Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 19

Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 Öskuþröskuldur Kólnað hefur í Eyjafjallajökli en talsverður hiti er enn. Þó eru ekki líkur á flóði næstu daga eða vikur. Ómar Ragnarsson náði ljósmynd þegar opnaðist fyrir í um klukkustund. Ómar Ragnarsson Fréttirnar af stærri þorskstofni eru já- kvæðar og uppörvandi. Árið 2007 var talið að viðmiðunarstofninn, sem lagður er til grundvallar kvótaút- hlutun, yrði í árs- byrjun 2008 einungis um 570 þúsund tonn. Hafrannsóknastofnun taldi og að framundan yrðu ekki skárri ár. Þorskkvótinn miðað við óbreytta nýtingarstefnu hefði því um ókominn tíma verið um 150 þúsund tonn og hætta á að minnkaði enn. Nú er staðan sú að viðmiðunarstofninn er um 850 þús- und tonn og að hann fari yfir 900 þúsund tonn á næsta ári. Breytingin í prósentum mæld er því gríðarleg. Tæplega 60% aukning séu þessar tölur bornar saman. Margir telja þó að í raun sé stað- an mun betri og að jafnvel miðað við þetta mat Hafrannsóknastofnunar, væri óhætt að styðjast við hærri veiðiprósentu. Veiða til dæmis fjórð- ung en ekki fimmtung af viðmið- unarstofni, eins og nú er gert skv. aflareglu. Um þetta munu menn ræða og sú umræða er nauðsyn- legur hluti af því að komast að vit- rænni niðurstöðu í þessu mikilvæga máli. Vöxtur hrygningarstofns frá 2007 En skoðum aðeins tölurnar nánar og þá í sögulegu samhengi. Óumdeilt er að þegar hrygning- arstofn er orðinn mjög lítill hefur það neikvæð áhrif á nýliðun. Þetta orsakasamband er umdeilanlegra þegar um er að ræða stóran hrygn- ingarstofn. En á undanförnum árum hefur hrygningarstofn- inn verið of lítill sem hefur ótvírætt komið niður á nýliðun. Nú sjáum við mjög merkjanlega breyt- ingu. Hrygning- arstofninn mælist nú 300 þúsund tonn og fer stækkandi. Slíkar tölur höfum við ekki séð, nema með tveimur undantekningum, frá árinu 1970 eða í 40 ár. Þegar ákvörðun var tekin um mikinn niðurskurð í þorsk- afla árið 2007 var hrygningarstofn- inn metinn 180 þúsund tonn og talið að hann yrði nálægt þeirri tölu að óbreyttu. Við erum því að tala um aukningu, eða breytingu á mati, á hrygningarstofni um 66% – eða um tvo þriðju – á ekki lengri tíma. Á sama tíma hefur sú þróun verið mjög merkjanleg að vænni og eldri fiskur er stærra hlutfall í veiðinni. Svo hátt hlutfall 10 ára þorsks í afla hefur ekki sést frá árinu 1983, en var algengt fyrir árið 1975. Þetta eru mikil og góð tíðindi sem ættu að styrkja okkur í þeirri trú að við séum að leggja grunn að betri hrygningu og nýliðun á næstu ár- um. Viðmiðunarstofninn – ekki stærri frá árinu 1989 Sömu þróun sjáum við líka í sam- bandi við viðmiðunarstofninn, þorskinn sem er 4 ára eða eldri og er grundvöllur kvótaákvörðunar- innar. Sá stofn er nú mældur 846 þúsund tonn og talinn verða 902 þúsund tonn á næsta ári. Hafrannsóknastofnun mat hann 650 þúsund tonn örlagaárið 2007 og áætlaði stærð hans 570 þúsund tonn í ársbyrjun 2008. Þetta þýðir að á þessum stutta tíma erum við að tala um breytingar upp á nær 60%, sé stærð hans í ársbyrjun næsta árs lögð til grundvallar við samanburð- inn. Til þess að fá dæmi um stærri stofn þurfum við að fara aftur til ársins 1989. Þá var tillaga Hafrann- sóknastofnunar um hámarksafla 300 þúsund tonn, stjórnvöld ákváðu 325 þúsund tonna veiði sem varð svo á endanum um 350 þúsund tonn. Þetta var vel að merkja vel fyrir daga aflareglunnar, sem hér hefur verið gerð að umtalsefni. Til fróðleiks má líka vekja athygli á að á árunum 2004-2006 var við- miðunarstofninn á bilinu 700 til 800 þúsund tonn. Við höfum því séð þorskstofninn stækka umtalsvert umfram það sem hann var, árin áð- ur en tekin var sú umdeilda ákvörð- un að minnka sóknina í þorskinn svo umtalsvert, til þess að stuðla að því að hann rétti úr kútnum með sæmi- legu öryggi og ekki á allt of löngum tíma. Á þessum tíma var hins vegar byggt á 25% aflareglu sem gerði það að verkum að kvótarnir á þess- um árum voru frá 193 til 205 þús- und tonn. Með slíkri aflareglu yrði aflinn á þessu og næsta fiskveiðiári 212 og 225 þúsund tonn. Erum að nálgast kvótann eins og hann var fyrir niðurskurð Athyglisvert er líka að velta upp öðrum útreikningum. Ef mat Haf- rannsóknastofnunar gengur eftir um stærð þorskstofnsins á næsta ári, gefur 20% aflareglan, þar sem ekki væri tekið tillit til sveiflujöfn- unar, um 180 þúsund tonna ársafla. Hér er ekki verið að leggja til að horfið verði frá sveiflujöfnun. Alls ekki. Slíkt væri óskynsamlegt. En af þessum tölum má ráða að við er- um nú mjög að nálgast þann ársafla að nýju sem við veiddum fyrir hinn mikla niðurskurð á árinu 2007 og það þó að byggt sé á fimmtungi lægri aflanýtingarprósentu. Er þetta enn til marks um að þorskstofninn sé ótvírætt að rétta úr kútnum og það þó að einvörð- ungu sé stuðst við tölur Hafrann- sóknastofnunar, sem flestir sjó- menn og útvegsmenn telja þó að feli fremur í sér vanáætlun en ofáætlun á stærð stofnsins. Hafrann- sóknastofnun flutti okkur því upp- örvandi fréttir af þorskstofninum í ástandsskýrslu sinni þetta árið. Aldrei þessu vant, segja ábyggilega margir. Hvað sem því líður, þá var kominn tími til og við verðskuld- uðum það, eftir þær fórnir sem færðar hafa verið með skerðingum undanfarin ár. Áhrif strandveiða Eitt hefur þó breyst frá því í fyrra. Nú eru hafnar svo kallaðar strandveiðar samkvæmt nýjum lög- um. Þar er áætlað að 5 þúsund tonn af þorski muni veiðast eða rúm 3% þorskkvótans á fiskveiðiárinu. Þessi afli kemur ekki til frádráttar við út- hlutun aflamarks á núverandi fisk- veiðiári. Það mun hins vegar gerast strax á því næsta. Þeir sem stunda fiskveiðar sem atvinnugrein á heils- ársgrunni munu því ekki fá nema helming kvótaaukningarinnar til ráðstöfunar á næsta fiskveiðiári. Við í minnihluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar reyndum að fá þessu breytt. Málið kom fyrst til kasta Alþingis eftir aðra umræðu málsins. Þá ákvað stjórnarmeiri- hlutinn að hafa þetta fyrirkomulag, gegn okkar vilja í minnihlutanum. Síðan lögðum við til í sáttaskyni að strandveiðar yrðu utan við sviga næstu tvö fiskveiðiárin, til þess að milda skerðingaráhrifin. Stjórn- armeirihlutinn skellti við því skolla- eyrum líka og sýndi hug sinn í verki til þeirra sjómanna, fiskverk- unarfólks og útvegsmanna sem eiga sitt undir aflamagni í krókaafla- marks- og aflamarkskerfi. Það var þeirra stefnumörkun. Hún liggur nú fyrir; er meðvituð niðurstaða stjórn- arliða og þá vitum við það. Hvernig á að úthluta aflaaukningunni? Og þá er aðeins eitt eftir í lokin og það er þetta. Nú sjáum við von- andi auknar aflaheimildir í þorski á næstu árum, vegna stærri þorsk- stofns. Rétt eins og enginn efaðist um réttmæti þess að handhafar veiðiréttarins tækju á sig skerðing- arinnar, þá er jafn rökrétt að þeir njóti aukningarinnar. Eða dettur annars nokkrum í hug að eðlilegt sé og sanngjarnt að útgerðin taki á sig tekjuskerðingu þegar illa árar í sjónum, en njóti ekki tekjuaukn- ingar þegar hún gefst með auknum aflaheimildum vegna uppbyggingar á þorskstofninum; uppbyggingar sem aukinheldur krafðist fórna? Það yrði þá að minnsta kosti und- arleg hugsun og lítt til þess fallin að hvetja menn til ábyrgrar umgengni í lífríki hafsins. Hvað sem réttlæt- iskennd manna líður, þá gæti það að minnsta kosti seint talist græn eða vistvæn stefna, né í samræmi við umhverfissjónarmið þau sem núver- andi ríkisstjórn hefur stundum á vörunum. Eftir Einar Kristin Guðfinnson »Nú sjáum við von-andi auknar afla- heimildir í þorski á næstu árum, vegna stærri þorskstofns. Einar K. Guðfinnsson Höfundur er alþingismaður, fyrrv. sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra. Eru fréttirnar kannski betri?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.