Morgunblaðið - 22.10.2010, Síða 15

Morgunblaðið - 22.10.2010, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ | 15 Nýtt 20% afsláttur Gildir í október Haustið er komið!Á ætla má að um tíundi hluti þjóðarinnar finni fyrir and- legum þyngslum af ein- hverju tagi í skammdeginu. Allflestir ná að komast í gegnum þær hindranir sem slíku fylgja án utanað- komandi hjálpar enda þó aðstoð lækna og annars fagfólks reynist oft nauðsynleg í hinum alvarlegri tilvikum. Seinna til allra verka „Dimmustu vetrarmánuðirnir, frá í nóvember og fram í mars, þeg- ar myrkrið grúfir eru fólki oft erfiðir. Þetta eru ekki endilega veikindi, frekar að ströggl hins daglega lífs verður fólk erfiðara úrlausnar og þá geta ýmsir áhrifa- þættir verið undirliggjandi, svo sem árekstrar í samskiptum, stúss í sam- bandi við börnin, fjárhagsáhyggjur og fleira. Í vetrarmyrkrinu magnast einkenni af þessum völdum,“ segir Andrés Magnússon geðlæknir á geðsviði Landspítalans. Skammdegisdrungi og þunglyndi eru hvort sinn hlutirinn. Í fyrra til- vikinu er oft um að ræða að slen er yfir fólki og það seinna til allra verka. Það er svo segin saga að þegar birta tekur verður brúnin á fólki léttari og vandamálin víkja. Göngutúrinn er góður „Oftast nær fólk að krafla sig sjálft fram úr skammdegisdrungnum án hjálpar,“ útskýrir Andrés sem segir þunglyndi annað og alvarlegra mál. Samkvæmt almennum skilgrein- ingum sé fólk þá í tvær vikur eða lengur orku- og einbeitingarlaust auk þess að ala með sér svartsýnis- og vonleysishugsanir. Við þessu er mik- ilvægt að bregðast – og þá getur notkun ljósalampa reynst vel. „Í skammdeginu er fólki mikilvægt að nýta birtuna. Góður göngutúr í há- deginu gerir fólki gott, inni við ætti fólk helst að vera í björtu húsnæði og nota ekki dökkar gardínur í svefn- herbergi. Þá reynist mörgum vel að sitja við ljósalampa í svo sem klukku- stund á dag, það er viðurkennt ráð gegn skammdegisþunglyndi. Sumir grípa svo til þess ráðs að fara í sól og á suðlægari slóðir yfir veturinn og þá hverfur þetta óyndi á skömmum tíma,“ segir Andrés. Birtan mörgum um megn Þó svo að öllum almenningi finnist skammdegismánuðirnir yfirleitt erf- iðastir, þá er það samt sem áður svo, að þyngstu þunglyndistilfellin koma yfirleitt inn á geðdeildir á vorin – þegar daginn er farið að lengja. Mörgum reynist þá birtan um megn og þunglyndið sækir á, þótt mót- sagnakennt hljómi enda liggi skýr- ingar á því ekki ljósar fyrir, að sögn Arndrésar. sbs@mbl.is Í skamm- degi er mikilvægt að nýta birtuna Myrkustu mánuðirnir eru mörgum erfiðir. Ströggl og daglegt líf verður erfitt. Óyndið hverfur í ljósinu og hreyfing gerir gott. Andrés Magnússon Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.