Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
Full ástæða er til að gefaleikstjóranum Anton Cor-bijn gaum í framtíðinni.Hann er í raun þekktari
sem ljósmyndari og hefur myndað
aragrúa listamanna gegnum tíðina
auk þess sem myndir hans hafa
prýtt ófá plötuumslög. Þá hefur
hann leikstýrt þónokkrum tónlistar-
myndböndum, meðal annars „He-
art-Shaped Box“ með Nirvana og
„Talk“ með Coldplay. Frumraun
hans á kvikmyndasviðinu, Control,
leit svo dagsins ljós árið 2007. Stór-
góð mynd sem sagði sögu Ian Curt-
is, forsprakka Joy Division.
Nú er svo komið að uppfærslu
skáldsögu Martins Booth uppá
hvíta tjaldið. Bókin A Very Private
Gentleman kom út árið 1990 en
fékk heitið The American í kvik-
myndaforminu.
Myndin hefst í snæviþaktri
sveitasælu í Svíþjóð þar sem Jack
(George Clooney) hefur það huggu-
legt með vinkonu sinni. Eftir
hörmulega uppákomu í sveitasæl-
unni er áhorfandanum ljóst að Jack
er enginn meðal-Jack. Hann er
vopnasmiður og leigumorðingi að
atvinnu en langar nú að setjast í
helgan stein. Eins og oft er neyðist
hann til að leysa eitt verkefni að
lokum áður en hann getur lagt riff-
ilinn á hilluna. Hann kemur sér fyr-
ir í ítölskum smábæ samkvæmt fyr-
irmælum og undirbýr þar lokaverk-
efnið. Jack er einfari og hreint ekki
manngerðin sem blandar geði við
ókunnuga, eða bara nokkurn mann
yfirhöfuð. En hvort sem um er að
kenna löngun Jack til að breyta til
eða töfrum hins ítalska smábæjar
kynnist Jack þó nokkrum heima-
mönnum, og þá helst prestinum
séra Benedetto og vændiskonunni
Clöru. Hér skal svo söguþráðurinn
ekki tíundaður meira þar sem les-
endur eiga ef til vill eftir að sjá
myndina góðu.
Já góð er hún. The American
minnir um margt á gömul minni í
kvikmyndasögunni, eltingarleikir
um þröng stræti smábæjarins
minna um margt á staðarhætti í
Don’t Look Now frá 1973 þar sem
umhverfið leikur stórt hlutverk og
aðalleikararnir minna allir á kvik-
myndastjörnur fyrri tíma. Hin oft á
tíðum hæga atburðarrás og mynda-
takan minna á ljósmyndabakgrunn
leikstjórans og úr verða afar fal-
legar tökur.
Clooney er firnasterkur leikari.
Það sýnir hann vel í þessari mynd.
Þó framvindan sé oft á tíðum hæg
er unun að fylgjast með honum í
hlutverki þessa þögla manns sem
vinnur það undarlega starf að smíða
vopn og taka ókunnuga af lífi gegn
greiðslu. Clooney hefur verið
óhræddur við að takast á hendur
ólík hlutverk og hefur fram að
þessu sýnt að hann veldur þeim öll-
um.
Þá eru ótaldar aðalleikkonur
myndarinnar, þær Violante Placido
og Thekla Reuten.
Sú síðarnefnda birtist hér í hlut-
verki kameljónsins Mathilde, koll-
ega Jacks. Milli þeirra ríkir spenna
sem hlýtur að einkenna samskipti
fólks sem hittist jafnan með full-
hlaðnar byssur í vasanum.
Samband þeirra Jack og Clöru
(Violante Placido) er sterkt. Þau
vinna bæði störf sem tilheyra út-
jaðrinum, starfstéttir sem hvorki
tilheyra stéttarfélögum né halda
árshátíðir. Þau finna styrk hvort í
öðru, Jack sækir í ástúð og um-
hyggju en Clara þráir öryggi.
Úr verður falleg ástarsaga þar
sem hin glaðlynda og glæsilega
Clara nær að lífga ögn uppá hinn
oft á tíðum þumbaralega Jack.
Þá er ótalin tónlistin eftir Her-
bert Grönemeyer sem ljær mynd-
inni klassískan blæ.
Óhætt er að mæla með The Am-
erican. Þetta er vönduð mynd, fag-
mannlega gerð og falleg áhorfs.
Áhrifamikil saga, mögnuð mynda-
taka og sterkir aðalleikarar eru allt
innihaldsefni sem þarf þegar útbúa
á góða kvikmynd. Það tókst hér.
The American Ameríkaninn er vönduð mynd, fagmannlega gerð og falleg áhorfs.
Smárabíó, Laugarásbíó og
Borgarbíó Akureyri
The American bbbbn
Leikstjóri: Anton Corbijn. Handrit: Row-
an Joffe. Gert eftir sögu Martins Booth.
Aðalhlutverk: George Clooney, Violante
Placido, Thekla Reuten, Paolo Bona-
celli. Bandaríkin. 105 mínútur.
BIRTA
BJÖRNSDÓTTIR
KVIKMYND
Ameríski einfarinn
Rhys Ifans er bíóáhugamönnum
kunnugur sem leiðinlegi lúðinn úr
rómantísku gamanmyndinni Nott-
ing Hill. Columbia Pictures og Mar-
vel Studios munu framleiða næstu
Spiderman-mynd og hafa nýlega
tilkynnt að Ifans muni leika ill-
mennið í þeirra útgáfu. Myndinni
verður leikstýrt af Marc Webb en
handritið er gert af James Vander-
bilt. Tökur hefjast í desember og
frumsýning er áætluð í júlí 2012 og
að sjálfsögðu í þrívídd.
Forstjóri Columbia Pictures
sagði svo frá að eftir að hafa séð
bíómyndina Anonymous, sem þeir
eru að hefja sýningar á, hafi hann
verið sannfærður um að Ifans væri
fullkominn í djobbið. „Það er þessi
ótrúlegi hæfileiki Rhys Ifans að
geta tjáð bæði hlýju og óstjórnlega
reiði sem gerir hann að rétta mann-
inum í hlutverkið.“
Ifans fékk BAFTA-verðlaunin á
sínum tíma fyrir hlutverk sitt í
Notting Hill, nú er að sjá hvort
hann fái verðlaun ofan í kaupið fyr-
ir þessa mynd.
Reuters
Kónguló Rhys Ifans verður vondi
karlinn í næstu Spiderman-mynd.
Rhys Ifans í
Spiderman
SÍMI 564 0000
14
14
L
L
16
L
L
L SÍMI 462 3500
7
L
14
L
THESOCIALNETWORK kl.8 FORSÝNING
BRIM kl. 5.30
THEAMERICAN kl. 8-10.30
EATPRAYLOVE kl.5.30-10
SÍMI 530 1919
12
12
16
L
L
GREENBERG kl.8-10.20
BRIM kl.6-8 -10
R kl.6-10
EATPRAYLOVE kl.6-9
SUMARLANDIÐ kl. 6-8
THEAMERICAN kl.5.40-10.40
BRIM kl.4-6-8 -10
EATPRAYLOVE kl.5-8-10.45
EATPRAYLOVELÚXUS kl.8-10.45
PIRANHA3D kl. 10.40
WALLSTREET2 kl. 8
AULINN ÉG 3D kl. 3.40-5.50
AULINN ÉG 2D kl. 3.40
.com/smarabio
-H.G., MBL
NÝTT Í BÍÓ!
ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 8
STEVE CARELL
Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20
FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS
HHH
S.V. - Mbl.
Sýnd kl. 6 - 3D íslenskt tal
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum