Morgunblaðið - 15.06.2010, Qupperneq 40
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 166. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Danir lágu fyrir Hollendingum
2. Játaði á sig manndráp
3. 6 ára bjargar frá eldsvoða
4. Kína hjálpaði Íslandi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Listhópar Hins hússins munu setja
svip sinn á götulíf miðborgarinnar í
sumar líkt og þeir hafa gert um ára-
bil. Margir þekktir listamenn hafa
stigið sín fyrstu spor í listinni í slík-
um hópum. »32
Góður skóli fyrir ungt
og skapandi fólk
Dansarinn og
danshöfundurinn
Margrét Sara
Guðjónsdóttir
dansar aðal-
hlutverk í nýju
sviðsverki, „This
is how you will
disappear“, eftir
listakonuna Gi-
sele Vienne og rithöfundinn Dennis
Cooper. Verkið verður frumsýnt í júlí
á stærstu leiklistar- og danshátíð
Evrópu, Festival D’Avignon.
Margrét Sara dansar
á Festival d’Avignon
Fjörukráin fagnar 20 ára afmæli í
ár og af því tilefni verður haldin hátíð
á morgun á kránni. Víkingasveitin
verður endurvakin en hún lék á
kránni fyrstu 14 árin og
fleiri listamenn
sem tengjast
henni koma fram
auk víkinga á vík-
ingahátíðinni sem
nú stendur yfir.
Herlegheitin
hefjast kl. 17 og
dansleikur kl. 22.
Afmælisfögnuður á
Fjörukránni
Á miðvikudag Suðvestan og vestan 3-10 m/s, hvassast NV-lands og skýjað, en dálítil
rigning eða súld um sunnanvert landið. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á A-landi.
Á fimmtudag (þjóðhátíðardagurinn) Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða bjart-
viðri. Hiti 13 til 20 stig suðvestantil á landinu, en annars 7 til 13.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-8 og víða bjartviðri, en skýjað að mestu S-lands og
dálítil væta þar undir kvöld. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðaustantil.
VEÐUR
Framarar komust í gær-
kvöld á topp Íslandsmóts
karla í knattspyrnu í fyrsta
skipti í átján ár. Þeir unnu
Stjörnuna, 2:1, á meðan
Keflavík gerði 1:1-jafntefli
við Hauka og Breiðablik
tapaði óvænt fyrir botnliði
Grindavíkur, 2:3. Fram, Val-
ur, ÍBV og Keflavík eru þar
með öll jöfn að stigum en
Framarar eru efstir þar sem
þeir eru með bestu
markatöluna. »6
Framarar efstir í
fyrsta sinn í 18 ár
Hollendingar voru ekki í teljandi
vandræðum með að afgreiða Dani,
2:0, í fyrsta leik þjóðanna á HM í fót-
bolta í gær. Þeir þurftu þó sjálfsmark
Dana til að komast á bragðið. Japan
vann óvæntan sigur á Kamerún, 1:0, í
sama riðli og stendur vel að vígi í bar-
áttunni um að komast áfram. »4-5
Hollendingar strax á
sigurbrautinni á HM
FH lagði KR að velli, 3:2, í stórleik
gærkvöldsins á Íslandsmótinu í
knattspyrnu á Kaplakrikavelli í Hafn-
arfirði. Eftir erfiða byrjun eru Íslands-
meistararnir nú aðeins þremur stig-
um á eftir efstu liðum deildarinnar.
KR-ingar sitja hins vegar áfram í tí-
unda sætinu og hafa aðeins unnið
einn af fyrstu sjö leikjum sínum á
tímabilinu. »3
FH aðeins þremur stig-
um á eftir efstu liðum
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Í DAG
Þrasið er ræðukeppni sem er opin öllum
og áhugamenn hvattir til þátttöku.
Ræðukeppnin Þrasið var haldin í
fyrrasumar í fyrsta skipti, við góð-
ar viðtökur. Keppnin er sjálfboða-
starf áhugamanna um ræðu-
mennsku og er opin öllum sem hafa
gaman af ræðumennsku. Skráning
er hafin á Facebook-hóp keppn-
innar og á viktororri@gmail.com
en stendur til 20. júní nk., og er fólk
hvatt til að skrá sig og taka þátt.
Þrasið, ræðukeppni
haldin á ný í sumar
Dagur Sigurðs-
son hefur verið
útnefndur þjálf-
ari ársins í Aust-
urríki eftir frá-
bæran árangur
með handknatt-
leikslandslið
þjóðarinnar.
Undir hans
stjórn hafnaði
Austurríki í 9.
sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins,
í frumraun sinni í þeirri keppni.
Hann er nú langt kominn með að
koma austurríska liðinu á heims-
meistaramótið í fyrsta skipti í 17 ár
eftir stórsigur á Hollendingum um
síðustu helgi. Dagur er jafnframt
þjálfari þýska liðsins Füchse Berlin
og telur að það gangi ekki lengur
að þjálfa á tveimur stöðum. „Ég er
samningsbundinn Füchse Berlin á
næsta keppnistímabili og starfið
þar gengur fyrir,“ sagði Dagur við
Morgunblaðið. | Íþróttir
Dagur bestur og
kveður líkast
til Austurríki
Dagur
Sigurðsson
Ferðaþjónustufyrirtækið When in
Reykjavík er líklegast eitt það
heimilislegasta sinnar tegundar hér
á landi. Á vormánuðum ákváðu fé-
lagarnir Arnar Pétursson, Magnús
Örn Sigurðsson og Snorri Hall-
grímsson að gera eitthvað skemmti-
legt í sumar. Þeir sameinuðu krafta
sína og stofnuðu fyrirtæki. Fyr-
irtækið sérhæfir sig í fjörugum
ferðum, sem allar innihalda heima-
tilbúna plokkfisksmáltíð.
Strákarnir bjóða upp á þrenns
konar göngutúra. Sá vinsælasti er
túr um miðborgina að degi til. Ann-
ar er farinn um nótt og er með
áherslu á næturlífið. Sá þriðji er
farinn upp á Esjuna og endar með
stórfenglegu útsýni yfir Reykjavík
baðaða í miðnætursólinni.
„Dagsferðirnar hefjast á Lækj-
artorgi. Þar hittum við fólkið og
kynnumst því í þann mund sem við
röltum upp að Hallgrímskirkju,“
segir Snorri Hallgrímsson, einn
liðsmanna When in Reykjavík. „Við
reynum að kynnast gestunum okkar
eins vel og við getum og blöndum
sjaldan saman hópum.“ Snorri segir
að höfuðáhersla sé lögð á góða
stemningu.
Á daginn er gengið framhjá öllum
helstu kennileitum miðborgarinnar.
Til að mynda er gengið niður að
tjörn. „Þar fá ferðamenn að bregða
sér í hlutverk íslenskra barna og
gefa öndunum brauð,“ segir Snorri.
„Sá hluti ferðarinnar var í upphafi
hugsaður í gríni, en hann vakti slíka
lukku að nú er hann ómissandi í
hverjum túr,“ segir Snorri.
Frá tjörninni er labbað heim til
Arnars, sem býr í Garðastræti. Þar
fá gestirnir íslenska máltíð sem
einn strákanna hefur lagað á meðan
hinir voru úti. Boðið er upp á skyr,
plokkfisk og loks er endað á pönnu-
kökum.
Báðar hinar ferðirnar innihalda
einnig plokkfisk. Næturlífstúrinn
hefst á máltíð áður en gengið er út í
nóttina. Þá er plokkarinn tekinn
með í nesti í Esjugönguna.
Arnar, Magnús og Snorri eru þó
ekki einskorðaðir við þessar þrjár
ferðir. Nýverið fóru þeir hringinn í
kringum landið með einum sér-
staklega áhugasömum kúnna. Sá
fékk aldeilis nóg fyrir peninginn.
Hópurinn fór m.a. á tónleika með
Diktu á Akureyri og mætti hrein-
dýrahjörð, sem rölti framhjá tjald-
inu í mestu makindum í Hamars-
firði.
Strákarnir sjá fram á þéttbókað
sumar. Ferðamenn hafa tekið vel í
þessa heimilislegu þjónustu og allir
fara þeir sælir og saddir heim.
gislibaldur@mbl.is
Bjóða heim í plokkfisk
Þrír háskólanemar bjóða ferðamönnum heim í stofu
Hefðbundnar og fjörugar ferðir með heimilislegu sniði
Morgunblaðið/Ernir
Heima í Garðastræti Félagarnir Arnar, Snorri og Magnús Örn bjóða gestum sínum upp á íslenska máltíð.