Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
www.svfr.is – Sími 568 6050
Úrval veiðileyfa…
laxveiði
silungsveiði
…fyrir alla
0000
!
" ! ###$
$
%
& ' ###$
''(
###$
Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum
Frí flugubox
www.frances.is
Heimsþekktar flugur
atvinnumanna
Sigurður Guðjónsson forstjóri
Veiðimálastofnunar hefur birt
grein á vef stofnunarinnar,
www.veidimal.is, þar sem hann
hvetur alla veiðimenn til að drepa
ekki stórlaxa. Jafnframt gagnrýnir
Sigurður veiðifélög sem fylgja því
ekki eftir að stórlaxi sé hlíft.
Kveikja greinar Sigurðar er að
laxveiðin er byrjuð og að fjölmiðlar
birtu myndir af veiðimönnum með
fyrstu laxana; sumum var verið að
sleppa en aðrar voru af „mönnum
með glæsilegan feng sinn, stóra
laxa, nýveidda og blóðuga. Sann-
anlega skemmtilegar myndir sem
við vildum gjarnan sjá í framtíðinni
og samfagna veiðimönnum.
En nú er betra að staldra við.
Stórlaxar eru orðnir mjög fálið-
aðir,“ skrifar Sigurður.
Hann bætir við: „Stórlaxi hefur
hnignað mikið og er einungis brot
af því sem áður var. Ástæður þessa
eru óþekktar en talið er að skilyrði
í hafinu á uppeldisslóðum stórlax-
ins hafi versnað. Þetta ástand hefur
nú varað í mörg ár og stórlaxi held-
ur áfram að hnigna. Það eina sem
við getum gert til að varðveita
þessa erfðaþætti í stofninum er að
hlífa stórlaxi við veiðum eða sleppa
slíkri veiði lifandi aftur í árnar.
Áframhaldandi veiði mun eyða
stórlaxinum. Veiðimálastofnun hef-
ur nú í mörg ár hvatt til að stórlaxi
sé hlíft, en of hægt gengur … Von-
andi kemur sú tíð að sjávarskilyrði
breytast aftur stórlaxi í hag. Þá er
mikilvægt að þessi erfðaþáttur sé
enn til staðar …
Því hvetjum við alla sem að veiði
koma að drepa ekki stórlax, þetta á
við veiðifélög, netaveiðibændur og
stangveiðimenn. Einungis þannig
getum við átt von á því að njóta
þessara tignarlegu fiska í framtíð-
inni,“ skrifar Sigurður m.a.
Forstjóri Veiðimálastofnunar
hvetur til að öllum stórlaxi sé sleppt
Morgunblaðið/Einar Falur
Veitt og sleppt Hér sleppir veiðimaður stórri hrygnu aftur út í Vatnsdalsá.
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Það er ánægjulegt að við verðum vör
við talsvert af vænum laxi núna, það
er meira af honum en síðustu vor. Ég
er sjálfur búinn að fá tvo slíka fiska,
70 cm hrygnu í Myrkhyl og 83 cm
hæng í Veiðilækjarkvörn, milli fossa;
þessir stóru laxar hafa ekki verið al-
gengir hjá manni hér,“ sagði Kjartan
Þorbjörnsson ljósmyndari í gær en
hann er við veiðar í Norðurá.
Um miðjan dag í gær höfðu um 70
laxar veiðst í Norðurá en það hlýtur
að teljast býsna góð veiði í upphafi
vertíðar. Nú er fimmta holl sumars-
ins að veiðum. Síðustu tvö holl veiddu
25 og 17 laxa og veiðimennirnir sem
ljúka í dag voru komnir með 13 laxa
eftir fyrstu tvær vaktirnar.
Á vef Veiðimálastofnunar má sjá
staðfestingu þess að laxagengdin hef-
ur verið óvenjugóð í Norðurá, ef mið
er tekið af síðustu árum. Að morgni
11. júní hafði þannig 81 lax gengið
upp fyrir teljarann við fossinn
Glanna, þar af 46 stórlaxar og 35 smá-
laxar. Á sama tíma í fyrra höfðu að-
eins 9 stórlaxar gengið upp fyrir telj-
arann. „Laxinn virðist því snemma á
ferðinni í ár og auk þess virðist laxinn
vænn, sem bendir til góðra skilyrða í
sjávardvölinni,“ segir á vef stofnunar-
innar.
Elta laxa upp eftir á
„Síðustu holl hafa notið góðs af
vatnsveðrinu hér í vikunni,“ sagði
Kjartan. „Áin fór þannig úr fimm
rúmmetrum upp í 18 yfir nótt. Hún
litaðist og það kom smá-flóð í hana en
vatnið varð þó ekki það mikið að
hamlaði veiðum. Þetta varð til þess að
talsvert gekk af laxi og hann fór hratt
yfir. Hollið sem fékk 17 laxana lenti
fyrri daginn í algjörum þurrkum en
seinni vaktirnar var fiskur á ferðinni
um allt.
Við komum full eftirvæntingar á
staðinn en þó komu ekki nema þrír
laxar á land fyrstu vaktina. Við sáum
hinsvegar talsvert af fiski, á mörgum
stöðum og upp eftir allri á. Þó urðu
menn ekkert varir neðst í henni
fyrstu vaktina, í Munaðarnesi eða í
Stekknum,“ sagði hann. Í gærmorg-
un jókst lífið hinsvegar í ánni. „Við
urðum þá vör við lúsuga fiska í
Stekknum, á Stokkhylsbroti og fleiri
stöðum. Það komu þá upp um tíu lax-
ar,“ sagði Kjartan. „Menn hafa verið
að elta fiska langt upp eftir á. Löxum
hefur verið landað í Króksfossi og í
Poka, og meira að segja fór einhver
upp í Olnboga, nánast upp á heiði, og
varð var við lax þar.“
Hann bætti við að veiðimenn hafi
gert talsvert af því að tylla í laxa og
missa. Myrkhylur og Myrkhyls-
rennur hafa verið gjöfustu veiðistaðir
Norðurár til þessa.
200 silungar í Vatnsdalsá
Fregnir berast af góðri silungs-
veiði á silungasvæði Vatnsdalsár.
Hópur sem var þar á dögunum fékk
um 200 stykki á þremur fyrstu vökt-
unum, en mun lítið hafa sinnt veiðinni
eftir það. Mun bæði vera um sjó-
bleikju og sjóbirting að ræða.
„Verðum vör
við talsvert af
vænum laxi“
Fyrstu holl í Norðurá hafa veitt um 70
Ljósmynd/Júlía Þorvaldsdóttir
Með vænan hæng Kjartan Þorvaldsson ljósmyndari á Morgunblaðinu, þekktur sem Golli, býr sig hér undir að sleppa
83 cm hæng sem hann veiddi í Veiðilækjarkvörn í Norðurá í gærmorgun. Lax er orðinn talsvert dreifður um ána.
Ný bæjarstjórn
Hveragerðis-
bæjar kom saman
til fyrsta fundar
sl. sunnudag.
Sjálfstæðis-
félag Hvera-
gerðis er með-
hreinan
meirihluta. Á
fundinum var
samþykkt að Al-
dís Hafsteinsdóttir verði ráðin bæj-
arstjóri en hún hefur gegnt því emb-
ætti undanfarin fjögur ár. Forseti
bæjarstjórnar verður Unnur Þor-
móðsdóttir og varaforseti Ninna Sif
Svavarsdóttir. Í bæjarráð voru
kosnir þeir Guðmundur Þór Guð-
jónsson, Eyþór H. Ólafsson og Ró-
bert Hlöðversson.
Aldís áfram
bæjarstjóri í
Hveragerði
Aldís Hafsteins-
dóttir