Morgunblaðið - 15.06.2010, Side 18

Morgunblaðið - 15.06.2010, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fulltrúar úrfjórumstjórnmála- flokkum og -hreyf- ingum af þeim fimm sem sæti eiga á Alþingi hafa lagt fram tillögu um að afturkalla umsókn um aðildarviðræður að Evrópu- sambandinu. Á sama tíma er birt skoðanakönnun þar sem fram kemur að afgerandi meirihluti þjóðarinnar stendur á bak við slíkan tillöguflutning og aðeins um 15 prósent þjóð- arinnar eru honum mjög andsnúin. Samfylkingin er komin með ömurlega stöðu í málinu og gegnir líku hlutverki og hvíti minnihlutinn í Suður- Afríku sinnti í baráttu sinni gegn lýðræðinu á móti miklum meirihluta þjóðar sinnar, þótt að öðru leyti sé ekki saman að jafna. Spurningin er hér eins og þar bara um hvenær horfst verður í augu við raunveruleik- ann en ekki hvort hægt sé að lifa miklu lengur í blekking- unni. Stjórnarandstaðan á að gera kröfu um að þing fari ekki heim fyrr en þetta mál hefur verið afgreitt á vettvangi þess. Það er einn helsti klofnings- valdur þjóðarinnar á tímum sem hrópa á að kröftunum sé beint í ákveðna átt. Þetta gera flutningsmenn tillögunnar úr flokkunum fjórum sér ljóst eins og kemur fram í grein- argerð þeirra fyrir tillögunni: „Mikilvægt er að nýta krafta stjórnsýslunnar og fjármagn ríkisins til þeirra brýnu verkefna sem fyrir liggja í kjölfar bankahrunsins. Að halda áfram aðild- arferlinu þegar bersýnilegt er að hugur fylgir ekki máli er slæmt fyrir orð- spor Íslands á alþjóðavett- vangi. Íslandi og Evrópusam- bandinu er lítill greiði gerður með því að íslensk stjórnvöld efni til aðildarviðræðna á þeim hæpnu forsendum sem hér hafa verið raktar. Fyrirsjáan- legt er að aðildarsamningur verði felldur í þjóðaratkvæða- greiðslu og mun sú niðurstaða ekki auka velvilja í garð Ís- lendinga hjá aðildarþjóðum Evrópusambandsins. Af öllu framangreindu er ljóst að um- sókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu er ótíma- bær og því hníga öll rök að því að draga hana til baka.“ Hér er talað mjög skýrt. Utanríkisráðuneyti landsins hlýtur að kynna Evrópusam- bandinu þegar í stað hvað hef- ur gerst í þinginu og hvaða sögu hin nýja skoðanakönnun um afstöðu þjóðarinnar segir svo afdráttarlaust. Utanríkis- ráðuneytið hlýtur að hverfa þegar frá tilburðum til að fá „aðildarumsóknina“ tekna til sérstakrar meðferðar á þjóðhátíðardegi Íslands og fæðingardegi Jóns Sigurðs- sonar. Tillaga þingmanna úr fjórum flokkum um að afturkalla að- ildarviðræður er vendipunktur} Vendipunktur Í síðasta Sunnu-dagsmogga var birt fróðlegt viðtal við þrjár konur sem farið hafa ofan í saumana á mötu- neytismálum grunnskólanna. Foreldrum getur ekki verið alveg rótt eftir þá úttekt sem þar var kynnt. Og á þeim hagræðingartímum sem nú ganga óhjákvæmilega yfir er hætt við að ástandið kunni enn að versna ef ekki er gætt að. En þótt hagkvæmni sé höfð í huga lokar það ekki fyrir úrbætur í mötuneytismálum barna í grunnskólunum. Lýs- ingar kvennanna sem að úttekt- inni stóðu eru vissulega sláandi og jafnvel ótrúlegar á köflum. Og þær bentu á að dapurleg staða væri ekki aðeins bundin við Ísland. Í Danmörku var sýnt fram á að kattamatur væri næringarríkari en krakkamat- ur! En þær létu ekki við gagn- rýnina eina sitja. Þær vísa á leiðir úr vandanum og vænta þess að sjá breytingar til batn- aðar þegar á næsta ári, þótt í smáum stíl verði. En eigi þær úrbætur að ná til alls barnahóps- ins í grunn- skólakerfinu þarf hugarfarsbreytingu til. For- eldrafélög, kennarar og sveit- arstjórnarmenn um land allt verða að veita málinu verðuga athygli og knýja á um úrbætur. Það er mikið í húfi. Nútímafólk hefur skipað málum svo að börnin eru að stórum hluta á ábyrgð annarra en foreldranna stóran hluta vökutíma hvunn- dagsins. Ekki er líklegt að breyting verði á því í bráð. Yfirvöldum slíkra mála hefur því verið veitt mikið traust og ábyrgð þeirra er rík. Skóla- börnin verða að taka í góðu trausti á móti því sem að þeim er rétt. Í of mörgum tilfellum fá þau þó fremur fóður en gæða- fæði að sögn rannsakendanna þriggja. Sé svo erum við að bregðast þeim sem við síst vild- um. Konum sem könn- uðu kosti barna í skólamötuneytum brá í brún} Kattamatur betri en krakkamatur? É g veit að ég hljóma eins og biluð plata og ég veit að það er auðvelt að út- mála skrif eins og þessi sem svartsýnisraus, en það er of mikið í húfi til þess að þegja. Ég segi það bara eins og það er: Ef ekkert verður að gert stefnum við lóðbeint í þjóðargjaldþrot. Hvernig get ég sagt þetta? Einföld hagfræði- leg greining sýnir þetta, svart á hvítu. Skuldir hins opinbera eru orðnar það miklar, að skera þarf niður útgjöld, þannig að opinber þjónusta eins og við þekkjum hana heyri sögunni til. Miðað við þróunina á fyrsta ársfjórðungi stefnir í að fjár- lagahalli ársins verði í kringum 140 milljarða króna. Vaxtagjöld voru rúmir 100 milljarðar í fyrra. Skera þarf niður útgjöld um 140 millj- arða króna til að standa undir vaxtagjöldum og auka ekki á skuldir. (Það þarf semsagt að skera niður um meira en 140 milljarða króna til að byrja að greiða niður skuldir.) Í fyrri pistlum hefur mér verið tíðrætt um erlendar skuldir hins opinbera, enda virðist fljótt á litið að mesta hættan á greiðslufalli stafi af skuld í gjaldmiðlum sem rík- ið getur ekki prentað. Staða Seðlabankans í erlendum gjaldeyri er neikvæð um 80 milljarða króna. Líklega er erlend skuldastaða ríkisins ósjálfbær ein og sér, en með síðustu endurskoðun AGS á efnahagsáætlun fyrir Ísland var erlenda skuldavandanum slegið á frest í nokkur ár. Skuldavandinn hverfur ekki, þótt aðgangur sé tryggður að lánalínum. Ef nýta þarf þessi lán þýðir það ennþá meiri skuldsetningu ríkisins í erlendri mynt og þar með stærri gjalddaga í framtíðinni. Það væri hugsanlega í lagi, ef tíminn þangað til væri nýttur til þess að laða að erlenda fjárfestingu, svo verðmætasköpun og gjaldeyrisskapandi starf- semi stæði hugsanlega undir greiðslunum í framtíðinni. Því er nú aldeilis ekki að heilsa. Hér eru gjaldeyrishöft, óstöðugt regluverk, síhækk- andi skattar og fjárfesting í algjöru lágmarki. Hallarekstur ríkisins þýðir svo aftur að á end- anum á það engan annan kost en að prenta pen- inga. Það þynnir út gjaldmiðilinn – eykur enn á verðbólguna – og setur mikinn þrýsting á gengi íslensku krónunnar. Ef viðskipti með krónuna yrðu gerð frjáls við þær aðstæður, þýddi það að erlendar skuldir rykju upp, mældar í ís- lenskum krónum. Þess vegna verða gjaldeyr- ishöftin varla afnumin í bráð, ef þá yfirhöfuð næstu árin. Við lifum í sýndarveruleika. Útgjöld okkar eru ekki í neinu samræmi við tekjur. Hið opinbera stingur höfðinu í sandinn. Í stað þess að taka á vandanum strax, með niður- skurði á opinberum útgjöldum, er ríkið rekið með halla. Máttlausar tilraunir ríkisins til að loka fjárlagagatinu með skattahækkunum hafa þveröfug áhrif. Einkageirinn getur ekki staðið undir þeirri byrði. Hér ríkir alkul í efnahagslíf- inu. Fjárfesting er hverfandi. Ég endurtek; ef ekkert verður að gert stefnum við í þjóðargjaldþrot. Þannig er sannleikurinn, hvort sem okk- ur líkar betur eða verr. ivarpall@mbl.is Ívar Páll Jónsson Pistill Við stefnum í þjóðargjaldþrot STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Í dag eiga að hefjast áætl- unarferðir inn í Þórsmörk, eina vinsælustu náttúru- perlu á Íslandi bæði meðal íslenskra og erlendra ferða- manna. Þótt ásjóna Þórsmerkur beri vott um eldgosið sem staðið hefur mánuðum saman í nágrenninu virð- ast þó allir sem hafa farið þangað síðustu daga til að meta aðstæður sammála um að þangað eigi ferða- menn enn fullt erindi til að njóta ein- stakrar náttúru. Flóðahættan sem varð ljós nú fyrir helgi vegna vatns- söfnunar í toppgíg Eyjafjallajökuls hefur þó sett strik í reikninginn og enn á ný ríkir óvissa um ferðaþjón- ustuna í Básum í Goðalandi á vegum Útivistar, Ferðafélags Íslands í Langadal og Farfugla í Húsadal. Almannavarnir ákváðu fyrir helgi að loka fyrir almenna umferð inn í mörkina eftir að vísindamenn urðu þess varir að mikið vatn hafði safnast saman í gígnum. Skúli H. Skúlason, fram- kvæmdastjóri Útivistar, segir að verði langvarandi lokanir á almennri umferð inn í Þórsmörk vegna flóða- hættu verði það mikið bakslag fyrir félagið. Að sumri til gisti að jafnaði 500-1.000 manns á tjaldsvæðunum í Básum. „Svo bætist skálinn við og dagsferðatraffík þegar ferðaskrif- stofur koma þarna með hópa. Svo ég hugsa að fjárhagslegt tap fyrir okk- ur gæti orðið hálf milljón um hverja helgi.“ FÍ hefur sagt að tap þess gæti numið allt að 30 milljónum verði lokað fyrir umferð næsta mán- uðinn. Græn og falleg tjaldsvæði Bæði Útivist og Ferðafélag Ís- lands eru samhljóða um að bókanir á gistingu í Þórsmörk hafi farið hægt af stað í vor og talsvert verið um af- bókanir. Að flóðahættunni undan- skilinni eru þó flestir sammála um að engin ástæða sé til annars en að ferðamenn geti notið sumarsins í Þórsmörk. Gróðurinn virðist ætla að braggast ágætlega og mörkin því tekin að grænka, ekki síst eftir rign- ingu síðustu viku. „Það er ljóst að þessi grósku- mikli gróður í Þórsmörk bindur öskuna heilmikið og þetta lítur miklu betur út,“ segir Sveinn Run- ólfsson landgræðslustjóri. Íslenska birkikjarrrið þoli náttúruáföllin vel, umfram annan gróður. „Trjágróð- urinn stenst vel svona mikið ösku- fall, en lággróðurinn á miklu erfið- ara uppdráttar. Auðvitað er þarna mjög mikið öskufall, en það er búið að vinna mikið hreinsunarstarf hjá þessum ferðaþjónustuaðilum þannig að ég hvet alla til að fara inn í Þórs- mörk þegar yfirvöld opna veginn aftur. Það er hverjum manni hollt að sjá þessa stórbrotnu náttúru við þessar aðstæður því þetta er mjög tilkomumikið og sérstakt.“ Tjaldstæði eru og verða opin við skálana bæði í Langadal og Bás- um í sumar og er grasið að sögn iða- grænt þótt nokkur aska sé í sverð- inum. Þá ætlar Útivist að halda sínu striki í gönguferðum yfir Fimm- vörðuháls, og FÍ ætlar að bjóða dagsgöngur að gömlu gosstöðvun- um. Skúli segir ekki annað í stöð- unni en að gera það besta úr óvissu- ástandinu. „Þótt þetta sé óþægilegt og vont fyrir okkur þá höfum við skiln- ing á því að þeir aðilar sem bera ábyrgð á lífi og limum fólks í nátt- úruhamförum stígi varlega til jarð- ar.Við erum afskaplega ánægð með að þeir skuli vera tilbúnir að koma til móts við okkar þarfir með því að hleypa þó skipulagðri umferð inn í Þórsmörk undir eftirliti.“ Þórsmörkin grænkar í skugga flóðahættu Ljósmynd/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Náttúruperla Gróðurinn í Þórsmörk hefur tekið vaxtarkipp á liðinni viku. Birkið er sérstaklega sterkt en lággróðurinn á erfiðara uppdráttar. „Það þótti eðlilegt af öryggis- ástæðum að takmarka ferðir þarna á meðan það var óvissa fyrst eftir að þetta kom í ljós, en ég á nú von á því að það verði slak- að á því,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræð- ingur. Magnús vann að því fyrir Almannavarnir í gær að leggja mat á flóðahættuna. Stöðuvatnið sem myndast hef- ur í gíg Eyjafjallajökuls er um 300 metra breitt. Magnús Tumi segir að þegar úr því flæði niður Gígjökul verði hlaupið minna eða jafnstórt og það sem varð í upp- hafi gossins. Miðað við þær upp- lýsingar sem nú liggja fyrir telur hann hins vegar ólíklegt að hætt- an sé yfirvofandi. „Mér finnst lík- legt að það séu einhverjar vikur í þetta.“ Flæðir ekki næstu daga ÓHÆTT AÐ SLAKA Á LOKUN Langidalur í Þórsmörk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.