Morgunblaðið - 13.10.2010, Síða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAÐ KEMUR TIL AÐ
ÞÚ GELTIR EKKI Á MIG?
HVAÐ
HEITIRÐU? GRETTIR ÞÚ ERT EKKIÁ LISTANUM
HVAÐ
ÁTTU VIÐ, ÉG
ER MJÖG
ÞEKKTUR KÖTTUR
ÍMYND-
AÐU ÞÉR AÐ
ÞÚ SÉRT Í
SKÓGI
ÞÚ ERT AÐ
REKJA SLÓÐ...
SKYNDILEGA SÉRÐU
KANÍNU, HVAÐ GERIRÐU?
SAGÐIRÐU
FÖÐUR ÞÍNUM AÐ ÉG
ÆTLAÐI AÐ HAFA
LIFUR OG BLÓMKÁL Í
MATINN?
JÁ,
AF
HVERJU?
ÉG GLEYMDI NEFNILEGA
AÐ LÆSA HURÐINNI
HVAR HÉLSTU ANNARS
AÐ TANNÁLFURINN FENGI
ALLAN ÞENNAN PENING?
ALLT Í LAGI, ÉG SKAL
TAKA GRÍMUNA AF MÉR...
...EÐA
EKKI HVAÐ?
BÍÐIÐ NÚ HÉRNA Á MEÐAN ÉG SEGI
BORGARSTJÓRANUM FRÁ ÞVÍ
HVERSU VEL ÞIÐ STANDIÐ YKKUR
ÉG VEIT AÐ
SONUR MINN NOTAÐI
EKKI RÉTTA STÆRÐ AF
SKÓKASSA EÐA RÉTTAN LIT
AF MÁLNINGU EN...
FYRIRMÆLIN
VORU MJÖG
SKÝR
FRÚ ARDEN
EF ÖLL BÖRNIN Í
BEKKNUM GERÐU BARA ÞAÐ SEM
ÞEIM SÝNDIST ÞÁ MYNDI RÍKJA
ALGJÖR RINGULREIÐ Í
SKÓLASTOFUNNI
VILTU
EKKI AÐ BÖRNIN
LÆRI AÐ
HUGSA
SJÁLFSTÆTT?
EKKI FYRR
EN Í FYRSTA
LAGI Í
GAGGÓ
Gleði og samvera
Í vinnu með börnum
sem eiga við félagsleg
vandamál að stríða er
mikilvægt að styrkja
sjálfstraust þeirra og
samskiptahætti. Það er
mikilvægt að slíkt
byggist á gleði og sam-
veru við önnur börn.
Samskipti eiga fyrst og
fremst að vekja ánægju
hjá börnum almennt og
samskipti eiga að vera
eftirsóknarverð, því í
samskiptum koma eig-
inleikar barnanna fram. Það er því
missir fyrir samfélagið ef hluti þess
gefur samfélaginu ekki tækifæri á að
njóta þessara eiginleika.
Í janúar 2010 hófst vinna við að
skipuleggja námskeið fyrir börn á
aldrinum 8-13 ára sem einhverra
hluta vegna töldust félagslega ein-
angruð. Námskeiðið var tilrauna-
verkefni á vegum Evrópu unga fólks-
ins og Ungmennafélagsins Fjölnis og
var lögð áhersla á að bæta sjálfstraust
og sjálfsímynd barnanna bæði í leik
og hreyfingu. Miðað var að því að
kynna fyrir börnunum ýmsar leiðir til
hreyfiþjálfunar, ólíkar íþróttir og leiki
sem ekki endilega krefjast kerf-
isbundinna æfinga heldur var mark-
miðið að sem flestir gætu fundið sína
styrkleika og látið ljós sitt skína. Að
auki var lögð áhersla á að læra um til-
finningar og áhrif aðstæðna á líðan
þeirra og annarra. Farið var yfir at-
riði eins og samvinnu og hópefli með
því að hvetja börnin til að hrósa hvert
öðru, tengjast sín á milli og tala fyrir
framan aðra. Lögð var áhersla á fjöl-
breytileika og einstaklingsmiðaða
vinnu sem fól meðal
annars í sér sam-
skiptaþjálfun, eflingu
samkenndar og að
styrkja hið góða í fari
hvers og eins.
Námskeiðshaldarar
sáu töluverðar jákvæð-
ar breytingar hjá flest-
öllum börnunum meðan
á námskeiðinu stóð. Til
að mynda sýndu mörg
þeirra aukið frumkvæði,
aukið sjálfstraust og
áttu í auknum mæli
samskipti hvert við ann-
að að fyrra bragði.
Flestir foreldrar töldu námskeiðið
gagnlegt og voru sátt við undirbúning
og upplýsingagjöf. Börnin tjáðu einnig
flestöll mikla ánægju með námskeiðið.
Í upphafi námskeiðs voru hegð-
unar- og tilfinningaleg vandamál áber-
andi, börnin áttu erfitt með að fara eft-
ir settum mörkum og var stundum
erfitt að hvetja þau til þátttöku. Það
var mismunandi hvað virkaði, hvenær
og hvernig. Augljóst var að börnin
voru ólík, með ólíkar þarfir, og komu
misvel stemmd til leiks þá daga sem
námskeiðið var. Eftirfarandi atriði
standa þó upp úr:
Gerum ráð fyrir að börnin haldi
ekki einbeitingu í lengri tíma. Því stíf-
ari sem rammarnir eru, því erfiðara
eiga börnin með að vera virk. Beitum
ekki refsingum heldur uppbyggilegum
aðferðum við að aðstoða börnin. Ver-
um börnunum góð fyrirmynd. Ekki
gefast upp!
Sara Hrund Gunnlaugsdóttir
cand. mag. í músíkþerapíu.
Ást er…
… andlit úr fortíðinni.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Fundur á morgun kl. 10,
Óskar Dýrmundur ræðir félagsstarfið og
aukna þátttöku. Vinnust. og postulín kl. 9,
útskurður/postulín, Grandabíó kl. 13.
Árskógar 4 | Handav. kl. 9, smíði/útsk.,
heilsugæsla kl. 10, söngstund kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43 | Spiladagur og glerlist.
Haustfagnaður á morgun kl. 15.
Breiðholtskirkja | Samvera kl. 13.30. Spil,
handavinna, spjall.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa kl. 9, leikfimi
kl. 10. Bónusferð kl. 14.40.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, vefnaður
kl. 9, leikfimi kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10, dans kl. 14,
gestakennari Heiðar Ástvaldsson, Hljómsv.
Hjónabandið leikur eftir kaffi, stjórn. Matt-
hildur og Jón Freyr. Söngf.FEB æfing kl. 17.
Félagsheimilið Boðinn | Leikfimi kl. 12,
spilað kl. 13.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9, trésk. kl. 9.30, ganga kl. 10, postulín/
kvennabrids kl. 13. Íslendingasögur kl. 16.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8.15/ 12, kvennaleikfimi kl.
9/9.45/10, bútasaumur/brids kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergi | Tréútsk. og
handav. kl. 9, leikfimi kl. 10, spilasalur opinn
frá hádegi. Farið að Laxárbakka kl. 17. Helgi-
stund á morgun kl. 10.30, gestur hr. Karl
Sigurbjörnsson, sr. Miyako Þórðarson túlkar
fyrir heyrnarlausa, umsj. Ragnhildur Ás-
geirsd. djákni.
Grensáskirkja | Samverustund kl. 14.
Háteigskirkja - | Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 11, brids kl. 13.
Hraunbær 105 | Skartgripanámskeið kl.
13. Skráning á skrifstofu, s.411-2730.
Hraunsel | Pútt kl. 10, línudans/
bókmentakl. kl. 11, boltal. kl. 12, gler-
bræðsla, handav. og trésk. kl. 13, bingó kl.
13.30, vatnsleikf. kl. 14.40, kór. kl. 16.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og
9.30, vinnustofa kl. 9, samverustund kl.
10.30, lestur og spjall.
Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl.
8.50, Stefánsganga kl. 9, tíurnar kl. 10,
listasmiðjan og framsögn kl. 9, myndlist-
arsýning Hrafnhildur Baldvinsdóttir.
Íþróttafélagið Glóð | Ganga í Versölum
kl. 16. Uppl. í síma 554-2780.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er gler
og tréútskurð kl. 13 og keila í Keiluhöllinni
við Öskjuhlíð kl. 10. Sjúkraleikfimi á morg-
un kl. 14.30 í Eirborgum.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfr. kl. 10.30, iðjustofa - námskeið í
glermálun kl. 13, Páll Ásgeir Ásgeirsson
flytur erindið: Að Fjallabaki kl. 15.
Neskirkja | Opið hús kl. 15. Þorleifur
Hauksson segir frá bréfum, sem Davíð
Stefánsson sendi Þóru Vigfúsdóttur.
Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9, hjúkr-
unarfræðingur kl. 10, félagsvist kl. 14.
Sölusýning á fatnaði kl. 11.
Vesturgata 7 | Sund, spænska kl. 10,
myndmennt kl. 13, Bónus kl. 12.10, tré-
skurður kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Tréútskurður
og bókband kl. 9, handavinna kl. 9.30,
morgunstund kl. 10, verslunarferð kl.
12.20, framhaldssaga kl. 12.30, dans kl.
14, við undirleik Vitatorgsbandsins.
Guðmundur Árnason „ramma-skalli“ var með skemmtilegri
mönnum. Vísur lágu á hurðinni
þegar hann kom á verkstæðið einn
daginn, undirritaðar af Ólafi
Tryggvasyni lækni:
Ef hann Gvendur Árna er við
opið stendur verkstæðið.
En ef kenndur kauðinn er
kemst í bendu flest allt hér.
Lukt er járnum hússins hlið.
Höldum sárnar. Lengist bið.
Gvöndur Árna er ekki við.
Er nú kárnað gamanið.
Umsjónarmanni barst vísa, sem
eignuð er skáldinu Jóni Trausta:
Framan af ég sæll sit
síst mig þjáir ofslit
undir þinglok eykst strit
að sama skapi þverr vit.
Ingólfur Ómar Ármannsson er
svartsýnn á þjóðfélagsástandið:
Staðan hérna hefur veikst
hrakar kjörum manna,
skattar hækka, skerðing eykst,
og skuldir heimilanna.
Margur glætu síður sér
syrtir mjög í álinn;
ríkisstjórnin óhæf er
aukast vandamálin.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af „Gvöndi“ og þinglokum