Morgunblaðið - 13.10.2010, Síða 29
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Ævintýri Dísu ljósálfs ættu að vera
kunn Íslendingum þar sem þau hafa
glatt margar kynslóðir hérlendis. Ár-
ið 1929 birtust ævintýri hennar fyrst
á síðum Morgunblaðsins í formi
myndasögu en hafa síðan komið út á
bók margsinnis. Sagan er skrifuð af
hollenska höfundinum G.T. Rothman
en hann er einnig höfundur bókanna
Alfinnur álfakonungur og Dvergurinn
Rauðgrani og brögð hans. Dísa ljósá-
lfur hefst á því að skógarhöggsmaður
finnur litla stúlku á stærð við fingur
sinn sem situr grátandi á trjágrein
því hún finnur ekki mömmu sína.
Sagan fjallar um leit hennar að
mömmu sinni og ævintýrin sem hún
lendir í meðan á þeirri leit stendur.
Ævintýrið verður að söngleik
Páll Baldvin Baldvinsson og Gunn-
ar Þórðarson sömdu söngleik um æv-
intýri hennar sem er hugsaður sem
skemmtun fyrir fólk frá fjögurra ára
aldri og upp úr.
María Ólafsdóttir búningahönnuður
taldi sig hafa himin höndum tekið að
fá þetta draumaverkefni í hendurnar.
„Þetta var ein af mínum uppáhalds-
bókum í æsku, ásamt Alfinni álfa-
kóngi og Pollýönnu,“ segir hún.
María hefur unnið í ein fimmtán ár
við búningahönnun á jafn ólíkum
verkum og Óliver, þar sem hún leit-
aðist við að gera búningana eins og
þeir væru teknir af fólki á götum
Lundúnaborgar um 1800, og síðan
Gosa þar sem hún sleppti ímynd-
unaraflinu lausu og fór eins langt frá
raunheimi og hún gat.
Búningarnir í söngleiknum
Aðspurð hvort hún setji Kaup-
þingsmerkið í barm skógarhöggs-
mannsins og merki skuldugrar og
þjáðrar alþýðunnar í barm Dísu seg-
ir hún hlæjandi að það sé ekki hægt
að hugsa um ævintýri Dísu og krepp-
una á sama tíma. Það sé enginn póli-
tískur tónn hjá henni. Þetta sé ynd-
islegt ævintýri og Dísa sé ljúf, falleg
og viðkvæm og búningurinn tjái það.
Hún segir að mottó sitt sé ekki „less
is more“ heldur „more is more“ eins
og sést á búningunum. Það sé helst
Dísa sjálf sem fái að njóta smá hóg-
værðar í búningagerðinni. En bún-
ingur til dæmis froskadrottning-
arinnar sé mikilfenglegur, pilsið
hennar sé í raun svo stórt að allir
geti falið sig undir því. „Svo er það
hin óhugnanlega moldvarpa, sem er
grimmasta persóna verksins, sem er
í síðri dökkri kápu en skinnið á henni
er farið að vaxa út úr kápunni enda
hefur hún ekki farið úr henni í mörg
hundruð ár.“
Dísa ljósálfur
komin á svið
Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson
Söngleikur saminn um ævintýri Dísu ljósálfs
Leikhús Dísa ljósálfur er
falleg, viðkvæm og brothætt
hetja í ævintýrinu sem
Gunnar Þórðarson og Páll
Baldvin Baldvinsson hafa
gert söngleik úr. Skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
Nær húsfyllir var á tón-leikum Sinfóníuhljóm-sveitar Íslands á fimmtu-dag. Úr því endurtekið
var degi síðar var ugglaust vitað fyr-
irfram að vinsældir viðfangsefnis
væru á við Vínartónleika. Þó líklega
við hæfi ívið yngri hlustenda, eða
þeirra sem náðu að höndla djassinn
áður en brezka bítskeflan ruddi hon-
um út í horn á 7. áratug. Ekki varð
annað séð en að sú aldursflokkun
stæðist í meginatriðum.
Hitt er algerlega óþörf synd og
skömm, höfði amerísk „þjóðháttaó-
pera“ Gershwins frá 1935, Porgy og
Bess, ekki til yngri aldurshópa. Því
þrátt fyrir örbirgð umgjarðar – bláfá-
tæks blökkufólks í Suðurríkjunum –
er tónlistin afar heillandi blanda af
klassískri úrvinnslu og seiðandi söng-
arfleifð afkomenda afrískra þræla,
þ.e.a.s. frá vinnusöngvum, gosplum,
ragtime, blús og djassi.
Þökk sé undratærum flutningi
mátti glöggt heyra hversu vel Gers-
hwin vann úr öllu saman – þ. á m. í
óvenjulitríkri notkun á tréblæstri og
brassi. ¾ skipuð strengjasveitin var
of fámenn til að jafnast á í styrk, en
líklega varð fleirum ekki komið fyrir
á sviðinu með góðu móti. Mestu skipti
þó að spilamennskan var í algerum
toppi, og kórsöngurinn small sömu-
leiðis af innlifuðum krafti og agaðri
nákvæmni tíndra úrvalsradda.
Kannski mætti stundum deila um
sveiflumýkt Íslendinganna, en fyrir
fólk sem ekki fæst við slíkt á hverjum
degi fannst mér býsna vel frá öllu
sloppið.
Bandarísku einsöngvararnir voru
ljómandi góðir og risu hæst Indira
Mahajan og Ronald Samm í hlut-
verkum Bess og Sportin’ Life; hún
mest fyrir öflugan en tæran sópran
sinn og hann fyrir skemmtilega út-
tekt á kókaíndílernum slóttuga. Ang-
ela Renée Simpson sýndi einnig
áhrifamikinn söng á víðu tíðnisviði, en
annars snotur rödd Rodneys Clarke
átti hinsvegar erfitt með að draga
gegnum kór og hljómsveit í vondu
húsi.
Wayne Marshall var auðsjáanlega
með allt á hreinu. Líkt og landar hans
var hann sérfræðingur í n.k. „ferða-
pakka“ sem erfingjar tónskáldsins
gera út til að halda utan um upp-
færslur, enda er hvorttveggja Gers-
hwin og Porgy and Bess heimsskráð
vörumerki. Fráleitt einsdæmi í söng-
leikjaheiminum (sbr. t.d. Vesalingana
og verk Lloyd Webbers) og viðhaft til
að tryggja lágmarksgæði og vernda
sæmdarrétt höfunda, þó eflaust
skipti fjárhagssjónarmið einnig máli.
Kvartað hefur verið undan því að
slíkt fyrirkomulag skerði sjálfstæða
túlkunarmöguleika, og kann svo að
vera. En hvað sem því líður stóð engu
að síður eftir frábær heildartúlkun,
og skemmtu hlustendur sér kon-
unglega allt til enda.
Háskólabíó
Óperutónleikarbbbbm
Gershwin: Porgy og Bess. Einsöngvarar:
Rodney Clarke (Porgy), Indira Mahajan
(Bess), Angela Renée Simpson (Serena/
Maria) og Ronald Samm (Sportin’ Life).
Kór: Hljómeyki / Kór Áskirkju (kórstjóri
Magnús Ragnarsson). Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Stjórnandi: Wayne Marshall.
Fimmtudaginn 7. október kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Glóandi Gershwin
Tónskáldið George Gershwin.
Reykjanesbær og
Tónlistarskóli
Reykjanesbæjar
standa dagana 18.
til 22. október fyrir
tónlistarviku og
„master-classes“ í
umsjá þekktra
bandarískra tón-
skálda og flytj-
enda. „Master-
classes“ verða haldnir í Reykja-
nesbæ, Tónlistarskóla FÍH og
Listaháskólanum í Reykjavík. Tón-
leikar verða m.a. haldnir í STAPA
og er aðgangseyrir 2.000 kr. en
ókeypis fyrir eldri borgara og nema.
Meðal þátttakenda í tónlistarvik-
unni eru Beth Anderson, Barbara
Harbach, Haskell Small og hinn
óviðjafnanlegi Jazz Bob Ackerman.
Þeir eru allir fulltrúar Jeffrey
James Arts Consultants í New York
en Jeffrey James mætir einnig í eig-
in persónu og heldur fyrirlestur um
málefni tónlistariðnaðarins.
Meðal verka á tónleikum í STAPA
þann 21. október verður frumflutn-
ingur á verki eftir Eirík Árna Sig-
tryggsson sem hann skrifaði fyrir
Adolphe-saxófónkvartettinn.
Hluti viðburðanna fer fram í
Grindavík og Reykjavík.
Tónleikadagskrá
19. október kl. 20:00. Stapi: Has-
kell Small, tónskáld og píanisti.
20. október kl. 20:00. Grindavík-
urkirkja: Barbara Harbach, tón-
skáld og organisti.
20. október kl. 20:00 Norræna
húsið: Beth Anderson, tónskáld (Hlíf
Sigurjónsdóttir, fiðla).
21. október kl. 20:00. Stapi: Hátíð-
arkammertónleikar (Ackerman,
Anderson, Harbach, Small, Eiríkur
Árni).
22. október kl. 21:00 Risið: Kvart-
ett Bob Ackerman (gestaleikari:
Bob Hanlon).
Bjóða til
amerískrar
tónlistarviku
Eiríkur Árni
Sigtryggsson
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Gauragangur (Stóra svið)
Fim 14/10 kl. 20:00 10.k Fös 29/10 kl. 20:00 aukas Lau 13/11 kl. 20:00 13.k
Fim 21/10 kl. 20:00 11.k Fim 4/11 kl. 20:00 12.k Fim 18/11 kl. 20:00 14.k
Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fös 15/10 kl. 19:00 8.k Fös 22/10 kl. 19:00 11.k Fim 28/10 kl. 20:00 14.k
Lau 16/10 kl. 19:00 9.k Lau 23/10 kl. 19:00 12.k Lau 30/10 kl. 19:00 15.k
Lau 16/10 kl. 22:00 10.k Sun 24/10 kl. 20:00 13.k Sun 31/10 kl. 20:00 16.k
Allra síðustu sýningar í Rvk. Sýnt á Akureyri í nóv.
Enron (Stóra svið)
Fös 15/10 kl. 20:00 7.K Fim 28/10 kl. 20:00 11.k Lau 20/11 kl. 20:00 15.k
Lau 16/10 kl. 20:00 8.k Lau 30/10 kl. 20:00 12.k Fim 25/11 kl. 20:00 16.k
Fös 22/10 kl. 20:00 9.k Lau 6/11 kl. 20:00 13.k Lau 27/11 kl. 20:00 17.k
Lau 23/10 kl. 20:00 10.k Fös 12/11 kl. 20:00 14.k
Heitast leikritið í heiminum í dag
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Fös 15/10 kl. 20:00 2.k Sun 24/10 kl. 20:00 7.k Sun 7/11 kl. 20:00 13.k
Lau 16/10 kl. 19:00 3.k Þri 26/10 kl. 20:00 aukas Fös 12/11 kl. 19:00 14.k
Lau 16/10 kl. 22:00 aukas Fim 28/10 kl. 20:00 8.k Fös 12/11 kl. 22:00 15.k
Sun 17/10 kl. 20:00 4.k Lau 30/10 kl. 19:00 9.k Sun 14/11 kl. 20:00 16.k
Þri 19/10 kl. 20:00 aukas Lau 30/10 kl. 22:00 aukas Lau 20/11 kl. 19:00 17.k
Mið 20/10 kl. 20:00 5.k Sun 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 20/11 kl. 22:00 18.k
Fös 22/10 kl. 19:00 Aukas Mið 3/11 kl. 20:00 11.k Sun 21/11 kl. 20:00 19.k
Lau 23/10 kl. 19:00 6.k Lau 6/11 kl. 19:00 12.k
Lau 23/10 kl. 22:00 aukas Lau 6/11 kl. 22:00 aukas
Ath: Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning er hafin!
Horn á höfði (Litla svið)
Lau 16/10 kl. 13:00 aukas Lau 23/10 kl. 13:00 8.k Lau 30/10 kl. 13:00 10.k
Sun 17/10 kl. 14:00 7.k Sun 24/10 kl. 14:00 9.k Sun 31/10 kl. 14:00 11.k
Gríman: Barnasýning ársins 2010!
Orð skulu standa (Litla svið)
Þri 19/10 kl. 20:00 Þri 26/10 kl. 20:00
Gestir 12/10: Karl Sigurðsson Baggalútur og Þorbjörg Marinósdóttir rithöfundur
Harry og Heimir - snarpur sýningartími
Fíasól
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200
Sýningar alla laugardaga
og sunnudaga.
Í kvöld verður haldin sérstök for-
sýning á Óróa á vegum Kvikmynd-
ir.is. Hún hefst í Sambíóunum í
Álfabakka kl. 22.40. Þetta er í
fyrsta sinn sem Kvikmyndir.is held-
ur sýningu á íslenskri kvikmynd.
Myndin fjallar um unglinga sem
eru að stíga sín fyrstu skref í heimi
hinna fullorðnu og því fylgja margs
konar vandræði, hvort sem þau
tengjast áfengi, skapsveiflum,
greddu, einelti eða annars konar
skemmtilegheitum.
Myndin er byggð á bókum leik-
konunnar Ingibjargar Reynisdóttur
Strákarnir með strípurnar og Rót-
leysi, rokk og rómantík sem hafa
notið mikilla vinsælda hér á landi.
Eftir að seinni bókin kom út datt
Ingibjörgu í hug að redda sér hlut-
verki í bíómynd og fór með bæk-
urnar til framleiðendafyrirtækisins
Kisi með þá kröfu að þeir fram-
leiddu myndina og gæfu henni hlut-
verk móðurinnar. Við þeirri kröfu
var orðið.
Morgunblaðið/Ernir
Bíó Baldvin Z leikstýrir Óróa en í
kvöld verður forsýning á myndinni.
Forsýning
á Óróa