Morgunblaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2010
Steingrímur J. Sigfússon sagðist„hafa fullt umboð“ til að halda
áfram að styðja aðlögunarviðræður
að Evrópusambandinu.
Samfylking-armenn telja sig
einnig augljóslega
„hafa fullt umboð“ til
að hæðast að al-
mennum fé-
lagsmönnum Vinstri
grænna eftir málefnaþing þeirra, þar
sem rætt var um Evrópumál og Stein-
grímur og lið hans fór mjög halloka.
Össur Skarphéðinsson, sá sem vél-aði VG til að ljá máls á því að
svíkja sínar helstu hugsjónir fyrir að-
gang að ríkisstjórnarborði, líkti þeim
við vitleysinga í útvarpsþætti nýlega.
Og það má til sanns vegar færa aðforystumenn VG voru svo græn-
ir og lítt til vinstri að þeir trúðu því að
þeir þyrftu að borga með sér fúlgur
fyrir að tryggja Samfylkingunni
áfram valdaðstöðu í ríkisstjórninni
sem Samfylkingin hefði aldrei gefið
frá sér. Þess vegna var allt það svikið
sem af mestum þrótti hafði verið lof-
að áður.
Þannig virtist það að minnsta kostivera.
En nú skrifa samfylkingarmenn-irnir að Steingrímur J. og Árni
Þór vilji innst inni ganga í ESB, þótti
þeir „þori ekki“ að viðurkenna það.
Þeir eigi því að herða upp hugannog yfirgefa „vinstri sósíal-
istabælið“ eins og þeir samfylking-
armenn orða það nú og ganga til liðs
við Samfylkinguna að formi til, þar
sem þeir hafi gert það að efni til í
hjarta sínu.
Getur þetta verið rétt?
Steingrímur J.
Sf gerir spé að VG
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.10., kl. 18.00
Reykjavík 6 léttskýjað
Bolungarvík 2 rigning
Akureyri 1 súld
Egilsstaðir 4 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 5 léttskýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 9 alskýjað
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 6 heiðskírt
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 1 léttskýjað
Lúxemborg 7 heiðskírt
Brussel 8 heiðskírt
Dublin 16 skýjað
Glasgow 15 skúrir
London 11 skúrir
París 11 heiðskírt
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 6 skýjað
Vín 7 skýjað
Moskva 7 skýjað
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 20 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 15 skúrir
Aþena 21 heiðskírt
Winnipeg 11 skúrir
Montreal 10 alskýjað
New York 20 heiðskírt
Chicago 15 skýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:56 17:29
ÍSAFJÖRÐUR 9:11 17:23
SIGLUFJÖRÐUR 8:54 17:06
DJÚPIVOGUR 8:28 16:56
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Heimreiðinni að bænum Núpsstað í
Fljótshverfi hefur verið lokað með
stórum steinum og járnkeðju þar
sem stendur á skilti: „Öll umferð
bönnuð.“ Eigandi jarðarinnar,
Hannes Jónsson, ferðaþjónustu-
bóndi á Hvoli í Skaftárhreppi, ákvað
að loka heimreiðinni þar sem engin
varsla eða eftirlit er tryggt við bæ-
inn, auk þess sem umgengni ferða-
manna um staðinn hefur að hans
sögn verið mjög slæm.
Engin búseta hefur verið á
Núpsstað eftir að Filippus Hann-
esson, móðurbróðir Hannesar, lést
fyrr á þessu ári en hann bjó lengi á
bænum ásamt bróður sínum, Eyj-
ólfi, sem lést fyrir fáum árum. Hefur
Núpsstaður löngum verið vinsæll
áningarstaður ferðafólks og bærinn
t.d. verið eftirsótt myndefni með
Lómagnúp í baksýn.
Þjóðminjasafnið hefur haft
bænhúsið á Núpsstað í sinni vörslu
frá árinu 1957. Starfsmaður á vegum
safnsins var þar í sumar við gæslu
og leiðsögn en safnið hafði einnig
frumkvæði að því að koma upp
snyrtiaðstöðu á staðnum fyrir ferða-
menn sem heimsækja Núpsstað. Þá
lagði ríkissjóður fyrir nokkrum ár-
um til 60 milljóna króna styrk í við-
gerðir á bæjarhúsunum, sem unnar
voru undir stjórn Þjóðminjasafnsins
en í samráði við Núpsstaðarbræður.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður segist í samtali við
Morgunblaðið vænta áframhaldandi
góðs samstarfs við nýja eigendur
Núpsstaðar, enda þannig ávallt ver-
ið frá því bænhúsið komst í vörslu
safnsins á 6. áratug síðustu aldar.
Lítur Margrét svo á að bænhúsið sé
á ábyrgð safnsins en önnur hús á
staðnum séu í eigu landeiganda.
„Nú er kominn nýr eigandi og
ég vænti þess að gott samkomulag
verði við hann um framtíðaraðgengi
að staðnum, sem og við sveitarfélag-
ið,“ segir Margrét og bendir á að á
Núpsstað séu merkar þjóðminjar
sem þurfi að varðveita og halda við.
Það sé hins vegar alfarið ákvörðun
landeigandans hvernig móttöku
ferðamanna á staðnum sé háttað.
Telur bænhúsið ekki þing-
lýsta eign Þjóðminjasafnsins
Hannes Jónsson á Hvoli segir
við Morgunblaðið að um einkaeign
sé að ræða og ekki sé sjálfsagt mál
að hafa opið aðgengi að Núpsstað án
nokkurs eftirlits. Dæmi séu um að
ferðafólk hafi gengið örna sinna á
bak við bæjarhúsin og skilið eftir sig
rusl og annan úrgang.
„Ég átti engan annan
kost en að loka heimreiðinni.
Þjóðminjasafnið útvegaði
starfsmann þarna í
sumar en sjálfur á ég
heima á Hvoli
skammt
frá þar
sem ég
hef verið
að
byggja upp ferðaþjónustu. Ég hef
ekki tök á því í augnablikinu að setj-
ast að á Núpsstað þó ég hafi samt
fullan hug á því, auk þess sem húsin
eru vart íbúðarhæf.“
Varðandi bænhúsið bendir
hann á að ekki séu til þinglýstir
pappírar um eign Þjóðminjasafnsins
á því. Þúsundir ferðamanna hafi
gegnum árin átt leið um Núpsstað
án þess að ábúendur hafi haft af því
nokkrar tekjur. Eingöngu í sumar
megi telja að hátt í 30 þúsund manns
hafi farið um Núpsstað og enginn
staður þoli slíka umgengni án þess
að hafa einhverja stjórn á henni.
„Á Núpsstað er ekkert annað að
gerast en hefur viðgengist víða um
land í allt of miklum mæli, það er
ókeypis aðgengi ferðaþjónustuaðila
að þekktum stöðum. Þegar framtíð
Núpsstaðar hefur borið á góma í
samtölum við opinbera aðila þá hafa
þeir litið niður á jörðina og sagt enga
peninga vera til núna,“ segir Hannes
en að hans sögn hafa engar viðræður
átt sér stað til þessa um framtíð
staðarins við opinbera aðila.
Ekki einfalt mál
Þórður Tómasson, safnvörður
Byggðasafnsins í Skógum, segir það
miður að aðgangi að Núpsstað hafi
verið lokað en málið sé ekki einfalt.
Ekki gangi upp að hafa aðgang op-
inn nema hafa einhvern á staðnum
til að taka á móti fólki. Spurningin sé
aðeins hvernig og hver eigi að
tryggja fjármagn til verksins. Þórð-
ur segist hafa fullan skilning á þeirri
ákvörðun landeigandans að loka
heimreiðinni á meðan varsla á Núps-
stað er ekki tryggð árið um kring.
Brýnt sé að halda áfram endur-
bótum á húsunum. Hlutaðeigandi
aðilar þurfi að komast að einhverju
samkomulagi um framhaldið.
Hjá Skaftárhreppi fengust þau
svör að engin formleg erindi hefðu
borist um aðkomu að málum á Núps-
stað, enda hefði hreppurinn enga
heimild til þess að fyrra bragði þar
sem um einkaeign væri að ræða.
Lokað heim að Núpsstað
Landeigandi Núpsstaðar hefur lokað heimreiðinni að bænum Bænhúsið í
vörslu Þjóðminjasafnsins Þjóðminjavörður væntir samstarfs við landeiganda
Núpsstaður Ferðamenn geta ekki ekið heim að Núpsstað vegna vega-
tálma á heimreiðinni. Tugþúsundir manna hafa sótt bæinn heim árlega.
Bænhúsið á Núpsstað hefur síð-
ustu árin verið í vörslu Þjóð-
minjasafnsins. Það var friðlýst
árið 1930, fyrst allra húsa á Ís-
landi, og var svo endurgert og
bætt upp úr miðri síðustu öld.
Var bænhúsið tekið til kirkju-
legra nota árið 1961, að því er
fram kemur á vef Þjóðminja-
safnsins.
Bærinn hefur löngum verið
mikið aðdráttarafl ferðamanna,
einkum bænhúsið og útihúsin,
og fyrrverandi ábúendur öm-
uðust ekki við heimsóknum fólks
að bænum. Filippus Hann-
esson bjó lengst allra
Núpsstaðarsystkina
á bænum en
hann lést í maí
sl., á 101. ald-
ursári.
Friðlýst 1930
BÆNHÚSIÐ Á NÚPSSTAÐ
Bænhúsið
á Núpsstað.