Morgunblaðið - 13.10.2010, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
✝ Sigríður Þor-steinsdóttir fædd-
ist í Súðavík við Ísa-
fjarðardjúp 1. júní
1934. Hún lést á Land-
spítalanum við Hring-
braut 28. september
2010. Sigríður var
dóttir hjónanna Guð-
nýjar Sigríðar Þor-
gilsdóttur, f. 1902 í
Skálavík í N-Ísa-
fjarðarsýslu, og Þor-
steins Þorleifssonar, f.
1902 á Saurum í
N-Ísafjarðarsýslu. Þau
bjuggu á Kolbeinslæk í Súðavík og
síðar á Álfhólsvegi 84 í Kópavogi.
Sigríður var yngst fimm systkina
sem nú eru öll látin. Elst var sam-
mæðra, Þorgerður Gestsdóttir, f.
1924, þá Þorleifur, f. 1928, Garðar
Gunnar, f. 1930, og Þorgils, f. 1932.
Eftirlifandi eiginmaður Sigríðar
er Óskar Ingólfur Þórðarson, f. 1931
í Bolungarvík. Foreldrar hans voru
Jónasína Guðjónsdóttir, f. 1902 í Bol-
ungarvík, og Þórður Arason, f. 1889
á Hallsteinsnesi í A-Barða-
strandarsýslu. Sigríður og Óskar
gengu í hjónaband 4. maí 1957 og
Sambýlismaður hennar er Ingþór
Guðmundsson, f. 1978, þau eiga einn
son. c) Edda Guðný, f. 1988, d. 1989.
e) Freydís Edda, f. 1991. 3) Þorleifur,
f. 1958. Fyrri maki hans var Sólrún
Skúladóttir, f. 1960, sonur þeirra er
Skúli, f. 1979. Seinni maki Þorleifs er
Helga Kristín Gunnardóttir, f. 1957.
Synir þeirra eru a) Gunnar Már, f.
1989, og b) Óskar Helgi, f. 1996. Þá
ólst Þjóðólfur Lyngdal Þórðarson, f.
1946, d. 1968, bróðir Óskars, að
nokkru leyti upp hjá þeim hjónum.
Sigríður ólst upp í Súðavík, gekk í
barnaskóla þar og síðan í Héraðs-
skólann á Reykjanesi við Djúp. Sex-
tán ára fór hún til Ísafjarðar og vann
á sjúkrahúsinu þar. Þaðan lá leiðin
til Reykjavíkur. Árið 1953 hófu þau
Óskar búskap, fyrst við Sogaveg, en
reistu sér svo hús í Blesugróf og
bjuggu þar árin 1955-1970 þegar
þau fluttu á Blöndubakka í Breið-
holti. Þar hafa þau búið í 40 ár.
Meðan börnin uxu úr grasi var
Sigríður heimavinnandi. Seinna fór
hún aftur út á vinnumarkaðinn, vann
m.a. í frystihúsi Barðans í Kópavogi
við fiskmat og verkstjórn en lengst
af í Gullsmíðaverslun Guðmundar
Andréssonar við Laugaveg. Sigríður
tók lengi þátt í starfi Fóstbræðra-
kvenna og var um tíma í Kvenfélagi
Breiðholts. Síðustu árin tók hún af
mikilli ánægju þátt í listmálun á veg-
um starfs eldri borgara í Árskógum.
Útför Sigríðar fór fram frá Digra-
neskirkju 6. október 2010.
bjuggu alla tíð í
Reykjavík. Börn
þeirra eru 1) Þórður
Garðar, f. 1955, giftur
Rannveigu Jónsdóttur,
f. 1954. Dætur þeirra
eru a) Ragnheiður Ósk
Jensdóttir, f. 1982.
Sambýlismaður henn-
ar er Gunnar Páll
Leifsson, f. 1978, þau
eiga eina dóttur. b)
Arna Vala, f. 1986, og
c) Tinna Kristín, f.
1987. 2) Jóna Ingi-
björg, f. 1956. Fyrri
maki hennar var Þorsteinn H. Ein-
arsson, f. 1955. Börn þeirra eru a)
Helga Lyngdal, f. 1974. Maður henn-
ar er Valtýr Freyr Helgason, f. 1972,
þau eiga þrjá syni. b) Einar Ben, f.
1976. Hann var í sambúð með Kol-
brúnu Indriðadóttur, f. 1974, þau
eiga einn son. Sambýliskona Einars
er Melanie Hallbach, f. 1981, þau
eiga eina dóttur. Seinni maki Jónu er
Benedikt Guðni Þórðarson, f. 1949.
Börn þeirra eru a) Þórunn Ósk, f.
1981. Maður hennar er Sigbjörn Óli
Sævarsson, f. 1974, þau eiga tvö
börn. b) Sigríður Harpa, f. 1982.
Nú þegar ég kveð tengdamóður
mína langar mig að minnast hennar
með nokkrum orðum. Ég hef þekkt
hana í rúman aldarfjórðung og ein-
ungis að góðu, enda held ég að góð-
mennskan sé það sem einkenndi
hana helst. Hún bar mikla um-
hyggju fyrir öllum í fjölskyldunni,
ekki síst börnunum. Dóttur minni
sem ég kom með inn í sambúðina
með syni hennar tók hún frá fyrsta
degi sem sínu barnabarni. Hún
lagði sig fram um það að gera ekki
upp á milli barnabarnanna, þótti of-
urvænt um þau öll og sýndi það í
orði og verki.
Sigga hafði listræna hæfileika,
málaði fallegar myndir og hafði fal-
lega rithönd. Henni var umhugað
um að heimili hennar væri smekk-
legt og snyrtilegt og vildi hafa fal-
lega hluti í kringum sig. Það var
alltaf notalegt að koma í heimsókn
til þeirra Óskars á Blöndubakkann,
jafnt í flottu jólaveisluna þeirra á
jóladag sem og sunnudagsheim-
sóknir þar sem setið var í eldhús-
króknum og spjallað. Það var gam-
an að spjalla við hana Siggu, henni
fannst skemmtilegt að fá fréttir af
fjölskyldumeðlimum og ræða um
landsins gagn og nauðsynjar. Þá
fann maður svo vel hvað hún var
mikil manneskja, hafði ákveðnar
skoðanir en gat alltaf komið þeim
frá sér án þess að tala illa um nokk-
urn mann. Við höfum ferðast heil-
mikið saman, bæði farið í útilegur,
sumarbústaði og til útlanda. Alltaf
voru tengdaforeldrar mínir hinir
bestu ferðafélagar; þægileg í um-
gengni, jafnlynd og ánægð með allt.
Í þennan aldarfjórðung höfum við
eytt saman jóladegi og gamlárs-
kvöldi. Það hafa verið yndislegar
stundir, en nú kvíði ég þessum
tíma, því hann verður ekki svipur
hjá sjón án Siggu og ég á eftir að
sakna hennar mikið. Sigga fékk
þrisvar sinnum krabbamein um æv-
ina en í veikindum sínum sýndi hún
ótrúlegt æðruleysi til hinstu stund-
ar. Ég kveð tengdamóður mína
með virðingu og þakklæti.
Rannveig.
Sigríður tengdamóðir mín var
einstaklega vel gerð, hjartahlý og
góð kona. Hún var viðmótsþýð og
nærgætin og ég kunni vel við hana
frá því ég sá hana í fyrsta skipti á
Blöndubakkanum fyrir rúmum 20
árum. Hún tók mér hlýlega og blátt
áfram og okkur varð fljótt vel til
vina. Það er margs að minnast frá
öllum samverustundunum, hvort
sem var á sumrin í bústað, á ferð
um landið þegar strákarnir voru
litlir eða á Blöndubakkanum. Sig-
ríður ólst upp eins og hver önnur
alþýðustúlka vestur á fjörðum á
fjórða og fimmta áratug síðustu
aldar. Hún naut ekki langskóla-
menntunar en fór snemma að vinna
fyrir sér og stofnaði ung heimili í
Reykjavík með eftirlifandi eigin-
manni sínum, Óskari Þórðarsyni,
sem einnig er uppalinn fyrir vest-
an. Þau eignuðust þrjú börn hvert á
fætur öðru og Sigríður fór ekki að
vinna utan heimilis fyrr en börnin
komust á legg eins og tíðkaðist í þá
daga. Hún vann lengst af við versl-
unarstörf og árum saman vann hún
í gullsmíðaverslun Guðmundar
Andréssonar á Laugaveginum.
Henni var margt til lista lagt, hafði
auga fyrir fallegum hlutum og yndi
af að teikna og mála.
Fjölskyldan var Sigríði mikilvæg
og hún sýndi barnabörnum sínum
og langömmubörnum sínum ein-
staka umhyggju og alúð og allir
fengu jafna athygli. Gestrisni henn-
ar var ekki saman að jafna og jóla-
boðin á Blöndubakkanum verða í
minnum höfð. Sigríður var fé-
lagslynd og glaðvær, hafði gaman
af að spjalla og njóta samveru-
stundanna. Hún hafði gaman af að
ferðast og naut landsins og náttúr-
unnar. Það leið varla það sumar að
ekki færu þau Óskar vestur að
heimsækja æskuslóðirnar, nú síð-
ast í sumar sem leið. Sigríður tókst
á við erfið veikindi sín af æðruleysi
og aðdáunarverðum dugnaði. Það
er ekki auðvelt að setja sig í þau
spor sem hún stóð í þegar hún
greindist með ólæknandi krabba-
mein fyrir aðeins nokkrum vikum
síðan. Hún var kölluð burt allt of
fljótt, hennar er sárt saknað af
fjölskyldu og vinum. Blessuð sé
minning hennar.
Helga Kristín Gunnarsdóttir.
Elsku hjartans amma mín. Þú
sem kvaddir okkur svo snöggt.
Mínar fyrstu æskuminningar
tengjast þér og afa á Blöndubakk-
anum. Þar sem þið áttuð alltaf
heima í mína tíð. Í minningar-
greinum er oft minnst á það góða
sem hefur á dagana drifið. Það er
ekki erfitt, amma, vegna þess að
af þér, með þér og nálægt þér á ég
einungis góðar minningar. Þær
eru margar samverustundirnar
sem átti ég með þér. Fyrstu ár
ævi minnar tengdumst við Helga
systir mín þér og Óskari afa
sterkum böndum, þegar við
dvöldum hjá ykkur með Jónu
mömmu okkar. Þakka þér fyrir að
hafa sagt mér frá því fyrir nokkr-
um árum hversu heitt þú elskaðir
okkur. Þú klökknaðir enn þegar
þú sagðir mér frá því hvað þér
fannst sárt að sjá á eftir okkur
flytja með mömmu til Egilsstaða.
Oft á tíðum komum við fjöl-
skyldan, sístækkandi, í heimsókn
til ykkar á Blöndubakkann. Mér
fannst ákaflega spennandi að fara
til Reykjavíkur. Mest spennandi
fannst mér að hitta þig og afa.
Ekkert fannst mér eins gaman og
að sjá hvað ykkur fannst gaman
að hitta okkur systkinin. Það
gerði mig sérlega ánægðan að sjá
hvað þú varst ánægð að sjá okkur.
Ég bað um að fá að koma með afa
að sækja þig í vinnuna í skart-
gripaverslunina á Laugaveginum,
því mér fannst svo gaman að sjá
þig brosa þegar við sóttum þig í
lok vinnudagsins.
Síðar fékk ég að vera hjá þér og
afa á Blöndubakkanum eftir að ég
hafði klárað stúdentspróf. Á þeim
tíma var ég laus í rásinni og átti
meðal annars mínar verstu stund-
ir eftir alvarlegt bílslys. Þá átti ég
meðal annarra þig og afa að. Hví-
lík þolinmæði og góðmennska sem
þið gáfuð mér. Ég þakka þér fyrir
það að eilífu, elsku amma mín.
Svo mörg tár sem falla kann ég
ekki að telja þegar ég skrifa þessi
orð, amma. Svo góð varstu,
amma. Þín verður fyrst og fremst
minnst sem sérstaklega góðrar
manneskju sem ekkert mátti
aumt sjá. Manneskja eins og svo
marga dreymir um að verða,
þannig manneskja varst þú,
amma.
Ekki get ég kvatt þig öðruvísi
en að minnast sérlega góðrar
kímnigáfu þinnar. Þú baðst mig
stundum að segja þér brandara
þegar ég dvaldi hjá ykkur sem
Sigríður
Þorsteinsdóttir
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
BRYNHILDAR EYDAL,
hjúkrunarheimilinu Seljahlíð,
Reykjavík.
Anna Inger Eydal, Jóhannes Magnússon,
Guðfinna Inga Eydal,
Matthías Eydal, Bergþóra Vilhjálmsdóttir,
Margrét Hlíf Eydal, Friðrik Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður, stjúpfaðir, bróðir, mágur og
frændi,
PÁLL STEFÁNSSON
framreiðslumaður,
Asparfelli 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Stóru-Núpskirkju laugar-
daginn 16. október kl. 14.00.
Nataly Stefánsson,
Tatiana Helgason, Haukur Helgason,
Amalía Stefánsdóttir, Leif Bryde,
Guðný Stefánsdóttir,
Hafsteinn Stefánsson, Sigrún Óla
og frændsystkini.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES BERGÞÓR LONG,
Kristnibraut 6,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 5. október,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn
15. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
heimahlynningu Landspítala í síma 543 1159.
Berglind Long, Gunnar Bergmann Traustason,
Íris Long, Guðmundur Guðjónsson,
Helen Long, Jón Ingi Hilmarsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma, og langalangamma,
LILJA ÓLAFSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Nausti,
Þórshöfn,
sem lést þriðjudaginn 5. október, verður jarðsungin
frá Þórshafnarkirkju laugardaginn 16. október
kl. 14.00.
Ólafía B. Matthíasdóttir, Þórarinn B. Gunnarsson,
Bjarki Friðgeirsson,
Matthildur Jóhannsdóttir,
Oddný Matthíasdóttir,
Ólafur Stefánsson, Steinfríður Alfreðsdóttir,
Magnea Stefánsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson,
Einar Stefánsson, Guðlaug Ragna Jónsdóttir,
Jón Stefánsson,
Anna Jenny Einarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
KRISTJÁN FRIÐRIKSSON
húsasmíðameistari,
Strikinu 10,
Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstu-
daginn 8. október.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ
föstudaginn 15. október kl. 13.00.
Fríða Friðriksdóttir, Ellert Jensson,
Ólöf S. Friðriksdóttir, Sigurður Tryggvason,
Örn Friðriksson
og systkinabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
móður okkar,
KRISTBJARGAR MARTEINSDÓTTUR
frá Ysta-Felli,
síðar til heimilis að,
Suðurgötu 70,
Siglufirði.
Börn hinnar látnu.