Morgunblaðið - 15.06.2010, Page 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
Sudoku
Frumstig
3 7
5
2
6 8 2
4 3 9 2
7 9 5 6 4
6 7 3
5 4
9 7 5 2 8
3
7 6 1 5
7 6 2
7 6 5
2 8 3
5 1 9
1 7 9 3
7 3 5 8
2
3 6
8 2 9 7
6 1 3 9 4
2
7 8
7 5
8 2 4
1 9 6
2 5 9 8 6 1 4 3 7
3 6 1 7 9 4 2 8 5
8 4 7 5 2 3 6 1 9
9 8 3 4 7 2 5 6 1
4 1 5 9 8 6 7 2 3
6 7 2 3 1 5 9 4 8
5 2 4 1 3 7 8 9 6
1 9 6 2 5 8 3 7 4
7 3 8 6 4 9 1 5 2
7 8 1 6 5 9 2 4 3
4 6 2 3 7 8 9 1 5
5 9 3 2 1 4 8 6 7
8 3 9 5 6 1 4 7 2
6 7 4 8 3 2 5 9 1
2 1 5 9 4 7 6 3 8
1 5 7 4 8 6 3 2 9
3 2 6 7 9 5 1 8 4
9 4 8 1 2 3 7 5 6
3 7 2 5 6 8 4 9 1
1 9 6 3 7 4 8 5 2
4 5 8 2 1 9 6 7 3
9 6 4 7 5 3 1 2 8
7 2 1 8 4 6 5 3 9
5 8 3 1 9 2 7 4 6
6 1 5 9 3 7 2 8 4
8 3 7 4 2 1 9 6 5
2 4 9 6 8 5 3 1 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 15. júní, 166. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Verið því óhræddir, þér
eruð meira verðir en margir spörvar.
(Mt. 10,31.)
Víkverji hefur fulla samúð meðbændum og öðrum íbúum í ná-
grenni eldgossins frá Eyjafjallajökli,
sem hafa þurft að glíma við langvar-
andi öskufall og tjón á gróðri, rækt-
arlandi og bústofni. Fyrir þá sem
ekki hafa reynslu af þessu eða upp-
lifað aðstæður á vettvangi er erfitt
að setja sig í spor þessa fólks. Jafn
ánægjulegt er hins vegar að sjá að
tún séu farin að spretta á ný og
bændur farnir að slá, líkt og Ólafur
Eggertsson á Þorvaldseyri, sem
hafði á fyrstu dögum eldgossins ótt-
ast að þurfa að bregða búi.
x x x
Deilir Víkverji þeirri ósk meðSunnlendingum og öðrum
landsmönnum, að ógleymdum um-
heiminum, að eldgosið í jöklinum sé
búið, þannig að uppbyggingarstarf
geti hafist af fullum krafti. Afleið-
ingar öskufallsins í nánasta um-
hverfinu, eins og á Þórsmerk-
ursvæðinu, eru sláandi en jafnframt
ánægjulegt að heyra að gróðurinn sé
óðum að ná sér. Vonandi eiga ferða-
menn tök á að ferðast inn í Þórsmörk
í sumar, og vonandi fer yfirvofandi
flóð úr Gígjökli að klára sig af.
x x x
Kunnugir spekingar hafa þó var-að við öskufjúki í sumar og
jafnvel næstu ár, sem geti komið í
veg fyrir mikil ferðalög um svæðið,
en óskandi er að hressilegar rign-
ingar bindi mesta rykið.
Öskufallið getur þó átt á sér
ánægjulegar og spaugilegar hliðar í
vissum tilvikum. Þannig barst Vík-
verja til eyrna að þrjóskukind ein
hefði óvænt komið til byggða, sem
ekki hefði komið fram í tveimur síð-
ustu leitum á afrétti bænda úr
Fljótshlíðinni. Var nánast búið að af-
skrifa kindina en enginn gladdist
meira en eigandinn, er hún birtist
öskugrá af afréttinum en við hesta-
heilsu að því er virtist.
x x x
Af tillitssemi við hlutaðeigandaætlar Víkverji ekkert að upp-
lýsa um hverja er að ræða, en sam-
gleðst bara yfir endurheimtunum
með bæði eiganda og ánni. víkver-
ji@mbl.is
Víkverji
Krossgáta
Lárétt | 1 handsama, 4
kuldi, 7 minnast á, 8
trylltur, 9 víð, 11 lifa, 13
þroska, 14 hæfileiki, 15
bryggjusvæði, 17 við-
auki, 20 púka, 22 segir
ósatt, 23 selir, 24 harma,
25 skyldmennisins.
Lóðrétt | 1 lítils virði, 2
bor, 3 mjög, 4 óstelvís, 5
snákur, 6 geta neytt, 10
rándýr, 12 beita, 13
sterk löngun, 15 óðals-
bónda, 16 fallegur, 18
lagast, 19 nauts, 20
mannsnafn, 21 kjána.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gloppótta, 8 rafts, 9 tíðar, 10 sóa, 11 skari, 13
Ránar, 15 bliks, 18 salat, 21 vot, 22 garða, 23 aftan, 24
hrokafull.
Lóðrétt: 2 lyfta, 3 passi, 4 óætar, 5 taðan, 6 hrós, 7 grár,
12 rok, 14 áma, 15 buga, 16 iðrar, 17 svark, 18 starf, 19
lítil, 20 tonn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. 0-0
Rf6 5. d3 0-0 6. Bb3 d5 7. exd5 Rxd5
8. h3 Rb6 9. He1 a5 10. a4 Bd6 11.
Rc3 Bf5 12. Rb5 Bg6 13. Bg5 Dd7 14.
Rh4 Rd4 15. Rxd4 exd4 16. Df3 c6 17.
Rxg6 hxg6 18. He4 Bb4 19. h4 Hae8
20. h5 Hxe4 21. dxe4 gxh5 22. Dxh5
c5
Staðan kom upp á öflugu at-
skákmóti sem lauk fyrir skömmu í
Odessu í Úkraínu. Sergei Movsesjan
(2.717) frá Slóvakíu hafði hvítt gegn
Arkadij Naiditsch (2.686). 23. Bf6!
Dc6 svartur hefði einnig staðið höll-
um fæti eftir 23. … gxf6 24. Dg6+
Kh8 25. Dxf6+. 24. e5! Rd7 25. Be7
c4 26. Bxf8 Rxf8 27. Ba2 Re6 28.
Hd1 d3 29. cxd3 Rf4 30. Dg4 Dxa4
31. Bxc4 Dc2 32. Hf1 Re2+ 33. Kh2
Dd2 34. f4 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Slagveiði.
Norður
♠D8542
♥962
♦7
♣ÁG74
Vestur Austur
♠73 ♠Á
♥KD1085 ♥G74
♦82 ♦G10954
♣K1083 ♣9652
Suður
♠KG1096
♥Á3
♦ÁKD63
♣D
Suður spilar 6♠.
Við þekkjum öll spilara sem byrja
með níu steindauða slagi í þremur
gröndum, en spila til enda, spil fyrir
spil, í von um vitlaus afköst. Það má
deila um skemmtanagildið, en hitt er
ótvírætt að þessi þrákelkni skilar ár-
angri, enda erfitt að halda einbeiting-
unni í vörn. Hitt skilar þó enn meiri ár-
angri ef sagnhafi lætur vörnina fá
raunverulegt vandamál að glíma við.
Hér kemur út ♥K gegn 6♠.
Með tvær hendur uppi blasir við að
henda strax hjörtum niður í hátígla.
En það gengur ekki í þessari legu, því
vestur mun stinga í þriðja tígulinn.
Vanur slagveiðimaður sér þennan
möguleika fyrir og leikur millileik: spil-
ar ♣D í öðrum slag. Hann ætlar alltaf
að taka á ásinn, en hver veit – ef til vill
leggur vestur kónginn á og þá er málið
leyst.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ástæðurnar fyrir erfiðleikum þín-
um kunna að vera þær, að þú einblínir
um of á ákveðinn aðila. Minntu þig á að
samskipti við börn eru tækifæri en ekki
byrði.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Láttu það ekki aftra þér þótt breyt-
ingatillögur þínar fái lítinn hljómgrunn.
Frá og með morgundeginum liggur leiðin
upp á við að nýju, sannaðu til.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú þarft að vinna í því að ná tök-
um á tilfinningum þínum. Gættu þess sér-
staklega að skrifa ekki undir neitt sem þú
ert ósátt/ur við.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er langur listi verka sem þarf
að sinna, og þú ert rétti aðilinn. Breyt-
ingar sem þú leggur til mæta mikill and-
stöðu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert ekki til stórræðanna fyrri
part dags en munt bæta það upp seinni-
partinn. Stuðningur fjölskyldu og heim-
ilis eykur þér öryggi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er gaman að njóta augnabliks-
ins þegar allar aðstæður eru réttar.
Hringdu í stönduga vini og biddu þá um
að ráðleggja þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér finnst hlutirnir gerast full-hratt í
kringum þig. Aðgerðir þínar gagnvart yf-
irvöldum bera takmarkaðan árangur og
valda þér gremju.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að láta vinnuna
ganga fyrir öllu öðru til að þér takist að
ljúka við þau verkefni sem fyrir liggja.
Ástin liggur í leyni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Að segja það sem maður er að
hugsa leiðir ekki alltaf til ánægjulegrar
niðurstöðu, en gerir það í dag. Brostu og
allt verður betra.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Næstu daga áttu eftir að vekja
mun meiri eftirtekt en áður. Með því að
segja öðrum akkúrat það sem þeir vilja
vita, ekkert umfram það, viðheldur þú
dulúðinni í kringum þig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú hlakkar til þess tíma þegar
þú þarft ekki að gera það sem þú ert
núna að gera. Hreinskilni er þér eðlislæg.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ekki meira tuð yfir smámunum –
settu tilfinningar fólks í fyrsta sæti.
Taktu til í skápum, bílskúrnum og
geymslunni og fargaðu því sem þú hefur
engin not fyrir.
Stjörnuspá
15. júní 1829
Dómur féll í hæstarétti í
Kambsránsmálinu. Sjö menn
voru dæmdir til hýðingar
(mest 81 högg) og einn þeirra
auk þess til að „erfiða ævi-
langt í rasphúsi,“ eins og sagði
í Annál nítjándu aldar.
15. júní 1947
Millilandaflugvél, sú fyrsta
sem Íslendingar eignuðust,
kom til landsins. Hún var
nefnd Hekla, var af Skymast-
er-gerð og í eigu Loftleiða hf.
Tveimur dögum síðar fór hún
í fyrstu ferðina til Kaup-
mannahafnar. Flugið tók sjö
klukkustundir og fargjaldið
var 850 krónur.
15. júní 1950
Bæjarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti að hringtorg skyldu
njóta aðalbrautarréttar en um
þetta höfðu verið skiptar skoð-
anir meðal ökumanna.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Guðmundur
Jóhannesson,
Hólabraut 25,
Skagaströnd, er
níræður í dag,
15. júní. Hann
verður að heim-
an.
90 ára
Svanur Jó-
hannsson fyrr-
verandi skip-
stjóri er sjötíu og
fimm ára í dag,
15. júní. Svanur
dvelst erlendis
um þessar mund-
ir.
75 ára
„Ég hef haldið veglega upp á flest stórafmæli en
ætla að fagna afmælinu núna í rólegheitum með
fjölskyldunni,“ segir Haraldur Sveinsson glaður í
bragði en hann er 85 ára gamall í dag.
Haraldur segir menn á sínum aldri helst vilja
vera með nánustu fjölskyldumeðlimum á tímamót-
um sem þessum. Hann þurfi engin sérstök veislu-
höld í þetta skiptið.
Nafn Haraldar Sveinssonar ber hátt í sögu
Morgunblaðsins. Hann var stjórnarformaður Ár-
vakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, frá 1954 til
1969 og framkvæmdastjóri Árvakurs 1968 til 1995
en þá settist hann aftur í stól stjórnarformanns félagsins. Því embætti
gegndi hann til ársins 2005. Þó svo Haraldur hafi alið lengstan starfs-
aldur sinn hjá Árvakri þá hefur hann komið víða við, bæði í atvinnulíf-
inu sem og í félagsmálum. Haraldur sat m.a. í stjórnum Vinnuveit-
endasambands Íslands og Verslunarráðs Íslands, þar sem hann var
formaður um tíma. Hann var einnig stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
blaðamanna um margra ára skeið. Haraldur starfaði sömuleiðis innan
hestamannahreyfingarinnar og sat um tíma í stjórnum Fáks og Land-
sambands hestamanna. hjaltigeir@mbl.is
Haraldur Sveinsson er 85 ára í dag
Fagnar með fjölskyldunni
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Reykjavík Arndís Anna
fæddist 8. janúar kl. 11.01.
Hún vó 2.890 g og var 49
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Brynhildur Fjöln-
isdóttir og Grétar Pétur
Geirsson.
Reykjavík Víkingur
Rafns fæddist 21. febrúar
kl. 16.13. Hann vó 3.280 g
og var 49 cm langur. For-
eldrar hans eru Sólveig
Andrea Jónsdóttir og
Hilmir Víglundsson.