Morgunblaðið - 22.10.2010, Side 4

Morgunblaðið - 22.10.2010, Side 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ M enn fara í sjóinn svo lengi sem Nauthólsvíkin botnfrýs ekki og það hefur aldrei gerst. Met- ið mitt er að hafa lagst til sunds þegar sjórinn var mínus 1,7 gráð- ur og þá var krapi í víkinni. Upp- lifun af slíkum kulda er nánast ólýsanleg,“ segir Heimir Örn Sveinsson sjósundsmaður. Sjósund nýtur sívaxandi vin- sælda og iðkendum fjölgar stöð- ugt. Heimir Örn er fyrrverandi keppnismaður í sundi. Hann byrj- aði aftur í sundinu fyrir þremur árum, þá eftir fimmtán ára hlé, til að vera í góðu formi fyrir sjósund. Iðkun sjóbaða og -sunds hér á landi á sér langa sögu og hefð, samanber að áður fyrr var sund kennt í sjó hér á landi. Þá voru sjósundshetjurnar Eyjólfur Jóns- son, Benedikt Waage og Erlingur Pálsson áhrifamiklir. Margir þeirra sem stunduðu sjósund fyrr á tíð voru lögreglumenn og löng hefð er fyrir nýárssundi þeirra sem 300 manns þreyttu í upphafi þessa árs. „Með mikilli fjölgun iðkenda hafa sjóböð og sjósund færst úr fámennum og einangruðum fé- lagshópum í gróskumikla almenn- ingsíþrótt. Þegar ég prófaði fyrst sjósund, fyrir fimm árum, voru ekki margir sem stunduðu sjósund að staðaldri og hvað þá yfir vet- urinn. Þetta var fimm til tíu manna hópur úr garpahópi Sund- félags Hafnarfjarðar, lögreglu- menn og nokkrir fleiri,“ útskýrir Heimir sem er formaður sjósund- snefndar Sundsambands Íslands. Sprenging í fjölda iðkenda Sjósund er stundað um allt land og á Reykjavíkursvæðinu við Gróttu, Álftanes, í Hvalfirði og víðar. Flestir fara þó í Nauthóls- víkina. Aðstaðan þar var lengi framan af býsna bág en hefur ver- ið stórbætt í seinni tíð. Árið 2001 opnaði ÍTR aðstöðu þar fyrir sjó- sundsfólk og var eins og við manninn mælt að aðstaðan skap- aði áhuga. Haustið 2007 var svo ákveðið að hafa opið árið um kring. „Hrunshaustið 2008 varð algjör sprenging í fjölda iðkenda og mæta að jafnaði 100 til 150 manns á æfingar í Nauhólsvík. Kannski má segja að fólk hafi leitað hugg- unar og útrásar í faðmi hafsins og til að gleyma öllum kreppuvand- ræðum. Enda er bannað að tala um kreppuna í heita pottinum í Nauthólsvík. Er svo komið að að- staðan er að springa utan af okkur enda er nú unnið að því hjá ÍTR að stækka heitu pottana og setja upp sánabað fyrir iðkendur.“ Skemmtun og heilsubót Sjósunds- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur var stofnað fyrr á þessu ári. Félagið hefur fengið góðar undirtektir og hefur staðið fyrir fjölda viðburða. Formaður þess er Benedikt Hjartarson sem á sínum tíma synti yfir Erma- sundið. Það þótti mikið afrek og telur Heimir það hafa átt stóran þátt í því að auka áhuga á sjó- sundi almennt. Heimir segir að langstærstur hluti þeirra sem stunda sjósund í dag, 80-85 %, iðki það sér til skemmtunar og heilsubótar. Hinir eru þröngur hópur fólks sem æfir sérstaklega til að synda lengri sund, til dæmis Drangeyjar- og Viðeyjarsund, þríþraut og keppa í formlegum víðavatnssundkeppnum sem víðar eru haldnar. Er á vett- vangi Sundsambands Íslands nú unnið að því að setja regluverk um slíka sundiðkun – enda mun það auka öryggi auk heldur sem greinin mun öðlast vægi og fá tímabæra viðurkenningu. www. sundsamband.is www. nautholsvik.is sjor.is sbs@mbl.is Kappsemi Iðkendum í sjósundi hefur fjölgað mikið á síðustu misserum og Íslandsmet í fjölda þátttakenda var slegið þegar stór hópur fólks synti frá Sundahöfn og út í Viðey. Huggun í faðmi hafs Sjósundsfólki fjölgar stöðugt. Ólýsanleg tilfinning að synda í köldum sjónum og gott fyrir sjóinn. Um 150 æfa að staðaldri í Nauthólsvík þar sem aðstaðan verður sífellt betri sem á sinn þátt í mikill fjölgun iðkenda. Flestir stunda sundið sér til heilsubótar. ’ Sjósund er stundað um allt land og á Reykjavíkursvæðinu við Gróttu, Álftanes, í Hval- firði og víðar Flestir fara þó í Nauthólsvíkina. Garpar Sundkapparnir Heimir Örn Sveinsson og Benedikt Hjartarson á þangi grónum steini í Nauthólsvíkinni eftir góðan sprett í köldum sjónum. Fyrir þá sem vilja stunda sjósund er best að mæta í Nauthólsvík þar sem yfir vetrartímann er opið í eftirmið- daginn og í hádeginu á auglýstum tímum. „Mikilvægt er að fara varlega í fyrstu ferðum. Yfir vetrartímann er sjórinn frá -1,5° til 4°. Þeir allra hörð- ustu eru um fimm til fimmtán mín- útur í sjónum en byrjendur hálfa til eina mínútu,“ segir Heimir Sveins- son. Mesta hindrunin í sjósundi er að komast yfir áfall vegna kulda sjávar. Til að minnka áfallið er gott að bíða á ströndinni til að kæla sig aðeins niður áður. Eftir um hálfa míntútu í köldum sjónum dofnar líkaminn og vellíðunartilfinning kemur fram. Þeg- ar komið er upp úr er mikilvægt að anda djúpt inn og út til að komast yfir sjokkið. Fara síðan í heita pott- inn eftir tvær til þrjár mínútur. „Mín upplifun er sú að líffæri verða virkari og minna um vetrar- kvef. Eftir smástund í sjónum verður jafnvægisástand í líkamanum sem skapar vellíðan. Háræðar dragast saman og líkaminn dofnar. Vís- indamennirnir kalla þetta væga of- kælingu sem er næsta stig á undan ofkælingu. Með sjósundi lærir þú að þekkja betur inn á sjálfan þig og lík- amann þinn. Það er einfaldlega stór- kostlegt að upplifa frelsið sem felst í því að synda í sjónum.“ Jafnvægisástand sem skapar vellíðan NÝ SENDING FRÁ Skoðið yfirhafnir á laxdal.is Laugavegi 63 • S: 551 4422

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.