Morgunblaðið - 22.10.2010, Side 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ
F
jalla- og jeppamenningin hef-
ur verið í mikilli þróun á
undanförnum árum og þá
ekki síst vetrarferðir. Mér
finnast þær jafnvel skemmtilegri en
ferðalög að sumrinu til enda er
óvissan og ögranirnar meiri,“ segir
Snorri Ingimarsson, jeppamaður og
verkfræðingur.
Mikil gróska í sportinu
Þúsundir Íslendinga stunda
jeppaferðir yfir vetrartímann. Hef-
ur verið mikil gróska í því sporti
undanfarna áratugi þó heldur minni
sl. tvö ár. Bílarnir verða stöðugt
betri og sífellt er verið að prófa nýja
hluti. Mörg verkstæði eru sérhæfð í
jeppabreytingum enda þótt merk-
ustu nýjungarnar komi jafnan fram
hjá þeim sem fást við breytingar
heima í bílskúr.
„Ég er núna á Nissan Patrol sem
er á 44 tomma dekkjum auk þess
sem búið er að færa til afturhás-
ingu, klippa úr brettum og breyta
ýmsu fleira sem þarf til að ná sem
mestu út úr bílnum. Jafnframt er
aukamillikassi í bílnum eða nokkurs
konar skriðgír sem kemur sér af-
skaplega vel í snjóakstri, til dæmis í
blota og brekkum. Á þeim átta ár-
um sem ég hef átt þennan bíl eru
komnir enn stærri og aflmeiri bílar
sumir á allt að 54 tomma dekkjum,“
segir Snorri sem er einmitt að und-
irbúa smíði á einum slíkum.
Jöklarnir féllu einn af öðrum
Lengi man til lítilla stunda. Fyrir
um fjörutíu árum var Snorri með
pabba sínum og bróður á leiðinni
austur í sveitir um Lyngdalsheiði
þar sem Austin Gipsy-jeppinn sem
þeir voru á festist í snjóskafli. Bílinn
náðist upp eftir svolítið bras sem
aftur varð til þess að vekja áhuga
Snorra á vetrarferðum til viðbótar
við bíladelluna sem hann ungur tók.
„Fyrsta alvöruvetrarferðin á
jeppa sem ég fór í var um páskana
árið 1982. Þá fórum við nokkrir fé-
lagar inn á Hveravelli og þaðan svo
áfram suður fyrir Hofsjökul, með
Arnarfellsmúla í Nýjadal og svo
suður Sprengisandsleið til byggða. Í
páskaferð árið eftir var farið norður
Kjöl og 1984 renndum við okkur
norður fyrir Hofsjökulinn og þá
leiðina á Sprengisand. Á þjóðhátíð-
ardag sama ár, 1984, fórum við
fyrstir allra á jeppum inn í Gríms-
vötn á Vatnajökli. Upp úr því féllu
jöklarnir einn af öðrum fyrir jeppa-
ferðamönnum og jöklaferðir á jepp-
um hafa verið mikið stundaðar síð-
an,“ segir Snorri og nefnirþar
sérstaklega að vinsælt hafi verið
meðal jeppamanna seinniárin að
aka um Langjökul síðari hluta vetr-
ar – og fara þá leiðina á Hveravelli.
Þursaborgir og Sólkatla
„Skemmtilegast hefur mér fund-
ist að leggja upp af Lyngdalsheiði,
milli Laugarvatns og Þingvalla, og
taka þar beina stefnu að jöklinum.
Fara að Þursaborgum sem eru á
jöklinum miðjum. Algengast er að
fara áfram norður eftir jöklinum en
skemmtilegt afbrigði er að fara nið-
ur á Sólkötlu og þaðan áfram þvert
yfir Kjalveg og í Kerlingarfjöll,“
segir Snorri og bætir við að vetrar-
ferðir jeppamanna hafi að sinni
hyggju haft góð áhrif á ferða-
mennskuna almennt. Þegar landið
sé ein alhvít snjóbreiða séu leiðirnar
greiðar og hægt að komast hvert á
land sem er.
„Þetta hefur svalað þeirri land-
nemaþörf sem býr með hverjum
einasta jeppamanni. Gefið þeim kost
á að kynnast nýjum slóðum en löng-
un til þess held ég að búi í flestum,“
segir Snorri sem undirstrikar mikil-
vægi þess að farið sé fram af for-
sjálni. Þegar ekið sé um jökla sé
nauðsynlegt að fara eftir þekktum
leiðum og kanna hvernig snjóalög
eru yfir sprungum hverju sinni.
Slys í giljum og dölum
Starf Ferðaklúbbsins 4x4 er öfl-
ugt og þar eru í deiglunni mörg mál
sem meðal annars snúa að vetr-
arferðum. Á árlegum landsfundi
klúbbsins sem nýverið var haldinn í
Kerlingarfjöllum var meðal annars
farið yfir mál er snúa að umhverf-
ismálum og ferðafrelsi, Evrópu-
reglum um jeppabreytingar og
rekstur þeirra skála sem lands-
byggðadeildir eiga víðsvegar um há-
lendið. Fjarskiptamál voru rædd en
NMT-kerfi símans er nú aflagt.
GSM-kerfið þykir ágætt til síns
brúks en vandamál eru við notkun
þess vegna þess að erfitt er að fá
GSM-símtæki sem duga og svo eru
dreifikerfi símafyrirtækjanna
tveggja ekki samtengd þannig að
helst þarf að hafa tvö kort, bæði frá
Símanum og Vodafone, með í för.
Auk þess er virkni GSM-kerfanna
ekki jafn víðfeðm og ætla mætti við
fyrstu sýn og víða eru dauðir punkt-
ar.
„Þetta er mjög bagalegt því stað-
reyndin er sú að slysin verða eink-
um og helst á dauðu blettunum; of-
an í giljum og dölum þar sem ekki
er símasamband,“ segir Snorri sem
telur mikilvægt að efla fjar-
skiptanetið – hvort heldur er síma-
eða talstöðvakerfi. Í raun sé lífs-
spursmál fyrir jeppamenn og fjalla-
ferðir þeirra á veturna að þessi mál
séu í lagi. Í vetrarferðum geti orðið
snögg veðrabrigði og þá er mönnum
mikilvægt að geta komið frá sér
neyðarboðum bregði eitthvað út af.
Rætt var um að efla VHF-
endurvarpakerfi klúbbsins til neyð-
arfjarskipta, ef það verður sam-
tengt og vaktað mun líklega verða
til eitt öflugasta neyðarfjar-
skiptakerfi landsins fyrir almenn-
ing.
Á fjöllum Jeppi við skála Útivistar á Fimmvörðuhálsi. Svæðið hefur lengi freistað jeppafólks og eldgosið í fyrra dró svo sannarlega ekki úr þeim áhuga.
Vetrarferðir fyrir landnemana
Jeppamenn leggja landið að fótum sér
yfir vetrartímann. Sigra jöka á æ betri
bílum. Mikil upplifun. Fjarskiptamálin
eru í brennidepli meðal fjallakarla.
Áning Notalegt nestisstopp í fjallaferð undir bláhimni og í blíðskaparveðri á fjöllum.
Ljósmynd/Úr einkasafni
Bílar Jeppar og fólk undir Goðasteini, sem er hæsta bungan á Eyjafjallajökli, ári fyrir eldgosið.
Fjallamaður Snorri Ingimarsson
hefur stundað jeppaferðir lengi.
’
Ég er núna á Nissan
Patrol sem er á 44
tomma dekkjum auk
þess sem búið er að færa
til afturhásingu, klippa úr
brettum og breyta ýmsu
fleira sem þarf til að ná
sem mestu út úr bílnum.