Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
ÞANN 6. maí sl. bættist við vöru-
framboð Póstsins þegar farið var
að bjóða upp á Frímerkin mín með
burðargjaldi til útlanda. Frímerkin
mín eru frímerki með eigin mynd
þess sem kaupir þau og hægt er að
hanna sín eigin frímerki á
www.postur.is.
Bláa lónið er fyrsta fyrirtækið
sem nýtir sér Frímerkin mín til
endursölu viðskiptavina sinna.
Að sögn Magneu Guðmunds-
dóttur, kynningarstjóra Bláa lóns-
ins, hefur fyrirtækið ávallt lagt
mikinn metnað í að þjóna við-
skiptavinum sínum með með vörum
og minjagripum merktum Blue
Lagoon og verða frímerkin
skemmtileg viðbót við það.
Frímerki Samningurinn í höfn.
Frímerkin mín
FRÁ 1. maí sl. hafa verið tvö aðild-
arfélög á leikskólastigi í Kennara-
sambandi Íslands, Félag leikskóla-
kennara (FL) og Félag stjórnenda
leikskóla (FSL). Leiðarljós í sam-
starfi félaganna verður: „Tvö félög
– ein rödd“. Það undirstrikar þá
stefnu að félögin starfa saman að
þróun leikskólastarfs og bættum
starfskjörum félagsmanna.
Nýja stjórn FL skipa Marta Dögg
Sigurðardóttir, Fjóla Þorvalds-
dóttir, Hanna Berglind Jónsdóttir,
Hallgerður Gunnarsdóttir og Dýr-
leif Skjóldal. Stjórn FSL skipa Ingi-
björg Kristleifsdóttir, Björk Óttars-
dóttir, Sverrir Sverrisson, Inga
Líndal og Sigrún Sigurðardóttir.
Tvö kennarafélög
á leikskólastigi
Á laugardag nk. kl. 19 verður fjöru-
hlaðborð í Hamarsbúð á Vatnsnesi.
Þar framreiða húsfreyjurnar
margskonar rétti sem nú á tímum
sjást sjaldan á borðum landsmanna,
en líka verða þar nýlegri mat-
arhefðir.
Meðal kræsinga eru selkjöt,
hrefnukjöt og reyktur rauðmagi,
sigin grásleppa og selshreifar, há-
karl, ný og súrsuð egg, svartfugl,
sviðasulta og heimagert skyr.
Margskonar heimabakað brauð-
meti auk fjölda annara rétta. Þá
verður hljóðfæraleikur og fjölda-
söngur í stótjaldinu að ógleymdu
hinu vinsæla bögglauppboði. Miða-
verð er 3.500 kr. fyrir fullorðna og
1.000 kr. fyrir 6-12 ára.
Fjöruhlaðborð
STUTT
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 38-56
Bolir
buxur
jakkar
96% bómull+4% stretch
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Svartar
gallabuxur
str. 36-56
Mjódd, sími 557 5900
Teygju kvartbuxurnar
komnar aftur
Einnig nýjir gallaskokkar
Verið
velkom
nar
FRÁBÆR BUXNASNIÐ
GALLABUXUR – KVARTBUXUR – SPARIBUXUR
MÖRG SNIÐ – 2 SÍDDIR
GERRY WEBER GALLABUXUR – TILBOÐSVERÐ KR. 16,900
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur um að eig-
andi söluturnsins Draumsins sæti
gæsluvarðhaldi og einangrun til 16.
júní. Maðurinn er grunaður um
fíkniefnasölu og fleiri brot en við
húsleitir fannst kókaín og tæplega
14 milljónir króna í reiðufé.
Í greinargerð lögreglu, sem vitnað
er til í úrskurði héraðsdóms, segir að
á síðustu mánuðum hafi ítrekað bor-
ist upplýsingar um að í versluninni
væru seld lyf og fíkniefni. Húsleit
var gerð í versluninni sl. fimmtudag
og á heimili eigandans og einnig
dvalarstað hans.
Fram kemur í úrskurðinum að
maðurinn sagðist ekki vita neitt um
kókaínið en hann hafði einn aðgang
að húsinu ásamt syni sínum. Hann
sagðist eiga féð sem fannst en það
væri að hluta til greiðsla sem hann
hefði fengið fyrir að rýma húsnæði
sem hann hafði á leigu.
Fundu
kókaín og
14 milljónir
Ekki eru allir Hafnfirðingar alls kostar sáttir við að
Lúðvík Geirsson muni áfram gegna embætti bæjar-
stjóra í Hafnarfirði og var efnt til mótmæla vegna
þessa í gær á fyrsta bæjarstjórnarfundi nýs meiri-
hluta. Gerð voru hróp að liðsmönnum nýrrar bæjar-
stjórnar og hún fékk að sjá bæði gula spjaldið og það
rauða.
Axel Einar Guðnason, einn forsvarsmanna mótmæl-
anna, sem hér á myndinni beinir gula spjaldinu að Lúð-
vík, segir það óviðunandi að Lúðvík muni verða bæj-
arstjóri næstu tvö árin, þrátt fyrir þá staðreynd að
Samfylkingin setti bæjarstjórastólinn að veði í kosn-
ingunum og tapaði.
Mótmælendur krefjast þess að ópólitískur bæjar-
stjóri verði ráðinn í stað Lúðvíks.
Lúðvík mun aðeins sitja hálft kjörtímabilið eða til
júní 2012, en þá tekur oddviti Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, við.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lúðvík fékk gula spjaldið
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur fallið frá tilmælum sínum um
að loka hátíðarguðsþjónustu í dóm-
kirkjunni hinn 17. júní fyrir almenn-
ingi. Þetta var ákveðið í gær á fundi
samráðsnefndar Alþingis, lögreglu,
forsætisráðuneytis, Reykjavíkur-
borgar og Dómkirkjunnar sem fer
með skipulagningu hátíðahaldanna.
„Þau komu yfir í kirkju og þar fór-
um við yfir þetta. Það er niðurstað-
an, eins og alltaf, að messunni verður
ekki lokað. Við leggjum upp úr því að
Dómkirkjan sé opin öllum. Þangað
eru allir velkomnir því þannig viljum
við hafa þjóðkirkjuna,“ segir sr.
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur
sem kveðst mjög ánægður með
þessa niðurstöðu og fullur tilhlökk-
unar að taka á móti fólki.
„Guðsþjónustan er alveg sérstak-
lega opinber athöfn á þjóðhátíðar-
daginn þannig að fyrir mitt leyti hef-
ur aldrei komið neitt annað til
greina. Það eru engar haldbærar
ástæður fyrir öðru og því allir hjart-
anlega velkomnir til hátíðarguðs-
þjónustu eins og venjulega,“ segir
Hjálmar og bætir við að á sjómanna-
daginn hafi fjöldi íslenskra og er-
lendra gesta átt ljúfa og góða stund
saman í Dómkirkjunni.
jonasmargeir@mbl.is
Dómkirkjan opin
öllum á þjóðhátíð
Morgunblaðið/Kristinn
Ánægður Sr. Hjálmar Jónsson fagn-
ar niðurstöðu nefndarinnar.
Rúmlega þrítugur karlmaður hefur
játað að hafa orðið 53 ára gömlum
manni að bana en hann fannst látinn
og með alvarlega áverka utandyra
við Bjarnarvelli í Reykjanesbæ að
morgni 8. maí sl.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu lögreglunnar á Suðurnesjum.
Maðurinn sem játað hefur verkn-
aðinn var úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 14. júní en grunur beind-
ist fljótlega að honum og var hann
því handtekinn í kjölfarið. Lögreglu-
stjórinn á Suðurnesjum hefur gert
þá kröfu að gæsluvarðhald mannsins
verði framlengt til mánudagsins 12.
júlí nk. á grundvelli almannahags-
muna.
Mennirnir tveir þekktust ekki. Við
rannsókn málsins hefur komið fram
að leiðir þeirra hafi legið saman en
þeir höfðu báðir verið að skemmta
sér um nóttina og voru undir áhrif-
um áfengis. Eftir orðaskipti þeirra
er talið að yngri maðurinn hafi veist
að þeim eldri með þeim afleiðingum
að hann hlaut alvarlega höfuðáverka
og lést af völdum þeirra. Rannsókn
gengur vel en enn er beðið eftir nið-
urstöðum úr ýmsum sérfræðirann-
sóknum.
Játaði
manndráp
Krafa um framleng-
ingu gæsluvarðhalds