Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
✝ Kristinn E. Guð-mundsson var
fæddur í Reykjavík
6. febrúar 1934.
Hann lést í sum-
arbústað sínum á
Þingvöllum 8. júní
sl. Foreldrar hans
voru Jóhanna Guð-
jónsdóttir húsmóðir
og Guðmundur Eyj-
ólfsson sjómaður en
þau eru bæði látin.
Systkini Kristins
sammæðra eru Sig-
ríður, látin, Jörgen
Már og Guðrún. Systkini Kristins
samfeðra eru Guðfríður, Elín Val-
gerður, Bjarni og Ragnar.
Kristinn kvæntist 23. maí 1953
Guðríði Geiru Kristjánsdóttur frá
Hellissandi, f. 27. júlí 1934. For-
eldrar hennar voru Kristján Haf-
liðason og Guðmundsína Sigurrós
Sigurgeirsdóttir, bæði látin. Börn
Kristins og Guðríðar Geiru eru:
1961, gift Salómoni Þórarinssyni,
f. 1960, barn Jónu Bjargar: Svav-
ar Helgi, f. 1984, faðir hans Jakob
Svavarsson, barn Salómons er
Sóley, f. 1995. Sigurrós, f. 1962,
börn hennar: Torfi Þór, f. 1984,
og Berglind Rós, f. 1986, faðir
þeirra er Torfi Lúthersson. Sam-
býliskona Torfa Þórs er Hildur
Rúnarsdóttir, f. 1983, barn
þeirra: Ilmur Jara, f. 2007. Berg-
lind Rós er gift Lúðvíki Berg
Lúðvíkssyni, f. 1983, börn þeirra:
Viktoría, f. 2005 og Rakel, f.
2006.
Kristinn lærði bifvélavirkjun
hjá Fordumboðinu Kr. Kristjáns-
syni. Lengst af starfsævinni vann
Kristinn hjá Vita- og hafna-
málastofnuninni í Kópavogi. Síð-
ustu starfsárin starfaði Kristinn
hjá bifvélaverkstæði Stræt-
isvagna Reykjavíkur.
Útför Kristins fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 15. júní 2010,
og hefst athöfnin kl. 13.
Ögmundur, f. 1953,
kvæntur Ástu Huldu
Kristinsdóttur, f.
1953. Barn þeirra:
Sveinn Kristinn, f.
1975, kvæntur Höllu
Árnadóttur, f. 1977,
börn þeirra: Ögmund-
ur Árni, f. 2002, og
Gunnlaugur Árni, f.
2005. Jóhanna, f.
1958, gift Guðmundi
Bjarna Daníelssyni, f.
1955, börn þeirra:
Guðríður Marta, f.
1974, sambýlismaður
Eggert Sólberg Pálsson, f. 1972,
börn þeirra: Páll Sólberg, f. 1993,
Jóhanna Margrét, f. 1995, Eggert
Sólberg, f. 2002. Kristinn Eyjólf-
ur, f. 1978, sambýliskona Gyða
Minný Sigfúsdóttir, f. 1979, börn
þeira: Kamilla Rós, f. 2003, Kjart-
an Smári, f. 2005. Daníel Guðni, f.
1986, unnusta Linda Ósk Kjart-
ansdóttir, f. 1988. Jóna Björg, f.
Elsku pabbi og tengdapabbi,
þakka þér fyrir alla hjálpina og
góðu stundirnar. Alltaf varst þú
fyrstur til að bjóða fram aðstoð
þína alveg sama hvað það var. Þú
varst alltaf svo góður og jákvæð-
ur við okkur öll, mér finnst gott
að hugsa til góðu stundanna þeg-
ar ég fór með þér og mömmu í
göngutúra í Laugardalnum og út
við Gróttu og ferðirnar með okk-
ur Salla upp í bústaðinn sem við
erum að byggja. Þú áttir þínar
bestu stundir í sumarbústaðnum
ykkar þar sem þú kvaddir á sól-
björtum degi í faðmi mömmu.
Oft sagði ég við þig og mömmu
að enginn gæti óskað sér betri
foreldra, guð geymi þig pabbi
minn.
Jóna og Salómon.
Fyrir 37 árum, þegar ég var 18
ára gamall, kom ég á heimili þitt
til að heimsækja rauðhærða
heimasætu sem þá var aðeins 15
ára. Til að byrja með varstu ekki
mjög hrifinn af þessum heimsókn-
um en það breyttist sem betur fer
fljótt. Það tókst strax með okkur
góður vinskapur og reyndist þú
mér og mínu fólki ávallt mjög vel.
Margar góðar stundir átti ég,
Jóhanna, börn mín og barnabörn
saman t.d. í sumarbústað ykkar
Geiru, hvort sem það var við veið-
ar, viðgerðir eða söng við gít-
arleik þinn.
Þú kvaddir í ykkar sælureit í
sumarbústaðnum við Þingvalla-
vatn í faðmi þinnar heittelskuðu
eiginkonu til 57 ára. Ekki er hægt
að hugsa sér betri leið til að
kveðja þennan heim.
Hafðu þökk fyrir allt kæri vin-
ur og tengdapabbi.
Elsku tengdamamma, guð
geymi þig um ókomna tíð.
Við hvað á ég að líkja lífi okkar?
Jafnvel áður en ég
get sagt að það
sé sem elding
eða daggardropi
er því lokið.
Guðmundur Bjarni Daníelsson.
Kiddi tengdafaðir minn er lát-
inn. Hann lést á Þingvöllum í
sumarbústað sínum en það var sá
staður sem honum var kærastur.
Ég á ekkert nema fallegar
minningar um Kidda. Ég var ung-
lingsstúlka þegar ég kom fyrst í
Skálagerðið með Ömma og var
mér afskaplega vel tekið af Geiru
og Kidda.
Síðan þá hafa þau reynst mér
og fjölskyldu minni mjög vel.
Kiddi og Geira voru mjög sam-
hent hjón og ef annað nafnið var
nefnt fylgdi hitt á eftir. Kiddi var
einstaklega ljúfur og góður mað-
ur, það var alveg sama hverju við
þurftum á að halda, hann var allt-
af tilbúinn að aðstoða. Hann
hugsaði sérstaklega vel um fjöl-
skyldu sína og spurði frétta af
barnabörnum og barnabarna-
börnum ef svo ólíklega vildi til að
hann hefði ekki hitt þau um tíma.
Öll símtöl okkar á milli eru vottur
þess að hann fylgdist vel með öllu
í fjölskyldu minni af umhyggju.
Þegar við Ömmi eignuðumst
sumarbústað á Flúðum fylgdist
hann með hverju skrefi sem stigið
var og gaf góð ráð. Margar góðar
stundir átti ég með Kidda og
Geiru í Skálagerðinu og í sum-
arbústaðnum þeirra við Þing-
vallavatn, þar sem gjarnan var
slegið upp stórveislu ef gesti bar
að garði. Hann var hrókur alls
fagnaðar í afmælisveislum og öðr-
um samkomum fjölskyldunnar en
þá tók hann gjarnan fram gít-
arinn og spilaði og söng. Efst í
huga mér er ferð sem Kiddi og
Geira fóru með okkur Ömma til
Flórída haustið 2004. Kiddi heill-
aðist af flestöllu sem fyrir augu
bar. Það sem vakti sérstaka at-
hygli hans voru vegirnir, vega-
kerfið og allar slaufurnar á
stórum gatnamótum. Við ferðuð-
umst víða í þessari ferð og naut
hann hverrar stundar.
Kiddi minn, nú er komið að
leiðarlokum. Ég þakka þér sam-
fylgdina og hversu góður þú varst
alltaf við mig.
Góður Guð, blessa þú minningu
Kidda og gef Geiru og fjölskyldu
styrk.
Þín tengdadóttir,
Ásta Hulda.
Hann Kiddi afi er dáinn.
Þessi hlýi og góði maður sem
alltaf var tilbúinn að hjálpa til ef
óskað var eftir því.
Ég man eftir mér ungum að ár-
um í sumarbústaðnum hjá ömmu
og afa þar sem við veiddum í
Þingvallavatni, nutum góðra veit-
inga og slöppuðum af á pallinum.
Afi var alltaf klár með veiðistöng-
ina og eyddi ófáum klukkutím-
unum með fjölskyldunni niðri við
vatnið. Alltaf var tekið vel á móti
manni, hvort sem komið var í
sumarbústaðinn eða í Skálagerð-
ið.
Kiddi afi og amma Geira pöss-
uðu Ögmund Árna, eldri son okk-
ar hjóna, einn vetur áður en hann
byrjaði á leikskóla og tóku þar
með virkan þátt í uppeldi hans.
Hann var sjaldan jafn ánægður
og þegar hann kom í Skálagerðið
enda var hann viss um að amma
og afi myndu fara með hann á
leikvöllinn, skreppa á bókasafnið
eða leika í rólegheitum á stofu-
gólfinu. Kiddi afi spilaði líka oft á
gítarinn við fögnuð þess stutta.
Gunnlaugur Árni, yngri sonur
okkar, átti einnig ómetanlegar
stundir með langafa og lang-
ömmu.
Afi var alltaf svo góður við alla.
Hann naut þess að koma í heim-
sókn og hitta drengina okkar.
Hann, ásamt ömmu, nýtti öll
tækifæri til þess að halda góðum
tengslum við allt sitt fólk og lýsir
það þeirri umhyggju og ástúð
sem þau búa yfir.
Við erum þakklát fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum
með elsku Kidda afa. Ekki síst
skemmtilegar stundir á Tenerife
fyrir tveimur árum.
Afi og amma voru einstaklega
samrýnd hjón, á milli þeirra ríkti
mikill kærleikur. Það var aðdáun-
arvert að fylgjast með sambandi
þeirra og hversu samtaka þau
voru í öllu því sem þau tóku sér
fyrir hendur. Hjónaband þeirra
er okkur sem yngri erum dýrmæt
og góð fyrirmynd.
Elsku Geira amma, þinn missir
er mestur. Megi góður Guð
styrkja þig og fjölskylduna alla.
Sveinn Kristinn, Halla,
Ögmundur Árni
og Gunnlaugur Árni.
Elsku afi minn, ég er enn að
reyna að átta mig á því að þú sért
farinn. Þegar ég fékk þær fréttir
að þú værir að kveðja þennan
heim fylltist ég mikilli sorg og
söknuði. Stuttu eftir byrjaði ég að
hugsa um allar þær stundir sem
ég átti með þér.
Mínar fyrstu minningar um þig
eru þegar við fjölskyldan vorum
hjá ykkur í sumarbústaðnum á
Þingvöllum, að veiða á daginn og
þú að spila á gítarinn á kvöldin.
Svo eru það heimsóknir mínar í
Skálagerðið, þar sem maður
stalst oft í stólinn þinn og horfði á
Tomma og Jenna-spóluna sem þú
og amma settuð í tækið fyrir okk-
ur barnabörnin. Þegar ég var að
kveðja ykkur eftir heimsóknir
gáfuð þið mér alltaf Ópal en svo
seinna meir vilduð þið styrkja
mig með smápening. Þessum
gjöfum reyndi ég yfirleitt að
neita, en þú tókst það ekki í mál,
sagðir mér bara að nota hann í að
gera eitthvað skemmtilegt. Á síð-
asta ári eyddi ég mun meiri tíma
hjá ykkur ömmu en ég hafði gert
áður, þar sem ég bjó nokkrum
skrefum frá ykkur. Oft kom ég
yfir í hádegismat þar sem við
spjölluðum lengi saman og hlóg-
um, mikið er ég þakklátur fyrir
þann tíma. Þú kvaddir þennan
heim skyndilega en jafnframt á
þeim stað sem þér leið best, í
sumarbústaðnum með ömmu. Ég
mun alltaf minnast þín með gleði í
hjarta og ég þakka fyrir allar þær
stundir sem við áttum saman.
Guð geymi þig.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér
nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svo vöknum við með sól að
morgni.
(Bubbi Morthens)
Daníel Guðni Guðmundsson
og Linda Ósk Kjartansdóttir.
Elsku afi minn, ekki trúði ég
því að þú værir farinn frá mér,
það var eins og tíminn hefði
stöðvast, en nú ertu kominn á
góðan stað þar sem við öll hitt-
umst á endanum.
Þegar kemur að kveðjustund þá
koma allar bestu minningarnar
fram. Það sem stendur upp úr hjá
mér er hvað þú varst oft að tala
um hvað þú værir stoltur að eiga
alnafna og ekki er ég síður stoltur
að vera nafni þinn þar sem þú ert
sú persóna sem allir litu upp til.
Maður fyllist stolti að sjá hvað
þið amma voruð alltaf jafn ást-
fangin og góð hvort við annað og
það lýsti upp heimilið ykkar og
bústaðinn þar sem var alltaf jafn
yndislegt að koma. Ég gleymi
aldrei þeim stundum sem ég
eyddi með þér við að sækja vatn
og smíða uppi í bústað. Svo þegar
barnabörnin komu var glampinn í
augum þínum slíkur að maður sá
hvað þú elskaðir þau mikið en það
sem er sárast er að nú eru tvö lít-
il kríli á leiðinni sem þú hlakkaðir
svo til að sjá en við munum sjá til
þess að þau heyri hvað afi þeirra
elskaði þau mikið þó svo að ekki
fædd væru.
Ég á eftir að sakna þín svo
óendanlega mikið og sakna að
koma til þín í sveitina í kaffi og
brauð með tómat og eggjum sem
var hvergi eins gott og hjá ykkur
ömmu, það verður sterkt í minn-
ingunni og ég mun aldrei gleyma
því. Þegar ég verð eldri ætla ég
að verða nákvæmlega eins afi og
þú, því svona eiga afar að vera.
Megi guð geyma þig í örmum
sér og ég veit að við hittumst síð-
ar.
Þinn alnafni,
Kristinn.
Elsku afi. Þakka þér fyrir allt
sem þú hefur gefið okkur, við höf-
um oft rætt það okkar á milli
hvernig þú komst okkur í föð-
urstað og við erum þér ævinlega
þakklátir fyrir ómetanlegar
stundir okkar saman eins og þeg-
ar þú kenndir okkur að hjóla,
spila á gítar og kenndir okkur á
rakvélina þegar við þóttumst vera
komnir með skegg. Það eru for-
réttindi að hafa átt svona góða að.
Við munum aldrei gleyma þér.
Svavar og Torfi.
Elsku fallegi afi minn.
Mikið er erfitt að kveðja þig en
samt er ég svo þakklát og glöð í
hjartanu að þú fékkst að fara á
þínum uppáhaldsstað og í örmum
konunnar sem þú elskaðir svo
heitt. Ást ykkar ömmu sagði
meira en þúsund orð. Þið kennd-
uð okkur að elska og virða hvert
annað á svo marga vegu. Það var
alveg sama hvar þið voruð, ef það
hljómaði fallegt lag þá bauðstu
ömmu alltaf upp í dans og sagðir
henni hversu falleg hún væri og
hvað við værum heppin að eiga
hana sem ömmu, þetta ólumst við
upp við. Hvers er hægt að óska
sér meir? Í hjarta þínu var alltaf
pláss fyrir alla og mikið nutum
við þess að koma með vini okkar í
heimsókn hvort sem það var í
Skálagerðið eða í sumarbústað-
inn. Afi, þú varst Viktoríu og
Rakel svo dýrmætur og þær voru
nú ófáar stundirnar sem við fjöl-
skyldan áttum saman í sumarbú-
staðnum. Við keyrðum svo oft
fram hjá fallegu kirkjunni í sveit-
inni og ég sagði alltaf að þegar ég
yrði stór þá myndi ég gifta mig í
þessari kirkju sem og ég gerði.
Og þú afi leiddir mig inn kirkju-
gólfið og gafst mig honum Lúðvík
sem þú hélst svo mikið upp á.
Elsku afi, þú varst mér sem
faðir, það var svo gott að halda
utan um þig og vera hjá þér. Ég
sakna þín svo sárt og elska þig
svo mikið, lífið verður ekki eins
án þín.
Þín afastelpa,
Berglind Rós.
Elsku besti afi minn, mikið
vantar mig fast faðmlag frá þér
núna og klapp á kinnina, mér
stekkur nú bros á vör þegar ég
hugsa til þín, alltaf talandi um
það að ég væri litla stelpan ykk-
ar. Þú varst alltaf svo fallegur og
góður við okkur öll og þá sér-
staklega hana ömmu, eftir öll
þessi ár horfðirðu enn á hana með
stjörnur í augum og það sáu allir
ástina og virðinguna sem þið
sýnduð hvort öðru alla tíð. Amma
alltaf svo fín á hælaskóm og þú í
dökkum gallabuxum, pólóbol og
leðurjakka.
Elsku amma mín, missir þinn
er mikill, við verðum alltaf til
staðar fyrir þig. Elsku afi minn,
ég kveð þig með sorg í hjarta en
fallega minningu um yndislegan
mann sem gaf mér alla þá ást og
athygli alla tíð, sem lítil stelpa
þarf, þó svo hún sé orðin 35 ára. Í
huganum raula ég lagið sem ég
söng alltaf fyrir þig þegar ég var
lítil aftan í Cortinunni á leið upp í
bústað: „Ég er á leiðinni, alltaf á
leiðinni, til þess að segja þér hve
heitt ég elska þig“ og kyssi þig á
hálsinn.
Ég mun sakna þín allt mitt líf,
elsku afi minn, þú varst bestur og
ég verð alltaf í huga mínum litla
stelpan þín.
Marta.
Í dag er kært kvaddur Kristinn
E. Guðmundsson bifvélavirki.
Kiddi eins og hann var alltaf kall-
aður var stóri bróðir minn. Það er
afskaplega sérstök tilfinning að
hann skuli ekki lengur vera hjá
okkur. Hann var elsta barn móð-
ur minnar af fyrra hjónabandi og
hann ólst að mestu upp hjá ömmu
og afa. Hann lærði bifvélavirkjun
hjá pabba og ég held að ég hafi
verið orðin hálffullorðin þegar ég
áttaði mig á því að pabbi var
stjúpi hans en ekki pabbi, svo
nánir voru þeir. Helsta einkenni
Kidda var góðmennskan sem af
honum skein, hlýjan sem hann
umvafði alla með og kátínan sem
aldrei var langt undan. Hann hitti
ástina sína ungur, hana Geiru,
þau voru eitt og óaðskiljanleg.
Fallegri hjón sáust varla. Þau
eignuðust fjögur dásamleg börn,
Ögmund, Hönnu, Jónu og Rósu.
Þar fór fríður flokkur barna sem
hann gat verið stoltur af. Það var
og er dásamlegt og ómetanlegt að
eiga slíka fjölskyldu.
Þó sorgin sé nú förunautur, þá
var það fyrst og fremst gleðin, já-
kvæðnin og hlýjan sem einkenndi
allt í kringum hann. Kiddi og
Geira voru eitt og þau voru akk-
erið mitt alveg frá því ég man eft-
ir mér. Þegar ég var að alast upp
á Laugarnesveginum þá bjuggu
þau í kjallaranum með Ömma lít-
inn og við uppi, pabbi og mamma
og amma. Hjá þeim átti ég alltaf
athvarf og hjá þeim var ég pössuð
og hjá þeim var gleði unga fólks-
ins, hláturinn og gítarspil. Ef
pabbi og mamma fóru í frí þá var
ég pössuð hjá þeim og þannig var
það alveg þar til ég fullorðnaðist.
Alltaf var hægt að bæta mér við.
Þar sannaðist að þar sem er
hjartarými, þar er alltaf pláss.
Hann er ógleymanlegur tíminn
sem þau bjuggu á Sogaveginum,
en þar byggði hann í óleyfi hús,
sem þau bjuggu í til fjölda ára.
Þangað var dásamlegt að koma,
það var eins og fara upp í sveit,
tók klukkutíma í strætó vestan úr
Kristinn E. Guðmundsson
HINSTA KVEÐJA
Við sjáum að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær,
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum
væng,
svo brjóst þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og
hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt,
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson)
Elsku pabbi, minning þín er
ljós í lífi okkar.
Guð geymi þig.
Jóhanna og Sigurrós.