Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 27

Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 27
um. Eitt sinn léstu okkur vita að þú værir búin að kynnast voða mynd- arlegum strák sem þú værir mjög hrifin af. Vá! … hvað við urðum for- vitnar og við fyrsta tækifæri fórum við með rútu til Reykjavíkur til að sjá þennan myndarlega strák. Við fórum beint upp á Barónsstíg 11 að hitta þig. Þar biðum við uppi á hanabjálka í þínu herbergi þar til strákurinn mætti, hann heilsaði okkur en stoppaði stutt við og þú sagðir: „Hann er líklega bara feim- inn við ykkur“ en við sögðum: „Nei, hann vildi bara hitta þig eina.“ Þetta var Ægir sem varð þinn lífsförunautur. Þið urðuð þeirrar gæfu aðnjótandi, eignuðust þrjú myndarleg börn, Jóhannes, Írisi og Lúðvík, og barnabörnin eru orðin tvö. Margs er að minnast og margs er að sakna, en hver og einn hefur fyrir sig lifandi minningu um góða og gjöfula sál. Minningin er dýr- mæt og hana tekur enginn frá okk- ur. Kæra vinkona, Guð gefi þér góða heimkomu. Við sendum allri fjöl- skyldunni okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Þínar vinkonur, Guðrún María Þórðardóttir og Sigríður Kolbeinsdóttir. Ásgerður, þú ert mér svo kær, þú ert okkur svo kær. Við kynntumst fyrir tæplega þremur árum, samt höfum við þekkst alla tíð. Það er svo mikill heiður að hafa umgengist þig. Allt sem þú snertir verður að gulli, ég á ekki bara við hvað þú ert klár í höndum heldur líka við fjölskylduna sem þú hefur stofnað. Sama hversu míkil karlremba Ægir getur verið, hann elskar þig eins og lífið sjálft. Eitthvað hlýtur þú að hafa gert rétt þar sem börnin þín Jóhannes, Íris og Lúðvík eru góð og fallegir ein- staklingar. Og varla er hægt að lýsa strumpunum tveimur, sem bráðum verða þrír, Dilja Dröfn og Auðunn Andri. Þú ert frábær amma. Svo margt eftir ósagt … fyrir- gefðu hvað ég hef oft tuðað við þig í gegnum tíðina, en þú veist vel að Frakkar þurfa að kvarta af og til! Oftast þó þurfti maður ekki einu sinni að tala. Mér leið svo vel í þinni nærveru. Laugardaginn 15. maí talaði ég við þig í síðasta sinn. Það var sól og blíða, ég ákvað að færa ykkur sum- arið og keypti ís handa öllum. Þú varst á spítala. Það voru kosningar fram undan og Ægir tuðaði yfir því að hafa fengið græna skeið. Heppin varstu að fá bláa! Við Sæmi stopp- uðum stutt og það var dásamlegt að vera saman og hlæja, pólitík og hlátur, Ægir og Ásgerður. Þú varst hraust aftur, við vorum ekki lengur á spítala heldur í Löngumýrinni, allt svo einfalt og eðlilegt. Hafði ég sagt eitthvað djúpt og gáfulegt, hafði ég vitað að við værum að kveðja hvor aðra – ég veit það ekki, ég veit á móti að ég er afar þakklát fyrir þessa fallegu minningu um þig, um okkur öll saman. Mér þykir svo vænt um þig, meira en þú veist. Þú ert stundum hjá mér, þú kíkir af og til, ég man hvernig þú hlærð. Míkið var hlegið í vor þegar ég keyrði framhjá húsi ykkar og fann vöfflulykt, ég ákvað að kíkja inn. Auðunn Andri var í heimsókn, Lúðvík og Ægir voru heima. Strákarnir fóru að aðstoða Ægi við vinnu hans, þau keyrðu alla leið í Hveragerði og þegar þau komu til baka, þá spurði ég Auðun hvernig hafði gengið. Litli karlinn var ekki alveg sáttur því hann mátti ekki koma við allt, Lúðvík leyfði það ekki. Þá sagði hann við okkur: „Lúðvík er kommúnisti“. Og við hlógum eins og kjánar, hvaðan skyldi hann hafa heyrt þetta? Þú hlærð svo fallega. Ég vil þakka þér fyrir allt, elsku besta Ásgerður „frænka“. Vatnið rennur af háum fjöllum eftir hvössu grjóti, Þú ert aftur á móti andblær við svanavæng. (Matthías Johannessen) Þín, Violette. Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 ✝ Stefán ÞorkellKarlsson var fæddur 15. maí 1954 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu 2. júní sl. Foreldrar hans voru Karl G. Ingi- marsson, f. 20.9. 1925, d. 18.1. 2006, og Stella Stefánsdóttir, f. 20.5. 1932, d. 2.7. 2009. Systur Stefáns eru: Jóna, f. 11.7. 1950, Stefanía, f. 25.2. 1953, m.h. Jóhannes G. Pét- ursson, og Guðbjörg Edda, f. 14.7. 1959, m.h. Gunnar Sigurðsson. Sam- feðra: Sólveig Gyða Guðmunds- dóttir, f. 17.7. 1946. Kona Stefáns var Hafdís Erna Harðardóttir, f. 25.4. 1955. Þau skildu. Börn: 1) Stefán Bjartur, f. 28.7. 1972, börn: Jóhannes Helgi og Selma Björt, 2) Helga Sonja, f. 16.2. 1975, börn: Líf Hafdís, Bryndís Eir og Gyða. Dóttir með Björgu Jónsdóttur, f. 23.8. 1955, er Ingi- björg Elíasdóttir, f. 21.8. 1977, í sambúð með Þórði Má Sig- urðssyni, börn: Guð- laug Elísa, Jóhann Bergur og Alexandra Sigurbjörg. Sonur með Önnu Maríu Har- aldsdóttur, f. 28.1. 1961, er Davíð, f. 29.3. 1988, í sambúð með Ölmu Ósk Árnadótt- ur, og dóttir með Þóru Vilhjálmsdóttur, f. 18.5. 1966: Stef- anía Katrín Sól, f. 24.7. 1997. Þóra átti fyrir Júlíus Þór og Vilhjálm Þór er Stefán gekk í föðurstað. Hann fór á togara 15 ára og vann hin ýmsu störf en hefur átt við veik- indi að stríða undanfarin 13 ár. Útför Stefáns Þorkels fer fram í Digraneskirkju í dag, 15. júní 2010, og hefst athöfnin kl. 15. Það er erfitt að kveðja eina bróður sinn langt um aldur fram. En nú þurf- um við að gera það í dag. Honum tókst alltaf að koma manni á óvart og einnig í þetta sinn. Hann var einstakur mað- ur og átti sér engan líka. Hann lenti í því eins og fleiri að fara á Breiðuvík. Allt hans líf einkenndist af því eftir það og má rekja hans snemmbæra dauða til dvalarinnar þar. En hann átti skemmtilegar hliðar. Hann var góður sögumaður. Hann var alltaf í góðu skapi á hverju sem gekk. Hann var bráðvel gefinn. Hann var einstak- lega gjafmildur. Og nú síðustu ár kom í ljós að hann var listhneigður. Hann fór að stunda ljósmyndun fyrir meira en áratug og tók glettilega góðar myndir. Og í vetur höfum við systk- inin ásamt fleiri hist einu sinni í viku til að gera skartgripi. Og hann vissi al- veg hvernig hann vildi hafa gripina og voru þeir ávallt fallegir og mjög list- rænir og auðvitað öðruvísi en okkar. Hann varð mjög ungur faðir. Ekki bar hann gæfu til að fá að ala börnin sín upp nema það yngsta og tvo fóstur- syni og sýndi hann okkur þar hversu ábyrgur og góður faðir hann var. Stef- án lifði lífinu lifandi alla tíð og á met- hraða. Við munum ávallt sakna hans og allra góðu stundanna sem við höf- um átt saman. Megi æðri máttur vaka yfir honum og styrkja Þóru og börnin hans í sorg- inni sem og aðra aðstandendur. Systurnar, Jóna, Stefanía og Guðbjörg Edda. Eitt sinn þegar ég var tíu ára eða svo, sinnaðist mér harkalega við móð- ur mína. Ég þrammaði upp í herberg- ið mitt, setti helstu nauðsynjar í gulan sjópoka og tilkynnti móður minni að ég væri farin að heiman, ég ætlaði að fara og finna hann pabba minn. Fljót- lega gerði ég mér þó ljóst að erfitt væri fyrir svo litla hnátu að finna ein- hvern úti í hinum stóra heimi, ég tala nú ekki um á árunum fyrir tíma Go- ogle. Ég neyddist því til að bíða enn um sinn. Svo fór að leiðir okkar lágu ekki saman fyrr en ég varð sextán ára og urðum við strax hinir mestu mátar. Loksins fékk ég að vita hvaðan ég hafði þrjóskuna og hirspursleysið, það kom klárlega frá þér elsku pabbi. Ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk að hafa þig í lífi mínu og fyrir all- ar stundirnar sem við eyddum saman. Ég dáðist alltaf að styrk þínum, sem þú sýndir alltaf þrátt fyrir mikil og erfið veikindi í fjölmörg ár. Þú varst alltaf jákvæður og æðrulaus gagnvart þeim erfiðleikum sem steðjuðu að og þú hefur kennt mér mikið um það hvernig best sé að takast á við lífið. Mér þótti alltaf gott að koma til þín þegar ég var í vandræðum, einkum vegna þess að þú náðir alltaf að láta mig sjá björtu hliðina og oft fékk ég að heyra „Það þýðir ekkert að velta sér upp úr þessu og væla, það sem skiptir máli er að rífa sig upp á rassgatinu og redda málunum,“ og það hef ég alltaf gert, þökk sé þér. Oft komu tímar þegar þú varst sem veikastur, að ég hélt ég myndi missa þig. En þú náðir alltaf að koma til baka af ótrúlegum styrk og það að missa þig svona óvænt var mikið áfall. Bæði ég, Raggi og allar afastelpurnar þínar munum geyma þig og öll þínn skemmtilegu uppátæki í minningunni, við söknum þín óskaplega en huggum okkur þó við að þú hefur fundið lausn frá veikindunum og að nú ertu hjá ömmu, afa og Védísi. Við munum ávallt elska þig elsku pabbi. Helga Sonja, Ragnar, Líf, Bryndís og Gyða (afastelpurnar). Stefán Þorkell Karlsson ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför SIGRÍÐAR JÓNATANSDÓTTUR, Fjóluhvammi 3, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jósefsspítala. Guð blessi ykkur. Anna Edda Gísladóttir, Birgir Steinþórsson, Konráð Breiðfjörð Pálmason, Marín Sigurgeirsdóttir, Margrét Stefanía Gísladóttir, Þórdís Lilja Gísladóttir, Þráinn Hafsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARÍU SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR, Kringlumýri 12, Akureyri. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Reynihlíðar fyrir einstaka alúð og umönnun. Guð blessi ykkur öll. Jóhann Sverrisson, Ásta Hansen, Svanfríður Sverrisdóttir, Jón Á. Eyjólfsson, Jón Haukur Sverrisson, Elísabet Sverrisdóttir, Sigfús Ó. Jónsson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför systur minnar og frænku okkar, ERLU ELÍASDÓTTUR fyrrum aðstoðarháskólaritara. Ágúst Halldór Elíasson, Anna Steinunn Ágústsdóttir, Einar Ingi Ágústsson, Elías Halldór Ágústsson, Eva Ágústsdóttir Stewart, Sveinn Andri Sveinsson. ✝ PÁLL GESTSSON skipstjóri frá Siglufirði, Tjarnarbóli 6, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. júní kl.13.00. Aðstandendur. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI GUÐMUNDSSON fyrrv. verkstjóri hjá Reykjavíkurborg, til heimilis að Kristnibraut 43, Reykjavík, sem andaðist aðfaranótt þriðjudagsins 8. júní verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 16. júní kl. 15.00. Þorleifur Gíslason, Ásdís Jónsdóttir, Stefanía Vigdís Gísladóttir, Magnús Ingimundarson, Guðmundur Gíslason, Hafrún Hrönn Káradóttir, Guðrún Torfhildur Gísladóttir, Magnús Atli Guðmundsson, Guðbjörg Þórey Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Allar minningar á einum stað ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 –– Meira fyrir lesendur Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.