og
fjögur hundruð nemendur í fyrra. Þó ber að halda því til
haga að tvö hundruð færri nemendur eru í árgangnum nú
en fyrir ári. Engin breyting er á fjölda hópa í ár. Jafn-
margir leiðbeinendur voru ráðnir núna og í fyrra.
Sú breyting var gerð í ár að nemendur velja hvaða vik-
ur sumarsins þeir eru í Vinnuskólanum, en ekki á milli
tveggja ákveðinna tímabila. Nemendur þurfa því ekki að
vinna í samfelldan tíma. Þetta hefur valdið því að nokkrir
hópar eru afar fámennir þessa stundina. Dæmi eru um að
einn leiðbeinandi hafi aðeins örfáa nemendur á sínum
snærum. Flestir nemendur munu mæta til starfa um mið-
bik sumars.
Fámennir hópar ekki verri
Magnús Arnar Sveinbjörnsson, starfandi skólastjóri
Vinnuskólans, segir að fámennir hópar séu ekki verri. „Í
sjálfu sér vinnst ekkert endilega verr, þótt það séu færri í
hóp. Vandamálið er fyrst og fremst ef hóparnir verða of
stórir,“ segir Magnús Arnar. Hann segir að fámennir
hópar þurfi ekki að vinna meira en fjölmennir, vinnuálag-
ið sé alltaf það sama. gislibaldur@mbl.is
Starfsemi Vinnuskólans
fer hægt af stað í sumar
Morgunblaðið/ÞÖK
Unglingavinnan Færri nemendur eru í Vinnuskóla
Reykjavíkur en hafa verið á umliðnum árum.
Nýtt fyrirkomulag á vinnu-
tíma nemenda í ár
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir
ingibjorgrosa@mbl.is
„Það eru einhver
tilfelli þar sem
merar hafa drep-
ist eftir kast en
við höfum ekki
neinar tölur sem
talist getast óeðli-
legar,“ segir
Katrín Andrés-
dóttir, héraðs-
dýralæknir á
Suðurlandi, en
hrossabændur á öskusvæðinu velta
nú sumir fyrir sér hvort dauði
folaldsmera hafi aukist í ár. Umræða
hefur skapast undir Eyjafjöllum og í
Mýrdal um fjölda móðurlausra fol-
alda, sem þarf þá að gefa sérbland-
aða mjólk eða venja undir aðrar mer-
ar og kosta talsvert umstang. Katrín
hvetur hrossabændur þó til að til-
kynna hvert tilfelli til embættisins
því Bjargráðasjóður bæti skaðann ef
hægt er að kenna öskunni um. „Ég
held að þetta séu innan við tíu merar
sem hafa drepist á þessu svæði. Þar
af eru tvö tilfelli þar sem grunur leik-
ur á að þær hafi drepist vegna ösk-
unnar. En fólk verður að láta okkur
vita, við höfum m.a.s. krufið dýrin,
fólki að kostnaðarlausu, til að taka af
allan vafa.“ Að auki segir Katrín að
fylgst sé með í sláturhúsum hvort sjá
megi breytingar á líffærum skepna
af öskusvæðinu en fátt bendi til að
askan hafi hættuleg áhrif á skepnur.
Hryssur
drepast á
öskusvæði
Hátt í tíu merar
hafa drepist.
Fá tilfelli sem rekja
má til öskuáhrifa
Samskipti hafa haldið áfram á milli
íslenskra stjórnvalda og nýrrar rík-
isstjórnar í Bretlandi um Icesave,
segir Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra. „En það eru engar
stórar fréttir af málinu.“
Eðli málsins samkvæmt hafi
minna verið rætt við Hollendinga,
enda hefur ríkisstjórn ekki verið
mynduð þar í landi.
Steingrímur segir ómögulegt að
segja til um hvort ný ríkisstjórn í
Bretlandi verði auðveldari viðsemj-
andi en stjórn Gordons Brown. „En
við höfum enga ástæðu til að ætla að
[ríkisstjórnarskiptin] breyti miklu.“
hlynurorri@mbl.is
Litlar fréttir
af Icesave
einfalt og gott!
Grillaðu
r kjúkl
ingur o
g
2 l Pep
si eða P
epsi Ma
x998
kr.