Morgunblaðið - 15.06.2010, Síða 23

Morgunblaðið - 15.06.2010, Síða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 bæ. Mér fannst ekkert skemmti- legra: horfa á börnin böðuð, fá að skreppa í búðina, vera boðin í mat og þar fékk ég hvalkjöt með brúnni sósu sem mér fannst al- gjört nammi og kóteletturnar eru ógleymanlegar, auðvitað í raspi. Við vorum alltaf saman á að- fangadag þegar ég var minni og þvílíkar dásamlegar minningar þegar húsið fylltist af börnum og hátíðin gekk í garð. Síðar vorum við mamma stundum hjá þeim á aðfangadag, og ég man þegar ég var með Ögmund minn pínulítinn í burðarrúmi að horfa á fyrstu jólaljósin hjá Kidda og Geiru. Það var hátíðlegt og ógleymanlegt. Það er svo margs að minnast og minningar halda áfram að streyma í gegnum hugann. Gott er að eiga þær til að ylja. Hann var einhvern veginn alltaf til staðar, svo nálægur og hlýr. Missirinn er mikill fyrir Geiru og fjölskyldu. Barnabörnin sjá á eftir besta afa sem hægt var að eignast. Því miður þá eru Gísli og Ögmundur ekki á landinu til að fylgja Kidda síðasta spölinn, en hugur þeirra er með fjölskyldunni og þeir þakka fallegar stundir og senda innilegar samúðarkveðjur. Takk fyrir allt og allt, kæri stóri bróðir, og ég veit að góður guð mun vernda fjölskylduna þína alla. Megi herskarar engla fylgja þér á leiðarenda. Guðrún Ögmundsdóttir. Hann Kiddi er falinn frá og mig langar að þakka honum fyrir væntumþykju í öll þessi ár. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Elsku Geira, Ömmi, Hanna, Jóna og Rósa. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi guð veita ykkur styrk á þessum erfiða tíma. Hrafnhildur. Kæri bróðir, Og nú, er með skyndingu þú ferð okkur frá, sem okkur þú gladdir með ástríkri brá, við óskum að fylgja þér megi hið hreinasta og besta sem heim- urinn á og hjálpi á framtíðarvegi. Við sendum þér kveðju af hjarta hljóð, hart falla örlaga dómar, þú söngst okkur fagurt lífs þíns ljóð, nú lækka þeir blíðu rómar. Við þökkum glaðværan unaðsóð, hann áfram í hug vorum hljómar. Lát minninganna mildu blóm mýkja og græða sárin. En ljúfra tóna enduróm ylja og þerra tárin. (A.B.) Minning um góðan mann lifir í hjörtum okkar allra og vottum við fjölskyldu hans og ástvinum dýpstu samúðarkveðjur. Guð geymi þig, kæra Geira, og Guð geymi þig, elsku bróðir. Guðfríður og Björn (Fríða og Bjössi). Látinn er í hárri elli einn forystumanna ís- lenskra jafnaðarmanna árin 1942 til 1971, Birg- ir Finnsson, fv. alþing- ismaður og bæjar- fulltrúi Alþýðuflokksins á Ísafirði. Hann var í föðurætt kominn af verka- lýðssinnum og jafnaðarmönnum og fylgdi í þeirra fótspor. Faðir hans hafði verið formaður í verkalýðs- félagi, frumkvöðull í atvinnulífi Ísa- fjarðar með stofnun Samvinnufélags Ísfirðinga, bæjarfulltrúi og ráðherra fyrir Alþýðuflokkinn, en afi hans, Jón Friðfinnsson verkamaður og bóndi á Akureyri, var sósíalisti og virkur í verkalýðsbaráttu þess tíma. Þessari arfleifð trúr var Birgir Finnsson í þrjátíu ár, einn þessara traustu, vandvirku, vinnusömu, en hófsömu stjórnmálamanna, með sterkar rætur í atvinnulífinu eftir áralöng störf fyrir útgerð og fisk- vinnslu Samvinnufélags Ísfirðinga og víðar. Manngerð, sem stjórnmál sam- tímans þyrftu svo mjög á að halda. Maður sem naut virðingar langt út fyrir okkar flokk, Alþýðuflokkinn, maður sem sameinaði, en sundraði ekki. Eiginleiki sem nýttist vel þau átta ár sem hann var forseti samein- aðs Alþingis, lengur samfellt en nokkur annar. Þegar hann hvarf af vettvangi stjórnmálanna árið 1971, eftir póli- tískar sviptingar í lok Viðreisnar- tímabilsins, hóf hann, og raunar eig- inkona hans Arndís Árnadóttir einnig, störf á endurskoðunarskrif- stofu og vann þar í rúm tuttugu ár eða til ársins 1993. Var það í anda hans hófsemi, að vinna fyrir sér eins og venjulegur borgari, en ætlast ekki til þess að honum yrði „útvegaður“ vellaunaður póstur, sendiherra eða bankastjóra, eins og því miður var of algengt á þeim árum og allt fram á síðustu ár, en mun héðan í frá von- andi heyra sögunni til. Slíkt var ekki í anda Birgis Finnssonar, hann kvaddi stjórnmálin með reisn. Ég vil fyrir hönd íslenskra jafnað- armanna þakka honum hans framlag til betra og réttlátara samfélags, um leið og ég sendi börnum hans og öðr- um afkomendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Í sorg yfir horfnum föður, tengdaföður og afa eru minn- ingar um merkan og mætan mann huggun. Jóhanna Sigurðardóttir, for- maður Samfylkingarinnar. Í Ísafjarðarkaupstað var framan af 20. öld skráð saga, sem nánast er ein- stök í sögu sveitarfélaga á Íslandi. Í átökum valdastéttarinnar við Skúla Thoroddsen stóð ísfirsk alþýða þétt með sýslumanni. Í kjölfarið vaknaði sterk stéttarvitund meðal verka- manna og sjómanna á Ísafirði. Alþýð- an á Ísafirði kallaði eftir áhrifum og völdum. Átök urðu milli fylkinga – Birgir Finnsson ✝ Birgir Finnssonfæddist á Akureyri 19. maí 1917. Hann lést í Reykjavík þann 1. júní 2010. Útför Birgis var gerð frá Fossvogs- kirkju 14. júní 2010. þeirra sem réðu og hinna, sem ekki réðu en sóttu rétt sinn. Þau réttindi, sem eru nú hluti af daglegu lífi ís- lenskrar alþýðu, unn- ust öll í baráttu. Um- ræðustjórnmálin eiga þar ósköp lítinn hlut. Jafnaðarmenn í Al- þýðuflokknum unnu meirihluta í bæjar- stjórn Ísafjarðar og héldu honum lengi. Þeir notuðu völd sín til þess að skrá merka sögu. Mjólkur- skortur var landlægur. Ísafjarðar- kratarnir reistu félagsbú og leystu þann vanda ísfirskra barnafjöl- skyldna. Þeir byggðu sundlaug og íþróttahús á undan öðrum. Þeir byggðu sjúkrahús sem var stærsta sjúkrahús á Íslandi. Þeir festu kaup á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi til þess að þar yrði byggð upp orlofsaðstaða fyrir ísfirska alþýðu. Þegar stór hluti ísfirska flotans var seldur burtu úr bænum stofnuðu þeir Samvinnufélag Ísfirðinga, útgerðar- fyrirtæki sem rak einn glæsilegasta fiskiskipaflota sinnar tíðar. Birgir Finnsson var þar framkvæmdastjóri. Forystuhópur jafnaðarmanna á Ísa- firði var skipaður skörungum. Finnur Jónsson, ráðherra, faðir Birgis, var í frumkvöðlahópnum. Þar voru líka séra Guðmundur frá Gufudal, faðir Haraldar síðar ráðherra og afi Jóns Sigurðssonar, ráðherra, Grímur Kristgeirsson, faðir Ólafs Ragnars, Guðmundur Gíslason Hagalín, rithöf- undur, Helgi Hannesson, forseti BSRB, og fleiri. Við tók svo millikyn- slóðin. Hannibal Valdimarsson, Birg- ir Finnsson, Jón H. Guðmundsson, Marías Þ. Guðmundsson og síðar yngri menn eins og Pétur Sigurðs- son, Gunnar Jónsson, Sigurður Jó- hannsson og Kristján Jónasson svo nokkur nöfn séu nefnd. Í hópi milli- kynslóðarinnar var faðir minn. Hví rifja ég í minningarorðum um Birgi Finnsson upp nöfn allra þessa einstaklinga? Það er vegna þess að í mínum huga eru þeir samstæður hópur þar sem einn stóð fyrir alla og allir fyrir einn. Á átta mánuðum hafa þrír síðustu úr hópi millikynslóðar- innar kvatt. Fyrst faðir minn, svo Marías og nú Birgir. Sagan, sem þeir skráðu með lífsstarfi sínu, stendur ein eftir. Birgir var þingmaður Vest- firðinga þegar ég steig fyrstu spor á stjórnmálabrautinni. Ég þekkti hann áður og kynntist honum betur í sam- starfi við þingflokkinn. Var svo valinn með stuðningi hans sem frambjóð- andi á Vestfjörðum þegar hann hætti afskiptum af stjórnmálum. Þá og ávallt síðar reyndist hann mér holl- ráður og heilráður. Birgir var glæsi- legur maður, einstaklega vandaður og vandvirkur, hæglátur, hlýr og kurteis. Birgir Finnsson er nú kvaddur. Sá síðasti úr hópi millikynslóðar forystu- manna Ísafjarðarkratanna er liðinn. Ég vil þakka honum vináttu og leið- sögn um leið og ég votta börnum hans og barnabörnum einlæga samúð. Sighvatur Björgvinsson, fyrrv. alþingismaður og ráðherra. Við Birgir ólumst upp og bjuggum langt fram eftir fullorðinsaldri í ein- hverjum þeim pólitískasta bæ sem ég get ímyndað mér. Pólitíkin þar breyttist mjög með Skúlamálunum og harkan í landsmálum jafnt sem bæjarmálum varð mikil. Lengi var Alþýðuflokkurinn allsráðandi í bæn- um, en Sjálfstæðisflokkurinn næst- stærstur og gat verið harðskeyttur eins og Alþýðuflokkurinn var. Aðrir flokkar voru mjög litlir og áhrifin eft- ir því. Við Birgir Finnsson vorum and- stæðingar í stjórnmálum, einkum þó á meðan við vorum báðir ungir, en eftir langvarandi störf að stjórnmál- um, fyrst í bæjarmálum og síðan á Al- þingi, breyttist samstarf okkar mjög til hins betra. Arndís, kona Birgis, og ég vorum jafnaldrar. Við vorum samferða okk- ar skólagöngu frá barnaskóla til loka gagnfræðaskóla og á milli okkar var einlæg vinátta. Eftir að ég kvæntist Kristínu, konu minni, tókst líka með þeim innileg vinátta og sömuleiðis með börnum okkar. Við ferðuðumst mikið saman, jafnt erlendis sem hér heima, og þrátt fyrir að við værum ósammála um margt í stjórnmálum tókst með okkur traust og gagn- kvæm vinátta sem entist til æviloka hans. Æðioft var sagt við mig hvað ég væri orðinn nákominn kratanum Birgi Finnssyni. En ég svaraði því til að það væri mjög gagnlegt fyrir stjórnmálamenn að eiga vináttu and- stæðinga og hefur það fylgt mér í gegnum nokkuð stormasama ævi að eiga vini í öðrum flokkum en mínum eigin. Samstarf okkar á Alþingi var mjög náið og við vorum þar báðir stuðningsmenn þeirrar ríkisstjórnar sem þá var við völd og kölluð hefur verið viðreisnarstjórnin. Þá lágu leið- ir okkar saman í rúman áratug í fjár- laganefnd Alþingis en starfsandinn í þeirri nefnd var sem hjá samhentri fjölskyldu. Birgir Finnsson var for- seti sameinaðs Alþingis í átta ár. Hann stjórnaði þingfundum með mikilli prýði og var góður og sann- gjarn stjórnandi. Mér er óhætt að segja að hann hafi verið vel virtur. Við áttum margar mjög góðar stund- ir þessi hjón og er ég nú einn þeirra eftir. Ég minnist vináttu og samveru við þau með hlýhug og virðingu. Birgir Finnsson var einstaklega ljúfur og góður í allri samvinnu og alltaf tilbú- inn til þess að meta samferðamenn sína af sanngirni og velvilja. Ég sendi börnum, tengdabörnum og allri fjölskyldu Birgis einlægar samúðaróskir um leið og ég þakka fyrir samvinnu, samstarf og vináttu okkar Birgis á umliðnum árum. Matthías Bjarnason. Hefði ég án umþóttunartíma verið beðinn að tilgreina lifandi dæmi þess, sem á ensku nefnist gentleman, og sem íslensku orðin, heiðursmaður eða prúðmenni komast næst því að lýsa, þó fremur hið síðarnefnda, þá tel ég líklegt, að Birgir Finnsson hefði komið mér fyrst í hug. Framkoma hans og fas einkennd- ist af prúðmannlegum persónustíl og óaðfinnanlegri og viðeigandi snyrti- mennsku. Viðmótið var í senn virðu- legt, hógvært og hlýlegt. Afstaða hans var samofin úr skarpri hugsun og dómgreind, en um leið þeirri óbif- andi rósemi og raunsæju yfirvegun, sem er forsenda auðmýktar í upp- runalegri merkingu þess orðs – sem og umburðarlyndis, velvildar og góðrar nærveru. Tilsvör hans og orð- ræða var markviss – hvorki of eða van. Hið innra jafnvægi brást honum ekki svo mér sé kunnugt um, né æðruleysið og sáttin við mannlegt hlutskipti – fram á ystu nöf. Ævin líður sem örskot. Þótt við kveðjum öll, þá er eitthvað sem varir fyrir augliti hins ósegjanlega. Mig grunar, að andleg arfleifð góðs manns sé óafmáanleg og búi um ald- ur í hugardjúpi tilverunnar, og í andblæ liðinna og ókominna tíma. Engu breytir – nema síður sé – að þau huldu rök fáum við aldrei vegið né mælt á kvarða mannlegs skilnings, fremur en neitt það sem mestu skipt- ir í raun – og gerir lífið þess virði að því sé lifað. Mágkonu minni og bróður, fjöl- skyldu þeirra, öðrum afkomendum hins látna, tengdafólki hans og vinum er vottuð hluttekning. Magnús Skúlason. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA BÖÐVARSDÓTTIR, Dalbraut 15, Akranesi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 9. júní. Útför hennar verður gerð frá Akraneskirkju miðvikudaginn 16. júní kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið eða Ljósið. Þórður Magnússon, Svava Huld Þórðardóttir, Jón Þór Þórðarson, Ingibjörg Harpa Ólafsdóttir, Berglind Erna Þórðardóttir, Jes Friðrik Jessen, og ömmubörn. Ástkær sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir, amma, systir, mágkona og frænka, RAGNHILDUR INGÓLFSDÓTTIR klæðskeri, lést á heimili sínu í Nørre Vissing á Jótlandi sunnudaginn 13. júní. Peter W. Petersen, Sædís Ragnhildardóttir, Jesper Mikkelsen, Martina Agrillo, Lukas Benedikt Mikkelsen, Ingólfur Ingólfsson, Ragnheiður Björg Björnsdóttir, Ásdís Ingólfsdóttir, Haraldur Jónsson, Bergþóra Ingólfsdóttir, Benedikt Ólafsson, Stefán Ingólfsson, Inga S. Ingólfsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur. ✝ Okkar ástkæri, GUÐMUNDUR GEORGSSON læknir, Hæðargarði 3c, Reykjavík, lést sunnudaginn 13. júní. Útförin fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 21. júní kl. 15.00. Örbrún Halldórsdóttir, Halldór Guðmundsson, Anna Vilborg Dyrset, Örbrún Guðmundsdóttir, Heinrich Berger, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Magnús Hauksson, Gunnþórunn Guðmundsdóttir, Dagur Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.