Morgunblaðið - 15.06.2010, Síða 11

Morgunblaðið - 15.06.2010, Síða 11
m.a. til gullverðlauna á breska meist- aramótinu í hálfri ólympískri þrí- þraut í byrjun júní. Fyrstur karla í mark var Haf- steinn Ægir Geirsson, en hann hefur unnið fleiri titla í hjólreiðum en hægt er að hafa tölu á. Hafsteinn Ægir er einnig þekktur sem siglingakappi og hann keppti m.a. í siglingum fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 og í Aþenu árið 2004. Í öðru sæti var Pétur Þór Ragnarsson á 01:54:33 og í þriðja sæti var Hákon Hrafn Sigurðsson á 01:58:21. Bláalónsþrautin er lang- fjölmennasta hjólreiðakeppni sem hér er haldin en hún lét lítið yfir sér þegar hún var haldin í fyrsta skipti því þá tóku 27 manns þátt. Næsta keppni sem opin er almenningi er Heiðmerkuráskorunin sem haldin verður 30. júní. Þá eru hjólaðir tveir hringir í Heiðmörk, samtals 24 km. Næsta fjallahjólakeppni þar á eftir verður haldin 17. júlí, í tengslum við Hlaupahátíðina á Vestfjörðum. Þá er hjólað eftir svonefndri Vesturgötu, þ.e. eftir veginum sem Elís Kjaran gerði milli Arnarfjarðar og Dýra- fjarðar. Landskeppni við Færeyjar Hjá keppnismönnunum er næst á dagskrá að taka á móti harðsnúnu keppnisliði Færeyinga í götuhjólreið- um. Færeyingar hafa sent hingað lið í nokkur ár og íslensk lið haldið utan. Landskeppnin, eins og hún er nefnd, tekur þrjá daga, 18.-20. júní. Sjö manna hópur kemur frá Fær- eyjum að þessu sinn. Nánar á www.hfr.is. Morgunblaðið/Ernir Karftakona Steinunn Jónsdóttir lét ekki atvinnumissinn á sig fá heldur tók til sinna ráða og gaf út þjálfunardisk. upphafi til enda við undirspil tón- listar sem hvetji það áfram. Steinunn segir þessa fyrstu út- gáfu Þjálfans vera æfingakerfi sem allir geti ráðið við. Með honum fylgi að auki hefti með myndum af æf- ingum. Geisladiskurinn sé vænt- anlegur á markað 21. júní nk. „Við mælum með að fólk geri æfinga- kerfið reglulega, geri þetta að hluta af daglegri rútínu. Skreppi út í 40- 50 mínútur,“ segir Steinunn. En þar með er Steinunn engan veginn hætt. Næst stendur til að gefa út geisladisk með ýmissi frum- saminni tónlist, m.a. með rokkívafi, og þá t.a.m. með þátttöku íslenskra hljómsveita. Tónlistin verður sett á vefsíðuna Þjálfinn.is og verður hugsanlega einnig til sölu á Tónlist- .is. Verið er að vinna að æfingakerfi fyrir næstu tvo geisladiska og er handritið að þeim báðum tilbúið. Steinunn segir að ef vel gengur með Þjálfann sé hugmyndin að fara með hann á Evrópumarkað. Einnig er í bígerð að setja saman efni sem sérstaklega er ætlað ákveðnum hópum, s.s. unglingum og nýbök- uðum mæðrum. Þá er hugmyndin að á vefsíðunni verði í framtíðinni m.a. vörulisti með æfinga- kerfunum, fatnaði, ýmsum fylgi- hlutum fyrir æfingar, snyrtivörur, uppskriftum að heilsufæði o.fl. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 „Hugmyndin gengur út á það að fá fólk til að koma sér í form með því að hlaða æfingakerfi af geisladisk á iPod-inn [tónhlöð- una], MP3-spilarann sinn eða setja í geislaspilarann og hlusta. Enda er einkunnarorðið: Hlustaðu: Þjálfinn tónar þig! Æfingakerfið er byggt upp á göngu, skokki, hlaupum, mis- munandi æfingum og teygjum. Því er stýrt af þjálfara sem leið- beinir og hvetur fólk áfram. Kerfið byggir upp þol, styrk og brennslu,“ segir Steinunn Jóns- dóttir. Steinunn segir að þau sem standi að framtakinu vilji gjarn- an fá fólk út undir beran himin þar sem það geti gert æfingar eitt eða með öðrum, hvenær sem er og hvar sem er. Þjálfinn sé einfaldlega tekinn með og efnið á honum sett inn á tónhlöðuna eða Mp3- spilarann, t.a.m. þegar farið er í ferðalag, úti- legu eða hvert sem er þar sem fólk vill geta þjálf- að sig og haldið sér í formi. Hún bætir þó við að Þjálfinn nýtist bæði til æfinga innan húss og utan. Þá hentar hann einnig við æfingar á hlaupa- bretti og sömu- leiðis í sal. Nýtist bæði inni og úti NÝR ÞJÁLFUNARDISKUR Fínasta stemning er að mynd-ast um Hlaupahátíðina áVestfjörðum 16.-18. júlí og er búist við að enn fleiri keppendur taki þátt í henni en í fyrra. Þá hlupu um 200 manns Vesturgötuna, milli Arn- arfjarðar og Dýrafjarðar, og um 150 tóku þátt í Óshlíðarhlaupinu. Guðbjörg Sigurðardóttir, formaður hlaupahópsins Riddara Rósu, segir að skráningar fari betur af stað en fyrri ár. Hátíðin hefst á föstudagskvöldi með Óshlíðarhlaupinu en í því má velja á milli þess að keppa í 10 km hlaupi eða í hálfmaraþoni en báðum hlaupum lýkur á Ísafirði. Á laugardaginn verður 55 km fjallahjólreiðakeppni, 4 km skemmti- skokk og önnur dagskrá fyrir alla fjöl- skylduna. Dagskrá laugardagsins fer öll fram á Þingeyri. Ræst eftir föllum Á sunnudeginum er Vesturgatan hlaupin, ýmist 12 eða 24 km vega- lengd. Ræst er klukkan 11:30 en rás- tíminn er valinn með tilliti til sjáv- arfalla þar sem hluti keppnisleiðar- innar liggur í fjöru og fer á kaf á flóði. Sumir keppa bæði í Óshlíðar- og Vesturgötuhlaupinu og eru veitt sér- stök verðlaun í þeim ofurflokki. Hlaupið í fjöruborðinu Mikil stemning fyrir hlaupahátíð á Vestfjörðum Morgunblaðið/G.Rúnar Áhugi Varla má halda hlaup nema þátttökumet sé slegið. Nánari upplýsingar má nálgast á hlaup.com. n o a t u n . i s 0,5 LÍTRI Við gerum meira fyrir þig SS CAJ P’S LAMBATVÍRIFJUR KR./KG 1998 TIVAL GRÆNMETIS- RÉTTIR KR./PK. 719 NÓATÚNI NÝTT Í KELLOGG’S CORN FLAKES 500 G 469 KR./PK. RAUÐ EPLI 299 KR./KG 20% afsláttur POWERADEORKUDRYKKUR KR./STK. 199BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI 2498 Daglegt líf 11

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.