Morgunblaðið - 13.10.2010, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það hefur verið hætt við sýninguna
og okkur er sagt að það sé refsing
fyrir friðarverðlaun Nóbels. Okkur
er sagt að Norðmenn geti ekki leng-
ur komið fram í Kína,“ sagði Thomas
Langhelle, höfundur söngleiksins
Some Sunny Night, í samtali við
Reuters-fréttastofuna eftir að ljóst
varð að hætt yrði við uppsetningu
söngleiksins í Peking í nóvember.
Ástæðan er sú ákvörðun Nóbels-
nefndarinnar að veita kínverska and-
ófsmanninum Liu Xiaobo friðarverð-
laun Nóbels að þessu sinni en
kínversk stjórnvöld álíta verðlaunin
grófa móðgun og til vitnis um hroka
Vesturlanda.
Hefur með líku lagi verið hætt við
tónleika Alexander Rybak, sigurveg-
ara Evróvisjónkeppninnar árið 2009,
í Kína í sama mánuði en hann er ein
skærasta poppstjarna Noregs.
Hætt við fundi í mótmælaskyni
Þau hafa ekki látið þar við sitja því
einnig var hætt við fund Lisbeth
Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra
Noregs, og Sun Dawei, næstráðanda
í kínverska matvælaeftirlitinu.
Þá hafa embættismenn kínverska
utanríkisráðuneytisins látið af öllum
samskiptum við norska kollega sína,
þótt vinnufundir fulltrúa ríkjanna
séu enn í eðlilegu horfi.
Fleiri refsiaðgerðir kunna að vera
í farvatninu því stjórnmálafræðingar
telja líkur á að Kínastjórn muni falla
frá fyrirhuguðum fríverslunarsamn-
ingi við Noreg en undirbúningur að
honum hefur staðið yfir í tvö ár.
Viðskipti við Kína gegna orðið
mikilvægu hlutverki í norsku efna-
hagslífi en þau hátt í sjöfölduðust á
tímabilinu frá 2000 og til 2009 er þau
námu um 290 milljörðum króna, eða
sem nemur hátt í fimmtungi af þjóð-
arframleiðslu Íslands sama ár.
Umrætt ár fóru 2% af útflutningi
Noregs til Kína en hlutdeild Kínverja
í innflutningi Norðmanna var þá
7,8%. Þá felur kínverski ferðamark-
aðurinn í sér tækifæri fyrir Noreg
enda talsvert af efnafólki eystra.
Enn í stofufangelsi
Fram kom á vef Taipai Times að
Liu Xia, eiginkona Xiaobo, væri enn í
stofufangelsi í Peking. Gamli farsím-
inn hennar var tekinn af henni og
ræddi hún við fréttastofu AP með
nýjum síma sem bróðir hennar gaf
henni. Sagði hún kínversku lögregl-
una banna sér að hitta vini, kunningja
og blaðamenn. Lögreglan fylgdi sér
hvert fótmál og gerði henni að fara
allra sinna ferða í lögreglubíl.
Er óvíst hvort Xiu verði leyft að
taka við verðlaununum fyrir hönd Xi-
aobo en hann afplánar nú ellefu ára
fangelsisdóm fyrir andóf sitt.
Hefur Bandaríkjastjórn skorað á
Kínastjórn að leyfa henni að fara.
Kínversk stjórnvöld láta
Norðmenn finna fyrir því
Norskum listamönnum bannað að koma fram í Kína vegna friðarverðlaunanna
Reuters
Hiti Stuðningsmenn Xiaobo krefjast lausnar hans fyrir utan kínverska stjórnsýslubyggingu í Hong Kong í gær.
NÓBELSVERÐLAUNIN
Í HAGFRÆÐI
Heimild: Nóbelsstofnunin
** Ríki Rússneska keisaradæmisins og
Sovétríkjanna eru hér meðtalin
* Fyrrverandi yfirráðasvæði Breta eru meðtalin
Verðlaunapeningur friðarverðlauna Nóbels
SIGURVEGARAR - 2010
Peter A. Diamond (Bandaríkjunum),
Dale Mortensen (Bandaríkjunum) og
Christopher A. Pissarides
(Bretlandi/Kýpur)
voru heiðraðir fyrir greiningu sína á sviði
vinnumarkaðsrannsókna
SIGURVEGARAR TIL ÞESSA
Bandaríkin
34
Bretland*
8
Rússland**
4
Fjöldi veittra verðlauna (1969-2009)
Verðlaun seðlabanka Svíþjóðar í hagfræði
í minningu Alfreds Nobel
22
4
15
41
Verðlaunin
koma í
hlut eins
Tveir deila verðlaunum
Þrír deila verðlaunum
Upprunalönd verðlaunahafa
64
Önnur
ríki
18
Óskum eftir karlmönnum
sem vakna um nætur
Karlmönnum, sem hafa ama af tíðum næturþvaglátum,
er boðið að taka þátt í rannsókn á áhrifum SagaPro.
Áhugasömum er bent á að leita frekari upplýsinga í síma 510 9911 eða 664 9937
milli kl. 8.30 og 16.30, eða með tölvupósti á netfangið clinic@encode.is.
Nánari upplýsingar: www.sagapro.is