Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
300 tónleikar á opinberri dagskrá há-
tíðarinnar, tugir annarra aukreitis.
252 atriði, 1000 tónlistarmenn, þús-
undir gesta og hundruð bransa-
mógúla. Húff … er ekki bara best að
sleppa þessu? Þetta er of mikið, ég
veit ekkert hvað ég á að sjá, hvað ég á
að gera og …
Rólegur. Rólegur. Andaðu með
nefinu. Vissulega er Airwaves, og
tónlistarhátíðir, ekki kjörlendur fyrir
fólk með valkvíða en það er alls ekki
það sem leikurinn gengur út á. Málið
er að marinera sig, frá toppi til táar í
nokkra sólarhringa í tónlist, vera með
hana í eyrunum, tala um hana, æsast
og verða fyrir vonbrigðum; hlaupa
upp og niður Laugaveginn til að
missa ekki af hinum og þessum eða
hreinlega hanga á sama staðnum all-
an tímann og drekkja sér í tilrauna-
kenndri raftónlist - eingöngu frá Ísa-
firði.
Íslenskt fyrst og fremst
Einhvern veginn svona á maður að
bera sig að í þessari mestu tónlist-
arveislu ársins hér á Íslandi. Ég þarf
ekki að fjölyrða mikið um sögu hátíð-
arinnar, eða þá menningarlegt mik-
ilvægi, en hátíðin er fyrir margt löngu
orðinn fasti í tónlistarlífi landans.
Líkt og Hróarskelduhátíðin snýst
Airwaves um stemningu, fremur en
að sjá þessa og þessa hljómsveit kl.
20.15 og 21.55. Þetta er eins og að fá
risastóra vítamínsprautu og áhrif há-
tíðarinnar klingja í kollinum í margar
vikur á eftir.
Hátíðin snýst fyrst og síðast um ís-
lenskar sveitir, íslenska tónlist. Vit-
andi að alþjóðlega tónlistar-
samfélagið er með eyrun spert sýna
menn jafnan á sér sínar bestu hliðar
og í einhverjum tilfellum ná menn að
snara upp samningi á staðnum.
Erlendu sveitirnar eru þá lítt þekktar
en sjóðandi heitar, og sumar hverjar
á barmi þess að færa sig upp um
deild. Sveitir sem hafa orðið heims-
þekktar síðar (Florence and the
Machine t.a.m.) hafa spilað hér á Ís-
landi á sokkabandsárunum.
Maður finnur fyrir því að nýjir
skipuleggjendur hátíðarinnar hafa
tekið hana fastatökum, og er óhætt að
nurla saman höndum, fara í flippuðu
strigaskóna og tjútta fram á rauða
nótt undir tónvænum loftbylgjum.
Í guðs bænum, marinerið ykkur …
Aðfararorð
Þá byrjar ballið …
Amen Daníel Ágúst leggur blessun sína yfir Iceland Airwaves.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Pönkhljómsveitin Buxnaskjónar er
farin að vekja athygli og mun leika á
Iceland Airwaves-hátíðinni sem
byrjar í dag. Buxnaskjónar gáfu út
sína fyrstu plötu (EP) í fyrra í 74
tölusettum eintökum. Hún hét
Þriðja heimsstyrjöldin og innihélt
svo vinsamlega texta sem „Sprengj-
um alla, sprengjum konur, sprengj-
um kalla“. Þetta eru hjálplegir
drengir sem skipa hljómsveitina og í
einu laginu bjóðast þeir til að að-
stoða forsetann við að fela líkið.
Angist og biturð
Piltarnir í hljómsveitinni eru þrír
og stofnuðu þeir hana þegar þeir
voru enn í grunnskóla fyrir norðan.
„Já, það var bara ekkert að gera eft-
ir skóla þannig að við byrjuðum að
semja tónlist og það var bara rosa
gaman þannig að við héldum bara
áfram,“ segir Almar sem kallaður er
Malli pönk. Hinir tveir piltarnir í
hljómsveitinni eru kallaðir Þossi
þruma og Steini skúrkur. „En núna
erum við allir í Menntaskólanum á
Akureyri en höldum áfram að spila
og semja lög.“
Hljómsveitin gaf út sína aðra
plötu núna í febrúar og nefnist hún
Nýtt lýðræði. „Á þeirri plötu erum
við jafnvel enn reiðari,“ segir Almar.
Mikil reiði fyrir norðan?
„Já, gífurleg reiði, angist, biturð
og gremja.“
Eitthvað í loftslaginu?
„Veturinn er kaldari, sumarið
hlýrra. Öfgakenndara loftslag leiðir
til öfgakenndra skapsveiflna“, segir
Malli pönk.
Sveinsprófið Buxnaskjónar
Buxnaskjónar Öfgakennt loftslag.
Sprengjum alla
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Hin vinsæla Dikta mun spila á svo-
kölluðu Kölskakvöldi á Sódómu í
kvöld. Dikta er líklegast vinsælasta
hljómsveit landsins um þessar
mundir, en ljúft popp-rokk þeirra
hefur náð mjög breiðum aðdáenda-
hópi síðustu árin.
Ansi stirt í byrjun
Meðlimir hljómsveitarinnar eru
fjórir; Haukur, Skúli og tveir Jónar.
Þeir eru allir æskuvinir úr Garða-
bænum nema Haukur sem er af
Álftanesinu, „en það er nú verðandi
Garðabær, þannig að það telst með,“
segir Jón Bjarni trommuleikari
Diktu. Þeir byrjuðu að spila saman á
meðan þeir voru í grunnskóla og
hafa haldið því áfram til dagsins í
dag, semsagt ein fjórtán ár. „Það
væri nú fyndið að eiga upptöku af
fyrstu hljómsveitaræfingunni okkar
svona til samanburðar við hvernig
þetta er í dag,“ segir Jón og hlær.
Dikta með ný lög
Aðspurður hvernig þróunin hafi
verið í tónlistinni hjá þeim og við
hverju menn megi búast af nýju lög-
unum þeirra segir Jón Bjarni að þeir
setji sér engin markmið um hvert
skuli stefna. „Kannski var meiri
gredda í okkur þegar við vorum
yngri, en samt finnst mér ennþá nóg
af greddulögum hjá okkur. En það
er örugglega meiri fágun í þessu hjá
okkur í dag. En áhorfendur verða að
dæma um þetta, því við komum með
ný lög á þessa hátíð. Við komum allt-
af með eitthvað nýtt á Airwaves og
þessi hátíð hefur því verið okkur
holl, hún ýtir við okkur með tón-
smíðarnar,“ segir Jón Bjarni. „Svo
er hátíðin bara svo rosalega
skemmtileg, stemningin er svo góð,
við hlökkum mikið til.“
Morgunblaðið/Eggert
Stemning Hljómsveitin Dikta á Menningarnótt í Reykjavík 2010.
Dikta á Kölskakvöldi
Heimasveit Dikta
„GEÐVEIKISLEGA
FYNDIN“
- SHAWN EDWARDS,
FOX-TV
Frábær gamanmynd
frá þeim sömu og
færðu okkur “40 Year
old Virgin” og
“Anchorman”
FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS
7
Steve Carrell og Paul Rudd
fara á kostum ásamt Zach
Galifianakis sem sló
eftirminnilega í gegn
í “The Hangover”
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
BEN AFFLECK LEIKUR BANKARÆNINGJA Í SINNI BESTU
MYND TIL ÞESSA
HHHH
„ÞESSI LÆTUR KLÁRLEGA SJÁ SIG Á
ÓSKARNUM Á NÆSTA ÁRI.“
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHHH
“ÞETTA ER EINFALDLEGA BESTA MYNDIN
SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU”
- Leonard Maltin
HHHH
“EF ÞAÐ ER TIL MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ
SJÁ, ÞÁ ER ÞAÐ ÞESSI”
- Boxoffice Magazine
HHHH
“THE TOWN ER ÞRILLER EINS OG ÞEIR
GERAST BESTIR OG RÚMLEGA ÞAД
- Wall Street Journal
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
Dýrin e
mætt....o
þau eru ek
ánæg
Bráð-
skemmtileg
grínmynd
fyrir alla
fjölskylduna
HHH
- D.H. EMPIRE
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLA
BESTA SKEMMTUNIN
WALL STREET 2 kl.8-10:30 L
EAT PRAY LOVE kl.8 L
SOLOMON KANE kl. 10:30 16
/ SELFOSSI
FURRY VENGEANCE kl.6 L
THE TOWN kl.8 -10:30 16
ALGJÖR SVEPPI OG... kl.6 L
DINNER FOR SCHMUCKS kl.8-10:10 L
/ AKUREYRI
THE TOWN kl.6-8-10-10 16 FURRY VENGEANCE kl.6-8 L
THE TOWN kl.8-10:40 VIP GOING THE DISTANCE kl.8:30 L
DINNER FOR SCHMUCKS kl.6-8:15-10:30 7 ALGJÖRSVEPPIOG... kl.63D L
SOLOMON KANE kl.8:15-10:40 16 AULINN ÉG m. ísl. tali kl.6 L
SOLOMON KANE kl.5:50 VIP THE GHOST WRITER kl.10:40 12
/ ÁLFABAKKA
THE TOWN kl.8-10:10-10:40 16
FURRY VENGEANCE kl.6 L
GOINGTHEDISTANCE kl.8 L
ALGJÖRSVEPPIOG... kl.63D L
STEP UP 3 - 3D kl.83D 7
INCEPTION kl. 10:10 12
L
/ KRINGLUNNI