Morgunblaðið - 15.06.2010, Síða 31
Menning 31FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
Hátíð helguð barokktónlist
verður haldin á Hólum í
Hjaltadal í næstu viku. Hátíðin
er haldin á vegum Barokk-
smiðju Hólastiftis. Meðal við-
burða verður kvöldvökufyr-
irlestur Sveins Einarssonar
um franska barokkið, erindi
Sigurðar Halldórssonar um
strengjahljóðfæri barokktím-
ans, námskeið Ingibjargar
Björnsdóttur í barokkdönsum
og söngnámskeið Jóhönnu Halldórsdóttur.
Sitthvað fleira verðurvið að vera hátíðardagana,
haldnir verða fjölmargir tónleikar, kvöldvökur,
barokkkvöldverður og barokkmessa, svo fátt eitt
sé talið. Nánari upplýsingar á www.hymnodia.net.
Tónlist
Barokkhátíð á Hól-
um í Hjaltadal
Dómkirkjan á Hól-
um í Hjaltadal.
Sýningin Geiri,
líf og list Ás-
geirs Emils-
sonar, hefur nú
staðið yfir í að-
alsal Skaftfells
í rúman mánuð
og var liður í
Listahátíð. Nú
mun Vestur-
veggurinn verða tileinkaður ljósmyndaranum
Geira, en Geiri tók gríðarlegt magn af ljósmynd-
um um ævina. Þær bera hans sérstaka sjónar-
horni glöggt vitni og minna gjarnan á stolin
augnablik fremur en uppstillingar.
Sýningunni lýkur um leið og sýningunni í aðal-
sal, 30. júní.
Myndlist
Geiri, líf og list Ás-
geirs Emilssonar
Nýtt íslenskt leikrit, Gaggað í
grjótinu, verður frumsýnt í
Melrakkasetrinu í Súðavík 16.
júní. Leikurinn er sérstaklega
saminn fyrir Melrakkasetrið.
Leikari er Elfar Logi Hann-
esson, Marsbil G. Kristjáns-
dóttir hannar leikmynd og
búninga, höfundur og leikstjóri
er Halla Margrét Jóhann-
esdóttir. Kómedíuleikhúsið á
Ísafirði setur leikinn á svið í
samstarfi við Melrakkasetur Íslands.
Uppselt er á frumsýningu en önnur sýning
verður fimmtudaginn 24. júní. Eftir það verða
sýningar alla fimmtudaga í sumar. Miðasala á all-
ar sýningarnar er í Melrakkasetrinu í Súðavík.
Leiklist
Gaggað í grjótinu í
Melrakkasetrinu
Elfar Logi Hann-
esson í verkinu.
Azeri, vináttufélag Íslands og
Aserbaídsjans, heldur hátíðlegan
menningardag Aserbaídsjans á Hót-
el Borg, Silfursal, á morgun kl.
18.30. Zakir Jón Gasanov, formaður
félagsins, býður gesti velkomna,
sendifulltrúi í sendiráði Aserbaídsj-
ans í London ávarpar gesti og Guð-
rún Helga Sigurðardóttir blaðamað-
ur sýnir stutta mynd sem hún hefur
gert um ferð sína til Aserbaídsjans.
Fiðluleikarinn Sabina Rak-
cheyeva kemur frá London ásamt
sveit sinni til að taka þátt í menning-
ardeginum og munu þau leika klass-
íska tónlist fyrir gesti. Þetta er í
fyrsta sinn sem Rakcheyeva kemur
til Íslands en hún er jafnan talin með
fremstu og efnilegustu fiðluleik-
urum Aserbaídsjans. Á efnsskrá
hennar er ýmisleg tónlist frá
Aserbaídsjan.
Menningardagur Aserbaídsjans
er nú haldinn í þriðja sinn, en hann
hefur áður verið haldinn á Akureyri
2007 og 2008. Zakir Jón segir að
hann sé nú haldinn meðal annars í
tilefni af því að nýr sendiherra
Aserbaídsjans var skipaður fyrir
tveimur árum og heimsækir nú land-
ið öðru sinni.
Menningarhátíð Fiðluleikarinn
Sabina Rakcheyeva.
Menning-
ardagur
Asera
Boðið til aserskrar
menningarveislu
Ásgerður Júlíusdóttir
asgerdur@mbl.is
Björn Thoroddsen gítarleikari hefur
að undanförnu staðið í ströngu við
upptökur á tónlist sinni ásamt kana-
díska hljómsveitarstjóranum Rich-
ard Gillis sem útsetti tónlistina.
„Við Gillis kynntumst fyrir tilstilli
Svavars Gestsonar, þá sendiherra í
Svíþjóð, árið 2001 og höfum unnið
mjög mikið saman síðan þá í hljóm-
sveitinni Cold Front en Gillis er
ákaflega fær hljómsveitarstjóri og
hefur mikil ítök í tónlistarlífinu í
Winnipeg í Kanada. Við höfum þegar
gefið út fjórar plötur saman sem all-
ar voru frekar djassaðar en þessi
plata er aðeins frábrugðin því okkur
langaði að gera tónlist sem væri að-
gengileg fyrir alla og hefði yfir sér
alþjóðlegt yfirbragð,“ segir Björn.
Platan verður gefin út í Kanada og
er hún styrkt af kanadískum yf-
irvöldum. „Atli Ásmundsson ræð-
ismaður í Winnipeg í Kanada hefur
verið æði hjálplegur við að hrinda
þessu verkefni af stað en aðal-
hugmyndin er að platan komi út í
Kanada núna í haust. Svo væri einn-
ig gaman að hún kæmi út á Íslandi
því hún er auðvitað tekin upp og unn-
in að hluta til hérlendis en til þess
þyrfti að koma aukafjármagn þar
sem kanadíska ríkið styrkir aðeins
útgáfuna þarlendis“.
Vildi fá stóra hljómsveit
Björn segist hafa viljað láta stór-
sveit spila undir þó ekki sé um eig-
inlega stórsveitartónlist að ræða.
„Ég vildi fá stóra hljómsveit til að
spila þetta og fékk því Stórsveit
Reykjavíkur til að taka þátt í þessu
með okkur þó svo tónlistin sé svo
sem ekkert endilega samin fyrir
stórsveit, ég vildi bara gefa þessu
verkefni stórsveitarbrag og ég sé
ekki eftir því enda kemur þetta af-
skaplega vel út og gefur þessu
hressilegan stórsveitarblæ.“
Björn mun síðan halda út í haust
til að kynna plötuna ásamt Gillis en
þeir stefna á að spila á tónleikum
víðsvegar um Bandaríkin og víðar.
„Við ætlum að flytja þessa tónlist í
ýmsum borgum og fá stórsveit hvers
staðar fyrir sig til að flytja músíkina
með okkur en Gillis mun sitja við
stjórnvölinn og ég verð gestaleikari á
öllum tónleikunum en platan verður
svo með í för og höfð til sölu.“ Björn
er með annan fótinn erlendis þessa
dagana en hann er á leið til Banda-
ríkjanna í vikunni ásamt félögum
sínum í Guitar Islancio til að spila á
tónleikum þann 17. júní við Water-
gate í Washingtonfylki. „Við erum á
leið í víking til þess að reyna að
hressa upp á ímynd Íslands með því
að kynna menningu okkar en jákvæð
kynning á landinu er eina leiðin út úr
þessum vanda sem við erum stödd í.“
Morgunblaðið/Kristinn
Björn Fer utan í haust að kynna plötuna með Gillis og leikur á tónleikum.
„Jákvæð kynning
er lykillinn út úr
vandanum“
ssss
» Richard Gillis trompetleikari
og hljómsveitarstjóri kemur úr
sveitum Saskatchewan-fylkis í
Kanada en hann er af þriðju
kynslóð íslenskra vesturfara
sem settust að í Vesturheimi.
Hann er með meistara- og
doktorspróf í trompetleik frá
Michican-háskóla í Bandaríkj-
unum og hefur stjórnað djass-
hljómsveit Winnipeg-fylkis síð-
an 1991.
Íslensk tónlist í kanadískri útgáfu
Jafnvel má ganga svo
langt að kalla Stokk-
hólm Þrándheim Svíþjóðar34
»
Aðrir tónleikar NordSol-hátíðar Norræna hússinsaf þrennum 10.-12. júnísettu mann nánast út af
laginu eftir hálfdauft upphafið á
fimmtudag. Slíkur var munurinn.
Aðeins eitt var sameiginlegt, álíka
fámenn aðsókn, þó ögn fleiri
mættu nú en kvöldið áður. Samt
enn til vandræða fáir miðað við
frábær flutningsgæði og bullandi
skemmtigildi.
Með eðlilegu móti hefði viðburð-
urinn að undangenginni sæmilegri
sjónvarpskynningu skilað fullu
húsi á jafnvel margfalt stærri
vettvangi. Því aðra eins fullnægj-
andi blöndu af andríkri þjóðlaga-
stemmningu, neistandi snemm-
módernisma og lagskiptri tón-
fyndni í hágæðatúlkun upplifa
menn sjaldan hér nyrðra á einum
og sömu tónleikum, hvað þá í önd-
verðri gúrkutíð að viðbættri nið-
urskurðarkreppu í skugga eld-
fjallaösku og soppleikjafárs.
Ballið byrjaði á notalegum þjóð-
nótum með Fimm lögum frá Gaut-
löndum Snorra Sigfúsar fyrir víólu
og 5 áttunda konsertmarimbu er
féllu frábærlega hvor að annarri í
samrýndri túlkun Stemmuhjón-
anna úr Sinfóníusveitinni. Hinn
ungi finnski fiðlari Pasi Eerikäi-
nen og handvaskur landi hans
Emil Holmström fluttu svanasöng
Debussys fyrir fiðlu og píanó frá
1917 af brakandi glæsibrag.
Í kjölfarið kom þrælsnúin 2.
sónata Bartóks frá 1922 (hvorugt
ártalið kom fram af tónleikaskrá
er eyddi hvorki orði í verk né höf-
unda) með skíðlogandi snerpu og
það fjölbreyttri mótun að helmingi
eldri músíkantar hefðu verið full-
sæmdir af.
Tónleikunum var nú tryggilega
borgið. En þá tók aðalgamanið
við. Norræni kvartettinn miXte,
skipaður norskum píanista, tveim
Dönum á klarínett og básúnu og
sænskum sellista ásamt ungum
dönskum stjörnusópran í flestum
atriðum, tefldu fram níu ólíkum
smástykkjum eftir jafnmarga höf-
unda er spönnuðu gríðarvítt stílsv-
ið þótt langflest væru frá 20. öld.
Ýmist í ein-, tví-, þrí- eða fjórleik
og ósjaldan með tungu í kinnvik ef
þá ekki af kviðslítandi drepfyndni
– að ógleymdum kostulegum
kynningum á viðkunnanlegri
skandínavísku.
Engu að síður léku menn ávallt
af fagmannlegri fimi, og kórónuð-
ust tónlistargæðin að körlum
ólöstuðum með afburðaframlagi
Susanne Elmark. Fór hún á því-
líkum töfrakostum að salurinn lá
kylliflatur allt til enda – jafnt fyrir
ýmist smitandi kímni og tækni-
krefjandi kverkabrjóta eða ljóð-
rænt svif, m.a. í vókalísuðu auka-
lagi Lennons Across the Universe
í seiðandi útsetningu hópsins.
Þarna hefði vakandi RÚV-
stjórnandi sannarlega getað nælt
sér í úrvals sjónvarpsefni.
Neistaflug og gæðagrín
Norræna húsið
Kammertónleikarbbbbn
Verk eftir Snorra Sigfús Birgisson*; De-
bussy og Bartók**; Bourgeois, Bruun,
Rabe, Seiber, Nørholm, Piazzolla, Gade,
Serocki og Gershwin/Jensen***. Dúó
Stemma (Herdís Anna Jónsdóttir víóla
og Steef van Oosterhout marimba*),
Pasi Eerikäinen fiðla og Emil Holm-
ström píanó**; miXte kvartettinn
(Klaus Tönshoff klarínett, Jesper Juul
básúna, John Ehde selló og Arne Jørgen
Fæø píanó) ásamt Susanne Elmark
sópran***. Föstudaginn 11. júní kl. 20.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Í vetrarlok hófst tónleikaröð í
Foundling-safninu í miðborg Lund-
úna þar sem íslenskir tónlistarmenn
fá tækifæri til að kynna sig og um
leið íslenska tónlist. Alls verða tón-
leikarnir sex í röðinni og þeir næst-
síðustu eru framundan nú á þjóðhá-
tíðardaginn, 17. júní, þegar píanó-
leikarinn Tinna Þorsteinsdóttir
leikur verk eftir Jón Leifs, Misti
Þorkelsdóttur, Þorstein Hauksson,
Karólínu Eiríksdóttur og Hilmar
Þórðarson.
Í spjalli segir Tinna að á efnis-
skránni séu verk sem samin voru
fyrir hana, nema eðlilega verkið eftir
Jón Leifs.
„Ég hef mikið gert af því að panta
íslensk verk og er því komin með
gott safn af tónlist sem ég hef spilað
víða um heim, en svo verður alltaf að
vera smá Jón Leifs þegar maður er
að spila fyrir útlendinga,“ segir
Tinna, en hún hefur spilað áþekka
dagskrá fyrir fólk í fjölmörgum
löndum og nefnir sem dæmi Noreg,
Þýskaland, Kína, Ítalíu, Danmörku
og nú bætist England í safnið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víðförul Píanóleikarinn Tinna Þorsteinsdóttir leikur á tónleikum í Found-
ling-safninu í miðborg Lundúna á þjóðhátíðardaginn.
Íslensk píanótónlist í boði