Morgunblaðið - 22.10.2010, Síða 16
Brjóstsykurs-
gerð og
útsaumur
16 | MORGUNBLAÐIÐ
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 • www.belladonna.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
Flottar
úlpur fyrir
flottar
konur
Stærðir 40-60
Vertu vinur á Facebook
Ilmkerti í ljósbláu og bleiku. 995 krónur stykkið.
Kerti hljóta að teljast til nauðsynjavara í skammdeginu
enda fátt sem getur framkallað eins notalegt andrúmsloft
og kertaljós. Í Ikea er hægt að fá fjöldann allan af fallegum
kertum á ágætu verði.
birta@mbl.is
Þrefallt kerti í
svartri skál. Kost-
ar 995 krónur.
Tíu græn kerti saman í
pakka á 695 krónur.
Kubbakerti í
ýmsum litum.
395 krónur.
Fjögur
kerti í glasi
kosta 595
krónur.
Lugt fyrir sprittkerti kostar
3.490 krónur.
Kertaljós í skammdeginu
Meðal námskeiða sem í boði eru hjá Heimilisiðnaðarskólanum í
vetur eru:
Faldbúninganámskeið: Um er að ræða þriggja ára nám-
skeiðaröð.
Svuntuvefnaður: Ofið í 19. aldar svuntu að eigin vali undir hand-
leiðslu kennara.
Skírnarkjólar: Nemendur fullvinna kjóla undir leiðsögn kennara.
Sauðskinnsskór og íleppar: Nemendur læra að gera þennan
forna fótabúnað.
Spjaldvefnaður: Námskeið og framhaldsnámskeið í þessari
ævafornu vefnaðartækni.
Prjón fyrir karla: Grunnnámskeið í helstu prjónaaðferðum.
Prjóntækni-Aðferðir: Meðal aðferða sem kenndar eru má nefna
perluprjón, klukkuprjón, kaðlaprjón og tvíbandaprjón.
Lopapeysuprjón: Kennt að prjóna lopapeysu frá grunni.
Dúkaprjón: Þátttakendur læra undirstöðuatriði í dúkaprjóni.
Leðursaumur: Skorið, sniðið og saumað úr leðurbútum.
Námskeið í vetur
P
rjónaskapur og önnur handa-
vinna hefur aukist mikið hér-
lendis síðustu ár og æ fleiri
hafa hug á að framleiða sjálf-
ir flíkur fyrir sig og sína í heima-
húsum.
Eins og á öðrum sviðum liggur
handavinnan misvel fyrir fólki og því
gott að vita fyrir þá sem telja færni
sinni á þessu sviði ábótavant að fjöldi
námskeiða er í boði.
Heilmilisiðnaðarfélag Íslands
stendur fyrir ýmiss konar nám-
skeiðum fyrir þá sem vilja prjóna,
hekla, vefa og sauma, og eru í boði
námskeið fyrir byrjendur sem og
lengra komna.
Soffía Magnúsdóttir er skólastjóri
Heimilisiðnaðarskólans og hún segir
eftirspurnina hafa aukist jafnt og
þétt frá árinu 2007.
„Þá héldum við ráðstefnu Samtaka
norrænna heimilisiðnaðarfélaga hér
á landi og höfðum fyrir það samband
við ýmsar stofnanir hérlendis sem við
héldum að vildu taka þátt í því með
okkur,“ segir Soffía og nefnir
Listaháskóla Íslands, Þjóðminjasafn-
ið og kennara í grunn- og framhalds-
skólum sem dæmi um samstarfsaðila.
„Þema ráðstefnunnar var hvernig
við gætum fært gamalt handverk til
nútíðar og útkoman varð afar góð.“
Jólanámskeið í nóvember
Eins og fyrr sagði er fjöldinn allur
af námskeiðum í boði hjá félaginu,
eða alls um 65 námskeið.
„Við bjóðum meðal annars upp á
ýmis jólanámskeið í nóvember, til
dæmis jólavefnað, námskeið í að
tálga jólasveina, náttúrukransagerð
og brjóstsykursgerð furir börn og
unglinga,“ segir Soffía.
Áhugasamir geta haft samband við
Heimilisiðnaðarfélag Íslands ef þeir
vilja fræðast um námskeiðin eða skrá
sig á þau.
www.heimilisidnadur.is
birta@mbl.is
Heimilisiðnaðarfélag Íslands stendur fyrir námskeiðum
fyrir fólk sem vill prjóna, sauma, vefa eða hekla.
Orkeraðar stjörnur „Á námskeiðum hjá okkur er meðal annars kennd grunnaðferð við að hnýta blúndur og
dúka með þar til gerðri skyttu. Orkeraðar blúndur eru t.d. notaðar framan á peysufataermar,“ segir Soffía.
Vefstóll Vefnaður er meðal þess sem hægt er að
læra í Heimilisiðnaðarskólanum.
Í vetur er gott að hugsa um
hárið. Rakagefandi sjampó og
góðar næringar geta reynst
hárinu vel í frosti og kulda.
Body Shop kynnir nú nýjar
hárvörur sem geta státað sig
af því að innihalda hvorki para-
ben né sílíkon og litarefni auk
þess að vera umhverfisvænar.
Línan er kennd við regnskóga
en eitt helsta virka nátt-
úruefnið í vörunum er olía úr
fræjum prakaxítrés sem vex
innan Amason-svæðisins í
Brasilíu.
Hægt er að fá ferns konar
sjampó og hárnæringar í regn-
skógalínunni auk þess sem
ýmiss konar hármótunarvörur
eru einnig fáanlegar ásamt
hárnæringarúða.
Hárvörur úr
regnskóginum