Morgunblaðið - 13.10.2010, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 239. tölublað 98. árgangur
ROBYN STÆRSTA
NÚMERIÐ Á
AIRWAVES Í ÁR
NÖKKVI HELGA
STEFNIR Á
HOLLYWOOD
MIKIÐ LÍF Í
SIGURÐI INGA
SEXTUGUM
12 ÁRA GAMALL LEIKARI 10 AFMÆLISTÓNLEIKAR 28GERIR ÞAÐ SEM HÚN VILL 30
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
„Skemmst er frá því að segja að ekk-
ert nýtt kom fram á þessum fundi,“
segir Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um
samráðsfund ráðherra og fjögurra
fastanefnda Alþingis, sem fram fór í
Þjóðmenningarhúsinu í gærkvöldi.
Samkvæmt fundarboði átti að kynna
„verkáætlun ríkisstjórnarinnar um
lausnir í skuldamálum“ en ráðherrar
hafa látið í það skína síðustu daga að
unnið sé að almennum aðgerðum til
að taka á þeim. Margrét Tryggva-
dóttir, þingmaður Hreyfingarinnar,
segir andrúmsloftið á fundinum hafa
verið gott, og samstarfsvilja hjá við-
stöddum. „En ekkert nýtt var kynnt
og hvað þá almennar aðgerðir.“
Stjórnvöld komin skammt á veg
Eygló Harðardóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, tekur í sama
streng. Hún segir góðar umræður
hafa átt sér stað á fundinum og til-
lögur stjórnar og stjórnarandstöðu
ræddar. Hún segist hins vegar
„mátulega bjartsýn“ á að samráðs-
vinnan skili árangri á næstunni.
„Það virðist greinilega vera þannig
að stjórnvöld eru komin mjög
skammt á veg með þessa svokölluðu
verkáætlun um lausnir í skuldamál-
um heimilanna.“
Á að vera fyrir opnum tjöldum
Sigurður Kári segir nauðsynlegt
að ræða málin heildstætt. „Þetta
snýst ekki aðeins um bráðaskulda-
vanda heimilanna, heldur líka það
hvernig á að tryggja að fólk hafi
vinnu. Ríkisstjórnin er komin á
endastöð. Hún hefur fengið sín tæki-
færi og ekki nýtt þau.“
Engin verkáætlun kynnt
Segja ekkert nýtt hafa komið fram á fundi með ráðherrum
Stjórnvöld komin mjög skammt á veg hvað lausnir varðar
MTil í að skoða niðurfærsluna »6
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Lánasjóður sveitarfélaga hefur veitt
Reykjanesbæ nýtt 14 ára lán til
þess að greiða höfuðstól eldra láns á
gjalddaga. Samkvæmt ársuppgjöri
Lánasjóðsins fyrir síðasta ár var
skuld Reykjanesbæjar við sjóðinn
rúmlega 2,5 milljarðar króna.
Á fundi bæjarráðs Reykjanes-
bæjar fyrir helgi var skýrt frá
beiðni til sjóðsins þess efnis að af-
borgunum lána, utan vaxta, yrði
frestað á þessu ári og því næsta.
Erindinu hafi verið „svarað já-
kvætt“. Óttar Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Lánasjóðsins, segir
þetta ekki rétt. „Hér er ekki um
frestun að ræða, heldur nýtt lán til
að endurfjármagna eldra lán.“ Óttar
segir Lánasjóðinn hafa endur-
fjármagnað töluvert af lánum sveit-
arfélaga. Þar sem um Lánasjóðinn
gildi ákvæði laga um fjármálafyrir-
tæki sé honum þó óheimilt að nefna
önnur sveitarfélög sem hlotið hafi
slíka málsmeðferð. Spurður að því
hvort endurfjármögnun sé auðfeng-
in segir Óttar að til þessa hafi engri
beiðni um nýtt lán til þess að greiða
upp eldra verið hafnað.
Engri
beiðni
hafnað
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Þjónusta Fjárhagsstaða Reykjanes-
bæjar hefur versnað síðustu ár.
Reykjanesbær tek-
ur ný lán í stað eldri
Andrúmsloftið í Chile var þrungið spennu og eftirvæntingu í gær þegar
björgunarmenn bjuggu sig undir að hefja aðgerðir til að ná upp á yfirborð
jarðar 33 þremur námumönnum sem fastir hafa verið á 700 metra dýpi í 69
daga. Ástvinir mannanna biðu í ofvæni við munnann og urðu vonbrigði
nokkur þegar tilkynnt var seint í gærkvöldi að aðgerðir tefðust um tvær
klst. Enn var þó vonast til að fyrstu mönnum yrði bjargað fyrir lok dags.
Frelsið innan seilingar námumanna í Chile
Reuters
Samningurinn felur í sér að
Landsbankinn, stærsti kröfu- og
veðréttarhafi Avant, taki yfir félag-
ið og eignist 99% hlut í því. »14
Samkvæmt upplýsingum frá bráða-
birgðastjórn fjármögnunarfyrirtæk-
isins Avant fela nauðasamningar fé-
lagsins við lánardrottna í sér að
95% þeirra viðskiptamanna sem
tóku gengistryggð lán, sem hafa
verið dæmd ólögleg, fá kröfur sínar
greiddar að fullu.
Nauðasamningurinn felur í sér
nokkrar leiðir fyrir þá sem eiga
mögulega kröfu. Í einhverjum til-
fellum kemur krafan til lækkunar
höfuðstóls útistandandi láns. Þeir
sem hafa greitt upp lán sem hafa
verið dæmd ólögmæt fá kröfur upp
að einni milljón króna greiddar að
fullu. Í þeim tilfellum sem krafan
er hærri en ein milljón króna
stendur kröfuhöfum til boða að fá
annaðhvort eina milljón greidda út
eða þá 5,6% af sjálfri kröfunni.
Miðað við þetta verða kröfur
greiddar út að fullu í 95% tilfella af
4.500 lánasamningum í formi
beinnar greiðslu eða þá skuldajöfn-
unar.
Meirihluti fær kröfur greiddar
Þeir sem greitt hafa upp lán fá kröfur
upp að 1 milljón króna greiddar að fulluGert hefur verið ráð fyrir því við
undirbúning orkufreks iðnaðar í
Þingeyjarsýslum að ríkið tæki þátt
í byggingu stórskipahafnar á Húsa-
vík til að þjóna álverinu. Bæjar-
stjórinn á Húsavík bendir á að ríkið
hafi verið þátttakandi í þessu verk-
efni frá upphafi.
„Við gerum ráð fyrir því að ríkið
komi að þessum framkvæmdum
með sambærilegum hætti og ann-
ars staðar,“ segir Bergur Elías
Ágústsson, bæjarstjóri Norður-
þings, sem jafnframt er hafnar-
stjóri sveitarfélagsins. Hann vísar
til jafnræðis og bendir á að ríkið
hafi komið að slíkum verkefnum
annars staðar. »12
Gert hefur verið ráð
fyrir þátttöku ríkisins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bakki Fulltrúar sveitarstjórnar
Norðurþings og iðnaðarráðherra.
Í aðsendri grein vekja þeir
Gunnar Egill Jónsson lögmaður
og Sturla Jónsson, löggiltur
endurskoðandi, athygli á álita-
efnum vegna skattalegrar með-
ferðar endurskipulagðra skulda.
Hvorki skuldaeftirgjöf né mynt-
breyting verði framkvæmd án
skattalegra afleiðinga, hugsan-
lega neikvæðra. »17
Huga þarf að
skattaþætti
ENDURSKIPULAGNING