Morgunblaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 30
30 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞAÐ YLJAR MANNI AÐ GERA GÓÐVERK PEYSUR VIRKA LÍKA ÁGÆTLEGA ÞÚ GETUR SLAPPAÐ AF, SCHROEDER ÉG ÆTLA EKKI AÐ BIÐJA ÞIG AÐ GIFTAST MÉR FRAMAR MARÍA FRÆNKA GIFTIST TROMPETLEIKARA OG HÚN SEGIR AÐ ÞAÐ SÉ NÓG AÐ HAFA EINN TÓNLISTAR- MANN Í FJÖLSKYLDUNNI HÚRRA FYRIR MARÍU FRÆNKU! HVAÐ ER Í MATINN? ÉG VEIT EKKI HVORT ÉG Á NEITT TIL AÐ ELDA HEFUR ÞÚ ANNARS SMAKKAÐ SANDKÖKU? GRÍMUR, HEFUR ÞÚ NOKKUÐ SÉÐ RÚNAR? HANN SAGÐIST VILJA BERJAST FYRIR FRIÐI Í HEIMINUM HANN ÆTLAR AÐ STOPPA EITTHVAÐ LANG- VARANDI STRÍÐ NÚNA VERÐIÐ ÞIÐ ÞRJÚ AÐ HÆTTA AÐ BERJAST! KLUKKAN ER BARA ÞRJÚ OG FYRSTA BÚÐIN ER BÚIN JÁ, ÚTSÖLURNAR GANGA VEL HJÁ OKKUR EN VIÐ MEGUM EKKI SLAKA Á. LÍTIL TÖF GETUR EYÐILAGT ÁÆTLUNINA OKKAR AFSAKIÐ... EN KORTINU ÞÍNU VAR SYNJAÐ HVAÐ?!? ÞAÐ GETUR EKKI VERIÐ! HÉRNA! ÉG SKAL BORGA ÞETTA TALANDI UM TAFIR. MIKIÐ TEKUR LANGAN TÍMA AÐ BORGA VILTU VINSAMLEGAST HLEYPA ÖÐRUM AÐ ÁÐUR EN MÚGURINN BRJÁLAST? HVAR ERTU EIGINLEGA, BIG-TIME? ÞÚ BAÐST MIG AÐ HITTA ÞIG... BEINT UNDIR STÓRU KLUKKUNNI EFTIR AÐ VIÐ LÁTUM KLUKKUNAFALLA OFAN Á HANA... SÉR FÓLKIÐ KÓNGULÓARMANNINN SVEIFLA SÉR Í BURTU Lyklar fundust Tveir lyklar, úti- dyralyklar og líklega að íbúð, fundust í Hraunbænum fyrir um það bil 12 dögum. Upp- lýsingar í síma 868- 6090. Frábær þjónusta hjá Trefjum í Hafnarfirði Ég er búinn að eiga tvo heita potta (rafmagns) frá Trefjum, sem ekki er í frásögur færandi, nema hvað þjónustan er frábær. Ég lenti í því sunnudaginn 6. júní sl. þegar ég fyllti pottinn sem er á þriðja ári, að það kom fram leki. Þar sem það var frídagur hafði ég samband við þá á mánudaginn um klukkan ellefu. Það var kominn viðgerðamaður um þrjúleytið, en rétt er að taka fram að það er um tveggja tíma keyrsla frá Hafnarfirði, að þeim stað þar sem ég er með pottinn. Þessi viðgerð var mér að kostnaðarlausu. Þetta kalla ég frá- bæra þjónustu. Einar. Enn um Leiðarljós Ég vil taka undir með þeim sem hafa kvartað undan því að Leiðar- ljós þurfi að víkja fyrir HM í fótbolta. Ég hef um árabil fylgst með þessum þáttum og var kominn vel inn í allar fléttur. Þetta er ólíð- andi og biðla ég til RÚV að endurskoða þessa ákvörð- un sína. Virðingarfyllst, Snorri Gunn- ar Steinsson. Ást er… … styrk hönd til að stóla á. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Opið frá kl. 9. Skrán- ing í Jónsmessuferð 23. júní. Árskógar 4 | Smíði/útskurður og leikfimi kl. 9, botsía kl. 9.45, handa- vinna frá kl. 12.30. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa kl. 9, fé- lagsvist kl. 14. Dalbraut 27 | Handavinnustofa er op- in kl. 8-16. Félag eldri borgara, Reykjavík | Fundur með farþegum í ferð á Snæ- fellsnes 21.-23. júní, er kl. 13.30 í dag, í Stangarhyl 4. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður kl. 9, jóga, ganga og myndlist kl. 10. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vinnustofur opnar frá kl. 9.30, Bón- usrúta kl. 14.45, opið til kl. 16. Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9- 16.30 m.a. perlusaumur, og nemendur Vinnuskólans eru á svæðinu, staf- ganga kl. 10.30. Á morgun kl. 13 er Kvennahlaup ÍSÍ, upphitun hefst kl. 12.30, umsj. Sigurður og Þorvaldur, bolir á staðnum. Mánud. 21. júní kl. 10 verður farið í heimsókn í Dala- byggð, skráning á staðnum og í síma 575-7720. Hraunbær 105 | Bingó 16. júní kl. 13.30. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, mynd- mennt kl. 10, leikfimi kl. 11.30, bolta- leikfimi kl. 12, brids kl. 12.30, vatns- leikfimi kl. 14.10. Sjá www.febh.is. Hvassaleiti 56-58 | Opið er kl. 8-16 í sumar. Matur og kaffi, hársnyrting og fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 | Örsýning Lista- smiðju t.d. útskurður, postulínsmálun og bútasaumssýning auk samsýningar Listasmiðju, Frístundaheimilisins Sól- búa og Skapandi skrifa. Listasmiðjan er opin í júnímánuði. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg- unkaffi, vísnaklúbbur kl. 9.15, hand- verksstofa, ýmis verkefni kl. 11, brids/ vist kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa- vinnustofa opin kl. 9-16, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15, fram- h.sagan kl. 12.30 og félagsvist kl. 14. Hundurinn skáldmælti Elvis sendi Sigurði Ingólfssyni, húsbónda sín- um, hugskeyti alla leið til Lanza- rote, enda segir Sigurður að hann sé „svo næmur á alla hundana og kettina sem eru hérna“: Mig dreymdi í nótt að dagur kæmi fagur og dýrðin sjálf með allt sitt væl og breim Elsku pabbi, þó að þú sért magur þarf ég helst að sjá þig, komdu heim. Kristbjörg Steingrímsdóttir fylgdist með úrslitum borgar- stjórnarkosninga og lýsir skoðun sinni í hringhendu: Brátt mun sett á sagnaspjöld svipleg frétt úr pólitík hlutaði rétt og hreppti völd hirðfífl nett í Reykjavík. Pétur Stefánsson yrkir á sól- ríkum sumarmorgni: Svefni bregður syfjuð þjóð á sumarmorgni vörmum. Vefur sunna væn og góð veröld blíðum örmum. Sólin vermir sérhvern blett. Söngfugl hækkar róminn. Hægur vindur leikur létt um laufguð tré og blómin. Lóa syngur. Leika börn. Lækjarspræna hjalar. Lúrir önd við lygna tjörn. Landnámshani galar. Svífur fugl í hreiðrið heim, hefur orm í nesti. Klýfur loftið kattarbreim, og kumr í göldnum hesti. Þegar sumarsólin heit signir tún og haga, betra líf í veröld veit ég vart en þannig daga. Vísnahorn pebl@mbl.is Af dýrð og hagyrtum hundi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.