Morgunblaðið - 22.10.2010, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ | 19
Á
hugi á enska fótboltanum
er mikill og margir fara
utan á hverjum vetri til að
fylgjast með leik eða leikj-
um sinna uppáhaldsliða. „Ferðir á
enska boltann hafa dregist saman
síðustu tvö árin. Það er enn mikill
áhugi fyrir enska boltanum enda
stemningin á leikjum þar einstök
svo jafnvel fólk með takmarkaðan
fótboltaáhuga hrífst með og
skemmtir sér konunglega,“ segir
Hörður Hilmarsson fram-
kvæmdastjóri ÍT ferða.
Fyrirtæki Harðar býður fjöl-
breytt úrval utanlandsferða árið
um kring; í rauninni allt nema
hefðbundnar sólarlandaferðir. Liv-
erpool og Man. Utd. eru lang-
vinsælustu félögin sem helst í
hendur við að flestir héðan sækja
leiki þeirra liða.
Einu sinni á vetri
„Jafnvel þegar illa gengur, eins
og hjá Liverpool FC undanfarið,
þá eru stuðningsmennirnir tryggir
og vilja heimsækja Anfield, að
minnsta kosti einu sinni á vetri.
Sama má segja um Man. Utd. og
Old Trafford. Arsenal er einnig
mjög vinsælt og sömuleiðis
Chelsea og reyndar eiga mörg
ensk félög dyggan hóp stuðnings-
manna á Íslandi, þótt ferðir þeirra
á leiki í Englandi séu ekki eins al-
gengar og þeirra tveggja vinsæl-
ustu,“ segir Hörður.
Það þarf þó ekki endilega að
fara á Anfield eða Old Trafford til
að komast á skemmtilegan leik í
Englandi. Hörður segir að oftast
sé einfaldara og ódýrara að útvega
miða á leiki Bolton, Everton, New-
castle og fleiri félaga, jafnvel þeg-
ar þau leika gegn einu af hinum
fjórum stóru, þ.e. Arsenal,
Chelsea, Liverpool FC og Man.
Utd. Megi þar nefna ferð til New-
castle 4. til 7. febrúar næstkom-
andi þegar heimamenn taka á móti
Arsenal. Newcastle sé auk heldur
mjög lífleg borg sem gaman er að
heimsækja, ekki síður en Man-
chester og Liverpool.
Bítlar og bolti
Árshátíðarferðir fyrirtækja og
alls kyns félagahópa til útlanda
hafa nánast lagst af, eftir efna-
hagshrunið. Þess í stað er hjá ÍT
ferðum lögð aukin áhersla á tón-
leikaferðir, sögu- og menning-
arferðir og sérferðir. Raunar er
reynt að setja sitthvað í pakkann –
svo sem leik í enska boltanum,
tónleikar eða annað skemmtilegt
sem er í boði þá helgi sem viðkom-
andi ferð er sett á. Þannig er í vet-
ur á dagskrá Bítla- og boltaferð til
Liverpool, með Óttari Felix
Haukssyni og ferð í svipuðum
anda til Manchester á vormán-
uðum; það er sameinaðar bolta- og
tónleikaferðir án þess að kaupa
þurfi miða á hvort tveggja.
www.itferdir.is
sbs@mbl.is
Boltaferðirnar hitta beint í mark
Utanferðir landans eru
með breyttum brag. Margir
fara þó út á hverjum vetri,
til dæmis í fótboltaferðir til
Englands sem þykja ein-
stök skemmtun.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ferðalangar Starfmenn ÍT-ferða, frá vinstri talið Fannar Helgason, Hannibal Hauksson og Hörður Hilmarsson.
sunneva
Íslenskar mokkaflíkur
Sunneva Design
Skúlatúni 4, Sími 899 3241
sunnevadesign.com
„Þegar kólnar fer kemur fólk hingað
inn, ef til vill rjóðara í kinnum en
venjulega, stoppar lengur og vill
kannski rólegri tónlist en alla jafna,“
segir kaffibarþjóninn Sonja Grant
sem ásamt Ingibjörgu Jónu stafrækir
Kaffismiðju Íslands sem er við Kára-
stíg í Reykjavík. Sonja hefur getið sér
gott orð sem einn fremsti og besti
kaffibarþjónn þjóðarinnar og hafa
drykkir hennar skorað hátt.
„Kaffi latte er alltaf vinsælt og
þegar líður nær jólum verður eftir-
sóttara að fá slíkt kaffi með auka-
bragði eins og kanil, negul eða appel-
sínu. Þá er macchiató vinsælt –
tvöfaldur expressó með mjólkur-
froðuhatti,“ segir Sonja sem finnur
þess strax merki að kaffiáhugi land-
ans hafi vaxið – nú þegar kólna tók á
haustdögum.
Chai er drykkur sem bruggaður er
í eldhúsi Kaffismiðjunnar, en hann
þarf þriggja tíma suðu á lægsta
straumi. „Við setjum sitt lítið af
hverju í pottinn; svo sem sojamjólk,
Oolong-te, kanil, vanillu. Og þetta
drekka allir og er ekki síst vinsælt
meðal ófrískra kvenna,“ segir Sonja.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Kaffikonur Sonja Grant og Ingibjörg samstarfskonar hennar.
Heitir kaffidrykkir og rjóðari kinnar