Morgunblaðið - 15.06.2010, Side 10
Met Þéttur hópur við rásmarkið en fljótt skildi leiðir.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Alls hófu 343 hjólreiðamennkeppni í Bláalónsþrautinniá fjallahjóli sem haldin vará sunnudag og er það
mettþátttaka. Í þeirri fyrstu, árið
1996, voru 27 þátttakendur.
Alfreð Jakobsson, formaður
Hjólreiðafélags Reykjavíkur sem
heldur keppnina í samvinnu við Bláa
lónið, segir að skýringin á auknum
fjölda sé tvíþætt, annars vegar átti sí-
fellt fleiri sig á því að hjól má nota til
líkamsræktar, samgangna og til
keppni og hins vegar hafi komið kipp-
ur í þátttöku eftir að boðið var upp á
liðakeppni. „Einn öflugur dregur þá
nokkra með sér. Það er ofboðslega
góð stemning í því að hjóla sem lið og
koma sem lið í mark.“
Mótvindur og bleyta
Í Bláalónsþrautinni er boðið upp
á tvær vegalengdir, 40 km og 60 km.
Langflestir völdu lengri leiðina eða
310 en þá er hjólað frá Hafnarfirði,
inn á Krýsuvíkurleið, beygt inn á
Djúpavatnsleið, til Grindavíkur og
þaðan í Bláa lónið. Keppninni lýkur
með kærkomnu, og bráðnauðsyn-
legu, baði í lóninu.
Mótvindur dró nokkuð úr hrað-
anum og brautarmetið var ekki sleg-
ið. Töluvert var einnig um drullu-
polla.
Karen vann kvennaflokkinn
Sigurvegari í kvennaflokki var
þríþrautarkonan Karen Axelsdóttir
sem kom í mark á tímanum 02:12:30,
15 mínútum og 15 sekúndum á undan
helsta keppinaut sínum, Maríu Ögn
Guðmundsdóttur. Í þriðja sæti var
Eneja Osterman á 02:34:17.
Karen, sem keppti í Járnkarli í
Ástralíu í mars, er langsterkasta
hjólreiðakona landsins um þessar
mundir. Hún er þar að auki í feikilega
góðu formi þessa dagana en hún vann
Liðakeppni leiddi til aukinnar þátttöku í stærstu hjólreiðakeppni landsins
Metþátttaka í Bláalónsþraut
Sókn Karen Axelsdóttir er öftust en sækir á.
HREYFING OG ÚTIVIST
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
10 Daglegt líf
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
14 nátta ferð - ótrúleg kjör!
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboðá allra síðustu
sætunum 22. júní í 14 nætur til eins allra vin-
sælasta sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa
del Sol. Costa del Sol býður allt það helsta
sem maður getur óskað sér í fríinu. Þú bókar
flugsæti og gistingu og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu þetta
einstaka tækifæri til að njóta lífsins á þessum
vinsæla áfangastað í sumarfríinu.
Fjölbreytt önnur sértilboð jafnframt í boði bæði 22. júní og 6. júlí.
Ath. takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði - verð getur hækkað án fyrirvara.
Stökktu til
Costa del Sol
22. júní
frá kr. 69.900 í 14 nætur
Verð kr. 69.900
14 nátta ferð
Verð m.v. m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, í íbúð með 1
svefnherbergi í 14 nætur. Verð
m.v. 2-3 í herbergi / stúdíó / íbúð
kr. 74.900. Sértilboð 22. júní.
Þ
jálfinn er hugmynd sem
varð til eftir að ég
missti vinnuna út af
ástandinu í þjóðfélag-
inu. Ég fór ásamt
Þresti Erlingssyni að pæla í því
hvernig hægt væri að koma sér í
betra líkamlegt og andlegt form á
einfaldan og tiltölulega ódýran
máta,“ segir Steinunn Jónsdóttir
arkitekt um tilefni þess að hún
ákvað að standa að útgáfu geisla-
disks með þjálfunartónlist og æf-
ingum sem hún kallar Þjálfann.
Hún segir það alltof oft gerast að
fólk fái góðar hugmyndir en láti
ekki verða af því að framkvæma
þær.
Steinunn segist alltaf hafa haft
mikinn áhuga á hvers kyns hreyf-
ingu. Þannig æfði hún t.a.m. í mörg
ár dans og þolfimi hjá Magnúsi
Scheving og keppti í þeirri grein og
vann til verðlauna. Þannig varð hún
m.a. Íslandsmeistari og bikarmeist-
ari ásamt Lindu Björk Unnars-
dóttur. Steinunn segir það hafa
verið dýrmæta reynslu sem hafi
nýst sér við þróun Þjálfans. Þá hafi
hún notið ráðlegginga bæði næring-
arfræðings og einkaþjálfara við þá
vinnu.
Tónlistin verður til
Þegar kom að tónlistinni á Þjálf-
anum ákvað Steinunn að leita til
Þorvaldar Bjarna,tónlistarmanns
sem kom henni í samband við
Markús Leifsson hljóðmann. Í kjöl-
farið komst Steinunn að þeirri nið-
urstöðu þegar prufur stóðu yfir að
Markús sjálfur væri tilvalinn sem
rödd Þjálfans. Niðurstaðan varð því
sú að auk þess að tala inn á geisla-
diskinn er Markús höfundur tónlist-
arinnar og sinnti starfi hljóðmanns
við gerð hans.
„Þetta er vara sem kemur út á
besta tíma. Sumarilmur í lofti.
Þetta er tími erfiðleika og nei-
kvæðra frétta og því kjörið tæki-
færi til að hrista af sér slenið og
hugsa um eitthvað annað. Fólk þarf
að huga að líkama og sál, hugsa um
eitthvað jákvætt og byggja sig upp.
Hér fáum við fólk til að fara út í
náttúruna og hreyfa sig,“ segir
Steinunn. Hún segir marga þekkja
það að vera komna út í íþróttagall-
anum og vera tilbúnir í slaginn og
vita svo ekkert hvert þeir eigi að
fara, hversu langt, hversu lengi þeir
eigi að æfa eða hvort e.t.v. sé hægt
að gera einhverjar aðrar æfingar.
Meira á döfinni
Með Þjálfanum fær fólk leiðbein-
ingu og hvatningu frá þjálfara frá
Missti vinnuna en
ekki móðinn
Þegar Steinunn Jónsdóttir missti vinnuna sem arkitekt ákvað hún að nýta reynslu
sína úr dansi og þolfimi til að setja saman nýjan þjálfunargeisladisk sem hún
kallar einfaldlega Þjálfann. Á honum er að finna æfingakerfi sem allir ráða við
að sögn Steinunnar. En þar er ekki ætlun hennar að láta staðar numið og hefur
hún ýmislegt fleira á prjónunum.
Morgunblaðið/Ernir
Björt bros Frísklegar fyrirsætur sem tóku þátt í gerð þjálfunardisksins.
Á vefnum gerajunkie.com eðagræjufíklinum má lesa gagn-rýni um mörg hundruð græj-
ur sem tengjast útivist og hreyfingu
með einum eða öðrum hætti.
Umfjöllun um græjurnar skiptist í
15 flokka, m.a. er fjallað um reiðhjól,
hlaup, bakpoka, tjöld, klifurdót, mat
og drykk og vatnaíþróttir. Þar að auki
er einn flokkur með titilinn „ýmis-
legt“ og því má fullyrða að flestar
gerðir af græjum fái umfjöllun.
Vefurinn hentar þeim sem ætlar að
kaupa sér nýja græju auðvitað sér-
lega vel en eins og allir græju-
sjúklingar vita, þá er ekki síður
skemmtilegt að lesa gagnrýni um
græjur sem maður á nú þegar, að því
gefnu að gagnrýnin sé jákvæð!
Vefurinn takmarkast þó ekki við
umfjöllun um græjur. Þar má einnig
lesa fjöldan allan af ferðasögum, frá-
sögnum af „ævintýrum“ eins og úti-
vist er stundum (rétt)nefnd í Banda-
ríkjunum og fleira.
Hér skal sérstaklega mælt með
grein um karlmenn sem raka á sér
fótleggina. Sumir íþróttamenn, ekki
síst sundmenn og hjólreiðamenn,
raka reglulega á sér leggina. Í ljós
kemur að raksturinn snýst alls ekki
eingöngu um að minnka loftmótstöð-
una eða mótsstöðu í vatni, heldur
ekki síður um að sýna hversu miklir
garpar menn eru. Rakaðir leggir ku
víst skjóta keppinautum skelk í
bringu. Ástæðurnar eru reyndar
nokkuð flóknari. runarp@mbl.is
vefsíðan www.gearjunkie.com
Fíkn Þeir sem eru veikir fyrir alls konar græjum ættu kannski að varast þessa.
Veitir ráð um flestar græjur og
ýtir verulega undir græjufíkn