Morgunblaðið - 15.06.2010, Side 32

Morgunblaðið - 15.06.2010, Side 32
32 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010  Dj Biggi Maus og Matti úr Popp- landi á Rás 2 verða á Pósthús- barnum annað kvöld og ætla að halda gestum á tánum fram eftir nóttu. Gleðin hefst kl. 22 og segir um viðburðinn að leiknir verði slag- arar „af Guðs náð“ og íslenskir slagarar áberandi. DJ Biggi Maus og Matti leika slagara Fólk  Hljómsveitin Lada Sport heldur tónleika á Venue annað kvöld ásamt hljómsveitunum Bloodgroup, Sykri og For a Minor Reflection. Tónleikarnir eru á vegum útgáfu- fyrirtækisins Record Records. Lada Sport hefur ekki haldið tónleika í tvö ár, héldu þá síðustu 16. júní 2008. Húsið verður opnað kl. 22 og tónleikarnir byrja kl. 23. Aðgangs- eyrir er þúsundkall. Lada Sport heldur tón- leika eftir langt hlé  Margir kannast eflaust við ís- lenska spurningaspilið Spurt að leikslokum sem kom út í fyrra. Nú hafa verið gefin út fjögur ný spurn- ingaspil og af því tilefni ætla Bóka- búð Máls og menningar og Súfist- inn að efna til spurningakeppni í kvöld kl. 20. Höfundar spilsins stjórna keppninni en í henni fá gestir og gangandi tækifæri til að spreyta sig. Spurningakeppni á Súfistanum Matthías Árni Ingimarsson matthiasarni@mbl.is Undanfarin ár hafa listhópar á veg- um Hins hússins sett mikinn svip á götulíf höfuðborgarinnar á sumrin með ýmsum listrænum uppákomum. Ása Hauksdóttir, deildarstjóri menn- ingarmála Hins hússins, segir að fljótlega eftir að Hitt húsið var sett á lagginar árið 1991 hafi ungt fólk streymt þar inn með áhugaverðar hugmyndir. „Á þessum tíma var mest um að ungt fólk væri að vinna í bæjarvinn- unni við garðyrkjustörf, gatnagerð og svona hefðfundin sumarstörf. Frá árinu 1995 hefur verið vísir að list- hópunum, en þá var ekki beint um umsóknarferli að ræða, það var frek- ar ungt, áræðið fólk sem fór t.d. beint og talaði við borgarstjóra. Þá var t.d. leikhópur sem setti upp leikritið Clockwork Orange og 1997 var hljómsveitin Amiina skapandi list- hópur.“ Ása segir að á þeim rúmlega ára- tug sem störfin hafi verið auglýst hafi umsækjendur þurft að skila inn mjög ýtarlegum um- sóknum. Þetta sé því lærdómsríkt ferli fyrir ungt listafólk. „Í flest- um tilfellum er þetta fólk í list- námi sem hefur mikinn menning- armálum. Þetta er góður skóli fyr- ir nútíma listafólk sem þarf að geta sótt um styrki og geta lýst verkefn- unum sínum vel.“ Ómetanlegur skóli Reykavíkurborg leggur til laun listahópanna í átta vikur, en þeir þurfa að fjármagna verkefni sín sjálf- ir og verða sér úti um vinnuaðstöðu. „Þetta hefur líka orðið til þess að aðr- ar stofnanir og einkaaðilar styrkja hópana. Eins og t.d. Listaháskólinn sem leyfir sínum nemendum að nýta sér vinnuaðstöðu þar yfir sumartím- ann,“ segir Ása. –Hefur hópum fjölgað milli ára? „Já, t.d. í fyrra voru 60 hópar sem sóttu um en einungis var til fjármagn til að veita átta hópum brautargengi, en í ár voru 40 umsóknir og við gát- um tekið inn 15. En þetta er bara eins og í lífinu þar sem fleiri sækja um en fá.“ Gerir mikið fyrir borgarlífið „Ég er búin að vera starfandi í þessu síðan 1995 og sé það hvert sem ég fer á menningarviðburði út í sam- félaginu að á öllum sviðum listar- innar er mikið af okkar besta lista- fólki af yngri kynslóðinni sem hefur fengið tækifæri í gegnum listahópa Hins hússins, listamenn eins og Pét- ur Ben, Benni Hemm Hemm, Erna Ómarsdóttir, Amiina, Ólafur Egill Egilsson, Björn Thors, Unnur Ösp, Ilmur (Kristjánsdóttir) og Stefán Hallur – sem segir mér að þetta skil- ar samfélaginu alveg gífurlega miklu. Unga fólkið heldur í nám á haustin tvíeflt og svo gerir þetta svo mikið fyrir borgarlífið yfir sumartímann,“ segir Ása. Fyrir ári fékk Hitt húsið svo mikla viðurkenningu fyrir starf sitt, þegar verkferlar og hugmyndafræðin á bakvið listhópa Hins húsins voru val- in sem fyrirmyndarverkefni fyrir aðrar Evrópuþjóðir af evrópsku ráð- herranefndinni, en nefndin hafði til- einkað árið frumkrafti og sköpun. Ása segir það mjög mikilvægt að þessi sumarstörf verði fest í sessi og að þau fari inn í fjárhagsáætlun hjá borginni sem tryggi um 50 störf hvert sumar. Enn háð aukaúthlutun –Hefur ekki verið vilji til þess hjá Reykavíkurborg? „Nei eiginlega ekki. Ég er búin að vera að reyna að berjast fyrir því í mörg ár að þetta væri bara fast inni í fjárhagsáætlun borgarinnar en ekki háð aukaúthlutun.“ –Sérðu fram á að það breytist með nýrri borgarstjórn? „Ég ætla að vona það. Eitthvað var hann Jón Gnarr með þetta á stefnu- skrá sinni. Eins og ég segi þá er þetta mjög hagkvæmt fjárhagslega. Það hagnast allir á þessu, bæði borgin og unga fólkið sem tekur þátt.“ Frekari umfjöllun verður um list- hópa Hins hússins í Morgunblaðinu í sumar. Föstudagsfiðrildi Hins Hússins Götuleikhúsið stóð fyrir skemmtilegum gjörningi föstudaginn sl, staðnæmdist í Bankastræti og starði upp í loft. Listaleiðangur í Reykjavík  Ómetanlegur skóli fyrir listafólk framtíðarinnar  Nauðsynlegt að festa störfin í sessi, segir Ása Hauksdóttir, deildarstjóri menningarmála Hins hússins Ása Hauksdóttir Morgunblaðið/Ernir Að verkefninu Dansandi drengir standa fjórir dansandi drengir, eins og nafnið bendir til. Þeir Karl Friðrik Hjaltason, Kolbeinn Ingi Björnsson, Sveinn Breki Hróbjartsson og Vikt- or Már Leifsson stunda allir dansnám við Listdansskóla Ís- lands en þeir eru með ólíkan bakgrunn í dansi. Má þar nefna samkvæmisdans, breakdans, spunadans, nútímadans og klass- ískan listdans. Dansandi drengir segjast ætla að lífga upp á borgina í sumar og kæta vegfarendur með dansi á eins fjöl- breyttan hátt og sjálf náttúrulögmálin leyfa. Hægt er að fylgjast með ferli hópsins í allt sumar á heima- síðu hans: www.dansandidrengir.is. Dansandi drengir Listhópinn Gottskálk þrumdi þetta af sér … skipa Magnús Ingvar Ágústsson og Valdís Steinarsdóttir. Markmið þeirra í sumar er að koma íslenskum þjóðsögum á myndrænt form. Ætla þau að velja nokkrar af sínum uppáhalds íslensku þjóð- sögum og gera úr þeim teiknimyndasögur og segja þau þess- ar þjóðsögur grípandi og líflegar og því henta vel til mynd- rænnar túlkunar. Stefna þau á að í lok sumars verði tilbúnar átta sögur og verða þær svo teknar saman í bók. Magnús og Valdís ætla að skipta sumrinu upp í þrjá hluta og taka þar fyr- ir galdramenn, ófreskjur og draugasögur. Mun vegfarendum gefast tækifæri að sjá verkin í miðbænum í sumar. Þjóðsögur teiknaðar Einn af þekktustu listhópum Hins hússins er án efa Götuleik- húsið sem hefur verið starfrækt yfir sumartímann allt frá árinu 1992. Fjölmennur hópur fólks hefur tekið þátt í starfi leikhússins á þessum árum og er stór hluti þeirra þekktir listamenn. Árlega er leikstjóri fenginn til starfa með hópnum ásamt búningahönnuði og fá því meðlimir hans þjálfun í öllu því helsta sem tengist starfi götuleikhúss og þeim mikla und- irbúningi sem viðkemur sýningum. Í sumar mun hópurinn glæða götur og torg borgarinnar lífi og gera sitt allra besta til að brjóta upp hvunndaginn hjá borgarbúum með óvæntum uppákomum. Götuleikhús Ljósmyndir/Jorri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.