Morgunblaðið - 22.10.2010, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.10.2010, Qupperneq 18
F rosti og vetrarkuldum er mikilvægt að verjast vel. Og það er hægt með- al annars með kremum sem eru unnin úr góðum fáanlegum hráefnum, til að mynda íslenskum lækningajurtum. Anna Rósa grasalæknir vinn- ur úr slíkum jurtum sem eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og til- búnum áburði. „Erlendu lækningajurtirnar sem ég vinn úr eru undantekningalaust lífrænt vottaðar, svo sem engifer og sólhattur. Kremin innihalda öll hátt hlutfall af líf- rænu shea-smjöri og kakósmjöri sem eru einstaklega nærandi og rakagefandi fyrir húðina. Tinktúrurnar sérblanda ég handa hverjum og einum, segir Anna Rósa. Tinktúran Sólhattur og hvönn er rótsterk jurtablanda sem inniheldur líka engifer og chili. Anna Rósa segir þessa blöndu góða til að rífa úr fólki kvef og flensur þegar fólk er orðið veikt. Allar jurtir í einni blöndu „Þetta er tinktúra sem margir nota sem forvörn. Hugmyndin á bak við þessa tinktúru kviknaði út frá því að margir eru að taka annað hvort sólhatt eða hvönn og blanda svo saman engifer og chili í te til að losna við flensur. Mér fannst hinsvegar tilvalið að hafa allar þessar jurtir í einni blöndu til að auka þægindin. Í tinktúrunni eru líka garðablóðberg og valhumall en allar eru þessar jurtir mjög þekktar lækningajurtir gegn kvefi, flensu og háls- bólgu,“ segir Anna Rósa. „Nauðsynlegt er að blanda þessa tinktúru út í vökva þegar hún er tekin inn því hún er rótsterk á bragðið. Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda og eru þær teknar inn sem fæðubótarefni. Þessi hefur fengið mjög góðar við- tökur hjá mér og margir hafa sagt mér frá því hvað hún virki vel.“ sbs@mbl.is Lækningajurtir nýttar gegn vetrarkuldanum Áhugi fólks fyrir lækningajurtum og lækningamætti þeirra hefur aukist mikið. Morgunblaðið/Ernir Gróður Frosti og vetrarkuldum er mikilvægt að verjast til að mynda með kremum úr íslenskum lækningajurtum, sem Anna Rósa vinnur. 18 | MORGUNBLAÐIÐ Barnasmyrslið Gott á kuldaútbrot á kinnum á krökkum. Hægt að nota sem varasalva fyrir börn, á þurrkubletti og barnaexem. Unnið úr morgunfrú, arfa og kamillu. 24 stunda kremið Rakagefandi og nærandi fyrir andlitið og hentar sérstaklega vel til að vernda gegn kulda. Gott fyrir útivistarfólk og þurra og þroskaða húð. Sárasmyrslið hefur slegið í gegn til að græða sár, sprungur og þurrkubletti. Margir nota það sem varasalva og á frunsur og því tilvalið að nota það á veturna. Græðikremið Vinsælt fyrir exem og sóríasis en það er vel þekkt að þessir húð- kvillar versna oft mikið í kulda og frosti. Rauðsmári og gulmaðra Fyrir exem og sóríasis sem margir taka að staðaldri. Grasalæknar ganga út frá þeirri kenningu að það sé nauðsynlegt að fást við exem og sórísais innvortis líka, ekki bara út- vortis með kremum. www.annarosa.is Urtameðul Önnu Rósu Árleg bólusetning gegn inflúensu er hafin hjá heilsugæslustöðvum víða um land. Samkvæmt upplýsingum á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er öllum yfir sextugt ráð- lagt að láta bólusetja sig og einnig börnum og fullorðnum á öllum aldri sem þjást af lang- vinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifr- arsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Þá er starfsfólki hvers kyns heilbrigðisþjón- ustu jafnframt ráðlagt að fá bólusetningu. Þeir sem tilheyra einhverjum af ofangreindum hóp- um fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu, en aðrir greiða fyrir það 1.000 krónur. Allir þurfa þó að greiða komugjald á heilsugæsluna, þar sem bólusetningin fer fram. Veirusýning Bólusett er gegn inflúensu en það er veirusýk- ing sem einkennist af háum hita, þurrum hósta, höfuðverk, beinverkjum, oft með hálssærindum og nefrennsli. Árviss faraldur af völdum inflúensu A og oft- ast einnig af völdum inflúensu B hefst oft í des- ember eða janúar, en gera verður ráð fyrir að upphaf inflúensufaraldurs geti verið frá október til mars, segir meðal annars á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Morgunblaðið/Ómar Hiti, hósti og höfuðverkur Kvef Árlega veikjast margir af inflúensu. Bólusetning gegn innflúensu hafin á heilsugæslustöðvum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.