Morgunblaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 Leiðtogar Evrópusambandsins munu ákveða að hefja aðildarviðræð- ur við Ísland um inngöngu í sam- bandið á fundi sínum 17. júní nk. Þetta kemur fram í drögum að yf- irlýsingu sem Bloomberg fréttastof- an hefur undir höndum. Tekið er fram í frétt Bloomberg að íslensk stjórnvöld verði hins vegar að leysa Icesave-deiluna eigi Ísland að geta gengið inn í sambandið. Auk þess verði íslensk stjórnvöld að gera bragarbót á Evrópulöggjöf sem varðar fjármál og fjármálastofnanir. Viðræður í gang í haust? Hversu hratt viðræðurnar muni ganga fari eftir því hvort Ísland standist öll skilyrði, að því er fram kemur á vef Bloomberg. Ísland myndi þar með verða tekið fram fyrir ríki eins og Tyrkland og Serbíu. Það gæti, ásamt Króatíu, orðið næsta ríki til að ganga inn í sambandið árið 2012. Þá segir að aðildarviðræður geti hafist í september eða október. ESB ákveður sig 17. júní Bloomberg vitnar í óbirt drög fyrir leið- togafund Evrópu- sambandsins festir þó að þær hófust eftir hrun. Su var einnig spurður um þá túlkun að hugsanlegt mikilvægi Íslands sem umskipunarhöfn vegna opnunar norðausturleiðarinnar samfara bráðnun íss á norðurhveli jarðar ann- ars og möguleg olíuvinnsla við landið hins vegar lægju að baki áhuga „Drekahagkerfisins“ svonefnda á samvinnu við dvergríkið í norðri. Greiðasemi við vinaþjóð Svaraði Su því þá til í löngu máli að Kínverjar væru ekki að velta fyrir sér pólitískum sviðsmyndum áratugi fram í tímann heldur væru þeir fyrst og fremst að leggja vinaþjóð hjálpar- hönd á erfiðum tímum. Su tók fram að vinátta réði för, með þeim orðum að Ísland væri sitt „annað heimili“. Ljóst er að samskipti ríkjanna munu aukast því Su boðar aukna verslun auk þess sem Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra muni senn sækja Kína heim til að kynna Ísland sem ferða- mannastað. Dvergríki í faðm drekans  Sendiherra Kína boðar stóraukna samvinnu við Ísland  Kína lagði sitt af mörkum til að tryggja framgang lánsáætlunar AGS  Æðstu valdamenn og fulltrúar seðlabanka að baki gjaldeyrissamningi Menntamaður Su er doktor í stjórnmálafræði. Hann tók við sendiherrastöðunni í fyrrahaust. Morgunblaðið/Árni Sæberg Unnur Brá Konráðsdóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, hef- ur lagt fram þingsályktunar- tillögu um að Ísland dragi til baka umsókn um aðild að Evr- ópusambandinu. Tillöguna legg- ur hún fram ásamt Ásmundi Ein- ari Daðasyni, miklum andstæðingi ESB-aðildar í hópi stjórnarþingmanna, Gunnari Braga Sveinssyni, formanni þingflokks Framsóknarflokksins, og Birgittu Jónsdóttur, þing- manni Hreyfingarinnar. Þing- mönnum þykir undirbúningi hafa verið ábótavant og að andstaða þjóðarinnar við aðild sé mikil. Pólitísk samstaða sé ekki að baki umsókninni. Þetta kemur fram í greinargerðinni. Unnur telur forsendur hafa breyst mik- ið frá því að Alþingi samþykkti umsókn fyrir tæpu ári. Hún telur það ekki valkost fyrir okkur að taka upp evruna og segir vanda evrunnar mikinn. Efnahagsvandi Evrópu og spenna á myntsvæð- inu hafi leitt til meiri miðstýr- ingar innan ESB en það þýði enn meira fullveldisafsal. ESB mun endurskoða starfshætti sína og e.t.v. gera breytingar á Lissa- bonsáttmálanum. Unnur Brá segist halda að viðhorf og af- staða þingmanna hafi breyst töluvert og telur hún að rétt sé að láta á það reyna með at- kvæðagreiðslu. gunnthorunn@mbl.is Evran ekki valkostur DRAGI UMSÓKN UM AÐILD TIL BAKA Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, lét þau orð falla í kjölfar gjaldeyris- samningsins og viljayfirlýsingar af hálfu Landsvirkjunar, kínverska raforkurisans CWE og kínverska útflutningsbankans að hann væri andvígur því að kínverskir verka- menn kæmu að framkvæmdum við Búðarhálsvirkjun í ljósi mikils at- vinnuleysis innlends verkafólks. Spurður um þetta sjónarmið komst Su svo að orði að ef Íslend- ingar þyrftu ekki erlenda aðstoð við að afla sér frekari raforku væri óþarft að velta þessu fyrir sér. Hann benti síðan á að eðlilegt væri að sá fengi verkið sem best byði í framkvæmdirnar. Þá mætti ekki gleyma því að ís- lensk fyrirtæki kæmu að uppbygg- ingu hitaveitna í Kína, umsvifum sem væru eðlileg með hliðsjón af þeim hag sem Kínverjar hefðu af þeim. Sendiherrann minnti því næst á að orkurisinn GWE hefði farið fyrir uppbyggingu risavatns- aflsvirkjunar við Þriggja gljúfra stífluna, en umrædd virkjun er 22,5 gígawött og því ríflega 32 sinnum stærri en Kárahnjúkavirkj- un, miðað við að hún sé 690 MW. Gjaldeyrissamningur ríkjanna hljóðar upp á 3,5 milljarða kín- verskra júana eða sem svarar 66 milljörðum íslenskra króna. Su sagði svigrúm og vilja til víð- tækari samvinnu í krónum en tjáði sig ekki um það að öðru leyti. Það væri ekki í hans verkahring að ræða verðmæti samninga. Íslendinga að velja ÓTTIST EKKI KÍNVERSKA VERKAMENN Su metur stöðuna svo að með gjaldeyrissamningnum standi Íslendingar og Kínverjar jafn- fætis hvað verslun áhrærir. Íslendingar geti nú selt fisk og jarðhitatækni fyrir krónur en keypt í staðinn vörur sem greitt sé fyrir með kínversku júani. Kínverjar framleiða sem kunnugt er allt milli himins og jarðar og hefur þeirrar viðleitni gætt undanfarin ár að smíða dýrari hluti þar sem áherslan er á að byggja upp þekkt vöru- merki líkt og Japanir gerðu. Hátækni er þar engin undan- tekning og gæti farið svo að hagstæð kjör yrðu til að greiða götu kínverskra rafbíla hér. Su boðar jafnframt aukna samvinnu á sviði menntunar auk þess sem hann bendir á þau fjölmörgu tækifæri sem liggi í ferðaþjónustu. Kínverjar eru sem kunnugt er um 1.300 millj- ónir og gætu kínverskir ferða- menn þegar fram í sækir því reynst íslenskri ferðaþjónustu búhnykkur. Stórþjóðin þarf að fylla marga maga og ætti því ekki að vera vand- kvæðum bund- ið að skapa markað fyrir íslenskan fisk í þessu fjöl- mennasta ríki sögunnar. Rafbílar fyrir fisk? ÝMSIR MÖGULEIKARBaldur Arnarson baldura@mbl.is Fulltrúar kínverskra stjórnvalda inn- an Alþjóðagjaldeyrissjóðsins beittu áhrifum sínum til að tryggja af- greiðslu lánsáætlunar sjóðsins til handa Íslendingum. Sendiherra Kína staðfestir þetta en hann segir æðstu valdamenn Kína og Íslands að baki nýtilkomnum gjaldeyrisskiptasamn- ingi sem sé með fádæmum. Su Ge, nýr sendiherra Kína, ræddi við fulltrúa tveggja íslenskra fjöl- miðla í kínverska sendiráðinu síðdeg- is í gær og leyndi sér ekki að Kínverj- ar væru reiðubúnir að skoða víðtækari efnahagssamvinnu. Til að setja þann ásetning í sam- hengi hljóðar áðurnefndur gjaldeyris- samningur upp á 66 milljarða króna. Aðeins sjö ríki munu hafa gert gjaldeyrisskiptasamning af þessu tagi við kínverska seðlabankann. Liðkaði fyrir samningum Su tók einnig dæmi af því hvernig Kínastjórn hefði beitt áhrifum sínum innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að styðja afgreiðslu lánsáætlunar til handa Íslandi, óháð Icesave-málinu, en sem kunnugt er hafa Bretar og Hollendingar verið sakaðir um að nota slagkraft sinn í stjórn sjóðsins til að tefja framgang áætlunarinnar, í því skyni að þrýsta á um hagstæðan samning í Icesave-deilunni. Su ræddi aðdraganda samningsins en í máli hans kom fram að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Hu Jintao Kínaforseti hefðu átt í við- ræðum eftir fjármálahrunið, líkt og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra og Wen Jiabao, forsætisráð- herra Kína. Þá hefðu fulltrúar seðla- banka ríkjanna komið að viðræðunum sem væru aðdragandi þess að formleg samvinna ríkjanna hefði nú verið auk- in með þessum hætti. Varpa þessar upplýsingar ljósi á viðleitni íslenskra stjórnvalda til að nálgast erlent lánsfé þegar flest sund virtust lokuð eftir hrunið. Sendiherrann tjáir sig hins vegar ekki um hvort Íslendingar hafi átt frumkvæði að viðræðunum en stað- Leiðtogar Evrópusambandsins munu á fundi 17. júní samþykkja að hefja formlegar viðræður við Ís- land um aðild að ESB. Miguel An- gel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar, segir að samkomulag liggi fyrir um þetta og það verði form- lega staðfest á fundinum 17. júní. Þetta kemur fram í viðtali við utanríkisráðherrann í Daily Tele- graph í gær. Blaðið bendir á að Ís- land sé nú þegar aðili að NATO og Schengen og góðar líkur séu á að Ísland geti orðið aðili að ESB á undan ríkjum á borð við Tyrkland og Serbíu. Spánverjar fara núna með for- mennsku í Evrópusambandinu. Þeir eru áhugasamir um að ákvarðanir um stækkun sambands- ins verði tekin í þeirra for- mennskutíð sem líkur um næstu mánaðamót. Gangi þetta eftir hefst vinna við að bera sama löggjöf Íslands og löggjöf ESB í haust og formlegar samningaviðræður hefjast síðan næsta vor. egol@mbl.is Hafa rætt um umsóknina Lyf og heilsa misnotuðu markaðs- ráðandi aðstöðu sína með skipu- lagðri atlögu að Apóteki Vestur- lands. Þetta er niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Hefur fyrirtækinu verið gert að greiða 100 milljónir króna í sekt fyr- ir brotin. Er þetta lægri sekt en Samkeppniseftirlitið hafði gert fé- laginu að greiða en samkvæmt úr- skurði þess var Lyfjum og heilsu gert að greiða 130 milljónir króna í stjórnvaldssekt. Í úrskurði áfrýjun- arnefndar samkeppnismála er stað- fest sú niðurstaða Samkeppniseft- irlitsins að Lyf og heilsa séu í markaðsráðandi stöðu og að aðgerð- ir fyrirtækisins hafi falið í sér alvar- leg brot á samkeppnislögum. Morgunblaðið/Golli Lyf & heilsa var talin vera í mark- aðsráðandi stöðu á lyfjamarkaði. 100 millj- óna sekt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.