Morgunblaðið - 15.06.2010, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2010
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Get Him to the Greek kl. 5:30 - 8 - 10:25 B.i. 12 ára Streetdance 3D kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára
Get Him to the Greek kl. 5:30 - 8 - 10:25 LÚXUS Húgó 3 íslenskt tal kl. 6 LEYFÐ
Robin Hood kl. 5 - 8 B.i. 12 ára Snabba Cash kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Streetdance kl. 6 - 9 B.i. 7 ára Snabba Cash kl. 8 B.i. 16 ára
Get Him to the Greek kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Oceans kl. 5:45 LEYFÐ
Youth in Revolt kl. 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÓI
FYRSTA DANSMYNDIN Í 3D - FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA!
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í BRETLANDI
SÝND Í SMÁRA- OG BORGARBÍÓI
Stórskemmtileg teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
950 kr.
GLERAUGU
SELD SÉR
650 kr.
650 kr.
650 kr.
650 kr.
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú bo
AF LÓFATÖLVUM
Ívar Páll Jónsson
ivarpall@mbl.is
Í Svíþjóð er iðandi mannlíf. Þarbúa Svíar, en einnig má þarfinna annarra þjóða dætur og
syni. Löngum hefur Svíþjóð notið
vinsælda sem áfangastaður og
dvalarstaður, til lengri eða
skemmri tíma.
Í Svíþjóð fást einnig margskonartæki og tól, sem föl eru gegn
vissu framlagi af hinum sænska
gjaldmiðli, krónum. Að því leyti er
Svíþjóð lítt frábrugðin öðrum vest-
rænum þjóðum, sem þó nota sína
eigin gjaldmiðla í viðskiptum. Sví-
ar gæta þess að eiga nægt fram-
boð af tækjum þessum og tólum í
verslunum sínum, svo hugsanlegir
kaupendur, sem geta verið af hin-
um ólíklegustu þjóðernum, gangi
ekki bónleiðir til búðar. Það þætti
Svíum verra.
Sænskar verslanir eru ekki eft-irbátar verslana í öðrum Vest-
urlöndum, þegar kemur að vörum
frá Apple-tölvufyrirtækinu banda-
ríska. Undirritaður komst að raun
um það á dögunum, þegar hann
fór í helgarferð til Stokkhólms.
Stokkhólmur er höfuðborg Sví-þjóðar. Þar er ekki síður ljóm-
andi fjölbreytt mannlíf en annars
staðar í Svíþjóð. Jafnvel má ganga
svo langt að kalla Stokkhólm
Þrándheim Svíþjóðar, en Þránd-
heimur er sem kunnugt er ein
fjörugasta borg Noregs – jafnvel
sú líflegasta.
Í Stokkhólmi keypti undirritaðureina farsælustu vöru Apple-
stórfyrirtækisins, tól það er til
umfjöllunar er í pistli þessum. Það
ber hið fróma heiti iPod Touch.
Þetta töfratæki frá Apple, iPod
Touch, býður upp á nánast allt
milli himins og jarðar – í því er
nánast hægt að fara í bað, eða
steikja ommelettu. Í Svíþjóð kost-
aði það sem svarar til 50.000 ís-
lenskra króna, en hérlendis hefði
verið hægt að festa kaup á því fyr-
ir u.þ.b. 30.000 krónum hærri upp-
hæð. Stafar þessi munur að sögn
af skattlagningu íslenskra yfir-
valda, en tollayfirvöld munu flokka
iPod sem upptökutæki, sem þýðir
að opinber gjöld af tækinu eru
hærri en ella. Þessi vinnubrögð
tollayfirvalda vekja auðvitað furðu,
að flokka lófatölvu sem upp-
tökutæki, en það er önnur saga.
Þar sem sá er þetta ritar hefurlítinn smekk fyrir ommelett-
um og fer sjaldan í bað, eru aðrir
kostir sem heilla hann meira.
Höfuðkostir maskínu þessarar í
augum pistilshöfundar eru þrí-
þættir. Í fyrsta lagi er hún vel
brúkanleg til að hlýða á tónlist.
iPod Touch einskorðar sig ekki við
eina tegund tónlistar, því hægt er
að hlaða hverskyns músík inn á
apparatið sem maður vill. Spyr
græjan hvorki um takt né hljóma-
framvindu.
Í öðru lagi er iPod Touch ákjós-anlegur til að lesa bækur. Ekki
misskilja; tækið sjálft les ekki
bækurnar, heldur tekur það við
svokölluðum rafbókum, sem birt-
ast svo á skjánum, ein síða í einu,
þar til búið er að fletta þeirri öft-
ustu. Lesandinn les.
Í þriðja lagi er iPod fyrirmynd-arfítus til að fylgjast með
tölvupósti. Þar er hægt að setja
upp móttöku á öllum tölvu-
póstreikningum sem notandinn
kann að hafa aðgang að, þannig að
gmail-, yahoo!- og fyrirtækjapóst-
urinn er allur á sama stað. Hægt
er að láta kvikindið gá að pósti
með vissu millibili, jafnvel á 15
mínútna fresti, en þá verður að
hafa í huga að rafhlaðan tæmist
fyrr en ella.
iPod Touch er því byltingarkenndnýjung og kærkomin fyrir unn-
endur lista og menningar.
Með menningarheiminn í vasanum
» iPod Touch ein-skorðar sig ekki við
eina tegund tónlistar,
því hægt er að hlaða
hverskyns músík inn á
apparatið sem maður
vill.
Nýjasta nýtt iPod Touch er byltingarkennd nýjung og kærkomin fyrir unn-
endur lista og menningar.
Hinn margreyndi meistari sjón-
varpsviðtala, Larry King, mun brátt
hætta með þátt sinn á sjónvarps-
stöðinni CNN. Þetta kemur fram á
vef breska tímaritsins The Daily
Telegraph. Eftir að hafa tekið viðtöl
á besta sjónvarpstíma sjónvarps-
stöðvarinnar síðan 1985 er komið að
því fyrir Larry að kveðja sjónvarps-
vélarnar. Áhorf þáttar hans hefur
fallið um 43% á síðasta ári einu en
áhorfið var komið niður í 771.000
manns fyrstu þrjá mánuði þessa árs.
Þá hafa stjórnendur sjónvarpsstöðv-
arinnar boðið Piers Morgan, dómar-
anum fræga úr America’s Got Tal-
ent, 5,5 milljóna punda samning
fyrir að taka við þættinum. Gert er
ráð fyrir því að Piers muni hætta
sem dómari fyrir þetta tilboð og
setjast til frambúðar að í Bandaríkj-
unum enda ekki amalegt starfstilboð
hjá CNN sjónvarpsstöðinni.
Larry King
beðinn um
að hætta